VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Styttist í sprautu nr 2.

30. september 2008 klukkan 09:39
Kæra hvolpafólk.

Það styttist í næstu sprautu hjá hvolpunum. Reynið að fara með þá innan tímarammans. Það er mikilvægt.
Munið að hvolparnir geta orðið slenaðir eftir sprautuna í einhverja klukkutíma. Fyrsta sprautan virtist ekkert segja til sín, en það er alltaf gott að hafa það á bak við eyrað að þeir geti orðið eitthvað slappir.
Ég vona að þið séuð nú öll að komast yfir aðlögunarhjallann, og það sé komin góð rútína hjá ykkur öllum....allir séu búnir að finna taktinn :)
Hafið það rosa gott í dag......allt í einu kom þetta kalda haust. En þá klæðum við okkur bara betur, og náum okkur í rósrauðar kinnar og hressandi göngutúra með hundana okkar og tæmum hugann. Það er fátt eins gott og góður göngutúr með sjálfri/sjálfum sér og hundinum sínum,þegar allt er að fara til helvítis í þjóðfélaginu. Maður hreinlega gleymir þessu um stund og nýtur andartaksins.  Fögnum haustinu. :)
Berglind Gestsdottir
4 athugasemdir

Kćra Auđur.

29. september 2008 klukkan 15:04
Ég þakka þér fyrir bréfið. Á sýningunni sat með mér kona sem keypti hvolp af mér. Ég var að benda henni á ykkur hjá Tíbráar Tinda og segja henni að þið væruð með virtustu ræktendunum á landinu. Einnig benti ég henni á Auði Sif og var að tala um hvað hún væri flottur sýnandi og gerðuð hlutina svo vel. Svo ekki sé minnst á að við María hjá Náttrölla vorum að tala um hvað hún Berglind liti vel út.
Auðvitað samgleðst ég öllum sem tóku þátt í sýningunni. Ekki bara þeim sem unnu. Þegar ég sýndi Nótt í Fossatúninu var ég að fara í fyrsta skiptið. Eins og þú segir virðist  ég ekkert vit hafa á hundum og hef virðist ekki vera, heldur leyfi til að hafa skoðun á því hvað mér finnast fallegir labradorar og hvað ekki, af því að ég er ekki sérfræðingur í hundum.
Í Fossatúnið fór ég að mér fannst með fallega tík. Tilgangurinn var ekki að sigra eitt eða neitt. Heldur að fá að vita frá Labrador dómara hvernig hund ég væri með í höndunum. Ég hljóp síðan hring eftir hring og safnaði á mig einhverjum borðum sem ég vissi ekkert hvað þýddu. Í kjölfarið fylgdu svo rósettur og bikarar. Já okkur gekk vel. Og það var gaman, en eins og hann Kalli Bridde vinur minn, sem er reyndur og góður ræktandi, hlær mikið að mér og nú síðast á sýningunni að það sé erfitt fyrir mig að keppa eftir að hafa unnið svona stórt í fyrsta skiptið.  Fyrir mér skipta rósettur og bikarar ekki megin máli, það að fá fyrstu einkunn og góðan dóm er flott, allt í viðbót er bónus og bara frábært fyrir þá sem það fá.
Mér þykir skrýtið að maður þurfi að hafa farið á endalausar hundasýningar og helst til útlanda til að geta haft skoðun á því hvað sé fallegur labrador og hvað ekki.
Ég mun alltaf bera mikla virðingu fyrir þér og öllu sem þú stendur að. Ég mun geyma þetta bréf frá þér og lesa mér reglulega til áminngar um það  frá þér að ég hef ekkert vit á hundum. Þakka þér enn og aftur fyrir og innilega til hamingju með góðan árangur ykkar hunda.


Að neðan er bréfið frá Auði, það er gott dæmi um móralinn sem nú er innan hundaheimsins. Þetta bréf er frá virtum ræktanda og reyndum.  Þetta á að vera skemmtilegt en er það alls ekki. Ég var einmitt að tala um það við hann Dóra vin minn um daginn hvað þetta væri sorglegt og að maður hefði bara enga ánægju af þessu þegar þetta væri svona.





Sæl Berglind.
Takk fyrir að" samgleðjast "og vera svona mikill sérfræðingur eftir að hafa átt Labrador í heil tvö ár. Gaman að vita hvað þú hefur farið á margar hundasýningar á æfinni Berglind mín og hvað þú hefur séð marga Labba erlendis... Auðvitað eru alltaf misjafn smekkur manna á tegundinni. Það voru margar fallegar tíkur og rakkar á sýningunni sem eiga vonandi eftir að gera að það gott á sýningum í framtíðinni. En á þessari sýningu var það hún Tíbráar Tinda Serena Sól okkar sem vann tíkurnar og varð líka BHT 1 með sitt annað meistarastig og fyrsta CACIB og gerði svo enn betur og náði flottum árangri í tegundarhópnum og varð þar í þriðja sæti sem er frábær árangur í svona sterkum th. Ég veit ekki betur en að ég hafi óskað þér til hamingju og samglaðst þér þegar að Nótt þinni gekk vel á Fossártúni:) Og eitt verðum við að muna og að vita að það er enginn hundur gallalaus hvorki Nótt né Serena Sól :) Besti karlhndurinn hann Texas er líka gullfallegur Labbastrákur sem á örugglega eftir að gera það gott í framtíðinni enda ungur að árum.

Ég óska þér góðs gengis í framtíðinni kæra Berglind og gangi þér allt í haginn.

Með bestu kveðju Auður og Tíbráar Tinda voffar sem eru í sigurvímu :):)
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Ţá er labradorinn búinn ađ keppa.

27. september 2008 klukkan 17:29
Ég svaf ekkert í nótt ég var svo hrædd um að sofa af mér sýninguna.........það hefur nefnilega gerstSaklaus En ég sem sagt mætti á réttum tíma.
Jamm, og svosem eins og oft áður var ég ekki sammála dómaranum.Svalur Hefði viljað sjá annan sem besta rakkann og aðra sem bestu tíkina. En eins og þeir sem hafa fylgst með svona hundasýningum, þá er það  á endanum geðþótta ákvörðun dómarans hver vinnur. Þessi dómari þótti nú ekkert spes. Er allround dómari. Hann hafði mestan áhuga á að telja tennurnar í hundunum. Óákveðinnundarlegt. Stekkjardals hvolparnir fannst mér mjög flottir (4 - 6 mán.),Það verður gaman að fylgjast með þeim. Dóri var svo með sína hvolpa og þeim gekk mjög vel. Nátttrölla Bárður sýndi sig mjög vel og stóð uppi sem sigurvegari í ungliðaflokknum.. Ég hlakka til að sjá dóminn hans. Gaman að lesa hvernig hann dæmdi sá sænski.
Misty mamma Nætur stóð sig vel eins og alltaf og Kalli sýndi Bláskóga de ja vu/Sólu.Hún var mjög falleg. Hún var valin
 3.besta tíkin.Mjög flottur árangur. Hún Kristín sem á Valshamars-Vetur mætti á sýninguna. Hún fær + í kladdann Hlæjandi Það var gaman fyrir hana að sjá mömmu Nætur./Misty og alla þessa flottu labba. Greyið hún sat umkringd hundanördum eins og mér Guðsteini,Kalla ofl, og við töluðum nánast eitthvað óskiljanlegt tungumál. Henni fannst við vera eins og einhver sértrúarsöfnuður....lætur nærri lagi Glottandi
Við Nótt skelltum okkur síðan í klukkutíma göngu meðfram Varmánni. Nótt var eiginlega svona meira ofan í ánni.Brosandi og ég á göngustígunum.
Núna liggjum við báðar eins og klessur búnar á því............formið ekki alveg það besta, en það stendur til bóta. Nú skal tekið á því. Hrjót!
Berglind Gestsdottir
4 athugasemdir

KEEP UP THE GOOD WORK

25. september 2008 klukkan 09:52
Jæja hvernig ætli gangi hjá mannskapnum. Ég var að reyna að rifja það upp með honum Gauta hvort það hafi einhvern tímann verið svona vesen með hana Nótt eins og Skarpi og Elías eru að lýsa.:)
Við munum bara alls ekki eftir því. Annað hvort hefur hún allta verið svona góð eins og hún er í dag, eða að ég er komin með einhver svakaleg elliglöp....svo sem farið að slá í mann en common.
Svo er ég nokkuð viss um að það er eitthvað svakalegt gott karma á Hvanneyri. Þar gengur allt eins og í lygasögu. Engar fréttir eru svo líka góðar fréttir, en mikið ofsalega hef ég gaman af pistlum strákanna.
Keep up the good work. Já og HALLÓ! hvar eru myndir af hvolpaskottunum.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

ŢVÍLÍKAR REYNSLUSÖGUR. /Fyrirgefiđi strákar en ég GRÉT af hlátri.:)

23. september 2008 klukkan 23:44

Það er óhætt að segja að það hafi verið skítalykt af málinu í dag. Ég var að keyra Brunó heim og gleymdi að láta hann fara út og gera sitt áður. Á miðri leið finn ég þessa ferlegu lykt í bílnum og ég lít í spegilinn og sé að minn hafði ekki náð að halda í sér og svo eins og hann er í bíl - alveg óður, hlaupið um búrið, stigið í allt og svo klifrað í rimlunum á búrinu og skotið þannig klebrunum út um allt skott. Það skaust meira að segja einn kúkur yfir aftursætin og uppí loft og allt. Svo þegar ég er loksins komin heim, með æluna í hálsinum, því þið trúið ekki lyktinni í bílnum, þá opna ég efturhlerann á jeppanum og þá situr minn, starandi á mig, dillandi skottinu af ánægð yfir því að bíllin sé stopp og ég að ná í hann, með kúk um allan feld eins og að hann hafi velt sér uppúr öllu saman....Mig langaði svo að verða reiður en það var bara ekki hægt, þessi augu, og svo var þetta auðvitað mér að kenna....En þetta var lærdómsríkt.... Tekur einhver að séð að þrífa bíla að innan?


Ég tek undir með Skarpa og co. Nói reynir að naga allt sem hann kemst í þar með talið hendur, eyru og nef á mér og öðrum. Eins og þið segið; segja nafn hvolpsins og ákveðið NEI! Svo á strax að rétta þeim leikfang sem má naga. Eins hef ég notað aðeins ráð sem ég las en það er að núa þunnu lagi af Tabasco sósu á það sem ykkur þykir vænst um. Það var svolítið sárt að horfa upp á vælið, grátinn og hlaupin þegar Nói reyndi fyrst að naga eitthvað með sósunni á en ég beindi honum strax að vatnsdallinum og hann lagaðist fljótt. Ég var því aðeins hikandi við að nota þetta í fyrstu en nú set ég þetta á skógrindina,hælana á skónum (ekki leðrið) og ýmislegt í stofunni sem hann má ekki naga. Hann er því farinn að átta sig á því að þetta er ekki gott að setja beittar tennurnar á. Það virðist vera nóg núna að hann finni lyktina og þá heldur hann sig fjarri. Það er því pínulítil lykt hér inni sem minnir á Red Lobster veitingastaðinn... ;) Ég er ekki viss um hversu lengi þetta dugar en þá er að smyrja þunnu lagi á aftur uns hann lærir.

Ég er í bölvuðu basli með pissustand. Það kemur ekki píp frá honum nema hann sé í búrinu en þá lætur hann vita því hann vill ekki pissa í búrið. Ég lendi ævinlega í því að hann pissar smá gusum hér og þar og þó ég setji hann út og hann pissi þá getur vel verið að hann bæti aðeins við nokkrum mínútum eftir að hann kemur inn aftur. :( Ég fór í TAKK hreinlæti í gær; http://takk.is og keypti Blue sprinkler moppuna sem er á forsíðunni. Er líklega svipuð eða sú sama og Berglind er með. Þetta er algjör gargandi SNILLLD eins og ungdómurinn segir. Þetta er ódýrast þarna (3.550) en hann gaf mér góðan afslátt. Sama moppa eða mjög svipuð er á 7-9.000 BYKO og Húsasm. og eitthvað ódýrara í Bónus. Ég mæli með þessu. Nú eru gólfin okkar Nóa alltaf þau hreinustu í 101 R. :)

Nói er búinn að læra að sitja og bíða og er að læra að koma. Hann hlýðir ekki alltaf en þetta er allt að koma. Ég nota líka flautu á hann en ég er nýbúinn að bæta henni við svo hann er ekki alveg viss um hvað ég á við.
Eitt stutt fyrir „Sestu“ og „Bíddu“. Það verður í raun ein og sama skipunin.
Tvö stutt fyrir „Sækja“ eða hverja þá hreyfingu sem hann á að framkvæma nema að koma.
„Bíbb, bíbb, bíbb“ eða nokkurs konar "trilling sound" (nokkur stutt-hækkandi lækkandi hljóð) sem þýðir „Komdu“
Allt er þetta ennþá leikur og við erum líka að æfa okkur í að sækja. Ég fann ágætis plastkút (dummy) í Krónunni á nokkur hundruð krónur. Það var reyndar band þrætt í gegn með hnút á hvorum enda en ég tók það úr. Honum finnst þetta voðalega gaman.

Nói er ekki hrifinn af því að vera í bílnum. Hann vælir og grætur og ýlfrar. Kúkar og pissar þó hann sé nýbúinn að því úti og er voðalega aumur. Mér var sagt að stóra búrið hans væri jafnvel of stórt svo hann væri ekki nógu öruggur þar. Ég keypti því minna búr í Mosó til að hafa í bílnum. Það er lítið betra en ég ætla að prófa að breiða yfir það þannig að hann sjái bara út um eina hlið og sjá hvað það gerir. Það hjálpaði samt ekkert með stóra búrið. Að hafa annað búr er ómetanlegt. Það var allt of mikið vesen að brjóta saman stóra búrið og drösla því út til þess að setja það í bílinn. Búrin í Mosá eru á mjög góðu verði miðað við aðrar búðir sem ég hef skoðað. Þau eru ekki eins vönduð en ættu að duga ágætlega.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

ÚTRÁS

21. september 2008 klukkan 20:49
Nú er aðal starfið að dreifa huga Nætur. Við fórum í hressilegan göngutúr upp við Hafravatn í dag. Að sjálfsögðu höfðum við með bolta og Nótt sótti og sótti. Þetta var mikið hressandi. Ég fékk sendar svo fallegar myndir frá henni Halldóru. Ég ætla að stelast til að setja einhverja þeirra inn á síðuna. Kíkið á myndasíðuna.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Hć öll

19. september 2008 klukkan 13:49
Takk fyrir að skrifa inn á síðuna hvernig gengur með hvolpana og hvað þið eruð að gera.
Ég er viss um að seinna meir mun það verða skemmtilegt að líta til baka með því að lesa pistlana ykkar og dagbókina mína og skoða myndirnar. Það líður ekki á löngu þar til að þið efist um að hvolpurinn ykkar hafi nokkurn tíma verið svona lítill eins og hann er í dag.:)
En ég vona svo sannarlega að tíminn sem þið eigið framundan með hundinum ykkar verðii bara frábær.
Njótið hvers dags eins og hann sé sá síðasti :)
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Út ađ aka og fyrirlestur 25.okt

18. september 2008 klukkan 00:08
Von fór í bíltúr í kvöld. Mosó  - Kóp og til baka. Hún var alveg eins og ljós, en þó greinilegt að henni stóð ekki alveg á sama. Vildi láta halda á sér eins og ungabarni. Hún er svo yndisleg og góð. Það gengur vel að grípa hana við losunarathafnirnar og rjúka með hana út fyrir, en hún er held ég ekki að tengja klappið og skrækina fyrir frammistöðuna. Horfir eiginlega á okkur eins og hún hugsi! ÞAÐ ER EITTHVAÐ MEIRIHÁTTAR AÐ ÞESSU LIÐI :) Þá er það þriðja nóttin framundan í búrinu. Nú mun hún sofa ein.

Já svo er spennandi fyrirlestur þann 25.okt á vegum HRFI. Ég verð þar.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Fór út ađ pissa í Ike.

17. september 2008 klukkan 00:57
Já þótt hún sé ung, þá er hún búin að upplifa lætin í flugeldum og fara út að pissa í restinni af fellibylnum IKE. Það haggar Von ekkert. Ég var á kvöldvakt á gjörgæslunni og krakkarnir sáum um hundana.
Nú er hún farin að kúra sig í búrinu með mömmu sinni. Það heyrist ekki í henni Hlæjandi Ég er því að vonast eftir heilum og værum nætursvefni eftir erfiða vakt.
Ég fékk svo fyndnar myndir sendar frá Myrru og Hjalta sem eiga Valshamars Vilja/RÖKKVA.
Kíkið á myndasíðuna.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

ŢEGAR VONIN EIN ER EFTIR.

16. september 2008 klukkan 00:15

Þetta hljómaði dramatískt Svalur En þannig er nú staðan Von er nú ein eftir. Kalli kom í dag og tók hana Visku með sér heim. Ég er rosa ánægð að það skuli vera komin tík frá mér í Bláskógaræktunina. Hlæjandi
Ég er því í nákvæmlega sömu stöðu og þið elskuleg. Búrið er komið inn svefnherbergi til mín.
Ég fékk þá snilldar hugmynd að stinga chihuahua hund spottinu í búrið með Von. og viti menn. Hún steinþegirGlottandi EF YKKUR VANTAR CHIHUAHUA TIL AÐ PASSA FYRIR YKKUR ÞÁ MEGIÐ ÞIÐ FÁ HANN...EN ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ SKILA HONUM AFTURSvalur 
Jæja nú ætla ég að njóta þess að leggjast í bælið með uppáhaldstímaritið mitt SÁM sem barst inn um lúguna hjá mér í dag.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Vá hvađ ţetta er skemmtilegt.

15. september 2008 klukkan 18:11
Þetta er bara skemmtilegt. Svo gaman hvað gengur vel hjá ykkur. Elsku Myrra og strákarnir, það er eitthvað rosalega gott karma í kringum ykkur. Allir svo RÓLEGIR hjá ykkur. ÉG ÞARF AÐ KOMA TIL YKKAR í SLÖKUN.
Smári hringdi í dag. Hann er í sjöunda himni blessaður kallinn. Allir hvolparnir eru gjörsamlega að bræða alla í kringum sig, enda ekki annað hægt.
Skarphéðinn þetta er nú soldið gott comment hjá henni Pálu :)
Að eiga fallegan og góðan hund  auðgar lífið og dregur fram allt það góða í okkur. Það verður til þess að geðheilsan og almenn heilsa verður  miklu betri.  Vitiði til. Þið eigið eftir að sleppa við allar flensur í vetur :) og skammdegisþunglyndið verður algjörlega úr sögunni með þessa sólargeisla í kringum sig.

Bestu kveðjur
Hvernig væri að senda "ömmunni" myndir. :)
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Ţiđ eruđ alveg yndisleg.

15. september 2008 klukkan 00:16
Æðislegt að fá að heyra svona frá ykkur. Endilega skrifið hérna inn fyndnar uppákomur og svoleiðis.
Ég dó næstum úr hlátri yfir honum Smára inni í búrinu. Hann hefur greinilega keypt STÆRSTU GERÐINA.
Alveg dásamlegur. Valshamars skvísurnar eru hér í góðu yfirlæti. Og nú er ég bara í sama pakkanum og þið. Alltaf á pissu og kúkavaktinni og síhlaupandi út með þær til skiptis, og gengur bara nokkuð vel.
Blessuð verið þið hver dagur sem er framundan verður betri en sá liðni. Gangi ykkur rosalega vel, og munið að vera alltaf með plastpoka í öllum vösum, og ekki er verra að vera með hundanammi líka, til að verðlauna góða frammistöðu.
Koss
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

6 farnir

14. september 2008 klukkan 00:19
Allir strákarnir mínir eru farnir á góð heimili. Við heimsóttum Vetur í Keflavík og það var greinilegt að hann hefur það gott umvafinn kærleika. Eins er með hina. Það var skrýtið að sjá þá fara í dag, en líka gaman að sjá gleðina hjá öllum nýju fjölskyldunum. Þetta var ekki eins erfitt og ég hélt það yrði.Hlæjandi
Systurnar sakna bræðra sinnaGráta
Berglind Gestsdottir
4 athugasemdir

Ađ brynna músum.

12. september 2008 klukkan 23:21
Jú,jú gráturinn er hafinn.......áður en þeir fara. Unnur og Vaka hafa nú byrjað sorgarferlið, sem ég er búin að reyna að verja sjálfa mig fyrir frá því þeir komu í heiminn.
Ég sætti mig við þá hugsun að ég fæ að fylgjast vel með þeim öllum. Enginn langt í burtu frá mér.
Ég er samt svo glöð fyrir hönd allra þeirra sem fá nú nýjan konfektmola í fjölskylduna sína. Allt pottþétt fólk.
Svo treysti ég á ykkur að skrifa hér á síðuna það sem  á daga ykkar drífur með hvolpunum. Þetta verður nú ekki bara dans á rósum. Skarphéðinn og Elías ég treysti því sérstaklega að þið verðið duglegir að skrifa, þið eruð ótrúlega góðir og skondnir pennar.
ÉG VIL HAMRA Á TVENNU  LABRADOR TELST HVOLPUR Í  3ÁR! BE READY FOR IT.
OG  ÞIÐ GEFIÐ BARNI ALLT AÐ 3 ÁR TIL AÐ VERÐA HÚSHREINT . VERIÐ ÞOLINMÓÐ VIÐ HVOLPINN!

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Örmerking, bólusetning, ormahreinsun,tryggingar og ćttbókarskráning.

12. september 2008 klukkan 14:59
Vaknaði  örmagna eftir annasama kvöldvakt sem dróst á langinn fram á nótt. Kom heim, og mér til "ánægju" hafði ekki verið gengið nógu vel frá hvolpagirðingunni og þeir sem sagt í essinu sínu um allan skálann og búnir að "baka" út um allt. Get alveg sagt ykkur að ég var varla í stuði til að fara að þrífa, en ég bara get ekki haft sóðalegt í kringum þá. Þannig að það var bara að vinda sér í skúringagræjurnar og hefjast handa.
Vaknaði svo eldsnemma í morgunn og endurtók þrifin, setti hvolpana út að borða í góða veðrið.
Katrín Davíðsdóttir sem ég tel eina af færustu dýralæknunum kom heim og  heilsufarsskoðaði,örmerkti,bólusetti og ormahreinsaði. Við tók svo hjá mér heljarinnar pappírsvinna.
Þusti síðan í HRFI með alla pappírana fyrir ættbókarskráninguna. BARA SVO ÞIÐ VITIÐ ÞAÐ, AÐ SVARIÐ SEM ÉG FÉKK UM AFHENDINGU ÆTTBÓKANNA, ERU ALLA VEGA 4 VIKUR. Þær verða svo sendar til mín og ég kem þeim til ykkar.
Tryggði svo allt stóðið hjá VÍS. Hvolparnir eru líf,slysa og sjúkdómatryggðir.

Á heimleiðinni varð ég að koma við í Hundaheimi hjá henn Esther. Ég keypti auðvitað nýjasta cosy bælið fyrir Nótt.  Keypti líka Dermoscent til að setja í feldinn hennar. Ég mun baða Nótt í kvöld og hvolpana á morgunn fyrir heimferðina.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Hvolparnir yfirgefa hreiđriđ.

11. september 2008 klukkan 12:00
Jæja þá er komið að því að hvolparnir skipti um heimili.
Dýralæknirinn kemur í fyrramálið og svo er það að rjúka í félagið  með ættbókarskráninguna og að tryggja skottin.
Ég vona að allir séu að gera klárt fyrir heimkomuna. Vá hvað ég held að það verði gaman hjá öllum.
Skrifum á þessa síðu fer þá að ljúka, en hún verður áfram opin fyrir þá sem vilja fylgjast með hvað er að gerast hjá  Valshamars ræktun.

Ég vil minna á HRFI sýninguna laugardaginn 27.sept. Labradorinn er á laugardeginum kl. 9. Ég verð þar.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Í ÖĐRU TÍMABELTI..........

10. september 2008 klukkan 23:51
......................EÐA UNDIRMEÐVITUNDIN AÐ stríða mér. Mér skilst skv. dagatalinu sem almenningur notar að hvolparnir hafi orðið 7 vikna í gær. Það þýðir að þeir megi fara frá mér svona hvað af hverju.
Ætla að tala við dýralækninn á morgunn. Það væri ágætt að geta farið að dreifa aðeins álaginu...á ca. 8 fjölskyldurHlæjandi
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

STÖKK UPP Í SÓFANN

10. september 2008 klukkan 00:20
Ég var að vinna í kvöld en fékk þær fréttir þegar ég kom heim að Viska hefði STOKKIÐ UPP Í SÓFA OG AFTUR NIÐUR og verið eins og gormur í allt kvöld. Við erum að tala um 6 vikna gamlan hvolpHissa Það er enginn smá kraftur í skvísunni.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

FORSÍĐUNA PRÝĐIR VALSHAMARS - VÍKINGUR

09. september 2008 klukkan 11:06
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

15 kíló. af mat á nokkrum dögum

08. september 2008 klukkan 16:06
Get svarið það. Þeir eru að éta mig út á gaddinnHlæjandi 15 kílóa sekkur endist ekki í viku.
Þeir eru líka við það að éta mig lifandi, þeir elska mig svo mikið....eða eitthvað. Líklegast er þetta matarást. Enn eina ferðina þarf ég að hringja í hann Kjartan hjá PROPAC og biðja hann um að skutlast með  eins og vörubílspall af PROPAC hundamat og ég ætla líka að fá mér Furminator.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Bađ dagur.

07. september 2008 klukkan 16:14

Eftir að hafa hlaupið aðeins úti, borðað vel og drukkið hjá mömmu sinni var öllum skellt í bað. Sjá nýjar myndir.
Síðan léku þeir sér frjálsir í garðskálanum í góða stund á eftir. Núna liggja þeir alveg eins og skotnir.
Takk fyrir að skrifa á síðuna okkar. Saklaus

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

FORSÍĐUNA PRÝĐA ŢEIR FEĐGAR BLÁSKÓGA CARRIEGAME DO DA DAY/HENRY, VALSHAMARS VILJI OG VALSHAMARS VÖRĐUR.

07. september 2008 klukkan 01:07
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Skemmtilegur dagur.

07. september 2008 klukkan 01:06
Það var fjör hjá okkur í dag. Henry kom í heimsókn. Rosalega var gaman að sjá hann aftur. Hann er alveg yndislegur. Kalli og Agla komu með hann og voru með litlu Mettu með sér. Það var gaman að horfa á Kalla þegar hann var að stilla tíkunum upp og skoða þær. Þær eru mjöööööööög flottar. Hann valdi sér hana Visku. Nú langar mig svo að halda henni Von eftir.
Kristín, Guðjón og Víðir, Skarphéðinn,Pála og krakkarnir þeirra og Elías og Anna Mæja komu öll að berja kappann augum sem og að heimsækja hvolpaskottin sín.
Kristín og Co. og Skarphéðinn og co. stoppuðu í kaffi og kökur, og Elias og Anna Mæja komu seinni partinn og voru hjá okkur í mat. Ekki má gleyma ljúfu innliti Maríu og þorsteins í Lágholtinu. Þau eru með Nátttrölla ræktun. Þau sögðu að ég væri örugglega með flottasta gotið sem væri í gangi núna Svalur uh! ég varð ekkert smá montin, og sagðist bara vera rosa þakklát fyrir hvað allt virðist hafa lukkast vel osfrv.
Ég hef alltaf gaman af að hitta Maríu, við höfum mjög sterkar skoðanir á ýmsu í hundaheiminum og liggjum ekkert á þeim skoðunum. Það væri gaman að pústa aðeins út hér, en held að þetta sé ekki vettvangurinn. Ég get alveg látið það flakka að það sýður á mér út af ýmsu sem er í gangi.Öskrandi Alls konar rusl got og önnur þar sem heilbrigði er ekki uppfyllt.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Útilega

05. september 2008 klukkan 17:16
Það var svo gott veður í morgun að ég setti hvolpana bara út.
Færði hvolpagrindina út og tengdi búrið við. Mér finnst alveg merkilegt hvað þeir eru farnir að láta vita þegar þeir þurfa að k. Þá sífra þeir og vilja komast út úr hvolpagrindinni. Ég stekk til og set þá út í grasið og hrósa þeim mikið.
Ég tók myndir af útilegunni, og set þær inn þegar ég kem heim af kvöldvaktinni.
Henry kemur á morgunn í heimsókn og ég hlakka mikið til að sjá hann, hann er svo hrikalega flottur.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Stćrđin skiptir ekki máli.

04. september 2008 klukkan 10:23
Mér er svo hugsað um það þessa dagana, þegar fólk er að velja sér hunda. Að það sé meiri fyrirferð í þessum heldur en hinum. Ég get sagt ykkur að mesta fyrirferðin er í litlu hundunum. Þeir eru yfir höfuð taugaveiklaðir og oftar en ekki mjög grimmir. Það þarf alveg jafn mikið að hreyfa litla hunda eins og stóra. Eini munurinn er kannski þegar kemur að bílferðum. Smáhundarnir þurfa minna búr. Ég tala af reynslu, og mundii aldrei fá mér smáhund aftur, eftir að hafa eignast labrador. Það er oft sagt, ég á ekki hund ég á LABRADOR. Labradorinn er vinsælasti hundur í heiminum og hefur verið í mörg ár. Ég var með Henry hér í hálfan mánuð og ég fann ekki fyrir því að ég væri með tvo stóra hunda.  Kannski af því að ég er í stóru og rúmgóðu alvöru hundahúsi. Ég er að vonast til þess að fá Henry í heimsókn um helgina.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

FORSÍĐUNA PRÝĐIR VALSHAMARS - VÖRĐUR.

04. september 2008 klukkan 00:35
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Gabríel og Bjarki

03. september 2008 klukkan 22:02
Þeir komu í dag með mömmu sinni og pabba, þeir bræður Gabríel og Bjarki. Báðir eru þeir lítil kraftaverk.
Gabríel fæddist fyrir tímann og Bjarki með flókinn og mikinn hjartagalla, og hefur litla skinnið gengið í gegnum stóra hjartaaðgerð í Bandaríkjunum. Þeir komu sem sagt að hitta hann Valshamars - Vilja/Rökkva.
Mér líst mikið og vel á þessa ungu fjölskyldu. Rökkvi á eftir að eiga góða ævi hjá þeim eins og öll hin hvolpaskottin mín.
Ég er aðeins farin að finna fyrir aðskilnaðarkvíða............Brosandi
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

FORSÍĐUNA Í DAG PRÝĐIR VALSHAMARS - VETUR.

03. september 2008 klukkan 10:59
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Unnur á vaktinni.

03. september 2008 klukkan 10:57
Í gær var Unnur á vaktinni og stóð sig með mestu prýði. Hvolparnir fóru aftur út að leika í garðinum, og nutu sín vel. Ég var að vinna í gærkvöldi og ég missti af því þegar Kristín, Guðjón og Myrra komu að heimsækja hvolpaskottin sín.  Mér skilst að fólkið svífi um á bleikum skýjum af gleði og tilhlökkun Hlæjandi
Myrra og fjölskylda ætla svo að koma í dag og heimsækja hann Valshamars Vilja.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Ólar og útivist

02. september 2008 klukkan 01:25
Já. Fór til hennar Estherar í Hundaheimi og splæsti ROGZ hálsólum á hvolpana.  Hún átti bara 7 liti, þannig að við urðum að hafa einhverja ólíka með sama litinn. Það var nú ekki flókið reikningsdæmi. Oliver og Flugmannssonurinn eru með eins hálsbönd.
Því var spáð að þeir mundu djöflast þar til þeir losuðu sig úr ólunum, en þeir voru svona líka bara sáttir við hálsmenin.
Veðrið í dag var yndislegt og því tilvalið til útivistar. Hvolparnir fóru út í hollum. Ekki vitglóra í að setja þá alla út í einu.
Þeir skoppuðu um á pallinum og svo líka í grasinu. Það var mikið gaman. Unnur Freyja tók myndir af þeim úti að leika...á símann minn. Ég set þær inn hið fyrsta. Skarphéðinn,Pála og krakkarnir þeirra komu að hitta hann Valshamars-Víking....það var auðvitað ást við fyrstu sýn. Hvernig er annað hægt.Koss Víkingur verður ekkert smá heppinn. Hann fær að vera með Skarphéðni í vinnunni.
Það er lúxus.....veit ekki hversu mikill vinnufriður verðurSvalur
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Stoltur rćktandi hún Berglind

01. september 2008 klukkan 11:00

Valshamars - Víkingur mun búa í Hafnarfirði.
Valshamars - Vilji mun búa á Hvanneyri.
Valshamars -Vörður mun búa í Grafarvogi.
Valshamars- Vetur mun búa í Keflavík.
Valshamars - Vaskur/Oliver mun búa í Grafarvogi.
Valshamars - Vinur mun búa á Grettisgötu.
 Valshamars skvisurnar Viska og Von eiga vísan samastað bara ekki klárt hvor hver hvað.

Og það sem er best við þetta allt er að þeir verða  ekkert svo langt í burtu frá mér, sem mun vilja fá að fylgjast með og heimsækja þá öðru hverju.
Einnig gera þessar stuttu fjarlægðir okkur hundafólkinu auðveldara að hittast með allan hópinn.
Mig langar líka að fá að sína þá í afkvæmahópi á sýningunni eftir áramót.

Ég vil ítreka það hvað ég er ofsalega ánægð með allar fjölskyldurnar sem fá hvolpana hjá mér.
Allt fólk sem ég treysti 100% fyrir litlu skottunum mínum.  Ég þakka ykkur endalaust fyrir að velja VALSHAMARS RÆKTUN. Þið eru bestu meðmælin mín.Koss

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir