VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Byrjuð að vinna aftur

31. mars 2009 klukkan 10:59

Ég fór ekkert út á stuttermabolnumTongue out hefði ekki þorað því fyrir mitt litla líf, nýstaðin upp úr leiðinda veikindum.
Það var Úlpan og allur pakkinn, enda hrikalega kalt, en fallegt veður samt. Ég rölti og Nótt hljóp brosandi í kringum mig, á öruggu svæði.
Fór svo á kvöldvakt. Beint inn á gjörgæslu, Fékk sjúkling, sofandi á öndunarvél. Með leptanal dreypi, diprivan dreypi, EDA dreypi.Með arteriulínu, vökva í æð, með thoraxdren, magasondu, kera og þvaglegg, á sýklalyfjum,verkjalyfjum og blóðþynningu. JÁ SÆLL, mér fannst ég vera búin að gleyma öllu vinnutengdu meðan ég var í burtu. En þetta er eins og að hjóla.Þetta gleymist ekkert. Vaktin gekk vel.
Nótt tók vel á móti mér. Alltaf gott að koma heimSmile

 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Kraftganga á stuttermabolnum

30. mars 2009 klukkan 09:06
Já nú er manni orðið heitt í hamsi. Ég fékk feikna útrás í færslunni sem ég læsti. Vá hvað ég ætla að eiga hana.
Ég reikna með að fara út á stuttermabol með hundana á eftir til að kæla mig niður. 7 gráðu frost ætti að duga.
Vonandi eigið þið svo bara frábæran dagLaughing
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Þessi færsla er læst með lykilorði.

30. mars 2009 klukkan 08:40
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Himnaríki

29. mars 2009 klukkan 17:55
Það var gott að komast út í sólina sem hitaði kinnarnar í dag. Nótt var eins og kýr að voriSmile.
Og þar sem ákveðnum einstaklingi dirfist að líkja saman brottrekstri úr starfi og krossfestingu jesú krists,þá ætla ég að voga mér að líkja því saman að það hljóti að vera jafn dásamlegt í himnaríki og það að vera ein/nn úti í sólinni og snjónum með Muse í eyrunum og hundana sína skokkandi sér við hlið. Vá hvað þetta var dásamlegur göngutúr.
Áburðurinn sem ég fékk hjá henni Gunnhildi dýralækni er snilld. Hún sagði að þófarnir væru oft óviðbúnir grófu undirlagi eftir snjó vetursins og því væri sniðugt að bera þetta krem/vax á þófa hundsins 5 mínútum fyrir göngutúr og svo aftur eftir göngutúrinn þegar þófarnir væru orðnir þurrir. Vaxið heitir.
specicare paw protection wax, for dog.    /Upphaflega var þetta framleitt til að verja þófa hundanna fyrir seltu.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Öll að koma til

28. mars 2009 klukkan 15:00
Jæja. Eins og hjá íþróttamönnum, þá getur hvíldin verið besta meðalið. Nótt er nú öll að koma til. Laughing Það skall á okkur vetur í gær enn eina ferðina.......maður vonar alltaf að NÚ sé þetta að verða búið. Nei alltaf skal almættið senda á okkur eitt hretið enn. Ég er að spá í að taka léttan göngutúr á morgunn með Nótt. Henni leiðist afskaplega aðgerðaleysið. Það er nokkuð ljóst að vetrargallinn heldur velli út maí. Og ég verð áfram mesta skvísan eða hittó, fram á vor. Gerið nú eitthvað skemmtilegt í dag. Kiss
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hvítir sokkar

27. mars 2009 klukkan 15:01

Er mikið að spá í að hafa Nótt í hvítum sokkum á næstu sýninguCool he,he, hún brokkar svo áberandi vel og fallega í þeim. Hafið þið séð hund í sokkum, eða skóm hlaupa. Dásamlegt brokk.
Annars setti ég hana í sokka til að reyna láta kremið vinna aðeins í friði fyrir sleikjeríinu í henni.

Víðir og Vaka fóru út að hjóla. Nótt fyrirgefur það seint að hún var skilin eftir. Hún kvartaði nánast allan tímann sem þau voru í burtu. Fyndið.

 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Marley and me

26. mars 2009 klukkan 23:16
Við systurnar og Unnur fórum að sjá Marley and me. Við grétum alveg fyrir allan peninginn. Yndislega fyndin mynd, og þá sérstaklega fyrir hundaeigendur og been there done that. Við sem sjáum vitleysurnar líka í smáatriðum myndarinnarCool.  Ég gat ekki beðið eftir að koma heim og knúsa Nóttina. Aumingja Nótt er aum í fótunum sínum. Við tökum okkur frí frá göngunum á morgun og líklega hinn daginn líka.
En það telst fréttnæmt góðir hálsar að hann Smári sem á Oliver, hann keypti sér útivistarföt í dag, og  er hér eftir fær í allan sjó með mér. He,he.Cool
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Ferð í höfuðstaðinn

26. mars 2009 klukkan 08:52
Góðan DAGINN!...... Ég fór gjörsamlega öfugt fram úr í morgunn. Hrikalega illa sofin og grumpy. Ég held nefnilega að annað veifið sofi ég við hliðina á traktori sem er í gangi.Undecided Uppástunga eiganda hljóðanna var.....af hverju sefurðu bara ekki með MUSE í eyrunumLaughing. Get svarið að það er bara BRILLIANT hugmynd. En þeir spila nú ekki alveg kannski þá róandi músik sem þarf til að koma manni í gegnum nóttina. Cool EN VÁ hvað þetta er GOTT band. Framundan er stefnumót í höfuðstaðnum. Ég þarf að skutla og bíða í ca 60 mínútur. Tilvalin tilbreyting fyrir Nótt að komast í göngutúr í öðru byggðarlagi. En mikið asskoti er kalt í dag.

Annars þá kom ég við í Kringlunni í gær á leiðinni heim úr jarðaförinni. Það var lítið af fólki þar, og mér fannst ALLT sem ég skoðaði kosta yfir 20.þúsund. Mér fannst hreinlega allt alveg hrikalega dýrt.Undecided Buddan komst ósnert út úr þessu gímaldi. Áveðin í að kíkja á konukvöldið í Smáralind og taka Unni ungling með mér, hana er farið að vanta hversdagsskó. Við vorum seint á ferð......um kl. 22 og það var brjálað að gera. Þar sem Unnur unglingur á geysilega erfitt með að vera inni í verslunargímöldum, hún hreinlega fær öll einkenni veikinda,líkamleg og andleg af erfiðum toga í hvert sinn......þá forðumst við verslunarferðir. Með hana þá er yfirleitt best að vera með fastmótaðar hugmyndir af því sem hún vill, svo hægt sé að fara í sem fæstar verslanir. Okkur tókst það í gær. Hana langaði í adidas strigaskó með röndum, svona hvíta með svörtum röndum, eins og ég held að við flest sem erum á fertugsaldrinum áttum á sínum tíma. Unglingaskór kosta peninga. Ég er svo LÁNSÖM að Unnur  eltist ekki við tískubylgjur Hefur sjálfstæðan smekk og er flott. Við keyptum sem sagt skó sem kostuðu 6000, en ekki eitthvert tískufyrirbrigði sem kosta í dag 16000.Smile Buddan og ég brostum hringinn. Og Unnur ALSÆL í nýju Adidas skónum sínum.

Jæja þá er göngutúr dagsins lokið...hann endaði uppi á dýraspítala!  Við Nótt fórum í göngutúr meðfram Sæbrautinni og hófum ferðina við húsið hans Hrafns Gunnlaugssonar (annað hvort okkar, ég eða hann höfum vondan smekk )Cool og gengum út að Viðeyjarferju. Ágætis spölur. Fórum fjöruna og allt saman. Þegar Nótt stökk út úr bílnum, þá fannst mér votta fyrir helti, en hún var svo spennt að komast á nýjar slóðir, að ég ákvað að fylgjast með ástandinu. Þetta virtist í lagi út að Ferju. Svo kastaði ég fyrir hana boltanum og hún sótti, og sótti á bakaleiðinni...þannig að hún hljóp þess að leið eiginlega þrisvar...hvað ætli það sé í km? Á baka leiðinni tók ég eftir blóð slóðinni eftir hana. Nú það er semsagt eitthvað í gangi hugsaði égUndecided Renndi upp á dýraspítala í Víðidalnum og hitti fyrir Hildigunni dýralækni, hún er alveg frábær. Fyrst skelltum við Nótt á vigt........37 kg takk.Hún er og verður stór. Svo skoðaði hún Nótt í bak og fyrir,ég var ánægð með það. Það kom svo í ljós að göngutúrarnir okkar eru svo brutal að Nótt er búin að spæna upp á sér þófunum og það blæðir hún henni ræflinum. Jæja hugsaði ég......þar lýkur fínu göngutúrunum okkar. En nei,nei. Fékk fyrirmæli um brúnsápu fótabað, og keypti vax sem á að bera á þófana fyrir og eftir göngutúra. Ef hún lagast ekki þá þarf hún að fá SKÓ...meðan bágtið grærEmbarassed. Það yrði til að toppa á okkur lookið.  Nótt fékk Parvo og lifrarbólgubólusetningu. (Þetta nýja bóluefni er sterkara en það gamla og við gætum átt von á hita eða niðurgangi hjá dömunni)
Nótt fékk líka ormalyf.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Hva! ertu ekki að fara út með mig.......

25. mars 2009 klukkan 16:48

Dagurinn hefst alltaf eins 07, hafragrautur og allt það, nema í dag bakaði ég marmaraköku handa mannskapnum. Ákvað að fara út með Nótt seinni partinn í dag, þar sem ég fór við jarðaför kl. 13.
Mér finnst alltaf gott að fara út í smá orkulosun, þegar reynir á.
Nótt reyndar varð svaka bjartsýn og vaggaði af gleði, þegar ég fór að taka mig til fyrir jarðaförina. Henni fannst ég þó greinilega eitthvað skrýtin til fara og skótauið öðruvísi en í gær, sem sagt ekki gúmmístígvél, en það má alltaf gera sér vonir.....hún hefur líklega haldið að ég hafi tekið svo nærri mér athugasemdinni frá Arnóri að ég hafi ákveðið að fara hér eftir út í sparifötunumCool.....Right! Nú er semsagt að koma sér úr dressinu og háu hælunum í druslurnar, og útLaughing Við taumgengum.....veit ykkur finnst nóg talað um þessar taumgöngur hjá mér, en ég segi það og stend við það, það veitir ekki af. Já við taumgengum niður að félagsheimili.......elska að búa í sveit (félagsheimilið ,he,he). Og þar fékk hún að hlaupa frjáls og eltast við boltann. Ég stóð álengdar og fylgdist með henni, klædd eins og idiot...whats newCool með STÓR headphones á hausnum, með MUSE í Ipodnum, hátt stillt, og svo söng ég fagurlega með að mér fannst Cool Mér fannst ég vera í himnaríkiLaughing Líklega er ég heppin að löggan átti ekki leið hjá. Þyrfti að fá einhvern til að taka mynd af mér í dressinu, kannski ég verði bara TREND SETTERCool

 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

ÞETTA ER LEIKFANGIÐ GÓÐA :)

24. mars 2009 klukkan 15:00
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Rise and shine

24. mars 2009 klukkan 09:39
Góðan daginn. Maður er búin að vera á fótum frá því kl. 07. Gefa börnunum hafragraut og smyrja nestið og koma þeim í skólann. Veðrið finnst mér alveg hrikalega lítið aðlaðandi. EN. Út skal ég. En fyrst er að skella í deig fyrir kanilsnúða, sem verða nýbakaðir og heitir þegar börnin koma úr skólanum. Sinna heimilisverkum, og svo út.......kannski það verði bara komin sól og blíða um það leytið. Sure.
Meira á eftir:..............ég ætla nefnilega út og gera hlýðniæfingar með drottningunni Nótt. Heavy stuff. Kannski ég reyni að taka myndir, en er þó svo vita  vonlaus á því sviði.
Jæja get svarið það! það var komin sól, þegar við lögðum í hann.Kiss Taumgengum göngustíginn meðfram golfvellinum. Þar er svaka brekka........og þá hófst sækivinnan, og brennslan. Ég kastaði og kastaði fyrir hana, og hugsaði úff nú sprengi ég hana, en viti menn hún vill endalaust meira. Svo taumgengum við til baka heim, og gerðum hlýðni æfingar inni á lóð hjá okkur. Arnóri finnst ég hörð við hanaSmile Hann er elstur....greinilega búin að gleyma sínu uppeldiCool Joke. Hann fékk gott uppeldi en AGA, sem gerir hann að því sem hann er í dag. BESTURLaughing
Hæ Kristín. Takk fyrir kvittið. Nei ekki ofvirk, heldur þakklát fyrir að vera búin að ná heilsu og að vorið er á næsta leyti. Elska lífið. DONT YOU.
ps. Það var eins gott að þið skilduð ekki hundana eftir heima þegar þið fóruð í göngutúrinn góða Foot in mouth

Verð eiginlega að segja ykkur hvað Arnóri fannst um lookið á mér þegar ég kom úr göngutúrnum. Hann fetti upp á sig og sagði...........þú ert eiginlega svona eins og........BÓNDAKERLING. Og vitiði mér er svo sama, því mér finnst ég FRJÁLSCool. Ég var sem sagt í svörtum gúmmístígvélum. Svartri úlpu, með buff á hausnum...ekki glæsileg að honum fannst.he,he SO!

Við stelpurnar. Ég,Unnur Freyja, Vaka og Nótt áttum kósý kvöld. Lágum í einni hrúgu og horfðum á stelpumyndina JUNO. Ég fékk alveg tár í augunEmbarassedþetta var svo krúttleg mynd. Á eftir skárum við okkur niður ávexti. Ég notaði afskorningana af eplunum í smá þjálfunarnammi fyrir Nótt, og við fórum í smá  hlýðni um húsið. Vonandi áttuð þið dásamlegan dag Kiss
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

AÐ HEIÐRA HUNDINN SINN.

23. mars 2009 klukkan 14:25

Við fórum i klukkustundar göngu inn í Varmadal. Svo í 15 mínútna afslappaða taumgöngu, og að lokum 20 mínútna orkulosun með leikfanginu góða. Ansi gott bara. Nú er samviskan gagnvart Nóttinni minni í lagi...ég hef heiðrað hundinn minn. Smile. Að loknum skylduhúsverkum og móttöku barnanna úr skólanum, ætla ég á vit alheimsvefsins að lesa mér til um hunda og heimsækja heimasíður vina minna og annarra. Tónlistin í eyrunum verður MUSESmile
Fyrst var þó að baða Nóttina því hún lyktaði VÆGAST illa eftir ferðina. Í kjölfarið fylgdi mikil og ítarleg burstun því feldlosið er yfirgengilegt þessa dagana. Ég tók mynd af hrúgunni sem ég tók af henni í þetta sinn, og er búin að vera að gera þetta vikulega........og umfangið svona til að þið getið ýmindað ykkur eitthvað........svona eins og eitt stykki pomeranian.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Til sýnis og kvöldganga

22. mars 2009 klukkan 19:19

Hann Dóri vinur minn, fékk Nótt lánaða í dag.  Nótt, Stormur og Askur voru fyrirmyndir sækjanna á stór hundadeginum í Garðheimum frá 12 - 15. Og vöktu vonandi lukku og aðdáunWink Dóri sagðist reyndar koma til baka kl. 14.....og frá þeim tíma var ég farin að sjá fyrir mér Guðbjörgu og Dóra á fjórum fótum að rétta við Garðheima eins og þeir leggja sig eftir orkuboltana Nótt og AskCool.
Elsku Dóri. Takk fyrir Nótt.Kiss
Guðbjörg? tókstu myndir Smile

Við fórum í kvöldgöngu, Nóttin og ég. Um var að ræða afslappaða taumgöngu...rölt, sem Nótt finnst erfitt, og krefst mikillar einbeitingar hjá henni.En þetta gekk frábærlega. Ég lengdi taumgönguna viljandi, af því að það gekk svo vel og svo fékk hún að hlaupa á eftir leikfanginu góða í langa stund, þar til ég sagði stopp og héldum heim í taumgöngu.Smile

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Svaðilför við Hafravatn og stór-hundasýningin í Garðheimum

21. mars 2009 klukkan 13:03
Fékk hann Smára sem á Oliver, í hitting upp við Hafravatn....Smári enn að jafna sig eftir vinnuslysið mikla,smám saman að tjaslast saman, en þó enn brotinn og framundan enn ein aðgerðin. Og ég ný risin úr þessum leiðinda veikindum sem ég er ótrúlega slenuð eftir.
Jæja hugmyndin var góð, eins og alltafSmile Vaka og María voru að sjálfsögðu með í för, og gleymdu sér fljótt í busli með fötuna góðu.
Hafravatnið var klakabundið frá bakka og langt út í. Nótt var hin æstasta í að komast út í, og ég henti og henti fyrir hana út í vatnið appelsínugula dummi-nu og Nótt ruddist gegnum klakabrynjuna trekk í trekk. Kjúklingurinn Oliver sem er orðinn hinn mesti karlmaður, stærri en mamma sín og líkur pabba sínum, var þó ekki alveg eins hugaður og mamma sín sem var líka eins gott.
Oliver elskar að burðast með heilu trén ef svo ber undir, en þó er það þægilegra fyrir alla þegar hann lætur sér eina grein duga að dröslast með.......svo mikill strákur. Hann er líka góður sækir, eitthvað sem ekki þarf að kenna þessari tegund.
Við röltum í miklum rólegheitum og hentum fyrir hundana. Það hlaut samt að enda þannig að í eitt af 100 skiptunum sem dummieð flaug út í, þá fór það út á ísbreiðu, og Nótt á eftir. Þetta kast endaði með því að Nótt datt í gegnum vök, og komst ekki aftur upp á klakann, og hann var of þykkur til að hún gæti rutt sér í gegnum. Nú voru góð ráð dýr..........Við reyndum að leiðbeina Nótt meðfram klakabreiðunni, en hún varð fljótt köld og hrædd,elsku kellingin. Það voru ekki lætin í henni,en augun sögðu sitt. Dummieð passaði hún vel.
Hún gerði nokkrar tilraunir til að hífa sig upp á klakann án árangurs. Mér varð litið á Smára, sem mætir alltaf klæddur eins og hann ætli að rölta niður Laugaveginn í Reykjavík. (illa klæddur), hann líka slasaður, svo ekki gat ég sent hann út í jökulkalt vatnið. Þyrlur landhelgisgæslunnar voru ekki langt undan og  hefðum við sjálfsagt komist í blöðin ef við hefðum náð athygli þeirra. Svo var þarna lengst upp í fjalli....ekki í kallfæri annar labradoreigandi með sína hunda..........Það var sem sagt ekkert annað í stöðunni en að ég færi sjálf út í klakabundið vatnið. Nótt hafði hlaupið þarna út á og hún er örugglega 30 kíló +...ég er sem sagt helmingi þyngri og því vitað að ég mundi fara strax niður úr klakanum og í vatnið. Ég var komin upp að mitti í vatninu þegar ég komst að Nótt, krækti í hálskeðjuna hennar og dró hana í land. VÁ KULDINNNNNN.
Ég öslaði í land og reyndi að bera mig vel og sagði......jæja hér lýkur þessum göngutúrWink Nótt virtist ekki meira sjokkeruð en það að hún vildi halda leiknum áfram, en ég er ekki viss um að hún hefði látið vaða út í vatnið, og ég tók ekki sénsinn á því. BRRRRRRR. Ég sullaðist heim,skjálfandi á beinunum, beint í HEITA sturtu og nú er að vona að mér slái ekki niður eftir volkið. Cool
Læt fylgja mynd með.

Verð að láta það fylgja með að eftir að hafa jafnað mig eftir sundferðina í Hafravatni, þá fékk ég mér bíltúr í Garðheima að skoða stórhundana. Eins og þeir sem þekkja mig vel, þá finnst mér stórir hundar svooo flottir.
Ég fór gagngert til að komast í nánd við ákveðna tegund sem ég er agalega svag fyrir. Unnur,Gauti og Vaka voru með mér, og athugasemdin frá Unni Freyju var eiginlega dásamleg.......MAMMA HANN ER JAFNSTÓR OG PABBI!!!!!!!, að detta þessi samlíking í hugLaughing.......jú hvuttinn var reyndar STÓR.
Ég hitti fullt af fólki þarna, og hefði verið til í að dvelja lengi,lengi. En heilsan býður ekki alveg upp á það.
Ég hitti Samma í Retriever básnum og spjallaði við hann. Svo var gaman að hitta Önnu Fransescu og Steinar með Queen brons drottningu. Baddý var með Afríku (risa schnauser),já og ég tyllti mér hjá henni Katrínu dýralækni, mér finnst alltaf gaman að hitta hana.Langar svo að vinna með henniSmile Sem minnir mig á að ég ætla að bæta við heimasíðu Dýraspítalans inn hjá mér.
Mér fannst frábært að sjá hvað margir mættu til að sýna tegundirnar og það var fullt út úr dyrum af áhugasömu fólki um hunda.Smile
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Úti á túni

20. mars 2009 klukkan 17:33
Skammast mín.......treysti mér ekki út með hundana í dag. Er ennþá hálf ónýt eitthvað. Víðir bætti úr því fyrir mig. Fór með Nótt út á stóra tún með leikfangið góða. Vá hvað hún hljóp. Ekki skemmdi það fyrir að hitta Maríu og co, með sína súkkulaðibrúnu bolta.
Bárður bræddi Víði alveg, enda svakalega fallegur, nauðalíkur pabba sínum honum Henry.
Kristín! takk fyrir kveðjuna og velkomin heim. Vonandi áttuð þið ljúfar stundir hjónakornin, og ég efa ekki að þið fenguð dásamlegar móttökur við heimkomuna.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Komin heim

19. mars 2009 klukkan 19:34
Þá er ég komin heim af spítalanum. Ég var svo óheppin að flensan lagðist óvenju harkalega á mig, og fór mjög illa í höfuðið á mér. Hef verið hálf rænulaus í hálfan mánuð. Ekki gott get ég sagt ykkur.
Það voru miklir fagnaðarfundir þegar ég kom heim. Nótt og Tumi hreinlega umvöfðu mig. Ég skreið beint undir sæng og hundarnir með mér...........bara best. Það er gott að vera komin heim.
Framundan eru stuttir göngutúrar.......meðan ég er að safna kröftum á ný.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Vetur

08. mars 2009 klukkan 19:18
Kristín og Co, komu að sækja hana Söru. Þau voru með Vetur með sér Smile. OH! hann er svo fallegur. Alveg dásamlegur. Ég verð svo stolt þegar ég sé hvolpana.  Elsku Kristín og Guðjón. Ég lofa að taka betur á móti ykkur næst. Guðbjörg.Takk fyrir knúsiðKiss
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Influensan

07. mars 2009 klukkan 14:58
Ég lagðist í gær í flensuna. Þvílíkur andsk....... Arnór byrjaði, þá tók Vaka við og nú ég. Þá eru þrír eftir í fjölskyldunni. Nótt liggur og horfir á mig döprum augum. Ég held ég sé enn daprari að geta ekki farið með hana út í þessu góða veðri.
Nótt varð lánsöm :). Víðir og Vaka fóru með hana í heillangan göngutúr í dag. Mikið er ég þakklát.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Eyrun duttu af mér

05. mars 2009 klukkan 00:04
Fallegur dagur. Sólskin og heiðskírt. Ég þarf enga húfu hugsaði ég um leið og ég labbaði út með hundana. Gekk fyrir hornið og eyrun duttu af mér. KULDINN. Það var vindur og örugglega 50 C frost. Ég get hreint svarið það. Göngutúrinn styttist verulega og breyttist eiginlega þannig að ég stóð undan vindi með hettuna á hausnum og lét Nótt í sækivinnu með leikfanginu góða. Ég hélt þetta út í hálftíma og hún fékk sko að hlaupa....ég var með vettlinga, annars gæti ég ekki skrifað þessar línurCool. Vonandi höfðuð þið það gott. í dag.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Full matargjöf einu sinni á dag.

03. mars 2009 klukkan 11:41
Þá er Nótt komin á fulla matargjöf aftur. Ég ætla að gefa henni að borða einu sinni á dag. Framundan er kvöldvakt hjá mér en áður er það taumganga og orkulosun með leikfanginu góða. Ætla að passa að klæða mig betur núna heldur en í gær. Þvílíkt gluggaveður sem var í gær. Það var ískalt. En maður lætur nú ekki plata sig mörgum sinnum.
Já ætlaði að nefna að ég ætla að prófa Íslenska fóðrið. Hef verið að lesa mér til og líst bara vel á. Það eru nokkrir hundar sem ég þekki komnir á þetta fóður, með góðum árangri. T.D hún Bláskóga Selja sem vann tíkurnar í labrador um helgina.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Gönguplan og bætt heimasíða.

02. mars 2009 klukkan 09:29

Þá er að bretta upp ermarnar. Cool Nobody is perfect.Embarassed. Nótt ræfillinn fékk í fyrsta skiptið í langan tíma fullan skammt að borða. Hún er alsæl. Ég er búin að vorkenna henni ofboðslega mikið.
Nú er verið að setja upp gönguplan. Versta við gönguplanið er að Nótt þarf að grennast en ekki ég. Hún hefur of mikla matarlyst og ég enga. Búið að vera vandamál í smá tíma, og ég farin að láta á sjá í öfuga átt við NóttinaLaughing. Ég þarf jú að labba með henni. Þetta endar með því að hún verður grönn og slank og ég eins og beinagrind. Cool Við verðum flottar saman í hringnum næst. Það verður spennandi að sjá. Vitiði til. En stelpur uppskriftina að lystarleysinu mínu kann ég ekki, so sorry. Laughing Að öðru leyti er ég mjög hress. Fallegur dagur og út vil ek.
Svo ætla ég líka að fara að setja inn skemmtilega og fræðandi tengla á síðuna já og taka fleiri myndir.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Blár dagur.

01. mars 2009 klukkan 16:14
Jæja þá er sýningin að baki. Við fengum very good, eða bláan borða. Við hefðum fengið excellent ef drottningin hefði ekki verið of þung. Við "mæðgurnar" erum alveg sáttar. Fengum fínan dóm. T.d. SUPER COLOUR og NICE TEMPERAMENT. GOOD BONE STRUCTURE ofl.Smile
Visku og Von gekk líka vel í morgun. Von þarf reyndar að massast upp. Viska varð í öðru sæti í hvolpaflokki eldri. Bara rosa fínt. Báðar þykja þær very promising.
Selja vann tíkurnar, og Texas, vann rakkana. Flottir hundar.
Mig langar að þakka fyrir góðan dag og skemmtilegt spjall. OG TIL HAMINGJU MEÐ FRÁBÆRAN ÁRANGUR ÖLLKiss

Besti hundur sýningar í ár er Schafer.
Berglind Gestsdottir
4 athugasemdir