VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

1 dagur í sýningu

28. febrúar 2009 klukkan 13:29
Jæja þá er þetta að bresta á. Skottið var snyrt í dag, númerið, taumurinn, plastpoki og gotteríið er klárt, og svo tókum við  smá æfingu. Dóri segir að það verði 18 tíkur í opna flokknum. Það þýðir þolinmæði og úthald, nema okkur verði hent út af strax. Ef það gerist þá ætla ég að vippa mér yfir og sjá Leonbergerinn og stóru,stóru hundana sýnda.
Ég óska öllum góðs gengis á morgun. Við gerum öll okkar besta. Meira er ekki hægt að fara fram á Laughing

ps. Dóri er eins og biluð plata við mig..........ÞÚ MÁTT EKKI SOFA YFIR ÞIG, ÞÚ MÁTT EKKI SOFA YFIR ÞIG. .....sælla minningar eða hitt þó, þá missti ég af tveimur sýningum út af því að ég SVAF YFIR MIG, en það var í hvolpaflokkunum og þeir eru svo snemma dags. Ég hefði getað grátið ég var svo svekkt út í sjálfa mig. En maður lærir af reynslunni eins og alltaf.

Njótið dagsins í dag, hann er sólríkur og fallegur.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Mementos

27. febrúar 2009 klukkan 00:00

Forföll hjá Dan Ericsson. Á síðustu stundu forfallaðist dómarinn fyrir Labradorinn. Í staðinn fáum við labrador ræktandann og dýralækninn Thorunni Sorby.Hún hefur ræktað labrador frá 1968,alla liti. Það er ekki slæmt. En breytir engu hjá okkur Nóttinni. Það verður engin flugeldasýning hjá okkur :)
Ég er farin að hlakka mikið til helgarinnar. Held að þetta sé bara það skemmtilegasta sem ég geri. Að hundast.Laughing

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Fitubolluflokkurinn

24. febrúar 2009 klukkan 23:51
Víðir er bara "leiðinlegur" þessa dagana. Segir að við munum pottþétt vinna fitubolluflokkinn, og ég sem er farin að telja rifbeinin í aumingja Nóttinni. Hann er bara að terrorisera mig fyrir sunnudaginn. Þetta haggar mér ekkert. Ég hef bara  endalausar áhyggjur af því að fljúga á hausinn..............ætli það sé einhver á lausu sem gæti sýnt Nótt fyrir mig.Cool
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Gaman á sýningaþjálfun

22. febrúar 2009 klukkan 19:20
Það var gaman í dag!
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Kjarvalstaðir

21. febrúar 2009 klukkan 23:24
Við gerðumst menningarleg í dag og fórum á söfn. Það er skemmtilegt og kostar ekkert Laughing. Það var fullt af fólki sem naut þess eins og við að skoða falleg listaverk.
Við byrjuðum á Kjarvalstöðum. Það var fyrirfram ákveðið að taka hundana með og viðra þá aðeins.
Fórum með nýja leikfangið með okkur, sem er algjör snilld. Við lékum við hundana í góða stund á Miklatúninu. og þeir fengu alveg víðáttubrjálæði. Vá það var gaman. Það var fyndið að sjá Tuma hlaupa jafn hratt og Nótt, nema hann þurfti að taka 500x fleiri skref til að halda í við hana. Veðrið var EKKI skemmtilegt. Íslenskt slagveður. Hundarnir fóru eftir það í bílinn og við kíktum inn á Kjarvalstaði. Síðan renndum við á Listasafn Reykjavíkur og svo heim.


Á morgun er það orkulosun með leikfanginu góða og eftir það kl. 13, sýningarþjálfun hjá henni Þórdísi Maríu.

PS. Guðbjörg! þú ert svo best og  þið Askur yndislegust af öllum. Og hvað sem þú segir þá eruð þið bara flottust. Knús.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

728

20. febrúar 2009 klukkan 09:15
Spáið í það. Við Nótt erum númer 728 á sýningunni. Spáið í fjöldann af sýnendum. Vá. Annars er bara svelti í gangi. Dóra leist ekkert á tröllið Nótt. Laughing en við erum nú bara að þessu að gamni okkar. Svo hlökkum við til að fara á sýningarþjálfun á sunnudaginn. Er mjög spennt að hitta Óla og Von.
Það verður líka unun að horfa á hann Imbir svífa hringinn. Hann hefur SVO fallegar hreyfingar.
Guðbjörg þarf ekki annað en segja SÝNA! þá setur Askur sig í þvílíkar stellingar og svífur af stað. Það er svo gaman að þessu. Þá er það hún Braga sem er svo yndislega falleg og góð, og gerir bara nákvæmlega það sem beðið er um. Ég á svo í hinum STÓRU slagsmálum við tröllið........verð að muna eftir hönskunum Cool úff.
Sjáumst.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Kemur til að sjá mig detta

16. febrúar 2009 klukkan 09:02
Gleymi alveg að geta þess að mágur minn bíður alltaf spenntur eftir hverri sýningu..........ekki til að sjá hundana. Heldur til að horfa á mig!........Nú dettur hún, ah......en nú dettur hún! Yell Elskulegur! Velkominn. Ég mun örugglega fljúga á hausinn með sköllóttu Nóttina sem heldur að hún sé í veðhlaupi, en ekki á sýningarskokki.Laughing...... málin snúast nefnilega ekki um meistarastig  hvað þá meira, heldur það að komast lifandi hringinn...he,he.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Sýningarþjálfun

15. febrúar 2009 klukkan 19:27

Of sein...........eins og venjulega. Í hendingskasti 15 mínútur í 1 eftir hádegið, lagði ég af stað......úr Mosó og lengra en í Sólheimakot. Einhvers staðar í Ártúnsbrekkunni varð mér hugsað til þess hvort ég hefði munað eftir HUNDINUM. Ég var jú með tauminn í framsætinu við hliðina á mér. Mér varð litið í baksýnis spegilinn og sá  glitta í Nótt í skottinu. Ég mætti örlítið of seint ásamt fleirum....Það er hrikalega slæmt að mæta of seint á sýningaþjálfun. Reglan er að mæta helst til of snemma. Þá nær maður mesta galsanum úr hundinum áður en þjálfunin byrjar. En hið ótrúlega gerðist. Nótt sýndi sig bara rosalega vel, og Þórdís María var mjög ánægð með hana. Mér þótti erfitt að "dansa" með henni á skokkinu. Nótt vil helst bara fara mjööög hratt. Ég var á bremsunni sem þýddi blöðrur á hendurnar. Næst mæti ég með hanska....ég hugsa þetta alltaf, og gleymi því svo á milli. Alveg vonlaus.
En Þórdís María fær hrós fyrir sína frammistöðu. Mjög pró. og skemmtilegt hjá henni. Aðstaðan er líka flott, björt og skemmtileg. Þarna voru, t.d. hann Askur vinur okkar, og hann Imbir.......ég er alltaf voða svag fyrir honum. Hann er rosa flottur Briard. Ég fékk að prófa að hlaupa með hana Brögu sem er golden. Eigandi hennar er reynsluboltinn Sigríður Bíldal. Það var gaman að spjalla við Sigríði.
Ég var ákveðin í að kíkja á sýningarþjálfunina í Víðidalnum, en það gekk ekki upp hjá mér þennan daginn.
Kannski næst.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Á sjóskíðum

15. febrúar 2009 klukkan 11:21
Ég fór í miðnæturgöngu í gærkvöldi........sólarhringurinn ER of stuttur ég hef alltaf sagt það.Cool
Nú færðin var rigningarblautur klaki, og þeir sem þekkja til okkar, geta lokað augunum og hlegið dátt.
Ég var eins og belja á svelli, og Nótt hundfúl reyndi að toga mig áfra af sinni alkunnu snilld. Ég var sem sagt eins og á sjóskíðum. Bara óþægilegur göngutúr. EN þar sem ég taumgekk hana allan tímann, varð hún að fá að losa orkuna á annan hátt. Við fórum því í sækivinnu á stóra túninu eftir göngutúrinn. Þegar þarna er komið er semsagt kominn annar dagur, klukkan 0030. Henni fannst geðveikt gaman........ekki mér. Ég sá fyrir mér hlýtt rúmið.
Nú er það sýningarþjálfun og Hildur María! kannski ég kíki á ykkur í kvöld líka. TAKK FYRIR AÐ SKRIFA:
Yfir og út.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Nýtt labrador afbrigði á næstu sýningu

14. febrúar 2009 klukkan 23:07
Vá mér hefur gengið illa að láta hlutina ganga upp undanfarið. Það styttist skelfilega hratt í sýninguna. Og met þátttaka. maður hefði nú haldið að það yrði kannski eitthvað færra en venjulega, en það er frábært að það sé svona góð þátttaka. Auðvitað á maður að halda áfram að gera það sem er skemmtilegt þótt tímarnir séu vályndir. Annars er nú helst að segja frá því að ég mun að öllum líkindum sýna nýtt afbrigði af labrador. SKÖLLÓTTAN. Já Nótt hefur semsagt ákveðið að fella, eins og við Dóri segjum.........he,he, missa vetrarfeldinn, hratt og örugglega. Það er næstum þannig að í hvert skipti sem hún stendur upp, er eins og hún liggi ennþá á gólfinu........nei segi svona, en hvílík tímasetning.
Á morgun sunnudag, er sýningaþjálfun hjá Þórdísi Maríu, og viti menn........nú skal mér takast að mæta, með Nóttina.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir