VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Ljóta pestin

30. maí 2008 klukkan 21:24

Eða skrifar maður Ímyndunarveiki....ég get ekki munað það. Ljóta pestin þessi, ímyndunarveiki. Einkennin eru ofsjónir og ranghugmyndir....Skömmustulegur Mikið hvað maður getur verið vitlaus. Takk fyrir að koma í heimsókn Guðbjörg, alltaf gaman að sjá þig.
Nótt er bara hress,yndisleg og góð. Henry er ennþá hjá okkur í góðu yfirlæti.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Kæra tengdó

29. maí 2008 klukkan 18:12

Takk fyrir að skrifa í gestabókinaHlæjandi  Og vonandi hefurðu haft gaman af lestrinum. Við Nótt upplifðum skjálftann sterkt í Trippen áðan, og ég  dreif mig heim til stelpnanna, og dýranna. Heima  var allt í rólegheitum, en bækur höfðu hrunið úr hillum og blómavasi á hliðina.
Nú er ég heima á skjálftavaktinni með börnum og dýrum.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Fékk að fara upp í sófann

29. maí 2008 klukkan 00:05

Henry fékk að fara smáááááástund upp í sófann í kvöld.......þá var nú eiginlega ekki pláss fyrir fleiriSkömmustulegur. Samt er um að ræða stóran hornsófa sko. Svo klessti hann hausnum ofan á mig og fór fram á strokur og kelerí.  Hann er alveg uber ómótstæðilegur.
Henry hefur lagt af í vistinni....held að það sé algengt að rakkarnir geri það, þegar þeir eru í svona "vinnu". Henry mætir því helköttaður og flottur í Fossatúnið.
Hér er megnið af heimilisfólkinu orðið ýmindunarveikt svo ekki sé meira sagt, því spenarnir á Nótt eru farnir að stækka og hún orðin svo kelin osfrv. Þvílíkt bull.
Þetta minnir mann á Nýju fötin keisarans.
Annars er planið framundan eftirfarandi.  Henry fer heim á föstudaginn og við  taka rólegir göngutúrar og afslapplesi hjá Nóttinni.
Við stelpurnar kíkjum jafnvel í sveitina um helgina.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Þá er þessu lóðaríi lokið

28. maí 2008 klukkan 14:44
Jæja. Þá er greinilegt að þessu tímabili er lokið. Alveg einstakt að fylgjast svona með náttúrunni. Nú er að bíða og sjá...hvað setur. Takk Dóri fyrir heimsóknina. Hann Dóri er viss um að það komi eitthvað út úr þessu.
Sjáum til. Vá hlakka til að fara heim í dag,það er svo gott veður.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Löngu farin í hundana.

27. maí 2008 klukkan 20:44
Já löngu farin í hundana og geri fátt skemmtilegra.Hlæjandi Fórum til Katrínar dýra í morgun. Það var síðasta heimsóknin í bili. Næst kíkjum við til þeirra 23.júní. Turtildúfurnar fá að spreyta sig fram á föstudag. Það verður ágætt að slaka á. Annars er framundan 14.júní sýningin í Fossatúni, og stóra sýningin í lok júní. Allt að gerast.



Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Lystarlaus

27. maí 2008 klukkan 00:03
Nú er gr.......orðin svo mikil hjá Henry að hann er að missa matarlystina. Hann lét sig þó hafa það fyrir rest ræfilstuskan. Hann er algjörlega spangólandi af gr....þið vitið. Rosalega merkilegt finnst mér Nótt er semsagt á 17.degi.
Ennþá engin festa. Katrín dýra, vill hitta okkur aftur í fyrramálið. Er þetta ekki að verða bara GOTT. Ég verð mikið fegin þegar þessu lóðaríi lýkur.Svalur Hvað sem þá tekur viðHlæjandi. Kemur í ljós.
Þar til næst.......yfir og út......og TAKK FYRIR AÐ FYLGJAST MEÐ..Koss
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Nótt Berglindardóttir

26. maí 2008 klukkan 09:43
Verð aðeins að segja frá því...að í gær þá sköruðust aðeins ferðir okkar Víðis...svosem ekkert óalgengt.r
Nema hvað. Víðir fór að sækja strákana í kjósina um kl. 1930 í gær.... og ég kom heim kl. 20. Og byrjaði á því að gefa hundunum að borða. Nótt var þá inni og Henry bundinn úti í góða veðrinu. NEMA HVAÐ. Henry SNERTI ekki matinn sinn.
Víðir hafði þá gefið honum að borða áður en hann fór úr bænum.Hissa Ég var svo HISSA, af því að NÓTT BERGLINDARDÓTTIR hefði sko MOKAÐ í sig aukaskammtinum líka. Vá hvað mér fannst þetta merkilegt að rakkinn skyldi bara algjörlega láta matinn vera.
Já svona var það. Annars var mikið fjör í gærkveldi, með litlum árangri. Ég ætla að skjótast í Víðidalinn og vita hvað þær vilja gera. Annars fæ ég að hafa Henry fram á föstudag....na,nanabúbú Hlæjandi væri alveg til í að eiga hann og honum líður SVO vel hjá okkur.....Nú er Kalli svo upptekinn og hugsar minna til Henrys...Kall varð nefnilega pabbi í fjórða skiptið á laugardags morguninn og fékk fína 17.marka stelpu. Elsku Kalli og Agla INNILEGA TIL HAMINGJU með eitt kraftaverkið enn.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Hlaupastingur

25. maí 2008 klukkan 22:30
Hed að ég sé komin með hlaupasting af að horfa á uppáferðirnar....sem ganga frekar illa. En nú vantar sko ekki áhugann, það er eiginlega á hinn veginn. Ég þarf að "neyða" Henry ræfillinn til að hvíla sig. Aðskil þau í 3 klst, og svo fá þau ca. klst saman.Svalur 
Skrifaði ekkert í gær...Mikið eurovision stúss, vinna, og svoleiðis.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Erfiður dagur.

23. maí 2008 klukkan 19:05


Fór við jarðaförina hennar Ástrósar Gunnars. Jarðaförin var falleg og fjölmenn. Þarna mátti sjá mikið af retriever fólki.
Hlýlegt var að sjá labrador heiðursvörðinn fyrir utan kirkjuna.
Annað fréttnæmt eða......kannski ekki, þá er Nótt að renna út á tíma, skv. stroki og blóðprufu. Annars hefur Henry aldrei verið jafn áhugasamur og í dag, og Nótt stendur fyrir hann.  Vá hvað ég er sorry.......en kannski er en von.Saklaus

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Kalli

22. maí 2008 klukkan 21:53
Kalli var að hringja...........hann segir það ekki, en mikið saknar hans litla stráksins síns. Elsku Kalli. Takk fyrir að treysta mér fyrir Henry. Honum líður mjög vel  og biður að heilsa öllum heima.......bað mig að skila því, að hann fór í hrikalega næs heimsókn til Katrínar dýra í dag.Glottandi segist ENDILEGA vilja hitta hana aftur sem fyrst.Ullandi
´
Hafið þið reynt að fara í göngutúr með tvo stóra hunda í sitthvorum FLEXI taumnum.
Get sagt ykkur að það er ekki hægt. Var fljót að skila Henry og festi hann úti við meðan Nótt fékk aðeins að losa smá orku. Síðan fór ég í rólegan göngutúr með Henry.  Nú er það smá miðnætursex (hjá hundunumSvalur) að sjálfsögðu, og svo bólið.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Eurovision hömp.

22. maí 2008 klukkan 21:14

Svalur Nótt bömpar og humpar Henry eins og hún eigi lífið að leysa. Það liggur við að maður sé farin að bömpa í takt. Nótt er sem sagt meira og minna að hamast ofan á hausnum á Henry, þangað til hann hreinlega dettur undan henni. Þið segið hanSkömmustulegurn viti hvenær hún er tilbúin........ég mundi nú segja að hún væri til í tuskið.
Verð að segja ykkur að ég keypti mér langþráðu snjóskóna í dag....HlæjandiEf þið hafið fylgst með, þá var ég búin að gera 3 tilraunir til að fá að kaupa þessa skó, en alltaf eiginlega neitað af því þetta væru SNJÓSKÓR.  Eftir mislukkaða ferð til dýralæknisins, vorkenndi ég sjálfri mér svo mikiðSvalur að ég varð að eignast þessa skó. Nema hvað........þeir voru horfnir úr hillunum. Mér féllust algjörlega hendur og galaði á starfsmanninn.......HVAR ERU SNJÓSKÓRNIR.....þeir voru semsagt orðnir svo leiðir á mér að þeir tóku þá ÚR SÖLU, og skórnir komnir inn á lager. En nú eru skórnir mínir. Víðir sem er mjög reyndur fjalla og útivistarmaður sagði að þetta væru ótrúlega flottir skór, og léttir eins og fis. Sem sagt mjög góðir og alls ekkert endilega snjóskór! 
En það er helst að frétta af parinu, að þau eru núna í sitthvoru rýminu, og fá að hittast.......pínustund fyrir háttinn.Koss

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Óhemjugangur.

22. maí 2008 klukkan 13:29
Jæja nú er Nótt á 13.degi. Kíktum til Katrínar þvi hún vildi prófa að sæða. Já NEI TAKK. Nótt lét eins og viðundur og Henry  gaf ekkert. Get svarið að það er ekki hægt annað en að hlæja að þessu öllu saman. Við fórum heim, og ég skildi þau eftir í garðskálanum inni. Unnur kemur svo heim og skilur þau að.  Takk öll fyrir hughreystingarnar. Gott að fá ráð frá reynsluboltumKoss 
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Strok

21. maí 2008 klukkan 16:55
Fór með Nótt í strok. Katrín segir hana seina til. Ef þau smella ekki saman í kvöld, eða fyrramálið þá verður gripið inn í á morgun.
Það gerðist ekkert af viti í kvöld. Sjáum til í fyrramálið. Snúllurnar farnar að lúlla.........skynjið þið vonleysið sem er að grípa um sig.....Skömmustulegur neiiii þetta er allt í góðu. Það mundi bara gleðja mig svo rooooooooooosalega ef þetta mundi nú heppnast allt saman. EN. EKKI ER ÖLL NÓTT ÚTI ENN,.......alltaf svo fyndin og orðheppinSvalur
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Ekkert gerist.

21. maí 2008 klukkan 00:22
Jæja við Nótt komum heim upp úr kl. 19 og þá sleppti ég þeim saman.
Hún er farin að lyfta skottinu og stendur svo sem, en Henry rétt reynir aðeins en hættir svo.  Ég skyldi þau eftir ein í ca. klst. þá kom Víðir heim. Ég fór nefnilega á Retriever fundinn í Sólheimakoti. Já elskurnar mínar tókst að láta plata mig í hitt og þetta. Verð t.d. Hringvísa..........ég vil nú meina að það sé HRINGSKVÍSASvalur
Og svo er ég komin í sýningarnefnd.......veit ekki einu sinni hvað ég á að gera þar.Saklaus. EN. þetta þýðir að nú verð ég að kaupa útivistarskóna, sem mig langar svo í. Ég er búin að gera þrjár tilraunir til að kaupa þá, en starfsfólkið vill ekki selja mér þá sem gönguskó, því þetta séu SNJÓSKÓRHissa Svo flottir. Þannig að ég ætla að vera Hringskvísa í snjóskóm í Fossatúni.
Eftir fundinn, fór ég út á stóra túnið með "turtildúfurnar" Nótt sótti kong endalaust, meðan ég hljóp nokkra "sýningarhringi" með Henry. Held að það sé gaman að sýna hann. Hann hreyfir sig mjög fallega.
En á morgun fer ég með parið til Katrínar dýra...held hún ætli að taka blóðprufu hjá Nótt til að athuga hvar hún sé í ferlinu...skv. mínum reikningi ætti hún að vera á 12.degi á morgunn. Sjáum til hvað spesinn segir.
Nú eru skötuhjúin gengin til hvílu.  Á morgunn er nýr dagur, nýtt upphaf. Koss Knús.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Erum að skapa spennu.

20. maí 2008 klukkan 13:19
Hringdi í Katrínu dýra og nefndi við hana að þetta væri hálf skrýtið. Nótt hamist meira á Henry , heldur en hann á henni. Katrín sagði að nú væri Nótt að detta á tímann. Ég leyfði þeim að hittast í morgun...og ekkert gerðist. Katrín ráðlagði mér að hafa þau aðskilin í dag og sjá hvort það yrði ekki stuð í kvöld. Þannig að aftur er Nótt með mér í vinnunni, og Henry hefur það kósý í Mosó.  TAKK FYRIR AÐ SKRIFA HJÁ OKKUR. Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

ÍHA!

19. maí 2008 klukkan 23:43
Allt í einu hrökk daman í gang. ÍHA þetta byrjar svolítið eins og......69Svalur uh. Hún hamast og veit ekkert hvað á að gera.  Ég held að hann sé svo hissa, að sé bara alveg BIT.Hissa  Mér fannst ekki alveg viðeigandi að taka mynd.Skömmustulegur Nú förum við að skilja þau að. Nótt í bælið sitt og Henry í sitt. Húsið okkar er alveg TILVALIÐ hundahús.Brosandi meira en nóg pláss fyrir alla.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Vá ég er alveg að sofna

19. maí 2008 klukkan 21:44
Saklaus Christ ég er svo óþolinmóð. Það er einn af "kostunum" míinum. Hlæjandi...............afsakið hlé........það er bara ekkert að gerast.  Nú er ég að bíða eftir að Nótt byrji að "daðra", það er víst eitt af einkennum þess að hún sé að verða tilbúin....núna er hún líkari úlfi í árásarhugSaklaus ættuð að sjá kambinn sem hún setur upp. Hún er ógó fúl, með þetta vesen.´


Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Við mættar í vinnuna

19. maí 2008 klukkan 13:19
Ég skipti við Víði um bíl í morgunn, af því ég ætlaði til Katrína dýra. Ég hringdi á undan mér, og hún vill gefa þeim séns fram á miðvikudag. Þá ætlar hún að kíkja á Nótt. Þannig......að við Nótt fórum bara í vinnuna og Henry í  góðu yfirlæti heima.
Ágætt að aðskilja þau.  Verður spennandi hvort þau verði "glöð" að hittast í kvöld.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Ljúf lausaganga.

18. maí 2008 klukkan 20:16
Fórum með hundana í lausagöngu upp fyrir Lágafellskirkju.  Setti inn eina mynd af herra og frú Henry að leggja af stað.
Þau höfðu rosa gott af að komast aðeins og hlaupa frjáls. Það virtist samt ekki örva kynhvötina neitt. HÍ.hí.
Geri mér grein fyrir að Nótt er komin stutt í ferlinu, en nú hlýtur þetta að fara að koma. Ég sannfærði Kalla um í morgun, að leyfa mér að hafa Henry. Á morgun fer ég með Nótt til Katrínar dýra. Hún var að tala um að taka blóðprufu. Ætla að grípa Henry með mér.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Henry.

17. maí 2008 klukkan 21:29
Nótt er ekki ennþá tilbúin...Fýldur  Þetta hlýtur að fara að bresta á.  Annars aðeins um hann Henry. Hann er búinn að vera hérna heima hjá okkur um helgina. Mér finnst mjög gott að fá að hafa hann,upp á að sjá hvernig persónuleikinn hans er.
Hann er yndislegur inni á heimili. ALGJÖR KELIRÓFA, hann vill helst vera í fanginu á manni.Hlæjandi og er engin smásmíði, þannig að það gengur eiginlega ekki.  Hann er mjög rólegur rakki og enginn æsingur í honum úti við. Mjög þægilegur heimilishundur.
Ég hef verið að lesa mér heilmikið til um labradorinn, og víða kemur fram að rakkarnir séu ekki síðri félagar en tíkurnar. Rakkarnir verða jafnvel nánari eigendum sínum en tíkurnar, því þær eru sjálfstæðari. Mér finnst ég sjá þetta í Nótt og Henry.  Ég er hrikalega skotin í Henry, og langar til að spyrja Kalla hvort hann sé til í að gefa mér hannSvalur hí,hí.
Ég tími ekki að skila honum.Saklaus

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Ekki tilbúin

16. maí 2008 klukkan 21:10
Nótt er ekki tilbúin, það er greinilegt. Henry er hjá okkur. Fyrst var það the love nest. Svo tók ég þau inn í hús og leyfði þeim að dunda sér, síðan aðskildi ég þau. Þau fá að hittast aftur í kvöld. Nú eru þau bæði að safna kröftum, og eru að hvíla sig.Glottandi Við erum byrjuð að taka myndir endilega kíkið.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Hlökkum til

16. maí 2008 klukkan 15:33

Það var eins og Nótt væri að leita að Henry í morgun. Fór út að garðskálanum, stóð þar, og horfði á mig eins og hún vildi komast inn.
Henry kemur aftur til okkar í kvöld. Víðir gerði ráðstafanir með hurðina svo Nótt læsi þau ekki inni aftur.Hlæjandi

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Henry kom í heimsókn.

15. maí 2008 klukkan 22:12
Mikið ofsalega er hann flottur. Kalli,Agla og stelpurnar komu með Henry í heimsókn. Pörin voru kynnt í  ástarhreiðrinu. Nótt var sko EKKI til í tuskið. Hún gelti bara og skammaðist við Henry. Henry var alveg til!. Þau höfðu gott af að hittast aðeins.
Hún varð smám saman afslappaðri gagnvart honum. Þau munu hittast núna á hverjum degi alla helgina.
Verð að segja frá því að Nótt náði að læsa sig og Henry  inni í garðskálanum. Víðir þurfti að taka hurðina af hjörunum. Svalur
Það verða gerðar ráðstafanir fyrir morgundaginn. Brosandi
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Get ekki annað en hlegið að sjálfri mér.

14. maí 2008 klukkan 13:07
Hugsið ykkur floppið og svekkelsið ef pörunin tekst ekki. Bara grátlega fyndið. Ætti líklega að panta tíma hjá sálfræðingi bara svona just in case. Neiiiiii. segi bara svona. Maður tekur því þá bara eins og hverju öðru hundsbiti. Öðru eins hefur maður nú lent í.
Annars var verið að undirbúa pörunaraðstöðuna og allt er að verða klárt. Bendi á myndir í albúmi....flottasta pörunaraðstaðan á landinuSvalur Ég hef alveg ofsalega gaman af þessu tilstandandi.
Veðrið er hreint guðdómlegt. Við vorum úti í garði í morgun, og Nótt undir þvílíku eftirliti. Get sagt frá því, að í garðinum fyrir neðan mig eru tvær hreinræktaðar Vorsteh tíkur. Þær voru að  lóða á mjög svipuðum tíma, og viti menn á báðar tíkurnar komust blendingsrakkar og tíkurnar gutu 19 hvolpum á sama tima.Hissa

Annars átti ég heillangt símtal við hann Eggert Hvanndal sem á Lucas, sem ég var að hugsa um að nota, en samviska mín sagði alltaf nei. Málið er að Lucas er PRA beri. Hann skildi mig svo vel að vilja ekki nota hann.  Sjálfur segist hann hafa neitað fjölda manns að nota hann vegna þessa. Það var æðislegt að tala við hann um hunda og allt sem tengist þeim.
Hann og Lucas eru miklir og kærir vinir. Bestu kveðjur til þín Eggert og endilega vertu í sambandi. Hlæjandi

Svo er það hann Guðsteinn....eða "GUÐINN" ...já ég var að komast að því að hann er kallaður það innan hundaheimsins.
Guðsteinn er gúrúinn og ófáir sem leita til hans þegar kemur að labradormálum. Hann veit ALLT. Hann hefur þurft að umbera mig frá því ég fékk mér NóttUllandi.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Ákveðin

13. maí 2008 klukkan 13:39
Hef tekið þá ákvörðun að nota rakkann Carriegame Do Da day, eða Henry eins og hann er kallaður daglega.
Rökin fyrir valinu, eru að bæði rakkinn og tíkin eru með A/A mjaðmir, A/A olnboga, PRA frí, enga augnsjúkdóma, sem sagt bæði í fullkomnu lagi og með góða skapgerð. Þar sem báðir hundarnir eru brúnir er von á brúnu goti.
Þau verða pöruð í fyrsta skipti á föstudaginn kemur.  Henry kemur úr Bláskógaræktun, og hægt er að sjá myndir af Henry á blaskogalabrador.tk        Hvet ykkur til að skoða sýningarárangur bæði Henrys og Nætur, því von er á spennandi goti.
Og nú krossa ég puttana.......og vona það besta, kemur í ljós.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HÚRRA!!!!!!

13. maí 2008 klukkan 08:57

Svalur Berglindi yfirsauði tókst að skrá Nótt á deildarsýninguna í Fossatúni á réttum tíma.  Þið vaktmenn,Bauer og Dóros, getið þá sofið rólegaSaklaus Já, já og ég mæti kvöldið áður, til að borða góðan mat og skemmta mér með vinum mínum og sef í tjaldi.Brosandi Ætla rétt að vona að allir mæti kvöldið áður og skemmti sér með mér!

Hittum Katrínu dýralækni áðan. Henni leist vel á Nótt og áleit að ekki yrði mikið mál fyrir rakka að parast við hana.
Við gerum fyrstu tilraun á föstudaginn. ........en hver það verður veit nú enginn. Ég hef um þrjá rakka að velja og þarf að ákveða mig núna.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Heimsækjum Katrínu dýra á morgunn.

12. maí 2008 klukkan 22:58
Í gær og í dag hef ég verið í sambandi við eiganda rakkans, sem er jákvæður fyrir að hleypa hundunum saman.
Á morgun förum við og hittum hana Katrínu dýralækni í Víðidalnum.
Við áttum von á matargestum í kvöld og var ég búin að taka út rjóma úr ísskápnum og opna. Skrepp aðeins frá.....og hver haldiði að hafi rænt rjómanum og var að slafra honum í sig þegar hún var staðin að verki.Svalur Ég þurfti sem sagt að hlaupa aftur út í búð eftir rjóma í desertinnSaklaus Nótt fékk sem betur fer ekki mikið af rjómanum....en hann fór allur í gólfið sem ég var nýbúin að skúraHlæjandi Týpískt!
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Nótt byrjuð að lóða.

11. maí 2008 klukkan 20:46
Nótt byrjaði að lóða í gærkvöldi. Fyrirhuguð er pörun á ca. 8.degi, sem ætti að vera 17.maí nk. Og því hvolpar ef pörun tekst seinni part júlí mánaðar....og þá afhending seinni partur september.
Setti inn mynd af Nótt í Nærbuxum Brosandi  T

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Animal rescue.

10. maí 2008 klukkan 23:05
Á leiðinni heim keyrði ég fram á bílveltu. Ekkert af neyðarliði var komið. Ég skrölti á Trippen hælunum í sparifötunum, galaði að ég væri hjúkrunarfræðingur og beið færis að komast inn í bílinn hjá konunni. Sat hjá henni í glerbrotum og reyndi að róa hana. Í þessu slysi var líka lítill yndislegur hundur konunnar. Loksins rættist draumurinn minn, eftir að hafa horft á alla animal rescue þættina í sjónvarpinu (animal planet).Ég sat hjá konunni þar til sjúkraliðið barst og bað hana að treysta mér fyrir hundinum. Konan fór í sjúkrabílnum en hundurinn Nemó í bílinn með mér. Ræfilstuskan ofandaði heillengi í sjokki á eftir, en var ótrúlega fljótur að jafna sig. Hændist að Víði sem fékk hann til að borða. Við fórum síðan í góðan göngutúr og Nemó hinn glaðasti. Hann var svo sóttur af syni konunnar núna rétt áðan. Búinn að borða, piss og kúka, fá hreyfingu og allt í goodie. Það var að frétta af konunni, að betur fór en á horfðist og bar hún sig nokkuð vel. Slapp með minniháttar áverka, og  engin brot.
Setti tvær myndir af Nemó inn.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Boðin í mat hjá Míu frænku

10. maí 2008 klukkan 00:45
Nótt fannst alveg extra leiðinlegt í vinnunni í dag. Það var mikið að gera og fáir nenntu að tala við hana.Skömmustulegur
Við vorum svo boðin í mat til Míu frænku.....hún er ungversk viszla.....geysilega falleg tík og mikil drottning. Gerðum grín að því að Nótt væri BOLLA, og Mía DROLLA (drottning). Hrikalega grunnur húmorHlæjandi Þær frænkurnar eru rosa góðar saman og mjög ólíkar. Gaman að fylgjast með samskiptunum þeirra.
Ég var algjör að taka ekki mynd af þeim saman á símann. Gleymi alltaf þessari myndavél.
Semsagt æðislega fínt kvöld og góður endir á annasömum degi. Auður,Stebbi,Sól,Sölvi og Mía! TAKK FYRIR OKKURKoss
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Takk fyrir heimsóknina elsku Guðbjörg

09. maí 2008 klukkan 00:23
Koss Busy dagur í búðinni og Guðbjörg vinkona mín kom í heimsókn. Hún er svona hundanörd eins og ég.........og við getum talað út í eitt um hunda.Æðislegt.
Vorum úti í garði í kvöld. Ég þreif t.d bílinn minnSaklaus það var alveg kominn tími á það.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Biðin endalausa

08. maí 2008 klukkan 00:00
Hlæjandi Hæ. Ef Nótt heldur sinni rútínu þá byrjar lóðarí í kringum 25.maí. Ég mun fara og líta á rakka í kringum 20.maí.
Það skiptir mig miklu að vanda þetta got, og mig langar til að þakka sýndan áhuga. Nú þegar er farinn að myndast listi yfir áhugasama eigendur svo endilega látið mig vita ef þið eruð að spá.  Mér þykir óendanlega vænt um Nóttina mína og væntanlega hvolpa frá henni, og mun ég vanda mig við að velja þeim góða og trausta eigendur. Nótt verður sýnd í Fossatúni í Borgarfirði 14.júní nk. Þessi sýning fer fram úti við, og það eru skemmtilegustu sýningarnar. Hvet alla til að koma og sjá retrieverana. Já og svo er hún alltaf með mér í TRIPPEN.
Svo krossar maður bara puttana að pörun heppnist........það er nú ekkert sjálfsagt að það gangi uppÓákveðinn 
Vonum það besta.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Nóttin var viðburðarlaus

07. maí 2008 klukkan 10:02
Já ég átti alveg eins von á að verða í einhverju ógeðs þrifa standi og klósettferðum með Nótt. En slátrið virðist bara hafa farið vel í hana.Enda kjarngóður íslenskur matur.Svalur Heilsan virðiist bara fín og útskilnaður eðlilegur....for your infoHlæjandi
Annars ætti nú að fara að styttast í lóðaríið hjá skvísunni og ég alltaf í þessum svakalegu litapælingum.....Hugsið ykkur hvað maður verður skýtinn af að vera í hundunum. Svartur rakki, brúnn rakki, svartur rakki brúnn rakki.
Nú er ég farin að hallast að brúnum rakka, því Nótt er úr svart/brúnni pörun.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

2 1/2 sláturkeppur

06. maí 2008 klukkan 23:36
Hún Nótt komst í næstum þrjá stóra sláturkeppi í kvöld. Fór þvílíkt fínt í þetta . Það tók enginn eftir neinu fyrr en fatið var glansandi skínandi fínt og tómt.
Það verður stuð á morgunn......jukk, og getiði hver fær ekki morgun mat. Eiginlega þyrfti hún ekki að éta það sem eftir er vikunnar.!
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hvernig væri að kvitta fyrir heimsóknir í gestabókina

06. maí 2008 klukkan 08:02
Hæ. Ég sé að það eru alltaf einhverjir að kíkja inn á síðuna okkar. Það væri gaman a vita hver þið eruð. Svo má líka commenta á færslunar.Koss Love,Peace and happiness.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Er til einhver góð ástæða fyrir leti.

05. maí 2008 klukkan 23:29
Vindlaus í dag. Skemmtilegur vinnudagur. Líf og fjör og heimsóknir. Skósendingin sem var sögð týnd í Luxembourg, fannst í Frankfurt.Jibbí þá verður stuð í sjoppunni, kellurnar alveg þvílíkt að bíða eftir einhverju NÝJU!
Verð að segja ykkur að Nótt gekk taumlaus frá sjoppunni að bílnum.......góður spölur sko, og ,og,og hún gekk svo flott á hæl.OH ég er svo montin. Hún er alltaf svo góð downtown......kannski maður ætti bara að flytja í 101 og sýna sig með flotta hundinn sinn. Neiiiiiii. það er gott að búa í Mosfellsbæ. Nú fer að styttast í að ég fái að vita hvort ræktunarnafnið verði samþykkt. Svo þarf maður að fara að skrá sig á Fossatúnið. Rétt ég er ekki búin að því ennþá......bíð örugglega með það þangað til ég missi af skráningarfrestinum, eða eitthvað. Þið sem ekki þekkið okkur. Þá byrjaði ferillinn okkar Nætur á því að ég SVAF YFIR mig á fyrstu sýningunni okkar.......og við misstum af .....og svo lét ég skráningarfrestinn renna frá mér á næstu sýningu á eftir.........þannig að ef  ég hefði haskast........þá ættum við ÖRUGGLEGA fleiri rauða borða Hlæjandi
Vegna fyrri reynslu þarf ég því að tjalda á mótsvæðinu til að MISSA EKKI AFGlottandi Og Dóra til að reka á eftir mér að skrá mig á sýningarnar.......já og Pétur mág.........þeir eru eins og sýningarvekjaraklukkur.Ullandi
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Heimsótti Sölku og Nölu.

04. maí 2008 klukkan 16:55
Veðrið er hálfleiðinlegt, sunnudagur og hrikaleg leti í mannsskapnum. Klæddum okkur í gallann og byrjuðum á því að heimsækja Dóra....eða kannski frekar Sölku og Nölu.Fórum svo í bakaríið og heim. Létum duga boltaleik á stóru túni.
Það er líka rétt að Nala er jafn falleg að framan og aftan. Salka er svo fallegVerður gaman að hitta hana í Fossatúni í feikna formi.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Rólegheit

03. maí 2008 klukkan 20:40
Vorum í vinnunni í dag og allt bara frekar tíðindalaust.
Hitti Dóra í Krónunni, og kíkti inn um skottið á jeppanum hans sá glitta í Sölku, hún er í rosa flottum feldi. Þarna var líka hvolpaskottið Nala,sem á að vera jafn flott að framan og aftanHlæjandi Ég sá alla vega að hún er snoppufríðBrosandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Óvænt heimsókn í Trippen

02. maí 2008 klukkan 17:34

Svona ráp dagur hjá fólki greinilega og Nótt slök yfir því eins og venjulega, nema, þegar inn skaust hérna kettlingur!
Ein erfiðasta og fyndnasta uppákoma sem ég hef lent í. Í sameiningu rústuðu Nótt og kettlingurinn búðinni og ég hlaupandi á eftir og vissi EKKI hvernig ég ætti að leysa málin. Ég þurfti að halda í hundinn, og hvernig átti ég þá að ná kettinum.
Mér til happs gengu tveir menn framhjá glugganum og urðu vitni að uppákomunni......Ég tók hundinn, og þeir köttinn. Get svarið það ekki er öll vitleysan eins, og í öllu getur maður lent1

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Fengum "fisk" í háfinn.

01. maí 2008 klukkan 18:24
Fórum í Varmadalinn upp úr hádeginu. Gengum lengra inn dalinn en áður
.Ég áTrippen skóm, og get ekki mælt með þeim í suburban göngur, enda ekki ætlaðir til þess svo sem. Hundarnir nutu sín vel, og Nótt kældi sig í ánni.Víðir gómaði stærri gerðina af síli sem Vaka er alsæl með...sem sagt búið að fjölga  gæludýrum heimilisins. Skiluðum hundunum heim og kíktum í afmæli til Óla og Önnu Bjargar í Fjallalindina. Pikkuðum upp krakkana hist og her á leiðinni heim.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd