28. maí 2009 klukkan 21:41
Ég er búin að skrá Nótt á sýninguna í lok júní. Umsóknarfresturinn rennur út á morgunn á miðnætti.
Við hvíldum í dag. Helgin verður svo tekin með trompi í bústaðnum um helgina. Endalaus útivist og notalegheit þess á milli. Ég treysti því að þið njótið helgarinnar.
Kristín! Takk fyrir kvittið skvísa.
Berglind Gestsdottir
27. maí 2009 klukkan 21:55
Var á morgunvakt.........frekar súrt. En dreif mig beint heim og upp að vatni. Nú fór ég að vatninu við Þormóðsdalinn. Afskaplega fallegur staður. Ég er orðin svo útitekin að fólk heldur að ég hafi verið í útlöndum. Nótt synti og naut sín svo vel.

. Hefði farið aftur eftir kvöldmatinn en ég er bara eitthvað lúin eftir daginn. Eiginlega skömm að letinni. Veðrið er svo Dásamlegt.
Hei! Trausti Stormur

Sumir boltanna okkar hafa hreinlega sokkið af því það er komið gat á þá. Takk fyrir að kvitta hjá okkur.
Berglind Gestsdottir
27. maí 2009 klukkan 00:31
Dýrðar dagur að baki. Við snöruðum okkur í garðinn fyrir hádegið. Skelfing er nú lítið skemmtilegt að reita arfa.....ég er með voða fölgrænar hendur

. En þetta þarf víst að gera, þegar maður á garð. Okkar garður er reyndar eins og frumskógur, það er svo mikið af gróðri. Náði að fylla svartan ruslapoka af ósóma. Um hádegisbilið skellti ég mér upp að Hafravatni með Nótt. Hún er farin að þekkja leiðina mjög vel og hreinlega veinar af tilhlökkun í bílnum á leiðinni. Ég fór með leikfangið góða og bolta sem var komið gat á. Hann sökk auðvitað í fyrsta kasti og Nótt ræfillinn sem sá boltann þeysast út í vatnið synti, og synti, eftir boltanum sem hvarf eins og dögg fyrir sólu. Hún hefði sjálfsagt synt yfir vatnið ef ég hefði ekki snúið henni við.

Hún verður alveg miður sín þegar hún týnir boltum.
Ég einsetti mér að vera komin til baka þegar Vaka kæmi heim úr skólanum. Ég rétt náði að gefa henni að borða og svo var hún þotin aftur. Hún er nefnilega búin að finna sér gamlan mann í hesthúsunum fyrir neðan okkur, sem er tilbúinn að teyma undir henni um víðan völl, og síðustu tvo daga, hefur sést til hennar hnarreista á baki. Og ég get sagt ykkur að þetta er enginn smá leið sem verið er að dröslast með hana. Ég þorði ekki að veifa til hennar í dag, ég var svo hrædd um að hún myndi hrynja af baki.
Ég gat ekki hugsað mér að vera inni í þessu yndislega veðri, þannig að ég fann mér verkefni. Þreif gluggana á húsinu að utan. Þreif bílinn......og ef það hefði verið til málning á húsið þá hefði ég örugglega náð að sletta einni umferð á það. Kl. 17 var það bekkjargrill í Heiðmörk með Vöku. Þá heim að elda ofan í fullorðnu drengina. Og eftir það varð ég að fara í kvöldgöngu. Við Vaka fórum aftur upp að vatni, og ég var hætt að þora að telja ferðirnar hennar Nætur út í vatnið. Vaka er mikill safnari...við miskmikla hrifningu föður síns. Hún dregur hina ýmsu hluti með sér heim úr göngutúrunum. Í kvöld voru það tvær AFSKAPLEGA merkilegar spýtur. Eitt uppslitið blóm og flotholt. Í gær kom hún heim með fullan poka af steinum. Hún finnur alltaf eitthvað. Hún er fullviss um að þetta sé hægt að nota allt saman. Flotholtið ætlar hún að láta pabba sinn fá.......hann veiðir aldrei t.d.
Maður er líkamlega þreyttur eftir útivistina. Það er svo góð þreyta.
Kæra Elísabet takk fyrir að skrifa fallega athugasemd.
Berglind Gestsdottir
26. maí 2009 klukkan 08:57
Það er svo gaman þegar fólk á biðlistanum eftir hvolpi, sýnir áhuga og fylgist vel með. Þar á meðal er hún Elísabet Anna og hennar fjölskylda. Mikið held ég að það verði gaman í þeirri fjölskyldu þegar hvolpaskott bætist við. Elísabet fylgist vel með síðunni okkar og sendir mér reglulega póst. Elísabet! mér þykir vænt um áhugann.

Mér þykir líka voða vænt um hana Bryndísi vinkonu mína hjá Sóltúns ræktun, sem er mér stoð og stytta. Ég leita til hennar í hundamálum og hún til mín.

Það er gott að eiga vini.
Annars er planið fyrir daginn, að vera í garðinum og snyrta til. Nótt verður að skottast í kringum mig. Við förum líka í einn góðan göngutúr eftir hádegi. Mér sýnist á veðrinu að Nótt fái að fara að synda.
Njótð dagsins til hins ítrasta.
Berglind Gestsdottir
24. maí 2009 klukkan 23:17
Verð að segja frá því að ég hitti Von í kvöld. Mér líður hreinlega alveg eins og ömmu hennar. Mikið ofsalega tengist maður þessum hvolpum sínum. Henni líður greinilega vel. Er algjör gormur og er að detta inn í gelgjuna.

. Smá heyrnarleysi og vandræðagangur framundan. En þetta tímabil gengur yfir, eins og annað. Spurning um að lifa þetta af. he,he.
Oliver fór svo á sýna fyrstu sýningarþjálfun í kvöld. Ég hafði svo miklar áhyggjur af Smára, sem er enn hálf laskaður eftir slysið. Ég fékk þær fréttir að það hefði verið fámennt en góðmennt, og hin besta einkakennsla í gangi

. Smári var alsæll með tímann, báðir uppgefnir en ánægðir.
Góður dagur.
Berglind Gestsdottir
24. maí 2009 klukkan 14:23
Maður var vakin kl. 07 og beðinn um að koma á vakt á gjörgæslunni.......æi nei! Ég sagði sorry......mig langaði svo í Sólheimakotið. Þar var von á Auði Sif, reynslubolta og færasta sýnandanum okkar, til að gefa góð ráð og svoleiðis fyrir sýningarnar. Það var fámennt en góðmennt í Kotinu
Þetta var fróðlegt og skemmtilegt. Líka mikið hlegið og gantast. Eftir spjall og fyrirlestur, sóttum við hundana og hlupum nokkra hringi og stilltum upp. Nótt var gjörsamlega yfir sig hamingjusöm og skoppaði eins og gormur og ég ekki í neinu hlaupaformi.Þetta er erfiðara en margur heldur
Ég er ennþá ekki búin að skrá hana á júní sýninguna.......hef vikuna til þess. Skrýtið hvað ég er alltaf sein að þessu.
Þegar við komum heim úr Kotinu, fórum við í sækivinnu og hlaup. Tumi fékk að vera með.
Berglind Gestsdottir
21. maí 2009 klukkan 21:58
Ég er svo fegin að ég skuli vakna snemma á sólardögum eins og þessum sem nú er að kveldi kominn.
Ákvað að vekja Smára sem á Oliver kl. 0930, og drífa þá út. Þeir félagarnir eru alltaf til í útivist.
. Vaka og María komu að sjálfsögðu líka. Þær eru svo frábærar vinkonur. Við hittumst í Hamrahlíðinni og röltum um þar og áleiðis upp Úlfarsfellið. Við lentum auðvitað í ævintýri....eins og virðist fylgja okkar ferðum. he,he. En alltaf enda þær vel. Eftir Úlfarsfellið skelltum við okkur með hundana upp að Hafravatni og vorum lengi þar. Nótt og Oliver syntu ótal ferðir. Kl 13 var hungrið farið að sverfa að og við kvöddum Smára, Oliver og Maríu. Takk fyrir frábæra samveru eins og alltaf. Við hittum Nátttrölla gengið úr Lágholtinu. Það dró ský fyrir sólu, og ég hafði lofað sjálfri mér því að þegar að því kæmi, þá væri komið að því að þrífa húsið. Og það gerði ég. Að því loknu um kl. 16 þá fórum við á stefnumót við Brúnó og vorum með honum til klukkan að verða 18. Það var gaman að sjá hvað Nótt og hann eru líkar týpur að byggingu....hann er draumaprinsinn.
Við Nótt erum báðar uppgefnar en alsælar með frábæran útivistardag.
Og hér kemur smá skemmtisaga.
Vaka var að spá í hvað uppstigningardagur þýddi aftur...og ég reyndi að útskýra það, á einfaldan hátt.
Það tókst ekki betur en svo að hún sagði..........ok fór hann upp stiga.........uh nei sagði ég......já ég skil sagði hún. Hann gufaði bara upp. Mikið rétt, blessaður maðurinn gufaði bara upp og hefur ekki sést síðan. he,he. hún er alveg dásamleg
Berglind Gestsdottir
20. maí 2009 klukkan 22:38
Gerði ekkert af viti í dag. Er alltaf handónýt eftir næturvaktirnar. Enginn skandall eða vandræðalegar uppákomur.
Átti jú skondið símtal í 118. Ég bauð góðan daginn og sagði erindið...meðan konan var að leita sagði hún. Hvernig er veðrið hjá ykkur fyrir sunnan? HA!!!!! sagði ég. VEÐRIÐ!!! HVAR ERT ÞÚ. Ég hugsa aldrei út í það að 118 sé starfrækt einhversstaðar annarsstaðar en í Reykjavík.
Konan sagðist vera fyrir norðan........hér er snjór niður að fjallsrótum. Ó!!!!!! sagði ég.......mér finnst eiginlega ljótt af mér að vera þá að segja þér frá veðrinu hér fyrir sunnan........en..það er eiginlega eins og í sólarlöndum.
Svo til að friða sjálfa mig, því ég fann svo til með þeim fyrir norðan, þá fullvissaði ég konuna um það að veðrið gæti ekki haldið svona lengi, það yrði farið að rigna á morgunn, eða hinn.

Nótt eyddi deginum í garðinum með mér í sólinni.... eða ég í sólinni og Nótt i skugganum.

PS: Nú er bíllinn minn kominn með fallega rauðan miða sem stendur á 10 og buddan er á sínum stað.
Liggur við að ég farið í Góða á föstudaginn og sýni "vinkonu minni" hvað ég hef tekið mig á!!!he,he.
Berglind Gestsdottir
20. maí 2009 klukkan 08:26
Var á næturvakt. Er nú komin í bælið til að reyna að sofa eitthvað. Alveg glatað að leggjast fyrir í þessu himneska veðri. Ég ætla nú að reyna að rífa mig á lappir um kl. 14 og fara út með hundana. Þar til síðar, bið ég ykkur vel að lifa og njóta dagsins eins og hann sé ykkar síðasti. Farin að sofa.
Verð annars að segja ykkur eina hrakfallasöguna enn af mér.......í gær sem sagt. Ég verð nefnilega dálítið ráðvillt í tíma eftir næturvaktirnar, þá var ég að útrétta meira og minna allan daginn. Vá hvað mér finnst það leiðinlegt.Úm eitt leytið átti ég leið upp Fellsmúlann og ákvað að kíkja í Góða í leiðinni. Eins og þið vitið þá er þetta voða heimilsleg verslun.
Eins og oftast var ekkert spennandi að hafa, þannig að ég keyrði af stað og ætlaði að kíkja í Kringluna aðeins fyrst ég væri á þessum slóðum. Á miðri leið uppgötva ég að ég er ekki með budduna mína.......Ég fékk auðvitað meðal sterkt áfall. Ók greitt til baka og hljóp inn í Góða. Þar dembdi ég mér á starfsmann, (ansi röggsama yndislega konu). Ég sagði henni farir mínar ekki sléttar. Hún tekur sig þá til og kallar upp yfir allt og alla. HEFUR EINHVER FUNDIÐ BUDDU!. Ég við hliðina á henni óskaði mér að hverfa ofan í gólfið
. Konan fékk engin viðbrögð við þessu kalli, og sneri sér aftur að mér og sagði !nú ætla ég að tala við þig eins og krakkana mína! uhhhh. ok sagði ég. Svo þuklaði hún mig alla til að vita hvort ég væri nokkuð með budduna í einhverjum vasanum.........búin að leita þarna sagði ég, og leið eins og smákrakka.
Ertu á bíl sagði hún svo......já. KOMDU sagði hún og strunsaði með mig á hælunum út á planið.........og þá kom loka gullkornið. ER ÞAÐ ÞESSI! og benti á bílinn minn, sem var með neon grænan endurskoðunarmiða af því annað framdekkið var orðið lélegt. Og hún segir og bendir á græna miðann. ÉG ER EKKI HISSA Á AÐ ÞÚ TÝNIR BUDDUNNI ÞINNI!.
Þetta var svo fyndið. Hún sem sagt gaf í skyn að ég væri algjör slugsi og kærulaus með afbrigðum.
Á óskoðuðum bílnum og búin að týna aleigunni. He,he. En hún sagði þetta svo góðlátlega að ég gat ekki orðið fúl. Ertu búin að leita í bílnum sagði hún.........uhhh já sagði ég og byrjaði aftur að leita, og hvað haldðið að hafi ekki verið undir sætinu? BUDDAN!
Ég hélt ég yrði ekki eldri.
Berglind Gestsdottir
19. maí 2009 klukkan 00:45
Við fórum í fínan göngutúr, áður en ég lagði af stað í áttina að höfuðstaðnum. Ég þurfti að fá ný dekk undir bílinn. Vitið þið hvað 4 dekk kosta!!!!!!!!!!!!!!!!. Alla vega. þá fór ég á N1 á höfðanum. Ég grét beiskum tárum þegar ég borgaði fyrir dekkin. Og gæjarnir hófust handa. Dekkin undan bílnum. Affelgun. Nýju dekkin á felgurnar. Balancera. Dekkin aftur undir bílinn..........Ok. Ég þakkaði fyrir. Bakkaði bílnum út og lagði aðeins á hann til að beygja. HÁVAÐINN!!!!!!!!!!. Ég stoppaði strax bílinn, og stökk út, lá við með hendur á lofti og sagði ég gerði ekkert, ég gerði ekkert. Sjáiði uppákomuna fyrir ykkur
ALLIR starfsmenn dekkjaverkstæðisins og aðrir viðskiptavinir þustu út. Það kom strax í ljós að þeir höfðu sett allt of stór dekk undir bílinn, og þau ráust alls staðar utan í þegar ég lagði á bílinn.! Þannig að aftur fór bíllinn inn, og endurtaka þurfti allan processinn. Það er ekki draumur kvenna að eyða miklum tíma á dekkjaverstæði, þrátt fyrir að kaffið væri gott og þeir ættu nýjasta séð og heyrt. Ég var að verða of sein í vinnuna. En munurinn að vera á glænýjum dekkjum er alveg heaven, gripið geðveikt og ég 5 sekúndur í hundraðið á nýju næstum 100000 kr COOPER dekkjunum mínu.....joke
Veit ekkert um bíla.
Berglind Gestsdottir
18. maí 2009 klukkan 08:47
Í gær leit ég út eins og the red lobster...Unnur kallaði mig mamma lobster

. Í morgun sagði hún svo.......núna ertu svona eiginlega grábrún. Je.......hvernig endar þetta. Ég er kannski bara að verða að ÖSKU. he,he.
En alla vega er sólin komin á loft og veðrið dásamlegt. Maður tekur auðvitað daginn snemma, og drífur sig út með hundana. Seinni partinn er það svo vinnan.
Sýningaþjálfun byrjaði í gær. Tíminn er svo fljótur að líða. Mér fannst eins og það væri laaangt í þetta.
Þið flottu skvísur og gæjar sem eigið flotta labba.....maður verður líka brúnn og útitekinn með því að vera á ferð með hundana sína. Ekki bara með því að liggja eins og skata allan daginn. Þannig koma svo!
Njótið dagsins
Berglind Gestsdottir
17. maí 2009 klukkan 22:06
Þá er Loki farinn heim. Hann var nú mjög glaður að sjá "mömmu" sína hana Söru. Ég vona að hann hafi bara verið sáttur við dvölina hjá okkur

. Við vorum heillengi upp við Hafravatn í gær. Nótt var svo heitt og henni fannst svo gott að kæla sig. 'Eg naut þess að "tana" mig á vatnsbakkanum.
Í morgunn tók ég svo daginn snemma og skellti mér í Sólheimakotið. Vá hvað það var gott að hitta Guðbjörgu og Ask. Ég knúsaði hana endalaust. Ég plataði hann Smára sem á Oliver með mér í Kotið. Þarna voru líka Dóri vinur minn og aðal veiðigæjarnir. Sigurmon, Sammi og fleiri. Algjörir töffarar

að ógleymdum fullt af ótrúlega flottum goldenum, Josh og fleirum. Ég mætti með vínabrauð með kaffinu. Viskubrunnurinn að þessu sinni í Kotinu var hún Sigríður Pétursdóttir, sem er eini íslenski retriever dómarinn. Vá hvað hún lét okkur heyra það. Hún var alveg dásamleg, alveg hund skammaði okkur, og var mjög hreinskilin. he,he.. Við höfðum GOTT AF ÞESSU.
Þið sem mættuð ekki misstuð af Dóra, brillera. Sigríður lét okkur hlaupa með hundana, í sýningarhringi. Hún hafði orð á því hvernig ég DRATTAÐIST með Nótt, og að Dóri væri léttfættari en Salka. Hann hreinlega sveif og var hrikalega flottur, maður bara gleymdi að horfa á hundinn.

Við fengum okkur svo kaffi og með því. Spjölluðum og göntuðumst.
Eftir Kotið fórum við Smári með mæðginin og leyfðum þeim að kæla sig í Rauðavatni.
Endilega kíkið á myndirnar af Nótt í mynda albúminu sem ég tók í dag.
Berglind Gestsdottir
16. maí 2009 klukkan 12:43
Allt stóðið menn og málleysingjar voru komin út kl. 10 í morgunn. Við borðuðum öll morgunmatinn úti, það gerist nú ekki oft á Íslandi. Litlu mexikanarnir höfðu það fínt í hvolpagrindinni, léku og ærsluðust. Nótt í löngu bandi sem hún gat þvælst um í kringum okkur. Nú erum við að fara út á stóra túnið að leika. Ég slæst við Vöku að halda henni í fataleppunum, svo henni slái ekki niður af pestinni. Víðir er lagstur í sömu pest og Vaka.
Ætlum að drífa okkur upp að Hafravatni að leyfa Nótt að synda. Kannski Mexikanarnir stingi tánum í?
Berglind Gestsdottir
15. maí 2009 klukkan 23:53
Það kom sér ágætlega að vera með Bsc gráðu í hjúkrun. Hafa lokið sérhæfðu ILS-endurlífgunarnámskeiði og námskeiði í viðbrögðum við bráðatilfellum utan sjúkrahúsa, og vinna á gjörgæslusviði LSH.......á þessum fyrirlestri. Mér fannst nú full djúpt farið þarna fyrir leikmenn. Franski dýralæknirinn gerði svo eiginlega ráð fyrir að við værum með ótrúlegustu græjur og lyf við hendina heima fyrir.

Viðbrögðin við áföllum hjá hundum eru þau sömu og hjá mönnum. Ég var orðin viðþolslaus þarna inni, og gafst upp í hálfleik. Ég vildi frekar vera úti með hundunum. En frábært framtak hjá RC. Mæting var alveg ótrúleg, miðað við að það er föstudagur og veðrið með ólíkindum gott. Ég skellti mér beint út í góðan göngutúr, með hundskottin þrjú.
Verð að segja ykkur einn góðan.
Hún Ágústa er vinkona Vöku og býr í húsinu á móti okkur. Fjölskyldan hennar var að taka að sér 3ja ára labrador. OG VITIÐI! HANN FER BARA ÚR HÁRUM ÞEGAR HANN HRISTIR SIG.

Börn eru dásamleg.
Ætla að skella mér í bælið með bók sem mér áskotnaðist á fyrirlestrinum. Coat colours in dogs/judge and breeders manual. Örugglega eitthvað áhugavert þar.
Berglind Gestsdottir
15. maí 2009 klukkan 14:44
Þá er hann Loki kominn í vistina til okkar. Hann er ljúfur sem lamb og algjört krútt. Vaka var fljót að vinna hug hans og hjarta eins og henni er tamt með alla menn og dýr.
Við erum búin að fara í skemmtilega göngu, þar sem Loki naut sín mjög vel. Loki drekkur og borðar og það er alltaf merki um að hundi líði vel. Nótt, Tuma og Loka semur mjög vel.

Seinnipartinn ætla ég að fara á fyrirlesturinn um áfalla og skyndihjálp fyrir hunda.
Berglind Gestsdottir
14. maí 2009 klukkan 09:57
Vaka ræfillinn er búin að vera lasin alla vikuna. Fórum á endanum til læknis í gær og reyndist hún vera með Streptococca greyið. Ég er heima með henni í dag. Hefði átt að vera á morgunvakt.Það er ótrúlega mikið um veikindi út um allt núna.
Veðrið er gott, og ég ætla að drífa mig út um leið og fyrsti maður kemur heim til að leysa mig af sjúklinga vaktinni........hvenær sem það verður. Ég vona bara að veðrið verði svona í allan dag. Við Nótt hlökkum til að komast út. Hafið það fínt í dag.
Berglind Gestsdottir
13. maí 2009 klukkan 11:24
Ég fór í gær að heilsa upp á hann Loka litla, sem ég ætla að passa fyrir eina sem vinnur með mér. Þau hjónin komast lítið frá, og fannst mér gott að geta lagt þeim lið með að ætla að passa fyrir þau hundinn um helgina, þegar þau fara í skemmtiferð til Vestmannaeyja.
Loki, er loðinn Chihuahua. Þetta verður athyglisvert fyrir Loka litla. Að detta allt í einu inn í sambúð við tvo hunda í viðbót og mikla útivist. Hann verður þreyttur ræfillinn þegar hann snýr heim. En hann mun hafa mjög gott af dvölinni. Unnur ætlar að leyfa honum að sofa inni hjá sér.
Hún Sara sem á hann Loka, sagði að hann svæfi í risastóru búri.......ég fór svo að leita að þessu svakalega búri þegar ég komi til hennar, en gat ekki annað en hlegið þegar hún benti á það, svona 3xminna en búrið hennar Nætur.

Loki kemur til okkar á morgun. Ég lofaði henni Soffíu að setja inn mynd af honum hér á síðunni um helgina. Ég mun standa við það.
Berglind Gestsdottir
11. maí 2009 klukkan 11:49
Þá ætla ég að demba mér út að ganga/fjúka með hundana. Ætli Tumi verði ekki fljúgandi í göngutúrnum. En það sleppur enginn hér á bæ. Á eftir skellir maður sér svo bara í heita sturtu og eftir það á kvöldvakt í vinnuna.
Ekki láta ykkur bregða þótt þið sjáið Berglindi Poppins svífandi í rokinu með tvo hunda í taumi.

Vá hvað veðrið ER ÓGEÐSLEGT. Verð að taka orð mín aftur. ÞAÐ ER EKKERT AÐ VEÐRINU. Þetta var dásamlegt.
Berglind Gestsdottir
11. maí 2009 klukkan 00:42
Berglind Gestsdottir
10. maí 2009 klukkan 16:57
Já þetta er sko eitthvað sem ég ætla að reyna að mæta á. Hjúkkan sjálf. Það munaði engu að ég réði mig í vinnu á dýralæknastofu fyrir nokkru síðan. Vinnutíminn hentaði bara ekki fjölskyldunni.
Mig dreymir um að vinna á dýralæknastofu. Kannski seinna. Maður á alltaf að reyna að láta draumana rætast. Ég er sannfærð um að ég yrði alveg súper dýrahjúkka.
Það verður fyrirlestur í Gerðubergi næsta föstudag/15.maí. frá kl. 18 - 2130. Ókeypis. Og eru það erlendir dýralæknar sem munu deila reynslu sinni. Efnið er skyndi og áfallahjálp fyrir hunda. Athugið að skráningarfrestur rennur út á morgunn 11.maí.
Aldrei þessu vant, þá á ég frí. á föstudaginn. Ég missi iðulega af fyrirlestrum og öðru vegna vinnutímans.
Berglind Gestsdottir
09. maí 2009 klukkan 09:32
Ég vaknaði fersk kl. 05 í morgun. Var þá búin að sofa í að verða sólarhring. Þessar næturvaktir fara alveg með mig á spítalanum. Veðrið er dásamlegt. Alveg himneskt. Mér fannst full snemmt að fara í göngutúr svona alveg við sólarupprás. Klukkan 07 var ég búin að lesa blöðin, borða morgunmat ,setja í eina þvottavél og keyra Gauta í vinnuna. Enn fullsnemmt að fara að vera með líflegan umgang á heimilinu, þannig að ég dunda mér nú í tölvunni smá stund.
Draumaprinsinn flaug í gegnum augnskoðunina i gær.

. Nú bíðum við eftir myndunum.......
Hlakka til að fara út með drottninguna á eftir. Reynið að njóta dagsins. Verið úti.
Berglind Gestsdottir
08. maí 2009 klukkan 16:00
Mér skilst að þetta litla hvolpaskott á myndinni sé orðið stærra en mamma sín. Jú það kemur að því......en af hverju líður tíminn svona hratt. En þrátt fyrir krúttlegheitin sem lítil hvolpaskott, þá finnst mér Nótt verða yndislegri með hverjum deginum og hún er að verða 3 ára. Mér finnst voða gott hvað hún er að róast og þroskast..........eða að ég er orðin gömul. Ætli það sé ekki frekar það.
Berglind Gestsdottir
07. maí 2009 klukkan 20:00
Auðvitað verðum við að hittast með hvolpana..........nú eru þeir ekki hvolpar mikið lengur
.Alla vega ekki í útliti. En gleymið því ekki að labrador telst hvolpur fyrstu 3 árin.Ég hef verið að hugsa að hvort við ættum ekki að gera það í lok maí, áður en allir fara að dreifast í sumarfrí. Nú væri gaman að fá uppástungur um góðan stað og stund.
Endilega hittumst.
Berglind Gestsdottir
06. maí 2009 klukkan 23:24
Afsakið töfina. Hef ekki staðið pligtina. Þurfti að sinna hinum börnunum mínum í gær. Redda sumarvinnu, Fundur hér. Stefnumót þar,skutla út og suður. Vinna...þetta klassíska. Tíðindalaust hjá okkur Nótt. Náum alltaf göngutúr og leik einhvers staðar innan 24 tímanna.

Í dag var hún í garðinum og svo fór ég með hana hring og í sækivinnu eftir klukkan 20, þegar ég kom heim úr vinnunni.
Draumaprinsinn hennar Nætur var myndaður í gær.......hvernig ætli hafi gengið. Svo er það augnskoðun hjá kappanum á föstudag.
Berglind Gestsdottir
04. maí 2009 klukkan 14:16
Allir að rétta upp hendi sem eru búnir að viðra í dag!

ÉG!!!!. Þetta var svona eins og að fara í kalda sturtu í öllum fötunum. Við fórum ca 2 km, og svo líka í sækivinnu. Tumi var ekki að fíla þennan göngutúr og lét mig eiginlega draga sig alla leiðina. Nótt aftur á móti setti nefið upp í vindinn og "brosti" af vellíðan.
Ekki láta veðrið stoppa ykkur! Engin afsökun. Bið að heilsa í bili, er á leiðinni á kvöldvakt.
Berglind Gestsdottir
03. maí 2009 klukkan 20:17
Í dag var Nótt með okkur í garðinum. Um hádegisbilið komu hér menn og risa vörubíll með krana, til að fjarlægja 30 ára gamlar aspir, sem skyggðu orðið á allan garðinn. Þetta voru sko engar smá hríslur get ég sagt ykkur. En það sem er merkilegast af öllu, er að garðurinn virkar ekkert tómlegur. Þeirra er ekkert saknað, Ég hélt að garðurinn yrði eins og berangur, en langt í frá. Nótt og Tumi voru ekki alveg að skilja hvernig trén gátu allt í einu flogið
..he,he bara að bulla. Við hlökkum til að fá sólina í garðinn í sumar.
Berglind Gestsdottir
02. maí 2009 klukkan 13:17
Góðan daginn.
Jæja nú er bara að velja sér veður til að fara út í . Það er nefnilega sýnishornaveður í dag. Hagl, sól, rok, rigning. Ef maður er jú bara nógu lengi, þá fær maður allan pakkann. Ekkert smá flott það. Þetta þýðir að maður þarf í allan gallann frá toppi til táar. Ég ætla upp að vatni með drottninguna og leyfa henni að synda. Mér finnst ég sjá hana massast, en það er sjálfsagt ýmindun.

En flott er hún.
Berglind Gestsdottir
01. maí 2009 klukkan 13:22
Ég kom heim rétt fyrir miðnætti alveg búin á því eftir gjörgæsluna. Í póstlúgunni beið mín SÁMUR. Uppáhaldsblaðið mitt
. Ég ákvað að fara í gott fótabað og lesa Sám á meðan. AUÐUR SIF til hamingju með fyrsta blaðið þitt. Stútfullt af skemmtilegu og fræðandi lesefni. Ég komst ekki lengra en inn í mitt blaðið, las hverja einustu blaðsíðu. Sámur fékk að bíða á náttborðinu, og vakti mig kl.09 í morgun svo ég gæti haldið áfram lestrinum. Ég var svo spennt að lesa meira að ég gat ekki einu sinni sofið út.
Ég er hundus idiotus. Greinin með þessari yfirskrift er svo fyndin. Maður sér sjálfan sig alveg ljóslifandi alls staðar. Ég skellihló þegar ég las þetta. jæja þarf að drífa mig út með le dogs, framundan er 1.maí vöfflukaffi og svo fertugs afmæli í kvöld. Já já alltaf mikið að gera.
Njótið þess að eiga frí með hundunum ykkar. Farið út að leika
Berglind Gestsdottir