VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

AÐ LESA BLÖÐIN

31. ágúst 2008 klukkan 22:13
Þið vitið að það hefur verið dálítið svona mikið að gera hjá mér frá því hvolparnir fæddust, og allt í lagi með það, nema ég komst að því einn daginn að ég hef ekki lesið blöðin lengi. Glefsurnar sem ég næ af því sem er að gerast  úti í þjóðfélaginu og úti í hinum stóra heimi, les ég um leið og ég tek í sundur dagblöðin og raða þeim hjá hvolpunum.  Það er svolítið kómískt en ég er farin að skanna blöðin þannig, að ég pikka út og nota ekki  síður sem eru með myndum af einhverjum sem ég þekki. Ég get ekki hugsað mér að láta hvolpana p og k. á hvern sem erSvalur.....jú jú, maður er soldið bilaður. Brosandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

FORSÍÐUNA PRÝÐIR VALSHAMARS - VINUR

31. ágúst 2008 klukkan 21:56
Þetta er ein af næstum 300 myndum sem atvinnuljósmyndarinn Anna María Sigurjónsdóttir (anna@portfolio) tók af hvolpunum um helgina. Glæsileg mynd af glæsilegum hvolpi.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Er þetta sætt eða hvað! :)

31. ágúst 2008 klukkan 00:21

Ég verð að deila með ykkur þessum yndislegu línum sem ég fékk í tölvupósti frá stoltum eigendum hans Valshamars-Vilja.

Oh já hann er það síðasta sem maður hugsar um áður en maður fer að sofa og það
fyrsta sem maður hugsar um þegar maður vaknar:) Erum meira að segja búin að
prenta út stóra mynd af Vilja og yngri strákurinn okkar kyssir og kyssir
myndina:)
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Mikið um að vera í dag

31. ágúst 2008 klukkan 00:10
Dagurinn er búinn að vera annasamur hjá hvolpunum.  Vinkona mín hún Guðbjörg sem á hann Ask yfirsjarm kom og gjörsamlega missti sig yfir hvolpunum. Það er svo gaman að sjá hvað það koma góðar tilfinningar og hlýjar fram hjá öllumi þegar það sér svona fegurð eins og hvolparnir eru. Og að handleika þá, hreint unaðslegt. Hún átti erfitt með að slíta sig frá þeim, eins og allir sem koma til þeirra.
Svo fengum við til okkar vinkonu mína, hana Önnu Maríu Sigurjónsdóttur sem er atvinnuljósmyndari.
Hún kom með þvílíkar græjur með sér og setti upp heilt stúdíó í stofunni hjá okkur. Hún tók alveg æðislegar myndir af hvolpunum og okkur tókst meira að segja að ná af þeim hópmyndHlæjandi Takk elsku Anna Mæja að gera þetta fyrir okkur. Súpermódelin voru alveg uppgefin eftir myndatökuna og fengu sér sopa hjá mömmu sinni og síðan góðan lúr, þar til Sædís systir og Pétur komu í heimsókn. Þá hófst knúsið og kjassið aftur. Þeir geta tekið endalaust við þessar elskur.Koss
Valshamars-Vilji er búin að eignast fjölskyldu og mun búa á Hvanneyri í sveitasælunni.

Vona að þið hafið haft það rosa gott um helgina og kærar þakkir fyrir að fylgjast með á síðunni....muna að kvitta fyrir komuna, það er umbun fyrir mig að halda úti síðunni. Alltaf gaman að lesa frá ykkur.Koss
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Nýjar myndir.

30. ágúst 2008 klukkan 00:36
Jæja. Þá eru loksins komnar myndir af hverjum og einum...Ég get sagt ykkur að það er ekkert grín að taka myndir af hvolpum.
En þessar verða að duga í bili.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Búr

29. ágúst 2008 klukkan 00:15
Þegar ég kom heim áðan eftir kvöldvaktina þá var Víðir búin að breyta rosa flott hjá hvolpunum.
Þeir voru baðaðir í kvöld, og það heyrðist ekki í þeim, þannig að eins og svosem vitað er...þá elskar labrador vatn. Búrið var sett inn hjá þeim og þeir elska það. Kúra svo sætir allir í hrúgu inni í því.
Þar vilja þeir sko sofa. Búrið er haft opið svo þeir komist út til að gera stykkin sín....of litlir til að stjórna nokkru svoleiðis ennþá.Saklaus
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Skondin saga.

27. ágúst 2008 klukkan 12:20
Ég veit þið hafið gaman af hvolpasögum. Þannig er mál með vexti að ég var í eitthvert af óteljandi skiptunum að þrífa hjá hvolpunum. Þá verður mér litið á langan glæran blómavasa sem ég á og liggur á hliðinni hjá hvolpunum. Vasinn var allur í móðu! Ég fer að athuga þetta nánar og viti menn, sefur ekki Oliver með hausinn inni í blómavasanum.Svalur Hann er svo fyndinn. Blómavasinn var færður.
Annars eru hvolparnir svo hressir að maður svona hugsar sig tvisvar um áður en maður fer inn í plássið þeirra. Þeir ráðast allr á mann í einu og vilja brjálæðislega athygli. Þá er lítið annað að gera en að reyna að halda jafnvægi og taka einn upp í einu og smella kossum og smá knúsi.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Vaxtarækt

26. ágúst 2008 klukkan 20:07
Af hvolpunum er allt gott að frétta. Það er hörku vaxtarækt í gangi. Mikið borðað og líka mikið p og k. Úff. Þeir verða fallegri og fallegri og skemmtilegri og skemmtilegri.
Nú styttist í að þeir fari á nýju heimilin sín. Vona að allir séu tímanlega í að gera ráðstafanir fyrir heimkomuna.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Þeir valhoppa

22. ágúst 2008 klukkan 23:24
Hafið þið sé labrador valhoppa. Það gera hvolparnir mínir. Þeir vaxa svo ótrúlega núna og þroskast svo hratt.
Við hlæjum okkur máttlaus mörgum sinnum á dag yfir vitleysunni í þeim. Sá minnsti í hópnum, við köllum hann alltaf flugmannssoninn....það er flugmaður sem er að eignast hann, sá  hefur heldur betur tekið sig á og er nú orðinn jafningi systkina sinna.Aftur á móti mætti halda að Oliver sé á sterum.  Hann er alveg á við tvo, í stærð og fyrirferð. Elsku Ester og Smári, þið eigið framundan gott verkefni :) nei segi svona, hann er æðislegur Eins og þið segið, hann á eftir að passa vel inn í fjölskylduna.
Ráðherrasonurinn virðist ætla að verða stilltur,prúður og yfirvegaður enda eins gott að koma vel fyrir. Ágústa ég get sagt þér að þú ert að eignast besta einkaþjálfara sem þú hefur hitt hingað til. Glottandi.Ég veit að Kalli og Páll bíða eftir að fá litlu skvísurnar sínar. Páli finnst 4 vikur langar að bíða, en svona er þetta víst. Vetur er alltaf jafn mikið krútt og er rólegaður og yfirvegaður. 
Víkingur og Vilji eru ótrúlega skemmtilegir. Get sagt ykkur að Víkingur ber nafn með rentu.
Hafið það nú gott um helgina. Ég ætla að taka daginn snemma á sunnudaginn, og horfa á úrslitin í handboltanum umvafin hvolpalandsliðinu mínu.................ég á nefnilega landsliðið í labradorhvolpum....þeir eru baaaaara flottastir.Svalur
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Nýjar myndir.

19. ágúst 2008 klukkan 22:16
Loksins drattaðist ég til að setja inn nýjar myndir. Nú eru hvolparnir að verða skemmtilegir. Miklir karakterar að koma fram. Það er nokkuð ljóst hverjir eru í forystu fyrir grúppunni. Það eru þeir Víkingur og Oliver. Báðir stórir og massaðir. Ágústa og eldri krakkarnir hennar komu í heimsókn í dag að heimsækja krúttið sitt. Þau áttu erfitt með að slíta sig í burtu sem er ekkert skrýtið. Það var svo gaman að fá þau í heimsókn og spjalla um hundauppeldi og svoleiðis.  Hlakka til að hitta ykkur aftur.Hlæjandi Annars er allt fínt að frétta af skottunum. Þeir borða orðið hvolpamat 4x á dag og blása út og verða fallegri og fallegri og fallegri.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Á svo mikla ást

16. ágúst 2008 klukkan 19:38
Smári, María og frænkan komu í dag að heimsækja hann Valshamars-Vörð/Oliver. Smári er eins og nýbakaður faðir og talar um hvað hann eigi mikla ást handa honum Oliver. Smári lagðist endilangur á gólfið og lék við hvolpaskottið, milli knúsa og kossa.  Myndavélin var með í för sem geymir minningar um hvolpaást, þar til Smári og María koma næst í heimsókn.Koss
Ég á von á því að Valshamars-Vetur verði heimsóttur á morgunGlottandi Svo er von á henni Guðbjörgu vinkonu minni sem á sjarmatröllið ASK, flottasta goldeninn á klakanum, hún ætlar að koma vopnuð myndavélinni sinni, og hefur einna mestan áhuga að ná subbulegum grautarmyndum.Svalur

Annars held ég að við séum að ná taktinum hjá hvolpunum.... Þeir sofa og vakna allir í einu! Þá er pissað alveg AKÚT...þarna komum við inn og skutlum þeim á staðinn þar sem þeir EIGA AÐ PISSA. Eftir það er farið á barinn hjá mömmunni og svo er það grauturinn. Í kjölfar hans er kúkað í steríó.......og aftur komum við sterk inn og skutlum þeim á kamarinn. Eftir þetta allt fara þeir aftur að sofa. Við skiptum út gömlum dagblöðum fyrir ný svo þeir geti vaknað ferskir og endurtekið leikinn.Brosandi
Berglind Gestsdottir
4 athugasemdir

FLUTTIR

15. ágúst 2008 klukkan 21:12
Já þá eru hvolparnir fluttir í innri garðskálann í stórt rými sem við stækkum eftir því sem þeir vaxa. Gotkassinn var fluttur yfir, þannig að þeir geta kúrt í honum ef þeir vilja. Svo er komið sag á gólfið. Það finnst þeim sérstakt fyrirbrigði.
Grautarstandið er hafið og subbuskapurinn ólýsanlegur...útskilnaðurinn eykst líka að sama skapi..herre gud, sem dæmi, þá vöknuðu dúllurnar átta allar í einu, stóðu upp og pissuðu gjörsamlega allir í kór.....hvernig er það eru ekki til bleyjur fyrir hvolpaSvalur
Já og annað. Við gáfumst upp á böndunum utan um hálsana á hvolpunum. Nú hafa allir hvolparnir neon appelsínu gult naglalakk einhversstaðar á kroppinum sínum.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Títuprjóna klær

14. ágúst 2008 klukkan 19:22
Nú þarf að drífa í að klippa af litlu títuprjónaklónum. Mamman er farin að veigra sér við að gefa hvolpunum og vill standa við matargjöfina. Klærnar eru orðnar eins og hvassir títuprjónar sem þeir stinga í mömmu sína þegar legið er á spena.
Hvolparnir fengu graut í morgunn.....það fór svolítið ofaní þá og mikið utan á þáHlæjandi.
Þeir verða fljótir að ná betri færni við þetta. Ég gaf þeim líka smá auka hvolpamjólk og það var eins með hana. Meira svona staðið og stappað í mjólkinni.
Núna líta þeir út eins og skrýtið dalmatíuafbrigði. Brúnir með hvítum skellum svona hist og her.Saklaus
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Annasamur dagur hjá skottunum.

13. ágúst 2008 klukkan 01:04
Það er búið að vera mikið um kelerí og knús í dag hjá hvolpunum. Nýjir eigendur komu í fyrsta skiptið og hittu hvolpinn sinn. Svo stóðu þeir af sér hátt í 20 manna afmælisveislu í kvöld. Þeir eiga því væntanlega eftir að sofa vel í nótt eftir góðan sopa hjá mömmu sinni. Brosandi Þakka rosa vel fyrir mig á þessum fallega afmælisdegi og svo gaman að hitta nýju hvolpaeigendurna, sem ég treysti 100% fyrir litlu gullmolunum mínum.
Framundan er að kenna skottunum að lepja graut......og mér skilst að það verði eitthvað subbulegt í kringum það......Hlæjandi
Þakka öllum sem kíkja inn á síðuna okkar.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Hringdi í manninn sinn og sagðist koma heim 23.september.!

10. ágúst 2008 klukkan 23:02
Jú alveg satt. Hún Kristín sem er að eignast hann Valshamars Vetur sá hann í fyrsta sinn í dag. Hún hringdi í manninn sinn og sagðist ekki koma heim fyrr en 23.september....um leið og Vetur fær að fara frá mömmu sinni. Skemmtilegt Hlæjandi
Það sem mér finnst svo ánægjulegt er, að hún hefur áhuga á að dýfa sér í hundaheiminn. Taka þátt í sýningum og svoleiðis.
Ég hlakka til að fylgjast með þeim og hitta þau sem oftast.
Annars er það að frétta að það gengur vel með hvolpaskottin. Maður horfir á þá stækka,styrkjast og þroskast. Þetta er afskaplega dýrmæt reynsla og ógleymanleg.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

VALSHAMARS LABRADOR VIÐ VÖNDUM OKKUR!

09. ágúst 2008 klukkan 22:33
Ég er svo ánægð þessa dagana, með Nótt og Henry og alla hvolpana þeirra.  Með pörunina, að það skyldi takast að para þessa tvo flottu fulltrúa labradortegundarinnar. Að uppfylla öll heilbrigðisskilyrði osfvr. Ég get ekki hætt að ítreka við ykkur og alla sem ætla að fá sér hreinræktaðan hund að skoða allt sem stendur á bak við hundana. Lesa sér vel til um tegundina og allt sem henni við kemur með tilliti til þess að þið eruð að eignast einn besta vin ykkar til næstu 10 - 12 ára. Vandið valið.
Ég hef lesið mér mikið til um labradorinn,ræktun og ræktendur. Í raun ætti ákvörðun verðandi hvolpa eiganda að hefjast löngu áður en hann/hún sér hvolpinn. Allir hvolpar eru sætir!  Ákvörðunin á að hefjast við fyrstu kynni við ræktandann Góð opin samskipti. Gott upplýsingaflæði og fræðsla.  Aðkoma að heimili ræktandans, er umhverfið snyrtilegt og þrifalegt. Þegar inn er komið er hreint og snyrtilegt. Er aðbúnaður tíkarinnar góður. Er aðstaða hvolpanna góð. Svo kemur eitt geysilega mikilvægt atriði. Er tíkin í góðu jafnvægi.
Er andrúmsloft á heimili ræktandans streitulaust. Lítur tíkin hraustlega út. Líta hvolparnir hraustlega út og heilbrigði í lagi. Eru þeir líflegir og mannelskir. Vandið ykkur.. Það gerum við.Hlæjandi


Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Allir komnir af stað og eru að breytast í skæruliða

09. ágúst 2008 klukkan 11:16
Nú eru hvolparnir búnir að opna augun, uppgötva í sér röddina, og þá miklu snilld að standa í lappirnar og hlaupa hratt..en detta svo yrifleitt. Þeir taka stundum fjöldasöng og spangóla hástöfum. Það er greinilegt að þeir eru að myndast við að fara að leika sér.
Ég er á leiðinni til dýra að kaupa hvolpagraut. Nú þarf að fara að færa þá yfir í stærra rými.
Einn hafði komist út úr gotkassanum í nótt. EUREKA hann var ekkert smá ánægður með sig
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Nýjar myndir

06. ágúst 2008 klukkan 22:09

Jæja þá eru loksins komnar nokkrar nýjar myndir. Hvolparnir eru tveggja vikna. Þeir vega nú á bilinu 1200 - 1500 gr. Þeir vaxa ótrúlega hratt...allt of hratt.
Við Vaka fórum út í göngutúr með Nótt og Tuma. Stöldruðum við á hátíðartorginu, og létum Nótt gera hlýðniæfingar. Já það er nokkuð sem þarf að stunda alla hundsævina kæru vinir, ef þið eigið eða eruð að eignast einn.
Við sem sagt létum hana setjast. Sitja kyrra í ansi langan tíma, meðan hún horfði á Vöku fela nammi. Svo var drottningin látin leita, og kölluð til baka. Að lokum æfðum við lausa hælgöngu. Og ég skal bara segja ykkur það, að hún er alveg meiriháttar dugleg.
Gleymi því alveg að við æfðum okkur í að standa. Jú,jú það þarf að æfa það að "standa fín". fyrir sýningarnar.Hlæjandi
Nótt er svo ÓTRÚLEGA flott núna, það eina sem við þurfum að gera er að massa hana upp...það gerum við með fjallgöngum og kippa upp spenunum....það gerum við með því að láta hana synda. Ég hlakka til þegar við getum farið að taka vel á því.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Farnir að kíkja

05. ágúst 2008 klukkan 21:21
Nú er farið að glitta í augun. Þetta er svo spennandi. Það er sagt að "fjandinn verði laus" þegar þeir fara að sjá. Þá er aðal missionið að komast út úr gotkassanum.
Við verðum að fara að gera ráðstafanir. Nú styttist í að þeir flytji úr gotkassanum í stærra rými. Reikna með að það verði um næstu helgi. Þegar þeir fara að fá graut,sem er aðeins þyngri í magann en mömmumjólkin, þá munu þeir fara að sofa á næturna í búrum. Það er mjög gott og athugið! Það veitir hvolpinum öryggi að sofa í búri, og hann á líka að vera í búri í bílnum. Semsagt best að búrvenja strax.
Sumum finnst það grimmt, en ég get fullvissað ykkur um það er það alls ekki.
Væntanlegir hvolpaeigendur koma í sína fyrstu heimsókn 12. ágúst. Ég hlakka mikið til að hitta nýju fjölskyldurnar.Hlæjandi
Ég mun setja nýjar myndir inn á síðuna í kvöld þegar ég kem af kvöldvaktinni.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Göngutúrar

04. ágúst 2008 klukkan 18:56
Jæja þá erum við Nótt búnar að taka upp gamlan sið, og förum í daglega göngutúra. Það er erfitt að sjá hvor okkar er glaðari að komast út og draga að okkur súrefni og brenna smá orku. Hvolparnir eru nú 12 daga gamlir, og við bíðum með óþreyju eftir að þeir opni augun. Það gengur vel með skottin. Þau þyngjast og dafna vel. Vonum að þið hafið haft það skemmtilegt um helgina og allir hafi komið heilir heim.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Alltaf að lesa um hunda.

03. ágúst 2008 klukkan 21:59
Hef það notalegt  og er að flækjast á netinu. Fann góða hundasíðu sem heitir.
www.dogchannel.com
Þarna er hægt að senda inn fyrirspurnir til lækna, hundasnyrta, þjálfara, dómara og hvaðeina.
Einnig eru þarna fullt af greinum eftir ofangreinda. Það er svo gaman að fræðast um hunda.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

2 hrikalega flottir rakkar eftir

03. ágúst 2008 klukkan 14:46
Allir hvolparnir voru orðnir fráteknir...en svo kemur upp babb í bátinn hjá fólki. Önnur fékk ekki leyfi fyrir hundinum, og hin fékk sér kokteil 1/3 íslending,1/3 labrador,1/3 bordercollie.
Við eigum þá 2 æðislega rakka eftir. Er annar þeirra þinn?Brosandi
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Útilegan mín

03. ágúst 2008 klukkan 02:26

Ég er orðin snillingur í að láta fara vel um mig á uppblásinni tjald dýnu í herberginu hjá hvolpunum.
Kvöldið var skemmtilegt hjá okkur. Góðir gestir og mikið hlegið. Hvolparnir eru farnir að taka lengri lúra, þannig að ég sá mér færi að skella þeim öllum á spenana hjá Nótt núna, áður en ég sofna. Ég vonast til að þessi aðgerð mín þýði að ég fái að sofa til morguns í einum dúr Svalur á tjalddýnunni góðu á gólfinu.
Ég er að horfa á hvolpana í samkeppni um spenana hjá mömmu sinni. Þetta er alveg ótrúleg barátta og ég get sagt ykkur að frekar hálf snúa þeir sig úr hálsliðnum heldur en að missa spenann sinn til einhvers annars. Hvolparnir vega nú hver um eitt kíló, og nú fara litlu augun að líta dagsins ljós í fyrsta sinn. Verð að segja ykkur frá því að hvolparnir eru nú farnir að reyna að stíga í fæturnar.....þeir draga sig áfram í fyrstu. Þeir eru svolítið eins og ofurölvi við þetta brölt sitt og enda oft á hausnum.Hlæjandi Lendingin er þó alltaf mjúk, þar sem æfingarnar fara fram á dýnunni í gotkassanum.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Svo ótrúlega sætt bréf sem væri gott fyrir allar nýju hvolpa fjölskyldurnar að prenta út og lesa vel.

01. ágúst 2008 klukkan 01:34

A Letter from your Lab Puppy

To Whom it may concern:

Man holding Lab PupI am your puppy, and I will love you until the end of the earth, but please know a few things about me. I am a puppy; this means that my intelligence and capacity for learning are the same as an 8-month-old child. I am a puppy; I will chew EVERYTHING I can get my teeth on. This is how I explore and learn about the world. Even HUMAN children put things in their mouths. It's up to you to guide me to what is mine to chew and what is not.

I am a puppy; I cannot hold my bladder for longer than 1-2 hours. I cannot "feel" that I need to poop until it is actually beginning to come out. I cannot vocalize nor tell you that I need to go, and I cannot have 'bladder" and bowel control until 6-9 months of age. Do not punish me if you have not let me out for 3 hours and I tinkle. It is your fault. As a puppy, it is wise to remember that I NEED to go potty after eating, sleeping, playing, drinking and around every 2-3 hours in addition. If you want me to sleep through the night, then do not give me water after 7or 8 pm. A crate will help me learn to housebreak easier, and will avoid you being mad at me. I am a puppy, accidents will happen, please be patient with me! In time I will learn.

I am a puppy I like to play. I will run around, and chase imaginary monsters, and chase your feet and your toes and 'attack' you, and chase fuzz balls, other pets, and small kids. It is play; it's what I do. Do not be mad at me or expect me to be sedate, mellow and sleep all day. If my high energy level is too much for you, maybe you should consider an older rescue from a shelter or Rescue group. My play is beneficial, use your wisdom to guide me in my play with appropriate toys, and activities, like chasing a rolling ball, or gentle tug games, or plenty of chew toys for me. If I nip you too hard, talk to me in "dog talk", by giving a loud YELP, I will usually get the message, as this is how dogs communicate with one another. If I get too rough, simply ignore me for a few moments, or put me in my crate with an appropriate chew toy. I am a puppy; hopefully you would not yell, hit or strike, kick, or beat a 6 month old human infant, so please do not do the same to me. I am delicate, and impressionable. If you treat me harshly now, I will grow up learning to fear being hit, spanked, kicked or beat. Instead, please guide me with encouragement and wisdom. For instance, If I am chewing something wrong, say "no chew!" and hand me a toy I can chew. Better yet, pick up ANYTHING that you don't want me to get into. I can't tell the difference between your old sock and your new sock, or an old sneaker and your 200.00 Nikes.

I am a puppy; and I am a creature with feelings and drives much like your own, but yet also very different. Although I am not human in a dog suit, neither am I an unfeeling robot who can instantly obey your every whim. I truly DO want to please you, and be a part of your family, and your life. You got me (I hope) because you want a loving partner and companion, so do not relegate me to the backyard when I get bigger, do not judge me harshly but instead mold me with gentleness and guidelines and training into the kind of family member you want me to be...

I am a puppy; and I am not perfect, and I know you are not perfect either. I love you anyway. So please, learn all you can about training, and puppy behaviors and caring for me from your veterinarian, books on dog care and even researching on the computer! Learn about my particular breed and it's "characteristics". This will give you understanding and insight into WHY I do all the things I do. Please teach me with love, patience, the right way to behave and socialize me with training in a puppy class or obedience class, we will BOTH have a lot of fun together.

I am a puppy and I want more than anything to love you, to be with you, and to please you. Won't you please take time to understand how I work? We are the same you and I, in that we both feel hunger, pain, thirst, discomfort, fear, but yet we are also very different and must work to understand one another's language, body signals, wants and needs. Some day I will be a handsome dog, hopefully one you can be proud of and one that you will love as much as I love you.

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir