18. október 2008 klukkan 17:44
Vá hvað þetta er búið að vera fínn dagur. Við stelpurnar fórum í heimsókn á þrjá staði með ættbækurnar og tryggingaskírteinin. Við byrjuðum hjá henni Von. Hún hefur það ljómandi gott, er yndislega falleg og góð. Hún og Tinna eru orðnar miklar vinkonur. Halldóra segir hana algjöra dekur rófu.
Þá var það að kíkja á hann Brúnó...............orkubolti sem þarf ákveðni og aga. :) Geysilega flottur rakki, greinilega elskaður út af lífinu :)
Og að síðustu átti ég stefnumót við hann Smára sem á Oliver uppi við Hafravatn. Ég hef eiginlega haft mestar áhyggjur af því hvernig gengi með hann.........svo hef ég ekkert heyrt frá Smára lengi.
Viti menn. Oliver risinn og ruddinn í gotinu, er aaaaaaaaaalveg eins og pabbi sinn/Henry. Pollrólegur, stór og glæsilegur. Þvílíkt jafnaðargeð. Ég eiginlega trúði ekki mínum eigin augum.
Ég hef hlakkað til þessa dags lengi, og ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Flottu hvolparnir mínir. :)
Næst er að heimsækja General Patton, Rökkva,Nóa, Visku og Vetur. Bara skemmtilegt.
Berglind Gestsdottir
18. október 2008 klukkan 00:04
HÆ! voruð þið farin að sakna mín.
Ég hef bara ekki verið í neinu stuði til skrifa síðustu dagana. Ég ætla þó að deila með ykkur lífsreynslu sem ég varð fyrir á sunnudaginn var. Þegar Nótt er inni, þá er hún ekki með ól, og því ekki merkt!
Þetta var seinnipartinn á sunnudaginn. Víðir var úti í garði í vonlausri baráttu við haustlaufin, og ég hélt að Nótt væri úti hjá honum. Víðir hélt hins vegar að Nótt væri inni hjá mér. Það kom því að því að hundurinn var einfaldlega týndur og hafði verið það í ca. 1 klst. Klukkan var að verða 18. Við hentumst í sitthvora áttina að leita að greyinu án árangurs. Að endingu hringdi ég í hundaeftirlitið sem sagði Nótt vera á LEIRUM. ÉG FÉKK ÁFALL. Klukkan var nú 1805. Ég hringi akút á Leirur. NEI þá gat ég ekki fengið að sækja hundinn af því að það væri búið að loka.....það var nú samt svarað í símann!!!. Hundurinn þurfti því að dúsa þar yfir nóttina. Ég spurði út í vistarverur, alveg gjörsamlega miður mín yfir því að hafa misst frá mér elsku Nóttina. Jú var svarið hún yrði í sér herbergi og fengi fínt að borða og drekka..........ég svaf ekki mikið þá nótt. Morguninn eftir varð ég að bíða eftir að bæjarskrifstofurnar opnuðu, svo ég gæti borgað refsigjaldið, fengið kvittun, sýnt hana á Leirum og endurheimt Nóttina. Ég þurfti síðan að borga næturgistinguna á Leirum líka.
Vaka fór með mér að sækja Nótt. Við keyrðum upp að staðnum og á móti okkur tóku geltandi írskir setar, sem hoppuðu upp á bílinn og hvaðeina. Í gerði var fullt af geltandi hundum. Við höfðum greinilega vakið athygli, þar sem starfsmaður kom út og ég stundi upp að ég ætti hund hjá honum. Við fórum með inn í einhvern skúr.......og lyktin! Ég sá Nótt greyið froðufellandi af skelfingu bak við rimla.Því er skemmst frá að segja að um leið og maðurinn opnaði hliðið fyrir Nótt þá rauk hún framhjá okkur og út í bíl. Ég hélt hún ætlaði að fara í gegnum rúðurnar. Ég ætlaði þó aldrei að getað losnað við írska rakkann af Nótt þar sem hann ætlaði sér greinilega stóra hluti. Dj. fóru þessir setar í mig..hef aldrei fílað þá tegund anyway. Maðurinn kallaði á eftir okkur...........VERTU SVO VELKOMIN MEÐ HANA Á HÓTELIÐ!
Nótt var alveg miður sín allan daginn, og með rennandi niðurgang sjálfsagt af geðshræringu, og matnum sem hún fékk. Ég varð líka að baða hana, því lyktin af henni var óbærileg.
HÓTEL LEIRUR ERU EKKI FYRIR MIG.
Passið hundana ykkar. :( Ég er gjörsamlega miður mín eftir þessa lífsreynslu. Þetta var ömurlegt.
Berglind Gestsdottir
12. október 2008 klukkan 00:26
Ættbækurnar komu á föstudaginn í póstinum. Ég fer því að banka upp á hjá ykkur þá og þegar.
Fór með Nótt í augnskoðun í gær. Augnlæknirnn fann ekkert athugavert við sjónina hjá henni. :)
Fórum síðan í Kjósina, þar sem Nótt hljóp, hljóp og hljóp. Veðrið var æðislegt.
Berglind Gestsdottir
08. október 2008 klukkan 14:23
Þessi mynd er sniðug :) Hún Anna Mæja tók hana. Hvað getur maður annað gert þessa dagana en hrist hausinn.:)
Mér finnst ég svo rík að eiga hana Nótt núna. Vá hvað mér þykir vænt um hana......jú,jú og líka Tuma og köttinn og krakkana og kallinn. :) Maður má víst ekki gera upp á milli.
Það er svo merkilegt þegar erfiðleikar steðja að, og ég get sagt ykkur að það hefur reynt á það hjá mér, þá er eins og dýrin myndi skjaldborg í kringum mann, og efli varnirnar. Þessi skilyrðislausa ást, augnaráðið og nærveran, er svo ómetanleg. Ef ykkur líður illa, leitið þá til dýranna ykkar.............já og munið ÚT AÐ LABBA.
Hugsa til ykkar alla daga og sendi ykkur hlýja strauma :)
Berglind Gestsdottir
07. október 2008 klukkan 21:54
Finnst ykkur það eðlilegt að 6 ára barn hlusti þannig á fréttir að hún taki eftir því að olíuverð sé að lækka.

og geri sér grein fyrir að það sé jákvætt. Annars þá fórum við Nótt í góðan göngutúr í dag. Það var svo hressandi, að ég dreif í því að þvo allar rúður á húsinu að utan OG innan........og við erum að tala um margar og stórar rúður.
En hvað með ykkur....
Berglind Gestsdottir
07. október 2008 klukkan 01:41
Það er bara einfaldlega þannig. Þegar á móti blæs,stígum við fastar í lappirnar, setjum undir okkur hausinn og gefum ekkert eftir. Ryðjumst áfram. Mig langar til þess að mæla með því við ykkur, til að halda í geðheilsuna á þessum skelfingar tímum, að setja ykkur það markmið, að fara út í hressandi göngutúr á hverjum degi með hundana ykkar. Klæðið ykkur bara eftir veðrinu. Ekki láta norðan garrann stoppa ykkur af. Þeir göngutúrar eru bestir.Ég skora á ykkur.
Berglind Gestsdottir
06. október 2008 klukkan 09:48
Jæja kominn mánudagur eina ferðina enn, og október bráðum hálfnaður. Mér finnst þetta ekki alveg eðlilegt hvað tíminn líður hratt. Brjálað veður. Það er einhvern veginn allt í stíl þessa dagana. Það er ekki hundi út sigandi.
Það væri nú gaman að heyra frá ykkur hvernig gekk hjá dýralæknunum. Ég frétti að Vetur er orðinn 10 kg.Hreinlega blæs út. Passið bara að þeir verði ekki OF þungir hjá ykkur. Passa mjaðmir og olnboga.
Berglind Gestsdottir
04. október 2008 klukkan 17:10
Hæ. Yndislegur dagur. Agla sendi mér fullt af myndum af Visku. Takk elskuleg :) Ég hef svo gaman af því að fá myndir frá ykkur. Fór í fótbolta við Nótt á stóra túninu. Hún er algjör snillingur í tæklingum. :)
Verið dugleg að vera úti með hundana. Það hafa allir gott af því.
Berglind Gestsdottir
03. október 2008 klukkan 14:59
Kæru vinir. Ég varð bara að leyfa þessari athugasemd að komast á forsíðuna. Skarphéðinn ég er svo sammála þér. ÞAÐ ER GOTT AÐ EIGA VIN Í RAUN. :)
Skarpi og Pála og börn
Það er alveg með ólíkindum þetta ástand í þjóðfélaginu í dag. Maður er stundum bara andlega úrvinda eftir daginn að horfa uppá hrun krónunnar og fylgjast með öllum neikvæðu fréttunum. Það er því ólýsanlegt þegar maður kemur heim að það skuli alltaf einn koma hlaupandi til manns, dillandi skottinu. Skilyrðislaus ást á húsbóndanum. Þetta er svo gleðilegt og maður bara getur ekki lýst því að fá alltaf sama góða skapið á móti sér alveg sama hvað gengur á. Maður gleymir fréttum, aðgerðarleysi stjórnvalda og öllu krepputalinu og fer að leika sér. Þetta er svo æðislegt dýr að eftir aðeins nokkrar vikur er þetta svo nálægt hjarta manns, rétt eins og að um konu og börn sé að ræða nánast. Við fórum út í snjóinn í gær og Brúnó fannst ekkert smá gaman. Svoleiðis kafaði með trýnið í snjóinn og hljóp um eins og vitleysingur....frábært
Berglind Gestsdottir
03. október 2008 klukkan 08:41
Góðan og glaðan daginn. Ég var að vinna til miðnættis í gær, sem er ekki í frásögur færandi. Nótt fór aftur á móti í göngutúr með restinni af fjölskyldunni í snjónum í gærkvöldi. Henni fannst það æðislegt
Drífið þið nú ykkur út í snjóinn í dag með hvolpunum ykkar og verðið börn á ný :) í smá stund.
Berglind Gestsdottir
01. október 2008 klukkan 09:18
Já það skall á í gær haustið! Gaman að heyra frá ykkur öllum að það gengur vel. Jú ,jú það getur tekið tíma að fatta að það eigi að pissa úti, og stjórn á
þvagblöðrunni er eitthvað sem þroskast rólega hjá litlum hvolpum eins og mannfólkinu. :)
Myrra takk fyrir myndirnar. Bræðurnir þrír eru svo sætir saman, og það er akki annað sjá en Bjarki sé búinn að taka Rökkva í sátt :)
Hvað ætli sé að frétta af Oliver hinum stóra (Oliver the great). Ætli vaxtarhraðinn sé alltaf sá sami :) Og Elías. Blessaður leyfðu honum Nóa að synda. Þú þarft ekki að synda með honum :). Labrador er fæddur með sundhæfileika sko ! Ég hefði viljað vera með ykkur þegar þú óðst út í á eftir honum. Vetur er vaxinn yfir höfuð Mána stóra bróður síns, Viska keppist við Mettu við pisseríið, og Von....er ofdekruð :), eins og ég vissi að hún yrði. Mér skilst að Brúnó sé hættur að þeyta sk. út um allan bíll...enda eins gott ef hann ætlar sér einhvern tímann að geta fengið að fara í Lexusinn :)
Ég þarf svo endilega að afla mér frétta af honum Valshamars - Verði. Mikið held ég að það sé hugsað vel um hann eins og alla hina. Njótið þið svo dagsins með voffunum ykkar! Og bestu kveðjur frá NÓTT, sem hefur tekið gleði sína á ný. Hún lítur svo vel út. Hún er nú komin í svona létt átak. Feldurinn er rosa fínn og held ég að það sé að þakka að ég passaði vel upp á hana næringarlega séð, þegar hún var hvolpafull og svo þegar hún var með hvolpana á spena. Um leið og þeir fóru setti ég hana á Myrra Coat, setti hana á Dermascent hárolíu kúr (fæst í Hundaheimum hjá henni Esther), og Udos oil, sem er flaxseed olía (dash út á matinn 1xá dag.) Ég er hægt og rólega að koma henni í form aftur. Við höfum mest verið á láglendi að spretta úr spori, en ég stefni á erfiðari göngur með hana jafnvel um helgina, þá upp í mót. Svo gaman að sjá hana taka á því.
Berglind Gestsdottir