31. janúar 2009 klukkan 16:59
Þá eru hafnar powergöngur fyrir sýninguna.

Upp í mót, eða vænir skaflar. Nú er ég að reyna að massa skvísuna upp. Vil hafa hana vöðvastælta. Fór upp Lágafellið í gær, og inn með Leirvogsánni í dag. Þvílík veðurblíða.
Ég heyrði í honum Dóra vini mínum í gær,á heimilinu er hann kallaður hunda Dóri, til aðgreiningar

Ég hef alltaf gaman af að heyra fréttir frá honum, um hvað er að gerast í íslenska labradorheiminum.
Á morgunn verð ég á bakvakt fyrir spítalann, en vona svo innilega að ég fái frið til að fara á sýningarþjálfun kl. 13 og að kíkja kl. 19 í Gust á sýningarþjálfunina þar.
Hafið það ofsalega fínt og njótið þess að vera úti í góða veðrinu.
Langar að benda ykkur á sem ætlið að sýna. ......www.westminsterkennelclub.org
Sláið í leitardálkinn Labrador retriever, þá getið þið séð labradorana í sýningarhringnum. Ansi gaman að horfa á.
Berglind Gestsdottir
29. janúar 2009 klukkan 09:55
Jæja þá fer að hefjast sýningarþjálfun hjá okkur. Við hlökkum mikið til. Við munum hitta Askinn vin okkar og fleiri.
Berglind Gestsdottir
27. janúar 2009 klukkan 23:32
Yndislegra fólk er ekki til en þau Smári, Ester og María litla. Að sjá hvað Oliver gerir lífið dýrmætt og skemmtilegt. Meðan Smári lá stór-slasaður yfir jól og áramót á sjúkrahúsi, gat Ester leitað til Olivers.Það er svo merkilegt. Að þegar vandi steðjar að, eða þegar maður á um sárt að binda, þá finna dýrin það og umvefja okkur sinni einstöku sönnu hlýju og umhyggju. Ég veit að þannig var það hjá þessari góðu fjölskyldu yfir jólin.
Smári sem er svo innilega einlægur og opinskár, sem tjáir tilfinningar sínar til Olivers í hvert sinn sem ég heyri í honum,hefur átt mjög erfitt að geta ekki haft Oliver hjá sér meðan á sjúkrahúsdvölinni stóð. Það er fyrir bjartsýni, jákvæðni, einstakan karakter og smá heppni, að Smári útskrifaðist óvenju fljótt af sjúkrahúsinu og er kominn heim í faðm fjölskyldunnar.
Ég saknaði þeirra á laugardaginn í göngunni okkar. Fyrir utan að Smári verður að fara sér hægt, þá gildir það sama um hvuttann Oliver. Það var því með óþreyju sem ég hef beðið eftir að komast til þeirra og heilsa upp á þá báða. Smári þarf að láta tímann lækna sárin, en Oliver þarf að taka því rólega , vegna óvenju mikils vaxtarhraða. VÁ! hvað hann er glæsilegur. SVO OFBOÐSLEGA FLOTTUR. Hann er stór, massaður og einstaklega andlitsfríður. Karakterinn er alveg einstakur. 6 mánaða með þetta útlit og þessa yfirvegun! Ég sé hann fyrir mér fullvaxinn.!
Ég bíð eftir mynd frá Smára og Ester til að setja á síðuna. Það er draumur minn að geta sýnt þennan rakka en tíminn verður að leiða í ljós hvort það verður að veruleika. Ef ekki núna, þá bara næst. Hundaheimur þarf að sjá þennan 
Berglind Gestsdottir
24. janúar 2009 klukkan 21:53
Takk fyrir röltið í dag. Þetta var hressandi og skemmtilegt.

Verðum að endurtaka þetta fljótlega.
Skora á ykkur að finna skemmtilegar gönguleiðir.
Nói náði að hrufla sig eins og sönnum rebel sæmir. Frétti að hann hafi verið gjörsamlega búinn á því eftir daginn. Kemur mér ekki á óvart

Endilega sendið mér myndir sem þið tókuð til að setja á síðuna.
Berglind Gestsdottir
23. janúar 2009 klukkan 20:30
Þá er það að hittast. Á morgun laugardaginn 24.janúar, kl. 1330. Keyrt er framhjá álverinu í straumsvík og út af til vinstri hjá afleggjara merktum Keilir. Þá áfram undir brú og að hringtorgi,þar sem Kristín og Guðjón hitta okkur sem eiga Valshamars-Vetur.
Klæða sig eftir veðri.Gott er að taka eitthvað að drekka.
Sjáumst hress.
Berglind Gestsdottir
21. janúar 2009 klukkan 12:22
Þá er komið að því að hittast. Núna á laugardaginn kl. 1330. Nánari leiðarlýsing birtist hér í kvöld eða á morgun.
Berglind Gestsdottir
20. janúar 2009 klukkan 22:50
Á sunnudaginn var veðrið dásamlegt og tilvalið til góðrar göngu með hundana. Ég sá fyrir mér lágstemmdan, jafnsléttan stíg, sem ég mundi rölta á eftir Nótt og Tuma. Nei! Víðir slóst með í för, og fljótlega lá leið snögglega til vinstri út af göngustígnum og framundan hátt uppi Grafarfoss. Þetta var eins og Everest. Ég get svarið það þetta var svo erfitt. Nótt hljóp leiðina mörgum sinnum, upp og niður, upp og niður, alveg hrikalegt stuð. Að lokum gafst ég upp og fann mér stóran stein sem ég hreinlega hneig niður á. Víðir hélt áfram og kallaði svo niður til mín.......ertu komin með háfjallaveiki! JÁ,

HELD ÞAÐ stundi ég á móti. Formið er semsagt 0 hjá mér, en ekki Nóttinni. Ég ætla að bæta úr þessu, get svarið það. Einhvern veginn þá hefur síðustu tvo daga meira viðrað fyrir svona boltaleiki og frisbee!!!!!!!, hafiði vitað meiri aumingja en mig. Verð að fara að taka mig á, svo ég hlaupi á fjalltoppana í sumar.
Berglind Gestsdottir
14. janúar 2009 klukkan 09:49
Já gaman að sjá hvað þú ert tryggur gestur Kristín
, og takk fyrir sendinguna
Það er búið að vera vesen með að komast inn á vinnslusíðuna, en það skuluð þið vita að ég hef rembst við að finna út úr þessu allan tímann sem að það heyrðist ekki múkk frá okkur. Var á tímabili að hugsa um að byrja á öllu upp á nýtt.
Veðrið er yndislegt, jólasnjór og alles. Ég treysti á Víði í kvöld að fara með drottninguna í göngutúr. Ég næ kannski smá frisbee leik á stóra túninu áður en ég fer í útréttingar og svo á kvöldvakt.
Það væri gaman að heyra frá þér Kristín, varðandi gönguleiðina sem við vorum að spá í hvort það væri ekki bara sniðugt að vera með hitting þar. Er leiðin ekki örugg og hættulaus
Lát heyra.
Berglind Gestsdottir
13. janúar 2009 klukkan 23:05
Berglind Gestsdottir