VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Skuggi á sólríkum degi.

31. júlí 2008 klukkan 01:48
Það var skuggi yfir okkur í dag (30.júlí). Í morgun dó einn af yndislegu hvolpunum okkar. Við höldum að Nótt hafi óvart lagst ofan á hann. Þessi litli hvolpur var nefndur Batman á meðal krakkanna, þar sem hann var með hvítan blett á bringunni.
Það er ótrúlegt hvað manni finnst vanta í annars þennan stóra og flotta hóp.
 Það verða því einum færri sem eignast hvolp úr þessu vel heppnaða goti. Við höfum gert ráðstafanir til að verja restina af hópnum, og Nótt og gotið aftur komið í gjörgæslu.
Ég var semsagt að koma af vaktinni af spítalanum og er komin á næturvaktina hér heima.
Lífið er hverfult. Njótið þess að vera til maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér.


 
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Sprittbađ.

30. júlí 2008 klukkan 01:00
Það var verið að biðja um fleiri myndir. Ég tók fullt af myndum, en einhvern veginn fannst mér þær allar eins og eru inni á síðunni núna, nema hvað hvolparnir eru stærri og feitari. Ég ætla að bíða með að setja inn myndir þar til þeir opna fallegu augun sín, og það styttist óðum í það.Brosandi Tíminn líður svo hratt. Hvolparnir eru strax orðnir viku gamlir. Nánasta skyldfólk okkar er nú komið með heimsóknarleyfi, en það liggur við að ég setji alla í spritt BAÐ!. Ég er alveg hrikalega paranoid varðandi smit sem getur borist í hvolpana. Þar er helst að nefna hinn illræmda PARVO vírus. Hvolparnir hafa einhverja vörn frá móður sinni sem er sprautuð reglulega, en  það ver þá aldrei þó alveg.  Það liggur við að ég sé með fuglaflensu viðbúnað, og það er sko enginn SMÁ viðbúnaður.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Örfáir ólofađir.

29. júlí 2008 klukkan 16:54
Hvolparnir eru nú hver af öðrum að eignast nýjar fjölskyldur. Ég vorkenni nýju fjölskyldunum þó mest að geta ekki komið og fengið þá NÚNAHlæjandi Ég man svo vel hvernig ég var þegar ég var að bíða eftir að fá Nótt til mín. Ég var eins og óþolinmóður krakki. Taldi dagana þar til ég mátti heimsækja í fyrsta skiptið og svo keyrði ég suður með sjó einu sinni í viku til að heimsækja hana, þar til ég fékk hana afhenta á afmælisdaginn minn þegar ég varð fertugHlæjandi Nótt er besta afmælisgjöf sem ég fengið á ævinni.
Ég hvet ykkur öll til að lesa kaflann á síðunni "Are you ready" þar sem þið getið séð að rakkarnir eru algjörar kelirófur.
Við eigum ólofaða örfáa hvolpa, þannig að ég hvet þá sem eru að spá í að fá sér flottan labrador, að hafa samband sem fyrst.


Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Gaman hvađ margir fylgjast međ.

28. júlí 2008 klukkan 17:28
Hæ öll.

Mikið er gaman að sjá hvað margir kíkja við á síðunni okkar og takk fyrir commentin.
Það gengur allt eins og í góðri lygasögu enn sem komið er. Hvolparnir verða fallegri og fallegri með hverjum deginum.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

600 gr

27. júlí 2008 klukkan 19:06
Í dag segir vigtin 600 gr. Já þeir tútna út þessar elskur. Síðustu nótt svaf ég nú bara í mínu bóli og hugsaði með mér að hér eftir sæi Nótt bara um þetta næturstúss. Hvolparnir eru orðnir svo kröftugir að þeir eru ekki lengi að koma sér á spena ætli þeir sér það.
Nóttin fagra er fyrirmyndarmamma, og það sem mér finnst svo frábært og kemur mér svosem ekki á óvart, er að hún er svo afslöppuð yfir þessu og óstressuð, og ekki til vantraust hjá henni gagnvart mannfólkinu, en það er orðið nokkuð ljóst að Tuma vill hún ekki sjá í kassanum.
Það fer vel um hvolpa og mömmu í gotkassanum í litla herberginu. Herbergið höfum við þó alltaf opið og Nótt gengur út og inn eins og hún vill. Henni líkar þetta fyrirkomulag vel, er mikið frammi hjá okkur, en hleypur inn um leið og hún heyrir kvakið í börnunum sínum. Hún drekkur fleiri lítra á dag, og borðar um eitt kíló af mat daglega.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Tumi ekki lengur velkominn

26. júlí 2008 klukkan 15:43
Þá er Nótt búin að ná kröftum eftir gotið. Tumi ræfillinn sem stóð sig svo vel fyrstu tvo dagana í að hugsa um hvolpana, er ekki velkominn lengur í bælið. Hún sýndi honum það með einu hvellu gelti og hann lætur gotið alveg í friði.
Ég hef svo gaman af því að fylgjast með samskiptum hundanna.
Hvolparnir voru vigtaðir í dag og eru allir að þyngjast, mismikið þó og er fylgst sérstaklega með þeim léttari.
Við Vaka sváfum á dýnum við gotkassann í nótt og vorum stirðar eins og eftir væna tjaldútilegu í morgunn. Svalur
Vonandi hafið þið öll gert eitthvað skemmtilegt um helgina. Farið í alvöru útilegur eða upp í sumó.
Við stöndum vaktina hér í Mosó og leiðist það ekkert. Endalaust kelerí og knús.Koss
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Vaxa og dafna.

25. júlí 2008 klukkan 09:30
Góðan og glaðan daginn. Hvolpaskottin sem öll vógu um 400 grömm við fæðingu, virðast dafna vel.
Ég var að vigta þau og segir vigtin 500 gr í dag. Það kemur ekki á óvart miðað við áfergjuna í mömmumjólkina. Það er alveg óborganlegt að sjá þau frekjast um spenana. Þetta virðast allt vera hörkutól, og enginn minnimáttar eins og oft vill verða.
Þau hafa öll bönd með ákveðnum litum um hálsinn til sundurgreiningar nema önnur tíkin er band laus.

Tíkurnar hafa fengið ættbókarnöfnin VALSHAMARS-VISKA, og VALSHAMARS VON.

Rakkarnir hafa fengiið ættbókarnöfnin. VALSHAMARS VILJI, VALSHAMARS VASKUR, VALSHAMARS VETUR, VALSHAMARS VIGRI, VALSHAMARS VÖRÐUR, VALSHAMARS VINUR OG VALSHAMARS VÍKINGUR.

Hvolparnir eru nú þegar farnir að eignast nýjar frábærar fjölskyldur sem bíða óþreyjufullar eftir að koma í heimsókn.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Fyrsti sólarhringurinn ađ baki.

24. júlí 2008 klukkan 18:56
Jæja. Þá er krítískur sólarhringur að baki. Hvolparnir tútna út af mjólkinni sem er nú farin að flæða ríkulega til þeirra, og maður sér þá braggast  rosa vel með hverjum klukkutímanum. Nótt er að ná nýja hlutverkinu og stendur sig vel. Hún borðar og drekkur út í eitt og veitir ekki af ef hún á að geta séð öllu stóðinu fyrir næringu.
Hún er svo falleg mamma.Hlæjandi.

Tumi er tjúinn á heimilinu. Hann heldur að hann sé pabbinn. Hann sinnir hvolpunum þvílíkt sleikir þá og þrífur í bak og fyrir. Það er líka gaman að fylgjast með þegar hann er að reyna að smala þeim saman ef þeir verða viðskila og hann passar þá þvílíkt vel.
Svo vel að hann ætlaði að fara að urra á mömmuna sjálfa þegar hún kom frá því að næra sig í eitt skiptið. Þá fékk hann nú skammir. Tumi sem er mjög kvöldsvæfur hefur staðið með mér næturvaktirnar og skríður með mér að sofa á morgnana þegar Víðir og krakkarnir taka við.

Takk fyrir fallegar kveðjur kæru vinir. Og Sædís systir  yfir hunda ljósmóðir með meiru fær súper þakkir fyrir alla hjálpina.Koss
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

9. börn

23. júlí 2008 klukkan 17:07

9.strákurinn er fæddur. Öllum heilsast vel...Nótt virðist ekki hætt. Hún er rosalega þreytt.Vona hennar vegna að þetta fari að klárast.

Berglind Gestsdottir
4 athugasemdir

8

23. júlí 2008 klukkan 14:17

Börnin hennar Nætur eru nú 8. Hrikalega falleg öll, samsvara sér flott og öll brún.
Nótt er nú lögst fyrir alveg búin á því, en lengi er von á einum. Síðasti lét bíða eftir sér í 3 klst. Þannig að hver veit.
Kynjaskiptingin er eftirfarandi. 2 tíkur og 6 rakkar.
Mæli með að þið lesið ykkur til um labrador rakka. Mikill misskilningur liggur í því að tíkur séu blíðari. Þær eru einmitt sjálfstæðari og oft minna háðar eigandanum og vilja frekar vera út af fyrir sig meðan rakkarnir eru
miklu hændari að húsbónda sínum. Þetta fann ég þegar ég var með Henry hér í hálfan mánuð. Hann er miklu meiri kelirófa en nokkurntíma Nótt. Sjálf mundi ég velja mér flottan rakka næst.
JÁ og kíkið á myndirnar í albúminu góða.Hlæjandi Takk fyrir stuðninginn öll sömul. Nú er að halda sjó, og vonast til að öllum heilsist vel.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

1.got Valshamars rćktunar lítur dagsins ljós.

23. júlí 2008 klukkan 09:05
Komin eru í heiminn 6 Valshamars systkini og fleiri á leiðinni. Viska fæddist fyrst kl 04 og á eftir henni bróðir hennar Vaskur.  Síðan hafa þau verið að koma með stuttu millibili. Allt hefur gengið mjög vel.Yndislegir brúnir hvolpar. Strákar og stelpur, öll  yfir 400 gr í fæðingarþyngd. Nótt er enn að, en er orðin þreytt og hlakkar til að klára þetta.
Við erum svo glöð að við brosum marga hringi. Hlæjandi

Nú hvetjum við ykkur til að fylgjast með.
TEK FRAM AÐ VIÐ TÖKUM EKKI Á MÓTI NEINUM HEIMSÓKNUM NÆSTU DAGA. SAMA HVER ER:
ÞAÐ ER VEGNA SMITHÆTTU OG VIRÐINGU VIÐ TÍKINA OG GOTIÐ HENNAR. VINSAMLEGAST VIRÐIÐ ÞAÐ! 
við setjum inn myndir  í dag.
Berglind Gestsdottir
8 athugasemdir

Tíminn líđur hćgt.

23. júlí 2008 klukkan 02:03
Klukkan er að verða 02. Við Unnur liggjum hér á dýnu við gotkassann hjá Nótt. Sóttin harðnar nú óðum og við höldum að það sé að styttast í fyrsta hvolpinn. Það tekur á að sjá hana í þessum átökum, en hún stendur sig vel. Hún er svo falleg, alveg að springa og eins og hún sé á síðustu metrunum í maraþonhlaupi.Elsku kellingin.
Takk fyrir að fylgjast með okkur og kommenta á síðunni.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Tíminn líđur hćgt.

23. júlí 2008 klukkan 02:03
Klukkan er að verða 02. Við Unnur liggjum hér á dýnu við gotkassann hjá Nótt. Sóttin harðnar nú óðum og við höldum að það sé að styttast í fyrsta hvolpinn. Það tekur á að sjá hana í þessum átökum, en hún stendur sig vel. Hún er svo falleg, alveg að springa og eins og hún sé á síðustu metrunum í maraþonhlaupi.Elsku kellingin.
Takk fyrir að fylgjast með okkur og kommenta á síðunni.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Sótt

22. júlí 2008 klukkan 22:05
Nótt er komin í bullandi sótt. Hún  vill bara liggja í í bælinu og er móð og másandi. Kviðurinn er spenntur. Tumi liggur hjá henni og skilur ekkert í því af hverju henni líður svona illa, sleikir hana í bak og fyrir.
Framundan er vökunótt, og enginn tímir að fara að sofa.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Hreiđurgerđ

22. júlí 2008 klukkan 16:05
Við höfum l'atið Nótt gera stykkin sín á bílaplaninu núna síðustu daga, til öryggis svo við missum hana ekki í að gjóta úti í runna......í morgun þegar ég hleypti henni út, gerði hún stykkin sín á réttum stað, en stakk mig svo af inn í garð og lengst inn í stóran runna. Hún svaraði ekki kalli, og það endaði með því að ég stakk mér inn í runnann, og þar var hún búin að grafa stóra flotta holu. Ég náði hennii loksins út úr runnanum og inn.
Hitinn er að falla og hún er móð og másandi með hléum. Nú fer þetta allt að koma hjá henni, vonandi næsta sólarhringinn. Ég leyfi ykkur að fylgjast náið með.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Nú hefjast hitamćlingarnar.

20. júlí 2008 klukkan 21:22
Nú er kominn sá tími að fylgjast með hitastigi drottningarinnar. Mælt er með að hitamæla tvisvar á dag síðustu viku meðgöngunnar. Algengt er að hitinn lækki um eina gráðu ca. sólarhring fyrir gotið.
Hitastigið í kvöld er 38 C. Svalur Nú fer þetta að hljóma eins og veðurspáin.
Yfir hundahirðirinn er væntanlegur heim frá útlöndum annað kvöld. Skemmtiferðin hans var á eftirfarandi veg: Á leiðinni út í flugvélinni veiktist hann...og er búin að vera á spítala síðan. Lítið skemmtilegt það. En hann kemur heim á morgun og getur tekið þátt í að hjálpa til við gotið sem vonandi gengur vel og verður til að gleðja hann.
Berglind Gestsdottir
5 athugasemdir

Sýnilegar hreyfingar.

20. júlí 2008 klukkan 17:27
Ég sit hér og horfi á Nótt sofa. Nú sér maður hvolpaskottin sparka. Kviðurinn hennar gengur í bylgjum.
Það er komin mjólk í spenana. Ég sturtaði Nótt vel og vandlega áðan, og burstaði hana öruggega í hálftíma.
Ég átti bara eina og hálfa matargjöf eftir handa henni í gær, og hugsaði að mér þætti það nú ekki sniðugt að þurfa að skipta um tegund þó ekki væri í nema einn dag. Þannig að ég sendi honum Kjartani hjá PROPAC tölvupóst, og eins og alltaf maturinn kominn heim að dyrum um leið. Alveg ótrúlega góð þjónusta.
Á morgun fer ég á kvöldvakt og þá ætla ég að verða mér úti um hanska grisjur og fleira, sem gæti nýst vel þegar þar að kemur.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Heitt

19. júlí 2008 klukkan 23:33

Vá það var heitt í dag. Nótt lá í skugganum og golunni, og fékk reglulega klaka til að kæla sig niður með.
Annars er allt í rólegheitum ennþá og framundan er spennandi vika.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Get svariđ ţađ

18. júlí 2008 klukkan 01:01
Ég get svarið að ég fann krúttin hreyfast áðan þegar ég strauk Nótt um bumbuna. Henni  finnst svo gott að láta strjúka sig alla núna. Svo horfir hún stöðugt á mann bænaraugum sem segja ÉG VIL MAT;MAT;MAT.
Nú styttist í röntgen...það er á mánudaginn. Segið þið ennþá 9. Víðir er að gefa eftir, ég held enn að þetta séu 5....Sædís systir segir að Nótt sé miklu meiri um sig en Snælda var........held að hún hafi fengið 8....þannig að ætli það þýði 16..úff get ekki hugsað þetta til enda.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Minni á netfangiđ

16. júlí 2008 klukkan 22:32
Vil aftur minna á nothæft netfang.     berglind_1@hotmail.com
Nú styttist í þetta allt og gott að hafa samskiptaleiðirnar greiðar.
Best er að hafa samband á netfanginu Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Rólegheit

15. júlí 2008 klukkan 22:22
Allt er gott að frétta. Nótt á nú orðið erfitt með að finna sér góða stellingu til að liggja í. Það er úr sögunni að liggja á maganum. Nú er það önnur  hvor hliðin sem í boði er að liggja á. Fórum alveg sér ferð í Ikea í dag til að kaupa kúru bangsa handa litlu skottunum tilvonandi, en viti menn, einhvern veginn tókst okkur að missa af staðsetningu þeirra í þessari að mér finnst óþolandi verslun, og ekki séns að ég sneri við til að leita að þeim.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Ćtli ţađ verđi ekki ađ fylgja međ sögunni ađ

15. júlí 2008 klukkan 00:44
Víðir leitaði að mér um allt húsið í morgun og fann mig í gotkassanum hjá Nótt........hann sagði að sjónin hafi verið frekar bjánaleg.
Kassinn er 120cm x 120cm. og ég svona tæpur 170 cm. Ég lá svona líka yndislega á bakinu með lappirnar út úr kassanum, með sængina yfir mér. Það hefði sjálfsagt verið fyndið að eiga þetta á mynd.
Ég spurði hvort Nótt hafi ekki legið í fanginu á mér................nei, hún lá sko alveg úti í einu horni kassans frekar bit á eigandanum.Svalur ha,ha.
Ykkur að segja, þá sleppti ég göngutúrnum í kvöld. Nenni ekki að sofa tvær nætur í röð í GOTKASSANUM.Brosandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Sofiđ í gotkassanum

14. júlí 2008 klukkan 14:53
Ég fór með Nótt í göngutúr í gærkveldi. Hún lausahljóp aðeins og fannst rosa gaman.
Nema hvað svo fórum við að sofa, og þá virtist henni líða mjög illa. Kviðurinn var spenntur og hún mjög óróleg og másandi. Ég hringdi í vakthafandi dýralækni, sem sagði mér að hitamæla hana. Þar væri nákvæmasta mælitækið á hvort hún væri að fara af stað. Hún var eðlileg í hita, sem sagt ekki lækkuð í hita, sem mundi þýða að hún væri að fara að gjóta. Ég hafði sem sagt svo miklar áhyggjur af henni, að ég SVAF í gotkassanum hjá henni.
Í morgun var hún hressari, en nú er það gjörgæsla það sem eftir er.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Sagađ út

13. júlí 2008 klukkan 21:20

Víðir sagaði úr einni hliðinni á gotkassanum, því dívan þykist ekki getað stokkið ofan í........en svo kemur maður að henni UPPi Í RÚMI hjá Gauta, sem er svona helmingi meiri hæð en gotkassinn.Svalur Algjör!
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Sigin brjóst og siginn magi.

13. júlí 2008 klukkan 00:28
Elsku Nóttin, nú er hún hætt að breikka, en maginn farinn að síga og spenarnir tútna út.  Já nú er heldur betur farið að styttast í þetta. Gotkassinn er klár og er rúmgóður og fínn. Við eigum orðið dagblöð í marga gotkassa Brosandi. Fullt er til af gömlum sængurfötum sem við komum til með að nota, og framundan er að kaupa þráð, og barna nefsugu. Spritt eigum við til að spritta skæri.
Svo er planið að taka saman gömul handklæði og hafa klár í þurrkarann til að hita fyrir hvolpaskottin. Ég sá á einni heimasíðu hjá ræktanda að hún hefur alltaf tilbúinn  nokkurs konar hitakassa ef einhver hvolpurinn þarf á smá gjörgæslu að halda.
Þá er hún með hitapoka í litlum kassa og setur hvolpana þar. Það er margt hægt að læra af öðrum.
Hún María nágranni minn sem á hana Rympu, er tilbúin að hjálpa mér í gotinu. Það er gott að vita af  því.
Já svo er auðvitað að hafa klárt símanúmerið hjá dýralækninum. Ég er heppin með að hún Ólöf í Víðidalnum verður á vaktinni þegar Nótt á að gjóta. Ég treysti henni rosa vel. Katrín hittir okkur þegar Nótt fer í röntgen 21.júlí, en daginn eftir fer hún í sumarfrí.
Það er nú eiginlega skondin tilhugsun...............en eftir að hafa átt sjálf fjórar meðgöngur og fæðingar að baki, hef ég ALDREI verið eins stressuð og VEL undirbúin og núna, þegar drottningin mín kemur að því að gjóta.
Ég hef lesið einhverssttaðar að tíkurnar bíði með að gjóta þar til eigandinn er heima hjá þeim....og ég ætla rétt að vona að ég verði ekki á VAKT þegar allt brestur á.
Ég er voða fegin að heyra frá ykkur, kæru vinir, og Agla, ekki hræða mig svona....ég bara sé þetta ekki fyrir mér 9 stykki. 5 eru alveg nóg.
Við fórum í Borgarfjörðinn í dag í bústaðinn hjá tengdamömmu. Úff hvað veðrið var boring, en gott fyrir gróðurinn....alltaf að reyna að sjá björtu hliðarnar.Svalur
Þangað til næst. Koss
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Eruđ ţiđ ţarna.?

10. júlí 2008 klukkan 13:46
Hæ. Teljarinn er bilaður og ég veit ekkert hvort einhver er að nenna fylgjast með okkurSkömmustulegur Ég sakna þess að vita ekki af ykkur. Jæja en annars er allt gott að frétta. Nú er farið að styttast í þetta. Nóttin er farin að lýjast og finnst gott að hvíla sig.
Í dag verður settur saman gotkassinn, svo daman fái að venjast honum aðeins.
Svo er planið að fara í Ikea og kaupa pínulitla bangsa sem hver hvolpur fær að fara með heim með sér...það þykir voða gott, svo þeir fari með lyktina frá mömmu sinni og systkinum, og það auðveldar þeim fyrstu dagana á nýjum stað.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Úti

08. júlí 2008 klukkan 12:53
Nú er Nótt að verða meiri og meiri um sig. Henni er heitt og finnst gott að vera úti á palli í svalanum og golunni.
Spenarnir stækka með degi hverjum og við erum alltaf öðru hverju að athuga hvort við finnum hreyfingar litlu skottanna í maganum hennar. Hingað til án árangurs.  Spennan vex jafnt og þétt, sem og vonin um að allt muni ganga vel þegar þar að kemur.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Landsmótiđ og helgin.

07. júlí 2008 klukkan 01:00
Jæja þá er helgin á enda. Kíktum á laugardaginn á landsmótið.  Djí hvað það voru falleg hross þarna, og meira og minna undan sama stóðhestinum, Orra frá Þúfu. Ég sem áhugamanneskja um vandaða ræktun bara VARÐ að fá að berja Orra frá Þúfu augum. Hann reyndist til sýnis í reiðhöllinni á svæðinu. Hesturinn 22 vetra, og drottinn minn hvað hann var fallegur. Á skilti mátti lesa um hann dóm, um ytra útlit, ganghæfileika, og hversu vænlegur til undaneldis hann er.
Að sjá svona fallegar skepnur ýtti  enn frekar undir áhuga minn á því að rækta fallega og heilbrigða hunda sem ég get látið af hendi stolt til eigenda sinna.
 Mér verður oft hugsað til þess, hvort fólk yfir höfuð hugsi út í heilbrigði dýrs sem það er að eignast. Það er ekki nóg að vera alveg hriiiiiikalega sætur og ómótstæðilegur hvolpur.
Ég er svo ánægð með þessa fyrstu pörun mína og dagarnir líða mjööööööög hægt núna, þeir hreinlega silast áfram.
Nóttin hefur það mjög gott. Það er alveg merkilegt hvað hún fer geyst miðað við ummál sitt.
Henni þykir voða gott að komast í göngur, bara svona léttar hverfisgöngur. Við látum fjalllendi og brekkur alveg vera þessa dagana.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Taka númer.

04. júlí 2008 klukkan 10:44
Já nú er gaman að segja frá því að vonbiiðlarnir/rakkarnir eru farnir að taka númer til að fá að parast við Nótt. Hún er svo mikil drottning, og ég er sko ekki hissa á því að hún sé eftirsótt.Hlæjandi Veit ég hljóma montin en ég tel mig hafa efni á því.Hlæjandi

Nú ætlum við út í göngu. Á morgunn ætlum við að kíkja á Landsmótið.  Nótt verður að vera í taumi,. og mér og henni þykjum það alltaf frekar súrt.
Veðurspáin er æðisleg, þannig að njótið þess að vera til nú sem alltaf.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Matur, matur og meiri matur

03. júlí 2008 klukkan 12:20

Lífið snýst um að borða þessa dagana hjá Nótt. Hvolparnir eru líka á hröðu vaxtarskeiði núna. Ætla að drífa mig út í hressandi göngutúr.
Minni á netfangið     berglind_1@hotmail.com

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Vesen međ tölvupóstinn.

02. júlí 2008 klukkan 20:55

Sæl verið þið. Það virðist vera eitthvað vesen með netfangið valshamars@live.com þannig að ég vil biðja ykkur að hafa samband á netfangið      berglind_1@hotmail.com.
Annars þá vorum við að koma inn úr göngu. Nótt er svo ótrúlega mikil skvísa. Með svo flottar línur, þrátt fyrir bumbuna sem vex og vex.
Hérna heima fyrir erum við farin að giska á fjölda verðandi hvolpa.  Það sáust þrír í mjög snöggum sónar um daginn.....en þeir eru pottþétt fleiri. Unnur og Víðir giska á 9...mér finnst það rosa margirSvalur
úff! Ég giska á 5.Saklaus
Nótt fer í rtg. 21.júlí, þá er ca vika í got, og í rtg verða taldar beinagrindur litlu skottanna.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Frćđandi og skemmtilegt.

02. júlí 2008 klukkan 10:18

Mikið var gaman af fræðsluþættinum á RÚV í gær. (back to the womb). Þar var fylgst með frá frjógvun og alla meðgönguna að gotii hjá tík. Ótrúlega flottur þáttur. Einnig var fylgst með meðgöngu fíls og höfrungs.
Þetta var alveg sérstaklega áhugavert fyrir okkur núna. Við horfðum á sjónvarpið og Nótt til skiptis.
Dagurinn fer í að dást að  hinni verðandi móður og gera allt fyrir hana svo henni líði vel.Hlæjandi

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Ljúfur göngutúr

01. júlí 2008 klukkan 18:56

Ætli við höfum ekki rölt í rólegheitum, alveg í hálftíma.Nótt var eldspræk og naut þess að hlaupa aðeins úti. En maður sér að hún er farin að verða þyngri á sér blessunin. Ég var mest hrædd um að missa hana í Varmána....ekki viss um að það sé gott fyrir hvolpaskottin að fá kuldasjokk Svalur Ekki minnkaðii það spennuna hjá Nótt, að mikið var um endur syndandi með ungana sína.
Á göngunni hittum við konu með hund sem ég varð að fá að vita hvaða tegundar var.Þetta var sem sagt blanda af íslenskum og einhverjum terrier. Hann var vægast sagt mjög spes. Eins og risastór terrier hundur. Hann nennti nú ekkert að tala við Nótt, hann orðinn 14 ára og grumpy.
Langar til að þakka ykkur sem kíkið við á síðuna okkar. Það er mjög gaman að sjá að einhver nennir að fylgjast með okkur.Glottandi

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Ţvagprufa

01. júlí 2008 klukkan 11:28
Góðan daginnHlæjandi Mér leist ekki orðið á tíðni pissuferðanna hjá skvísunni, og sem hjúkrunarfræðingur fékk ég þá flugu í höfuðið að daman gæti hreinlega verið með þvagfærasýkingu. Þannig að þá var að reyna að ná þvagprufu í dollu.
Það gekk upp eftir nokkrar tilraunir,því Nótt fannst undarlegur skyndilegur áhugi minn á mikilli nálægð við þessa ákveðnu athöfn hennar. Eftir tvær tilraunir tókst að ná þessu fína gripna þvagi...í dollu að sjálfsögðu.
Ég brunaði með sýnið til þeirra í Víðidalnum og þvagið stixaðist alveg hreint og fínt. Ég er rólegri yfir þessu og staðfestist þar með að hvolparnir eru að stappa á þvagblöðru mömmu sinnar.Svalur
Framundan er róleg lausaganga, einhverstaðar í nágrenni heimilisins.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd