VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Hreiđur spekúleringar.

29. júní 2008 klukkan 17:00

Fyrir utan endalausar pissuferðir...Nú þarf skvísan að pissa miklu oftar því hvolparnir eru greinilega farnir að pressa á blöðruna hennar, þá virðist hún vera farin að leita sér að got stað. Hún hagar sér voða mömmulega þessa dagana, er alveg afskaplega góð við Gest (heimilisköttinn), sem er nú ekkert sérstaklega upprifinn yfir umhyggjunni. Nótt sleikir hann í bak og fyrir. Það er fyndið að fylgjast með verðandi mömmunni  þessa dagana. Unnur ætlar að taka 5 vikna óléttu mynd af Nótt á eftir.Hlæjandi
Skruppum í ljúfan göngutúr eftir kvöldmatinn.Nótt fékk að lausa hlaupa....já, ég veit það má ekki. Hún stakk sér inn í runna og færði mér heila heimatilbúna samloku sem einhver unglingurinn hefur skilið eftir. Samlokan var í plasti og alles. Ég er mest hissa á að Nótt skyldi ekki hesthúsa samlokuna áður en hún kom til mín.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Flott helgi.

29. júní 2008 klukkan 01:03
Á föstudagskvöldið fórum við fjölskyldan í matarboð í sveitina. Nótt naut sín SVO vel, hún var svo falleg úti í náttúrunni. Við komum heim um kl. 01...og mér til hróss! var ég mætt fyrir klukkan 09 á laugardagsmorguninn til að sjá goldenana og labradorana keppa.
Að sjálfsögðu gekk "MÍNU" fólki frábærlega Hlæjandi Misty mamma Nætur fékk 1.einkunn eins og alltaf og varð fjórða besta tíkin. Frábært að komast í sæti.
Henry hinn væntanlegi faðir hvolpanna hennar Nætur, fékk 1.einkunn og MEISTARSTIG HlæjandiKoss og varð annar besti rakkinn.
Ég er svo montin fyrir ykkar hönd. Kalli það væri gaman að fá að lesa dóminn hans Henrys. ertu til í að senda mér hann á WWW.VALSHAMARS@LIVE.COM
Nótt er svo yndislega hvolpafull og við hlökkum svo til að fá hvolpana sem koma undan þessum tveimur frábæru hundum.

Elsku vinir. Halldór, Guðsteinn og Guðbjörg. Til hamingju með flottan árangur hjá ykkur.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Svo ólétt

26. júní 2008 klukkan 21:56
Elsku Nóttin, allt í einu er hún orðin SVOOO hvolpafull. Er að tútna út, og spenarnir að þykkna. Hún er afskaplega afslöppuð þessa dagana. Hún fór í góðan göngutúr í dag með Unni og Mettu.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Góđur göngutúr

24. júní 2008 klukkan 22:30
Fórum í hressandi göngutúr...reyndar stuttan svona 15 mín, en Nótt naut´sín í botn, öslaði gegnum hátt grasið. Vaka skokkaði með.
Við erum nú búin að færa svefnstaðinn hennar Nætur þangað sem gotið mun verða. Um er að ræða lítið herbergi sem gott er að hita upp. Herbergið er í miðju hússins, þar sem auðvelt er að fylgjast með henni.
Gauti hefur verið að stúdera hvernig best sé að byggja gotkassa.Brosandi
Allir eitthvað að stússast. Nú er bara að vona að allt gangi vel og áfallalaust fyrir sig.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Súkkulađibrúnir hvolpar.

23. júní 2008 klukkan 15:33
Fórum í sónar og það sáust hvolpar.Brosandi þá er semsagt væntanlegt got 25 - 30 júlí nk. Súkkulaðibrúnir labrador hvolpar undan yndislegum, heilbrigðum hundum.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Fer á morgun í sónar.

22. júní 2008 klukkan 20:57
Ég segi Nei, Unnur segir já, Vaka segir já, Víðir segir pass.......Svalur Læt vita um leið.

Kalli og Agla...við vorum einmitt að reyna að finna ykkur fyrir austan.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Takk fyrir álitin, elsku vinir.

20. júní 2008 klukkan 23:55

Sko skv. öllu þá ætti að vera skynsamlegt að fara í sónar eftir helgina. Ef við miðum við 25.maí,þá ætti að vera ok að fara 25.júní sem er........á miðvikudaginn..Ætla að skella mér þá. Ég bara held þetta ekki út lengur.Skömmustulegur segi svona. Ég er nú ekki bjartsýn. Mér finnst bara einhvern veginn svo ótrúlegt ef helmingur meðgöngunnar er búinn og það sér ekki á henni. Óákveðinn Svo les ég og les ég.......að það gerist nánast ekkert fyrr en á 5 viku, þá detti spenarnir niður og verði skær bleikir og þá fari tíkurnar líka að þéttast. Mér finnst þetta bara svo merkilegt.
Ég treysti á ykkur reynsluboltana, að fylgjast með alla leið.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Jćja snú styttist í sónar ferđ..........hrjót

20. júní 2008 klukkan 00:51
jæja nú styttist í að fara í sónar.......með gullmolann. Það væri nú gaman að vita hvort einhverjir eru spenntir með mér.
Hverja langar í súkkulaðisætan, einstaka skaplund og yndislegan vin. Er að hugsa um að fara eftir helgina...svona í rólegheitum í sónar með Nótt. Við erum auðvitað með bullandi ýmindunarveiki og finnst belgurinn eitthvað stærri og spenarnir síðari, svo vill hún mikið vera að nuddast utan í okkur, eiginega meira en vejulega því hún er ekki mikið fyrir hnoð.
Kannski er þetta bara veðrið......maður veit aldrei.

Hvernig væri að comment á hvort ég ætti að bíða til mánaðarmóta með sónarinnn, eeða fara eftir helgi.


Berglind Gestsdottir
4 athugasemdir

Fossatúniđ og niđurstöđurnar.

18. júní 2008 klukkan 14:25
Vil óska öllum til hamingju með glæsilegan árangur. Mér sýnist á stigagjöfinni að okkur stelpunum hefði örugglega gengið nokkuð vel, ef við hefðum átt heimangengt.Svalur Gerir ekkert til að vera cocky. Ég á bara svo flotta tík sko.
Að öðru leyti er lítið að frétta. Við bíðum mánaðarmótanna,
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

HÚN Á AFMĆLI 'I DAG

16. júní 2008 klukkan 11:45
Já elsku Nóttin á afmæli í dag. 2 ára. Svo sætust og best. Njótið dagsins.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Bíltúr

15. júní 2008 klukkan 20:17
Skruppum í bíltúr austur í dýragarðinn í Slakka. Nótt fékk nú reyndar ekki að fara með þangað inn, en hún spretti úr spori við Fjöruborðið (veitingahúsið) þar sem við fengum okkur dýrindis humarsúpu.
Vaka á nefnilega afmæli í dag, og Nótt á svo afmæli á morgunKoss
Takk fyrir fallegar hugsanir og kveðjur til okkar.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

TIL HAMINGJU

14. júní 2008 klukkan 21:05

Til hamingju með frábæran árangur Henry og Askur í Fossatúni. Er svo montin með ykkur. Svo flottastir. Það væri gaman að fá fréttir af fleirum. Salka,Selja og Misty. Hvernig gekk?

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Endurheimtur

13. júní 2008 klukkan 16:07
Í dag endurheimti  ég ættbókina hennar Nætur og sá niðurstöðurnar úr HD/ED myndunum á blaði. Bréfið hafði farið á gamla heimilisfangið okkar.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Valshamars rćktun.

12. júní 2008 klukkan 17:46
Fékk skjalið frá HRFI með póstinum í dag.....maður er svo montin að  mig langar til að ramma það inn. VALSHAMARS.
Já svona er nú það. Annars verð ég að deila því með ykkur hvað ég á ofsalega fallega tík, alveg dásamleg.Glottandi
Hafið það rosalega gott  og njótið þess að vera til.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Rólegheit

11. júní 2008 klukkan 23:32
Í dag dólaði Nótt sér í garðinum í góða veðrinu. Við tökum því rólega þessa dagana. Kemst ekki í Fossatúnið í ár...vona að ykkur finnist tómlegt án okkarGlottandi
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Jukk.

10. júní 2008 klukkan 20:35
Hæ. Nú kemur saga af göngutúrnum sem við fórum í áðan..................Gengum inn eina götu og þar þurfti ungfrú Nótt að gera B........nema hvað að hún er með drull....og lyktin eftir því.. Við héldum áfram inn næstu götu,og viti menn þar birtist laus íslendingur (hundur) og Nótt kippir í. Þá gerist það að skítapokinn springur í fangið á mér og yfir mig alla. Ég fann einhverja járnplötu og á henni  hélt ég áfram útötuð með skítapokann á silfurfatiSvalur
Ég stoppaði hjá henni Maríu systir Ástrósar heitinnar, og spurði hvort hún gæti reddað mér einum litlum poka og einum stórum poka.
Göngutúrinn varð því með styttra móti og úlpan fór beint í þvottavélina......ógeðslegt.
María hvíslaði að mér að fyrstu einkenni um óléttuna hjá Þúfu hafi verið glær útferð....nei,nei, sagði ég´: Nótt er ekkert ólétt, það er bara ekkert að gerast........Ég nefnilega vil ekki gera mér neinar vonir sko.Óákveðinn En María spáir því að Nótt sé ólétt því Nótt er með glæra útferð.
Þetta kemur í ljós.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

3.vikan.

07. júní 2008 klukkan 22:17

Week 3


  • Embryos implants along uterus wall.
  • During the next two weeks the important organs will develop.
  • Her nipples begin to turn pink and enlarge.
  • May loose appetite during this week.
  • Morning sickness may occur -She may also stretch out a lot due to her movement in her abdomen.
  • Jamm. Fann góða síðu sem lýsir meðgöngu viku eftir viku hjá Labrador.  Nú ætti Nótt að vera að detta inn í viku 3......ef,ef,ef. Stór þessi EF þáttur.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hlýđnari, rólegri

07. júní 2008 klukkan 01:09

Afsakið bloggskortinn, er a little bit under the weather þessa dagana.....mér finnst þetta ótrúlega flott orðatiltæki hjá kananum.  Jæja en hvað um það.  Hér er allt í rólegheitum. Nótt er ekki lystarlaus og ekki virðist henni flökurt. Mér finnst hún rólegri en vanalega, en ekkert að marka það. Hún er núna á 16.degi eftir fyrstu pörun.
 Við höfum ekkert farið í almennilega göngu lengi,vá hvað ég held við hefðum báðar gott af því.
Takk fyrir að skrifa kæru vinir, love you allKoss

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Valshamars

04. júní 2008 klukkan 16:15

Nafnið Valshamars er komið frá klettinum Valshamri í Eilífsdal.

Í brekkunni fyrir neðan hamarinn eigum við lítinn sumarbústað sem ber sama nafn.
Hann hefur verið í eigu fjölskyldunnar í 38 ár, og er okkur mjög kær.

Fyrsta gotið mitt ....einhverntíma mun því verða V-got.
Valshamars-Vaskur
Valshamars-Vilji
Valshamars-Vera
osfrv.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Rćktunarnafniđ mitt samţykkt :Valshamars rćktun.

04. júní 2008 klukkan 09:52
Brosandi Hef ekkert heyrt frá Hrfi og ekki fengið neitt bréf........En ég fór inn á FCL síðuna og sá að VALSHAMARS er komið inn sem samþykkt. Jeiiiiiiii.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Er hún ađ gildna....

03. júní 2008 klukkan 23:57
Get svarið mér finnst Nótt vera að gildna.......I wish. Eða er hún að fitna bara......af því ég hreyfi hana minna.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Nýtt upphaf

02. júní 2008 klukkan 08:42

Afsakið bloggskortinn. Helgin hefur verið mjög annasöm. Ég seldi Trippen og hef verið brjálæðisilega upptekin við að ganga frá og svona.  Tilfinningin er mjög skrýtin. Að mæta ekkert í Trippen að vinna oftar.En hver dagur hefur sitt nýja upphaf ekki satt. Og nú er semsagt nýtt upphaf. Hlæjandi  Henry fór heim í gær, og var mikið glaður að sjá fólkið sitt. Nótt var ekki síður glöð að fá Víði heim, hann var semsagt á Hvannadalshnjúki um helgina að guida.

Hvernig ætli sé með ræktunarnafnið mitt góða. Það hlýtur að fara að koma svar.
Af Nótt er það að frétta að hún er bara alltaf jafn yndisleg og góð. Það verður lítið hægt að vita um óléttu fyrr en eftir 20.júní......merkilegt finnst ykkur ekki....þá er hálf meðgangan búin.Fýldur Ég hef verið að horfa eftir einhverjum óléttu einkennum, og það ber t.d. EKKERT á LYSTARLEYSI. Ég er ekki frá því að hún sé svona meiri mömmustelpa, en það er sjálfsagt bara ímyndun.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd