VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Að þreyta labrador

30. apríl 2009 klukkan 13:06

Þá er maður kominn inn úr rigningunni einn daginn enn. Mér datt í hug ráð frá henni Ástu Dóru, hvernig best er að þreyta labrador. Nótt er nefnilega þindarlaus og gæti hlaupið út í hið endalausa. Alveg sama hvað ég er lengi með hana og hvað við erum að gera.........hún væri alltaf til í meira. En nú ákvað ég sem sagt að prófa ráðið frá Ástu Dóru. Að láta Nótt LEITA. Ég tók bolta með okkur og kastaði í öfuga átt við þá sem hún hélt hann færiLaughing og þá þurfti hún að leita. Hundar þreytast víst mest, ef þeir þurfa að nota hausinn og þefskynið. Hún fékk að leita og skila í svona 20 mínútur. Og svei mér þá ef hún er bara ekki lögst núna hér á annan púðann sinn.Cool Ætla að gera þetta oftar.
Það er ekkert að veðrinu. Milt,gott og rigningarúði. Bara að klæða sig eftir veðri hverju sinni. Þið munið! að ef þið hreyfið hundana ykkar lítið og eða sjaldan, þá  verður hundurinn ykkar leiðinlegur og getur farið að eyðileggja, og gera skammarstrik bara af leiðindum og innilokun. Þessu hef ég tekið eftir í þáttunum hjá Cesari Milan. Uppruni flestra vandamála hjá hundaeigendum er að hundurinn er sjaldan hreyfður. Fær jú að fara út í garð, en það fer fljótt að verða tilbreytingalaust.  Mér finnst aldrei nóg að bara taumganga með Nótt. Hún verður alltaf að fá að losa orku líka. Hlaupa í hrikalega flottum sprettum, aftur og aftur..
Jæja bið að heilsa ykkur í bili, er að fara á kvöldvakt.  

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Út í rigninguna

29. apríl 2009 klukkan 22:40

Þreif húsið í dag.........mér finnst ég alltaf vera að þrífaSurprised Það var svo hrikalega mikið rok, að ég ákvað að bíða aðeins með útivist. Seinni partinn var svo VORhátíð í skólanum hjá Vöku. Lítið vorlegt í dag finnst mér. Ég fór svo eftir kvöldmatinn út með Nótt. Rokið gengið niður en rigningin öflug. Ég var í Cintamani regnjakkanum mínum, með hettuna á hausnum. Mér finnst ég nú alveg vera skvísa í honum sko...ekkert púkalegt við þá flík.
Nema hvað að þegar regnið dundi á hettunni, fóru í gegnum hugann minningar um rigningar tjaldútilegur í æsku.Smile, maður varð nú oft ansi blautur hér í den. 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Til hamingju.

29. apríl 2009 klukkan 09:15
Valshamars Von fékk 97 stig af 100 mögulegum á Retriever hlýðni námskeiðinu. Til hamingju kæri Óli. Þú átt eftir að ná súper árangri með hana. 
Það var svo mikið rok í nótt og ennþá núna, að manni hryllir við tilhugsunina að fara út. En það er víst hlýtt, svo once again, engin afsökun.
Dóri hundavinur minn sem á hana Sölku kom í heimsókn í gær áður en ég fór á kvöldvakt. Við getum talað endalaust um hunda. Ég lét hann hafa einhver kíló af Iceland Pet, þar sem annars hefði það farið í ruslið hjá mér.
Leitin að draumarakkanum fyrir Nótt er hafin, og nú bíð ég eftir myndaniðurstöðum, augnskoðunum osfrv. Held að hann sé fundinn :) krossa bara fingur um að allar niðurstöður verði okkur í hag.Laughing
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Stóðumst ekki mátið.

27. apríl 2009 klukkan 19:46
Morgunvaktin á spítalanum var lengi að líða. Veðrið kallaði á útivist. Sól og alles. Dreif mig beint heim. Víðir fékk far með hjólið og Vaka slóst í hópinn.  Fórum upp að vatninu og nú var það litla reitta hænan sem tók flugið endurtekið út í vatnið og Nótt á eftir að sækja hana. Það var hlægilegt að heyra skerandi veinið í hænunni, þegar Nótt greip um hana lengst úti í vatni.
Tók myndina á forsíðunni á símann minn... Fremst á myndinni er Vaka með litlu reittu hænuna á lofti. Nótt er í viðbragðs stöðu, tilbúin að sækjaSmile. Vona svo sannarlega að þið hafið notað daginn vel, eða eigið eftir að drífa ykkur út eftir kvöldmat.

Bætti þremur myndum á myndasíðuna, og  bætti líka meiru í íhuganarefni/ Næsta got.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Sækivinna í vatni.

26. apríl 2009 klukkan 18:31
Víðir ákvað í dag að fara í hjólreiðatúr. Ég keyrði hann að Stardalnum og skildi hann þar eftir. Ég tók hundana með mér og ákvað að nýta ferðina í góða göngu. Við fundum stórt vatn sem ég held að Leirvogsáin renni frá.
Nótt var í miklu stuði og við með boltann með okkur. Vatnið er djúpt strax frá bakkanum, þannig að Nótt þurfti strax að taka á því. Þarna líkaði henni lífið. Að synda er örugglega BESTA hreyfing fyrir vöðva hundsins. Við gengum síðan meðfram ánni og á því svæði tókst okkur að týna boltanum............einu sinni ennCool Á myndinni að ofan situr Nótt á árbakkanum og syrgir boltann sinn. Hún leitaði LENGI að honum.
Veðrið dásamlegt. Þegar heim var komið fékk Nótt að láta sig þorna í sólinni úti við. Ég tók eina umferð með burstann á hana.

Ég er harð ákveðin að fara aftur upp að þessu vatni, helst tvisvar í viku og láta hana synda.
PS. Ég setti inn myndir úr ferðinni okkar.Laughing
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Kjósa rétt!!!!!!!

25. apríl 2009 klukkan 10:26
Hvað er að kjósa rétt.Við höfum aldrei staðið frammi fyrir öðrum eins erfiðleikum í þjóðfélaginu, og í miðju ruglinu þurfum við að kjósa nýja ríkisstjórn. Alveg með ólíkindum. Þjóðin er skelfingu lostin, trúin á framtíðina engin, og þvílíkur taugatitringur í mannsskapnum. Ég vona bara að skjálfhentu hendurnar nái að xa við rétt. ........en hvað er rétt!
Ég veit hvað ég kýs og ég vona að mitt fólk standi uppi sem sigurvegarar kvöldsins. En hvort það breyti miklu fyrir Ísland, veit ég ekki.Fyrir mér erum við búin að vera. Sorry veit ég er svartsýn, en svona er veruleikinn. Alveg eins gott að horfast í augun við það. Nótt er aftur á móti alveg sama. Meðan hún fær áfram lúxus matinn sinnLaughing og á minnst tvo lúxus púða til að liggja á, og fær sína reglulegu göngu og leiktíma.VÁ þá er hún í himnaríki,og alltaf hress.Laughing. Get alveg sagt ykkur að ég vildi ekki vera án dýranna mína á þessum ömurlegu tímum.

Það gleðilega við daginn, er að elsti strákurinn minn er 22 ára í dag,Hann Arnór. Hann er nú á tónleikaferð um Bretland með hljómsveitinni sinni, að sigra heiminn.Það er aldrei of seint að reyna að sigra heiminn sko.Laughing
Víðir bað hann að hringja heim, til að láta vita hvenær hann (Víðir) gæti hætt að vinna og stráksi mundi kaupa Range Rover handa mömmunni......verður maður ekki multi billionaire yfir nótt í rokkbransanum Cool
Æi brosum bara. Það er gott veður!. Love you guys
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Svo holdvotar

23. apríl 2009 klukkan 18:38
Hvað er betra á sumardaginn fyrsta en hellirigningLaughing Ég ákvað að bíða frameftir degi með að fara út með Nótt, og tók þess í stað húsið í gegn. Það tekur alveg 4 tíma minnst. Nú klukkan sex var minn gálgafrestur útrunnin.Cool
Ég skellti mér í gallann, fann ipodinn, risa heyrnatólin mín og gerði hundana klára. Um leið og við gengum út bætti þvílíkt í rigninguna, eins og hún hafi haldið aftur af sér þangað til ég mundi birtast. Það var til lítils að fást um það og er rigningin ekki bara góð? Ég varð strax alveg holdvot og hundarnir líka. Ég var orðin svo blaut að mig langaði helst til að stelast til að hoppa í pollunum eins og smákrakki. Vá það var freisting. Við komum semsagt heim eins og hundar af sundi.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Undirsíðan Næsta got hefur verið uppfærð.....kynntu þér málið

22. apríl 2009 klukkan 16:16
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Lifandi

22. apríl 2009 klukkan 10:57
Jú,jú, við erum lifandi.Ég var búin að skrifa þvílíka færslu í gær. Ég er svo reið út af ástandinu hérna á landinu og tíminn að hlaupa frá okkur........ég var hreinlega að missa mig í gær ég var svo fúl. Þannig að það borgaði sig ekkert að vera að birta mínar leiðinda pælingar.
Annars var gærdagurinn mjög skemmtilegur. Ég var í bóklegum og verklegum kúrs í VIÐBRÖGÐUM VIÐ BRÁÐATILFELLUM UTAN SJÚKRAHÚSA. Jamm, ég hreinlega elska allt sem heitir BRÁÐA eitthvað......ég er BRÁÐA-HJÚKKA.   Ég kom heim um kl. 16, alveg búin að bræða úr heilanum og hjartahnoða út í eitt. Ég ákvað að hafa bara góða súpu og heimabökuð skinkuhorn í kvöldmat. Henti saman í hornin, lét deigið hefast og á meðan lagðist ég aðeins í sófann............Nótt var mætt med det samme og rétti mér ofur varfærnislega hænuna sína reittu, sem þýðir bara ÚT AÐ LEIKA NÚNA!.........neiiii get ekki sagði ég við hana. Kannski á eftir. Og ég drattaðist til þess eftir kvöldmat að fara út, og vá hvað ég er fegin núna að ég dreif mig. Ef það verður eitthvað út í dag, þá verður það STUTT.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Viðrun

20. apríl 2009 klukkan 13:05
Búnar að viðra okkur í dag. Það kenndi ýmissa grasa í göngutúrnum og illa innrættir hefðu getað stórgrætt. Alls konar flottir sleðar og kerrur og hvaðeina eins og hráviði út um allt, eftir storminn í gær.......sagði ykkur það við hefðum verið í stór hættuCoolog ég tala ekki um boltana. Nótt var fyndin, Við vorum með leikfangið góða með okkur, og það nýjasta hjá henni er að bera boltann. Það var svo skondið að sjá hana vandræðast í því að taka einn bolta en skilja okkar eftir, hætta svo við, taka sinn bolta og skokka áfram.
Ég var eitthvað að glugga í hundaspjallið og sé að það eru fleiri en ég að koksa á feldlosinu þessa dagana.Laughing Ég fór nú að ráðum Guðbjargar vinkonu minnar og skrapp í Víðidalinn og fékk vítamínsprautu fyrir Nótt. Bara svona boost. Ég er orðin nokkuð viss um að ég rústaði á henni feldinum með því að prófa Iceland Pet.(allt of mikið prótein, og þetta fiskimjöl.....jukk) Það hentar henni engan veginn, þótt það henti örugglega einhverju öðrum. Ég er aftur farin að gefa henni ProPac og veit að á því er ég örugg með hana. Annars finnst mér feldlosið í rénum, og feldurinn að ná fyrri glans. Þetta gengur allt yfir, bara leiðinlegt meðan á því stendur.
Ég er áskrifandi að fréttabréfi frá Cesar Millan. Núna var hann að hvetja fólk til þess að hafa hundana sína merkta. Ég er sammála. Þetta er geysilega mikilvægt, og minnkar líkurnar talsvert að hundurinn lendi hjá hundafangaranum, með svimandi háu lausnargjaldi osfrv. svo ekki sé minnst á skelfinguna hjá manni sjálfum að týna hundinum. Þannig! merktu hundinn þinn, símanúmerið þitt er það mikilvægasta.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Fljúgandi trampólín

20. apríl 2009 klukkan 00:53
Viðurkenni fúslega að ég nennti ekki út með Nótt í dag. Ég meina maður hefði getað fengið trampólín eða þakplötur í hausinn.Cool Ég hefði jú getað verið með HJÁLM!, það hefði engum þótt sú viðbót við outfittið skrýtið.
EN úff ég bara nennti ekki út. Nótt var til í slaginn, það vantaði ekki, frekar en fyrri daginn.
Vona bara að það hafi fleirum en mér fundist ekki hundi út sigandi.Wink
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hamrahlíð

17. apríl 2009 klukkan 18:26
Jæja þá erum við búnar að hreyfa okkur í dag. Byrjuðum á því að fara í Hamrahlíðina/skóginn,og gengum þar um í mjúkum mosa og á milli fallegra trjánna. Fórum langleiðina upp Lágafellið líka. Nótt fann sér læki til að vaða í. Þegar heim var komið tók við sækivinnan með boltann. Endalaust úthald í slíku hjá Nótt. Við týndum ekki boltanum í þetta sinn.Smile
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Aftur að koma helgi........er lífið ekki dásamlegt

17. apríl 2009 klukkan 09:24

Föstudagurinn runnin upp. Ég á frí í dag. Það er svoo gott að eiga frí. Planið er að fara í RL og versla dótið sem ég nefndi í gær. Láta skoða bílinn og að sjálfsögðu fara út með hundana. Seinni partinn er mikill spenningur yfir því að heimsækja Sædísi systur og co, sem voru að flytja í bæinn. Nótt og Tumi koma með til að hitta Aþenu. Kannski við förum bara aftur þá í göngutúr um nýja hverfið þeirra að skoða.
Vitiði hvað þarf marga til að koma Nótt á vigtina hjá dýraLaughing.......hún er nefnilega eins og við hinar dömurnar,viljum ekki sjá vigtar., he,he. Það þarf minnst tvo fullorðna til að koma henni á vigtina, hún spyrnir bara í og segir, NEI ÉG VIL EKKI...........úff en hún hlýtur að hafa misst einhver kíló eftir allt þetta feldlos.Laughing

Verið góð við hvert annað og gerið eitthvað skemmtilegt um helgina. Kiss

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Gaman

16. apríl 2009 klukkan 19:41

Ég held að nú sé komið vor. Maður vaknar skælbrosandi og sprettur á fætur, það er orðið svo bjart eldsnemma á morgnana. Ég var á morgunvakt, þannig að Nótt þurfti að bíða eftir mér til kl. 16. Þá fórum við út, og viti menn........okkur tókst að týna TVEIMUR boltum á no time! Við erum snillingar í þessu. Við vorum með leikfangið góða og tvo nýja bolta sem ég keypti í GÆR!. Við erum búin að glopra alla vega 6 boltum. Finnst ykkur þetta hægt!. Sædís systir er búin að eiga sitt leikfang fyrir Aþenu lengur en ég og hún er ennþá með FYRSTA boltann. Okkar lenda í toppum 6 metra grenitrjáa, eða bara hreinlega GUFA UPP.Cool Algjörlega óskiljanlegt.  Nótt finnst við vera glataðir kastarar, he,he.
Á morgun á ég frí. Ætli ég skreppi ekki og kaupi eitt stykki bolta. Svo lofaði ég Aþenu að kaupa handa henni litla reitta hænu, eins og Nótt á, og grípa eina handa Vetri í leiðinni Laughing

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Æðislegt veður

13. apríl 2009 klukkan 12:38
Góðan daginn. Þetta eru nú bara einhverjir þeir bestu páskar sem ég man eftir, svona veðurlega séð.
Hver dagurinn öðrum betri.  Við stefnum á góðan göngutúr í dag. Víðir fór á skíði með Unni og vinkonum hennar. Takk fyrir að skrifa KristínLaughing Ég er nú ekki viss um að margir mundu láta sér nægja svona frumbyggja hátt eins og við búum við í Kjósinni. Okkur finnst þetta æðislegt. Svo er bústaðurinn okkar svona álíka stór og salernin eru orðin í nýju bústöðunum í dag, he,he Bústaðurinn okkar er um 40 fm2..... ALGJÖR PARADÍS. Þið bara verðið að koma í heimsókn einhverja helgina. Og það eru allir velkomnir, alltaf. Hafið það ofsalega gott í dag. Njótið veðursins, VERIÐ ÚTI.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Valshamar í Eilífsdal/Kjós

12. apríl 2009 klukkan 22:40
Besta helgin á árinu hingað til. Dásamlegt að eiga afdrep, burtu frá skarkalanum og látunum, tækninni og lúxusnum. Vera úti með fjölskyldunni og hundunum, milli þess að liggja, flatmaga, lesa góða bók, eða borða með góðum vinum.Smile. Þetta var góð helgi. Veðrið var mjög gott. Um  0 - 4 gráður Cool, en inni var hlýtt og gott.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Sjálfri sér lík

09. apríl 2009 klukkan 00:48
Nótt hefur náð gleði sinni á ný sem betur fer.  Hún skokkaði um í garðinum í dag með Víði og Gauta í vorverkunum.  Úff hvað maður getur haft miklar áhyggjur. Framundan er að fara í bústaðinn og vera úti í náttúrunni. Ég óska ykkur gleðilegra páska. Passið súkkulaðið. Það er ekki fyrir hunda.




Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Nóttin daufa

08. apríl 2009 klukkan 11:47

Nótt svaf vel. Mér leið vel að hafa hana á gólfinu við hliðina á mér ef hún skyldi fara að kveinka sér.
Hún fór út í morgun og gerði stykkin sín, sem voru eðlileg. Svo borðaði hún og drakk, en er áfram dauf og leið að sjá. Unnur sagðist vita hvað væri að henni. Hún saknaði litlu reittu hænunnar. Nótt gladdist og hresstist þegar hún fékk hænuna en bara stutta stund. Nú liggur hún hér hjá mér á gólfinu. Er ekki að skilja þetta.
Ég hef þó minni áhyggjur því henni virðist ekki líða beint illa. Ég fer á kvöldvakt en Víðir verður heima og passar Nóttina.Smile

ÉG SETTI AÐ OFAN MYND AF OKKUR SYSTRUNUM AÐ GAMNI. .......ÉG ER REYNDAR LJÓSHÆRÐ Í DAG Cool

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Brá!

08. apríl 2009 klukkan 00:21

Já mér brá þegar ég kom heim eftir kvöldvaktina. Nótt beið ekki við gluggann, eða kom hlaupandi þegar ég opnaði hurðina. Hún lá í bælinu sínu. Við fórum í góðan göngutúr í dag. Ekkert óvanalegt, nema B-stykkið í mýkra lagi. Hún hljóp og lék eins og hún er vön. Ég fór síðan í vinnuna. Hún fékk að vera áfram úti, en bundin, og horfa á krakkana leika. Unnur settist svo líka hjá henni og las bók, veðrið var svo milt og gott. Í kvöld ældi hún 1x,  og eftir það lá hún.  Hún er dauf til augnanna greyið og ólík sjálfri sér.  Hún mun sofa á gólfinu við hlið mér í nótt. Ég hef áhyggjur.Cry

 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Með fjórar fætur og skott!

06. apríl 2009 klukkan 19:36
Bið ykkur að afsaka hvað ég er sein! Mér gekk alls ekki hvorki að kveikja né slökkva á tölvunni minni í gær. Ég í gremjukasti og óþolinmæði var staðráðin í að rjúka með tölvuna í viðgerð á leiðinni heim úr vinnunni í dag klukkan 16/morgunvakt. Ekki vildi betur til en svo, að ég gleymdi tölvunni auðvitað heima.Yell
Ég hringdi heim um miðjan dag, til að heyra í krökkunum og spurði af gömlum vana hvað þau væru að gera. Gauti sagðist bara vera í tölvunni. Hvaða tölvu spyr ég? Nú þinni segir Gauti. MINNI!!!!!!!!! En hún er steindauð.
Hvernig fórstu að því að laga hana? spurði ég. Og strákurinn svaraði.........Ég bara kveikti á henniEmbarassed
Svo var það í hádeginu í vinnunni í dag, að talið barst eitthvað að hundum. Ein er að tala um hund sem einhver önnur átti og ég spyr...........hvaða tegund er það? UHHHHHHHH! segir þá hin.....svona með FJÓRAR LAPPIR OG SKOTT.Laughing Þetta fannst mér alveg hrikalega fyndið.
Annars fórum við Nótt í sundtúr í gær. Hún þræddi Varmána fram og til baka. Hún var nefnilega að eignast nýtt leikfang........Munið þið eftir litlu gulu hænunni..........það er ekki hún, heldur LITLA REITTA HÆNAN.Laughing Gúmmíhæna með tístu, sem ég keypti í RL. Oh Nótt var svo flott þar sem hún dembdi sér á eftir hænunni út í ánna, trekk í trekk, og tók hana SVO varlega í kjaftinn og færði mér hænuna. Þvílíkur veiði talent.Kiss ELSKANA. Á leiðinni til baka varð ég á undan Nótt að koma auga á Sankti Bernhards "hitting"....svona 5 stk eða svo og laus Schafer. Ég náði að setja mig í sjóskíða stellinguna....þ.e. Báðar hendur fast á tauminn og stíga svo fast í báða hælana og beygja mig í hnjánum. ÉG VAR TILBÚIN........Bendi ykkur á að við erum að tala um sekúndubrot..... og Nótt kom auga á þá, og vildi LEIKA! og lagði í hann........næstum 40 kílóin þrefaldast og verða 120 þegar hún spyrnir í, en ég er nú aaaaaðeins léttari, og þess vegna er mikilvægt að vera tilbúin. Sjáiði þetta fyrir ykkur. Shafer kom á fleygiferð að okkur, en sem betur fer voru hinir STÓRU í taumi og draup ekki af þeim. Þetta fór allt vel, eins og alltaf. Lífið er ævintýri, og enginn dagur eins.Wink

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Matargat

05. apríl 2009 klukkan 00:49

Þá erum við komin heim aftur,eftir skemmtilegan dag. Nótt fór ásamt góðum vinum upp á Eyrarfjall og skokkaði líka um fegin frelsinu. Ég hafði hana svo úti við meðan við borðuðum......hún sat við hurðina/glerhurð og góndi á okkur öfundaraugum.  Hún er svo mikið matargat . Ég eldaði austurlenska rétti (Marokkó), og sterkt kryddið og laukurinn/baneitraður fyrir hunda, er ekki á matseðlinum hennar. Sem sagt bara þurrmatur handa drottningunni,og henni fannst það bara líka ALVEG frábært........alveg sama hvað er. Alltaf veislustemmning hjá Nóttinni.Smile 

 

 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Vorboðinn ljúfi

04. apríl 2009 klukkan 11:18

Góðan og glaðanSmile Hjá okkur er það vorboði þegar við förum fyrstu ferð sumarsins í bústaðinn okkar í Eilífsdal í Kjós. Hann erfði ég eftir foreldra mína og er orðinn 36 ára gamall. Yndislegur bústaður. Ekkert rafmagn, vatnið úr fjallinu, gasofn og kertaljós. Okkur finnst yndislegt að fara úr öllum sjálfsagða lúxusnum í sveitina.
Mig langar í kamínu.......ef þið vitið af einni  sem rykfellur einhvers staðar þá endilega látið mig vita. Þegar ég var lítil var arinn í bústaðnum. Ég sat tímunum saman á gólfinu með bók við ofninn og lét hitann verma og lyktin frá birkinu sem brann var svo góð. Nótt nýtur sín vel í Kjósinni. Frjáls eins og fuglinn.Laughing
Hafið það gott um helgina.

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Þarf ekki að ryksuga

03. apríl 2009 klukkan 09:42
Já, já! örugglega ýmindun. En ég virðist ekki þurfa að ryksuga áður en ég fer í vinnuna. Vá það er bara eins og að fá FRÍ finnst mér.....Cool óttalega slítandi húsverk að ryksuga. he,he.
Það verður kvöldganga því ég fer að vinna kl. 12 á hádegi. Oh ætli le dogs sé ekki sama, bara að þeir FÁI að fara út.Laughing.
Góðar stundir.

Það var ekki að finna á Nótt að henni hafi verið sama um að göngutúrinn færi fram að kvöldi en ekki í hádeginu eins og undanfarið. Hún var greinilega búin að fá nóg af biðinni í dag, því hún hljóp gjörsamlega út í eitt. Ég fann strax og ég setti hana í tauminn, að hún þyrfti orkulosun. Veðrið milt og gott.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Dýrt

02. apríl 2009 klukkan 09:53
Jæja góðan daginn. Það hafa nú þegar 7 kíkt inn á síðuna í dag........hverjir ætli allt þetta fólk sé..friends
or fo'sUndecided. Mér þykir eiginlega verst að ég skuli ekki standa mig betur í blogginu. Vakna kl. 06, þá hljóta þessir 7 að fá nýjustu færsluna strax.  Annars er ég afskaplega glöð og þakklát yfir öllum heimsóknunum. HREFNA HE,HE, TAKK FYRIR KVITTIÐ,ÞÚ ER SEMSAGT FASTAGESTUR, BARA ÆÐISLEGT. TAKK FYRIR ÞAÐ. FLEIRI!!!!

Ég skipti um fóður fyrir að verða mánuði síðan hjá Nótt, en hef nú ákveðið að svissa aftur yfir í það sem ég var með. Ég held að feldlosið yfirgengilega undanfarið sé maturinn. Hún hefur aldrei farið í svona mikið feldlos og lyktin af henni bæði innan og utan eins og af  þorski  Ég og ryksugan erum líka að fríka út. Og þar hafiði það.
Mér leist rosalega vel á þetta fæði og gekk vel til að byrja með. Ég veit af mörgum labradorum og öðrum hundategundum sem eru á þessu og hingað til hefur það gengið vel. Ég hef gefist upp. Ég ætla að borga helmingi meira fyrir matinn, og þurfa að ryksuga sjaldnar.......þ.e. ekki tvisvar á dag.Cool og eiga vel lyktandi hund.
Annars var umræða á hundasíðu í gær,þar sem verið var að ræða hversu oft fók týnir upp eftir hundana sína úrganginn. Mér varð eiginlega óglatt. Ég stend og bíð tilbúin með pokann. Ég skil ekki hvernig fólk getur hugsað sér að hafa þetta liggjandi í kringum húsið sitt. OJ.Yell
Ég hef komið í hús þar sem garðurinn var útataður í skít. Ég varð gjörsamlega kjaftstopp. Sóðaskapurinn.

Svo kíkti ég í Smáralindina í gær. Stuttermabolir á konur í Zöru...sem á að vera ódýr verslun kosta 3000 kall.
Vá hugsaði ég og gekk út. Fór í Name it sem á að vera með góð verð, og ætlaði að sjá hvort einhverjir sætir stuttermabolir væru komnir á V öku 6 ára.......jú komnir kostuðu 3000 kall! Finnst ykkur þetta hægt 3000 kall fyrir barna stuttermabol.
Nóg komið af röfli.
Njótið dagsins, alveg að koma helgi og páskafríið að byrja hjá börnunum, get sagt ykkur að það ríkir gleði á mínum bæ.

Við fórum í HRESSANDI slagveðurs göngutúr. Nótt finnast göngutúrarnir því skemmtilegri eftir því sem veðrið er verra....við erum ekki alveg sammála þar.
Framundan hjá mér er kvöldvakt, vonast eftir rólegheitum í kvöld. Þó veit maður aldrei hvað gerist.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Frí í dag.

01. apríl 2009 klukkan 11:02
Ef ykkur fannst lýsingin á vaktinni minn heavy.....þá ætla ég ekkert að vera að segja ykkur hvernig vaktin var í gær. ........eða jú bara alveg eins og ER þegar mesti hasarinn erLaughing Það er aldrei lognmolla í kringum mig.
Í dag er égí fríi,og þá er að njóta þess að knúsa hunda og börn og fara í góðan göngutúr.
Have a nice day
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd