29. nóvember 2008 klukkan 18:58
Við Nótt tókum daginn snemma og vorum komnar á Hvanneyri upp úr 11. Vá hvað það var falleg birta og landslagið í vetrarbúningi.Ég gerði ekki boð á undan mér, og kom að Hjalta í bólinu (Hvanneyri). Rökkvi/Vilji var líka í bólinu sínu..( búrinu) alveg salla rólegur. Myrra var í skólanum en kom fljótlega. Einnig dreif að skemmtilega nágranna þeirra, sem höfðu áhuga á að sjá mömmu Rökkva (Nóttina). Það var síðan mikið stuð á Nótt og Rökkva, þar sem þau léku sér úti hátt í klukkutíma. Veltu sér upp úr snjónum og ærsluðust.
Það var mjög gaman að koma til Myrru og Hjalta og sjá Rökkva í sínu umhverfi. Honum líður vel og fær fullt af athygli og ást. Rökkvi er fljótur að læra og afskaplega vel agaður miðað við 4 mánaða hvolpaskott.
Svo var það að heimsækja Vörð, eða General Patton eins og hann heitir, og er dags daglega kallaður Patti.
Patti er eign Sonju, en Patti heldur að Þórður eigi sig og eltir hann út um allt, og Þórður getur ekki þverfótað fyrir honum :) Patti er þó fljótur að setjast þegar Sonja tekur upp lifrarpylsuna. Þórður og Sonja segja Patta vera mjög óþekkan..........ég held að það skrifist eitthvað á, hvað þau eru GÓÐ við hann og ekki alveg sammála um uppeldið. Mér sýnist Patti og Brúnó vera líkir karakterar.........eða að þeir eigi mjög GÓÐA eigendur :)...þetta eru hvorutveggja mjög ákveðnir karakterar sem þurfa miiiiikinn aga.
Ég hefði helst viljað taka Patta með mér heim, mér fannst hann svo skemmtilegur og challenging karakter. En mér skilst á Sonju að hann fari hvergi. ;)
Á báðum stöðum fékk ég úrvals kaffi. Myrra hafði vakað fram á nótt við að baka ljúffengar smákkökur og dýrindis konfekt fékk ég hjá Sonju og Þórði. Ég þakka frábærar móttökur og hlakka til að sjá ykkur aftur.
Berglind Gestsdottir
26. nóvember 2008 klukkan 20:30
Um helgina er ferðinni heitið vestur að Hólum og í Borgarnes að kíkja á Rökkva og Patton./Valshamars Vilja og Valshamars Vörð. Ég hlakka til Drottningin fer að sjálfsögðu með. Nú fer að líða að jólum og þið örugglega farin að skreyta og svoleiðis. Jólaskraut er afskaplega freistandi "nagdót" Og allt nýtt sem hvolpaskottin hafa ekki séð áður er bara æðislega spennandi og gjörsamlega must að smakka á því. Munið bara að skreyta ekki mikið í hæð hvolpanna eða hafa skrautið þannig að þeir geta náð í það. Sama gildir með konfekt og annað bakkelsi og góðgæti, sem oft liggur á borðum um allt hús á jólum...konfektkassar ofl. Stórhættulegt.
Svo verðum við oft meyr yfir jólin. Viljum gera vel við alla........líka litlu yndislegu hvolpana okkar. Ekki missa ykkur í að kaupa mikið af hundanammi, eða gefa þeim eitthvað sem þeir eru ekki vanir að borða. ÞEIM ER ALVEG SAMA, BARA AÐ ÞEIR FÁI AÐ BORÐA EITTHVAÐ. Of mikið eftirlæti mun enda í því að þrífa upp eins og við mundum segja á spítalanuml...........mjög svo lausar hægðir eftir besta vininn öll jólin. Ekki gefa þeim reykt kjöt, eða bein af fuglum osfrv. PRO PAC er bara rosa fínn jólamatur. Verið frekar bara súper dugleg að vera úti að gera eitthvað skemmtilegt yfir jólin með súkkulaðimolunum ykkar.
Man ekki eftir fleiru í bili.
Ef einhver er til í hitting þá væri gaman að heyra frá ykkur.
Berglind Gestsdottir
23. nóvember 2008 klukkan 00:02
Já nú væri gaman ef það væri sýning. Drottingin er í sínum fallegasta feldi.
Í dag vorum við "mæðgurnar" heillengi í garðinum að snyrta til. Það var auðvitað leikið inn á milli með bolta og svoleiðis dótarí.
Já og svo styttist í jólin og það ótrúlega gerðist í dag. Við jólaskreyttum, og settum jólaseríu á húsið að utan. Ég bjó svo til þennan undurfallega ;) krans á útihurðina úr könglum og dótaríi sem ég átti hér heima....kallaði hann kreppukrans. Þá er bara eftir að skreyta jólatréð sem bíður betri tíma.
Og eitt gott fólk..........ef ég man rétt þá er JÓLASTJARNAN (blómið) eitruð jurt fyrir hunda.Mörg blóm eru góð að japla á, og jólastjarnan örugglega bragðgóð en eitruð er hún! ´
Hvernig væri nú að kvitta fyrir komuna, mikið þætti mér vænt um það. Og svo skal ég lofa að vera duglegri að skrifa.
Já og setja inn nýjar myndir.
Berglind Gestsdottir
07. nóvember 2008 klukkan 09:24
Góðan og glaðan daginn. Ég er ekkert smá ánægð með stelpurnar hans Obama. Þær vilja hund í Hvíta húsið.

. Ekkert heimili ætti að vera án hunds.
Berglind Gestsdottir
05. nóvember 2008 klukkan 23:46
Kæri Elías, ég varð að stela þessari æðislegu mynd. Vona að þú fyrirgefir mér :) Mikið er hann flottur hjá þér hann Nói. Það væri gaman að fá eins og eina góða sögu af ykkur tveimur núna.
Annars er allt gott að frétta. Nótt fer út að trimma með Arnóri á hverjum degi.Ég þarf að fara að dröslast líka.
Mig bráðvantar fleiri myndir af hvolpunum hjá ykkur. Endilega sendið mér einhverjar skemmtilegar.
Þið getið séð fleiri myndir af Nóa the retriever í myndaalbúminu. Bara flottastur. :) Takk Elías fyrir allar myndirnar.
Berglind Gestsdottir
02. nóvember 2008 klukkan 23:16
Vetur kom í heimsókn. Mikið ofsalega er hann fallegur. Fallega blandaður og líkur foreldrum sínum. Hann er snoppufríður eins og mamman og tignarlegur eins og pabbinn. Ég bara fékk ekki nóg af að knúsa hann. Mikið sakna ég hvolpa skottanna.
Vetur er yfirvegaður og rólegur í fasi, sem sýnir að honum líður vel og býr við öryggi og ást. Feldurinn er sérstaklega fallegur og holdarfarið rétt. Elsku Kristín, Guðjón, Iðunn, Víðir og Máni. Takk fyrir komuna. Sjáumst fljótt aftur. :)
Berglind Gestsdottir