VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Fréttir af hvolpunum.

29. júní 2009 klukkan 21:37
Það er alltaf gaman að heyra af hvolpunum. Þeir eru rúmlega 11 mánaða núna, og þvílíkt að uppgötva sig.

Valshamars - Von hefur nú lokið hvolpa og hlýðninámskeiði með prýði og er að sýna snilldar takta á veiðinámskeiði. Hún sækir jafnt á land og í vatn og þykir mjög efnileg. Hún var í sinni fyrstu útilegu um helgina. Og það var víst þvílíkt gaman hjá henni.Laughing

Valshamars - Viska sannaði fegurð sína á sýningunni um helgina. Hún er mjög orkumikil tík, og gaman að heyra hann Kalla tala um hana. Hann hefur nú stoltur kynnt hana sem sinn næsta veiðifélaga sinn á hlad.isLaughing

Valshamars - Vinur/Nói heldur Elíasi alveg við efnið, og finnst mest gaman þegar þeir "feðgar" fara út að hjóla saman.

Valshamars - Vilji/Rökkvi blómstrar á Hvanneyri. Myrra talar um hvað það er sérstakt að sjá muninn hvernig hann leikur í kringum fullorðna og svo börn. Hann fer mjög varlega kringum börn, en leyfir sér meiri brussugang í kringum fullorðna.Laughing

Valshamars - Vaskur/Oliver sýndi hversu mikill töffari hann er á sýningunni og fékk very good/Bláan borða. Oliver er stoltið hans Smára. Hann er mjög líkur Henry pabba sínum. Henry er geysilega flottur núna og ég geri ráð fyrir að synir hans muni líkjast honum mikið. Laughing

Valshamars - Víkingur/Brúnó. Blómstrar í Hafnarfirðinum. Hann fór líka í sína fyrstu útilegu um helgina, og naut sín í botn. Mikið spennandi að gerast og margt skemmtilegt fólk.Laughing

Valshamars - Vetur fór á Bíldudal með Guðjóni og Kristínu um daginn. Hann sýndi í þeirri ferð, hversu fallegur og góður hann er. Þau eru þvílíkt stolt af honum hvað hann er prúður og stilltur og fallegastur.Laughing

Valshamars - Vörður/Patton býr við gott atlæti í Borgarnesi, og er besti vinur barnabarna Sonju og Guðlaugs.Smile


Og að lokum saga af Aþenu hennar Sædísar systur. Aþena vekur mig á morgnana, með því að sleikja mig í framan........þegar það virkar illa, þá fer hún að pota í mig.....með misjöfnum árangri. Í morgun var henni svo nóg boðið AÐ HÚN FÓR FRAM, NÁÐI Í SKÓNA MÍNA OG SETTI ÞÁ Í RÚMIÐ HJÁ MÉR!Cool Þá drattaðist ég fram úr og hún VARÐ SVO glöð.

ps. ÉG SETTI INN NÝJAR MYNDIR SEM ÉG FÉKK SENDAR FRÁ HVOLPAEIGENDUNUM. Takk fyrir að senda mér myndir. Endilega gerið meira af því. Knús.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Frábær árangur.

27. júní 2009 klukkan 12:45
Dagurinn var fínn. Nótt fékk rauðan borða/Excellent og fínan dóm. Valshamars-Vaskur fékk bláan borða/Very good, og Valshamars - Viska vann ungliðaflokkinn. Fékk meistaraefni. Fleiri rauða borða, og flaug upp í opna flokkinn og endaði sem þriðja besta tíkin. Viska nánast jafnar út árangur mömmu sinnar sem var á svipuðum aldri þegar hún rúllaði öllu upp. Mjög gaman. Agla, Kalli og Smári til hamingju með Valshamars liðið ykkar. Ég er voða stolt "amma".

Salvör Þúfa er svo sigurvegari dagsins. Elsku María og Erna. Innilega til hamingju með ÞúfunaLaughing 

Þorsteinn og Elísabet. Takk fyrir komuna. Ég sá ykkur nú ekki fyrr en af gólfinu þarna lengst upp í stúku. Það hefði verið gaman að hitta ykkur.Laughing

Svo bara frábærar hamingjuóskir til ykkar allra sem voru að sýna í dag. WELL DONE!.

Berglind Gestsdottir
4 athugasemdir

Stóri dagurinn.n :)

27. júní 2009 klukkan 07:39

..........eða eiginlega frekar kvíðvænlegi dagurinnLaughing. Skil ekki af hverju ég er að kvelja mig svona, ár eftir ár.Ég sofnaði um 2230 í gær og er þar af leiðandi vöknuð kl. 06 í morgun. Vaknaði upp með andfælum því ég hafði gleymt að stilla vekjaraklukkuna. Alveg endemis dæmigert fyrir mig.
Það sem er jákvætt, er að Nótt er í fínu formi. Það skemmtilegasta. Ég hitti góða vini. Kristín sem á Vetur ætlar að koma frá Keflavík, Elísabet og Þorsteinn ætla að kíkja á okkur, og það verður fullt af skemmtilegu fólki.
Það sem gerist í versta falli, er! að ég dett á hausinn. Það er stóri óttinn. Það gerðist næstum á einni sýningunni, og ég er svo lánsöm að það er til á video!!!!!!!, horfi voooooooða ALDREI á ÞAÐ sko.
Svo gæti Nótt á það til láta eins og idiot. Fá banana í eyrun og horfa á mig eins og hún þekki mig bara EKKERT.
Númer eitt, tvö og þrjú! Hafa gaman að þessu. Hlæja að vitleysunum og gera grín.
Gangi öllum rosalega vel í dagKiss.
Ps. Verð að segja ykkur frá því að ég hitti hana Bryndísi sem er með Sóltúns ræktunina í gær. Þvílíkir fagnaðarfundir. Við þekkjumst ekkert, en samt höfum við kynnst svo VEL í gegnum gotið hennar Millu systir Nætur. Við föðmuðumst eins og æskuvinkonur. DÁSAMLEGT.

Ætli ég skutli ekki inn á síðuna hrakfallasögunni okkar af sýningunni á morgun. Eftir sýninguna ætla ég með henni Kristínu sem á hann Vetur að synda, eða hreyfa hundana aðeins. Svo brenni ég í Borgarfjörðinn á ættarmót. Voða þætti mér gaman að keyra við hjá Myrru og Hjalta sem eiga Rökkva, og Sonju og Guðlaugi sem eiga Patta. Þetta fólk býr í nágrenni Borgarness.

Njótið dagsins eins og hann sé ykkar síðasti! Knús

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Heimsótti Þór og Oliver

25. júní 2009 klukkan 17:41
Heimsótti Erlu Heiðrúnu sem á hann Þór,og svo kíkti ég á þá Oliver og Smára. Ég sit hérna í þungum þönkum og kemst ekki að neinni niðurstöðu.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Lækjarbotnar.........að sækja vatnið yfir lækinn!

24. júní 2009 klukkan 23:04

Ég fór í Lækjarbotna í dag. Neiiiiiiiii, þetta fannst mér of langt ferðalag Laughing, þegar ég er með þessa dýrindis náttúru hér í túnfætinum.  Hafravatnið og dásamlegt umhverfið þar.
Ég fór líka þangað á leiðinni til baka. Skvísurnar fengu sér sundsprett og það mátti sjá Aþenu hreinlega fleyta kerlingar á vatninu,þvílíkur hraði var á henni.Smile. Nótt reyndi ekki einu sinni að keppa við hana um boltann.

Ég er búin að fá fyrstu áminningu um að sofa ekki yfir mig á laugardaginn. Get sagt ykkur að mér veitir ekki af.Cool.
Setti inn nokkrar myndir í albúm. Lækjarbotnar.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Átti fund með "Guðinum".

23. júní 2009 klukkan 18:07
Já. Ég fór á fund með Guðinum.Cool Lét Guðstein þurfa reka á eftir mér í heimsókn, að sjá hvolpana.  FALLLLLLLLEGIR!!!!!!!!!!. Ég var orðlaus um tíma......gerist ekki oft. En ég bætti það upp yfir góðum kaffibolla og súkkulaði með Guðsteini sem er höfðingi heim að sækja. Takk fyrir mig. Við áttum góðan "fund". Þar sem ég þurfti að fá mörg góð ráð og álit gúrúsins. Það er alltaf gott að setjast á rökstóla fyrir stórar ákvarðanir.


Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Frábær tilsögn

22. júní 2009 klukkan 20:46

Kíkti á síðustu sýningarþjálfunina. Þar vantaði bara ALLA vini mína nema Nátttrölla skvísurnar voru mættar, sem  betur fer. Það vantaði, Guðstein,Dóra,Smára,Guðbjörgu, Erlu og Gumma ofl.
Mér leið svona eins og Palla sem var einn í heiminum. En ég fékk FRÁBÆRA tilsögn. Auður þú ert bara snillingur.  Svo ákveðin en samt styðjandi. Vilt að við gerum þetta ALMENNILEGALaughing auðvitað.
Mér fannst skrýtið að sjá ekki Smára og Oliver á sýningarþjálfuninni.....sendi sms og spurði hvort þeir feðgar væru ekki OK. Og viti menn........Smári hafði lent í árekstri. Það á ekki af þessum manni að ganga.Surprised
Fékk hnykk á hálsinn og er allur lemstraður. Ég ætla að reyna að sýna Oliver fyrir hann. Held hann sé enginn bógur í að gera það sjálfur.  Smára dreymir um mynd af feðgunum Henry og Oliver saman.Wink Vona að Kalli og Agla séu til í það.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Rauði dregillinn

22. júní 2009 klukkan 14:39

Þið vitið er það ekki, að kvikmyndastjörnunar/skvísurnar, svelta sig í fleiri vikur fyrir golden globe, óskarsverðlaunahátíðina og þess háttar uppákomur. Ég veit að við munum nú ekki komast NÁLÆGT rauða dreglinum um helgina. Þá fyrst yrði maður vandræðalegur, he,he. Nótt er líka alveg að sjá til þess sjálf.Cool
Af einhverjum völdum var birgða matarkassinn hennar Aþenu á GÓLFINU í geymslunni í morgun.......ég var ekki að skilja af hverju Nótt kom ekki fagnandi að rúminu mínu þegar ég rumskaði.....jú viti menn, það var af því að eyrun á henni voru full af matarkúlum og þegar ég kom að henni sást undir afturþófana á henni ofan í dallinum. Hún var í himnaríki.Yell Svo er hún bara búin að vera afvelta af seddu síðan. Ég var að koma heim úr vinnunni og nú skal hún fá að brenna þessu af sér. Vá hvað ég er svekkt yfir kæruleysinu.  Bara svona að segja ykkur það........að hún fær EKKI kvöldmat.Smile Það er sýningarþjálfun í kvöld. NB!


PS! SKELLTI INN NOKKRUM MYNDUM FRÁ ÚTIVISTINNI Í DAG. 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hin glaða Nótt :)

21. júní 2009 klukkan 20:55
Þá er enn ein helgin að baki. Mér finnst alltaf vera helgiLaughing. Við vorum í Kjósinni alla helgina, og hundarnir því frjálsir sem fuglinn. Við komum heim seinni partinn og þá skaust ég með þær "frænkur" upp að vatni að synda. Þvílík gleði.  Á morgun er pælingin að mæta á síðustu sýningarþjálfunina. Eiginlega mest til að ná í nýja sýningartauminn minn.Cool Ég verð að mæta 15 mínútum fyrr til að ná gleðinni úr Nóttinni.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Númer 234

19. júní 2009 klukkan 13:51
Já sýningarnúmerið var að detta inn um lúguna rétt í þessu. Hjá þeim allra sýningabrjáluðustu verður vikan sem framundan er streitubundin og vex spennan eftir því sem að nær dregur helginni. Svo ekki talað sé um þá hunda sem þurfa í klippingu og greiðslur og hvað allt þetta kallast. Það verður alveg brjálað að gera.Laughing

Við skvísurnar hérna erum bara slakar sko, enda ekkert markmiðið að vinna einhverjar rósir. Bara vera með. Hitta hundavini og horfa á aðra hunda.
Stebbi mágur minn er t.d. að spreyta sig í fyrsta sinn í hringnum. Hann á Ungverska Vizslu. Það eru alveg heilar þrjár viszlur að keppa, þannig að Míu á eftir að ganga VEL. Ég ætla sko að mæta snemma og horfa á Stebba. Hann á eftir að rúlla þessu upp. Svo verður Smári auðvitað með Oliver í ungliða flokkinum.
Geri ráð fyrir að Kalli Bridde verði með Valshamars - Visku.

Nú liggja þær "frænkurnar" Aþena og Nótt eins og skotnar hér við fæturnar á mér eftir útivist.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Aþena stríðnispúki.

18. júní 2009 klukkan 23:13
Það er gaman að horfa á "frænkurnar" Aþenu og Nótt, hendast á eftir bolta lengst út í vatn og keppnin þvílík á milli þeirra. Aþena tók upp á því að velta sér upp úr sandi. Vá hvað henni fannst það DÁSAMLEGT!.......mér fannst það nú ekki Cool, hún var nú bara send aftur út í vatn til að skola af sér skítinn áður en við fórum heim.

Eftir kvöldmat fórum við út á stóra tún með bolta. Þar naut Aþena sér við að stríða Nótt, með því að taka af henni boltann. Stinga af með hann, leggjast niður og bíða eftir að Nótt kæmi. Þá greip hún boltann aftur í kjaftinn og rauk af stað. Það er svo gaman að fylgjast með þeim.
Á morgunn ætlum við með allt stóðið, menn og málleysingja í sveitina.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Gleðilega þjóðhátíð.

17. júní 2009 klukkan 16:03

Það var sannarlega gaman upp við Hafravatn í morgunn. Við hittum Smára og Oliver,  Ljóssins Björt, sem er 5 ára þýskur pointer, veiðimeistari og uber skvísa. Það var gaman að sjá hana  "standa". Með Ljóssins Björt var 3 mánaða gulur labrador sem heitir Bjartur. Ég sagði við eigandann, ji hann er alveg eins og MarleySmile.......aumingja konan sagði þá......VEISTU! hann ER alveg eins og Marley. Bjartur var dásamlegur. Lét sig vaða án þess að hika í vatnið, og var ófeiminn að reyna að stela boltunum af stóru dýrunum.
Nótt fór margar langar ferðir út í vatnið að sækja, og Oliver, Björt og Aþena tóku fullan þátt.Smile
Já ekki má gleyma því að hún renndi við hjá okkur upp við vatn hún María sem á Nátttrölla ræktunina. Hún var með sína 4 labradora í bílnum. Hún var búin að hreyfa og var á heim leið.
Þvílíkt skemmtilegt að hitta svona marga. Smári er alveg himinlifandi yfir öllum jákvæðu straumunum sem hann fær frá hundaséníunum. Auður, Erna og María. Takk fyrir að vera svona dásamlegar við hann.Kiss Hlýjar móttökur skipta öllu máli þegar maður er byrjandi. Látið mig vita það.Wink

Tíkurnar fengu svo að hvíla sig, meðan við fórum á mannamót við Hlégarð og horfðum á skemmtiatriðin og svoleiðis.

Vonandi njótið þið dagsins, kæru vinir.Kiss

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Hæ yndislegu

16. júní 2009 klukkan 15:24

Elsku Auður, Hildur, Guðbjörg og Kristín. Takk fyrir afmæliskveðjurnar.Mikið þykir mér vænt um þessar kveðjur frá ykkur. Það er dásamlegt að eiga hunda.Kiss
Ég ætla að fara með þær "frænkur" Aþenu (Sædís systir á hana) og Nótt upp að Hafravatni á eftir.

Já heyrðu Auður. Ég hef ekkert komist á sýningaþjálfanirnar, en hann Smári sem á Oliver er svo áhugasamur og elskar Oliver út af lífinu. Þú ættir að heyra Smára tala um hann.Laughing Þessi hundur hefur nú aldeilis bjargað honum Smára, sem lenti í hræðilegu slysi í desember og hefur ekkert getað unnið. Hann hefur Oliver sem á endalausa hlýju, ást, og góða nærveru og er líka hvatning fyrir Smára að fara út og hreyfa sig.
Oliver er nákvæmlega eins og pabbi sinn Henry.........ég kalla oft HENRY, þegar ég er með þeim einhversstaðar, he,he.
Enn og aftur takk fyrir kveðjurnar. Knús handa ykkur.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Nótt afmælisbarn 3 ára í dag.

16. júní 2009 klukkan 00:12
Elsku Nóttin er þriggja ára í dag. Kiss  Hún er falleg, traust og góð. Elska hana endalaust mikið.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Hundahvíslarinn Vaka á afmæli í dag.

15. júní 2009 klukkan 09:51
Þá er upprunninn dýrðardagurinn 15. júní. Vaka á afmæli í dag. Hún er 7 ára. Hér verður veisla seinni partinn.
Nótt heldur upp á sitt afmæli sem er á morgun 16.júní í leiðinni. Nótt verður 3 ára. Hún fær líka gesti. Ungversku viszluna MÍU, og labradorinn AÞENU. Það verður væntanlega hamagangur í öskjunni og Tumi gargandi á eftir þeim stöllum að reyna að siða þær til....það er að segja viszluna og labradorana.
Ég set Unni á myndavélina. Reyni með einhverju móti að ná myndum af afmælisbörnunum saman Laughing
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Kringlan og útitónleikar

14. júní 2009 klukkan 00:16
Eyddi næstum 4 klukkutímum í Kringlunni í dag. Ákvað að dröslast einu sinni með Vöku, þar sem mikið var af uppákomum. Grease......fengum áritað plakat........Jóhanna Guðrún..........biðum í 2 klukkutíma í röð eftir dívunni.......fengum áritaðan disk og plakat.  Keyptum afmæliskjól á Vöku og sumarlega skó.Hún verður 7 ára á mánudaginn.  Ég var svo búin á því eftir þessa ferð. Fór heim og fékk útrás við húsverkin. Nótt lét lítið fyrir sér fara......hundar eru næmirWink.  Fórum svo í kvöld að sjá We made god spila á útitónleikum hér í Mos.
Var að spá í að taka Nótt með mér, en óttaðist hávaðann..
Dagurinn hjá Nóttinni var því viðburðarsnauðari en hjá mér. Cool
Á morgun förum við upp að vatni með bolta. Alveg kominn tími á það.

Fékk þær fréttir á föstudaginn, að það þyrfti að endurtaka myndirnar hjá draumaprinsinum. Hann fer strax í aðra myndatöku á mánudaginn og vonandi ganga hlutirnir fljótt fyrir sig eftir það. Ég er róleg. Við höfum tímann með okkur í þetta sinn.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Át eyrnalokkinn minn.

12. júní 2009 klukkan 20:17
Fagnaðarfundirnir þegar ég kem heim úr vinnunni, eru alltaf jafn skemmtilegir. Fyrst heilsar maður mannfólkinu og svo dýrunum.  Í fyrrakvöld kom ég heim og Nótt sleikti svo á mér eyrun að annar eyrnalokkurinn minn bara hvarf! Ég hélt auðvitað að hún hefði gleypt hann. En sem betur fer fór ekki svo.

Ég fékk þær fréttir að Oliver hafi orðið fyrir jarðgeitunga árás. Nótt lenti í því í fyrrasumar og hefur  verið skíkthrædd við gulu og svörtu kvikindin síðan.Frown

Vaka, hundahvíslarinn mikli á afmæli á mánudaginn, og Nótt á afmæli á þriðjudaginn.Smile
Ætla að segja ykkur hvað Vöku langar í afmælisgjöf. RAFMAGNS HUND!!!!!!!....eins og hún kallar það.
Það er nákvæmlega það!!!!. Hund sem gengur fyrir batteríum, þegar til eru tveir lifandi á heimilinu.Surprised
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Dummie sækivinna á landi

08. júní 2009 klukkan 10:16
Góðan og blessaðan Smile Mikið er þetta nú fallegur dagur. Ég er að vinna frá 12 - 20, þannig að nú förum við út á tún í sækivinnu með dummieð og svo í göngutúr í kvöld.
Have a nice one Laughing
PS: Minni á maðurinn og hundarnir hans á RÚV kl. 2010 í kvöld. Seinni þátturinn.
Kom við í RL í dag og keypti bolta. Fór svo með Nótt út á tún eftir þáttinn áðan og lét hana spretta úr spori.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Leiðinda taumganga

07. júní 2009 klukkan 22:20
Það var eitthvað svo blautt og drungalegt í dag, að ég ákvað að fara í "leiðinda" taumgöngu.......Nótt finnst taumganga skelfing leiðinleg. En hún er heldur aldrei þreyttari en einmitt eftir þær. Þá reynir á þolinmæðina hjá henni, og það fara nokkrar kaloríur í það.Laughing Annars ekkert markvert. Heyrði aðeins í Smára sem á Oliver, sem segir Oliver ástæðuna fyrir því að hann geti staðið í fæturnar, eftir slysið sem hann lenti í. Oliver er hvatning til að fara út og hreyfa sig. Oliver er líka yndislegur karakter og vekur alls staðar athygli, og það er aldrei leiðinlegt. Reyndar er hann að ögra eiganda sínum þessa dagana. Gelgjan farin að gera vart við sig svo um munar.  Þá er það bara harkan sex í uppeldinu.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Skemmtilegt SMS

06. júní 2009 klukkan 20:56
Var á morgunvakt í gær, og fékk skemmtilegt sms, sem hljóðar svona.....

VAR AÐ SPÁ Í HVORT ÞÚ VILDIR KOMA AÐ SYNDA!
ER AÐ LÁTA HANN STANDA OG LÁTA ÞUKLA Á HONUM! GENGUR ÁGÆTLEGA............LaughingÉg trylltist úr hlátri þegar ég las þetta. Það hefði verið MJÖG auðvelt að misskilja þessi skilaboð. he,he.

Skilaboðin voru sem sagt mjög saklaus og komu frá honum Smára sem á hann Oliver, og hefur gaman af að hitta okkur upp við Hafravatn. Hann er líka á fullu að koma Oliver í form fyrir sýninguna, og er að kenna honum að standa rétt, og venjan hann við að láta þukla sig. Laughing.

í dag fór ég upp að vatni með Nótt, Tuma og Unni Freyju, unglingi. Hún er ljósmynda snillingur og fer ekkert án myndavélar. Hún tók myndir af Nótt á sundi, og flottar myndir af Úlfi og Hít sem eru Alaskan Malamute. Ef ykkur finnst labrador stór hundur, þá skuluð þið bera Nótt við Malamutinn á myndinni hér fyrir ofan!
Aumingja Úlfur og Hít eru ALLTAF höfð í taumi, vegna stroks. Þeir bara fara. Ég held að þessir hundar séu mjög nálægt upprunalega úlfinum....einhvern veginn vorkenndi ég þeim vegna frelsisskerðingarinnar.
Sem dæmi um stærð og afl Malamutsins, þá stökk Úlfur upp á mig og mér fannst eins og bíll hefði keyrt á mig.
Kíkið á nýju myndirnar, frá enn einni vel heppnaðir gönguferð.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

NORDUCH ISCH DKCH SU(U)CH BEJSG98 Uncletom of Brownbank Cottage IS06575/02

04. júní 2009 klukkan 14:20


Besti öldungur sýningar 10 ára+: 1. sæti
NORDCH ISCH DKCH SU(U)CH BEJSG98 Uncletom of Brownbank Cottage IS06575/02
Labrador retriever
Eigandi: Guðsteinn Eyjólfsson
Ræktandi: Mark Moorhem
Alþjóðleg sýning HRFI 2007

Síðastliðinn mánudag kvaddi Úlli pabbi Nætur. Hann hefði orðið 13 ára á þessu ári. Úlli átti góða ævi með Guðsteini vini mínum og var einstakur karakter.  Úlli var vinsæll rakki til undaneldis og gaf af sér 42 yndislega hvolpa.
Hann var sigursæll á sýningum, eins og má sjá á öllum hans titlum. Síðast sýndi hans reisn sína og þokka á sýningu 2007 þar sem hann var valinn besti öldungur sýningar. Það má segja að manni fannst hann ekki til ellilegur, Reistur og allur hinn glæsilegasti.
Það er mér mikill heiður að ætla að línurækta mitt næsta got eins og sagt er í NORDUCH,ISCH,DKCH SU(U)CH BEJSG98 UNCLETOM OF BROWNBANK COTTAGE/ÚLLA.
Minning um góðan vin lifir.
Kæri Guðsteinn. Hugur minn er hjá þér.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Nótt á toppnum :)

03. júní 2009 klukkan 16:43
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Í DAG VERÐUM VIÐ ÚTI.

03. júní 2009 klukkan 09:06

Góðan og blessaðan. Já í dag verðum við úti. Ég ætla upp að vatni og dunda mér þar með hundana. Þvílíkur dásemdar staður. Friður, ró og fallegt umhverfi.
Vaka er í skólanum til kl. 12. eftir það förum við með nesti upp í Þormóðsdal í ævintýraleit.
Ég fer svo á næturvakt næstu nótt, þannig að ég óska hér með eftir sól á morgun svo ég geti hreinlega sofið úti á bekk eftir vaktinaCool
Veðrið er alveg ljómandi. Fínt upp við vatnið, nema svolítið mikið af flugum. Við fórum með nesti.  Klifruðum upp á kletta og lékum okkur. Nótt sótti á landi og láði.
Ég er að hugsa um að grípa með mér svartan ruslapoka næst þegar ég fer uppeftir, og týna upp ruslið sem fólk er að skilja eftir sig. Skil ekki hvernig þetta er hægt. Bjórdollur, kókdósir og alls konar plast og drasl. Óþolandi.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Biðin langa......................

02. júní 2009 klukkan 23:47

Þá er að verða kominn mánuður frá því myndir draumaprinsins voru sendar til Noregs.......Nú trúi ég að eitthvað fari að skýrast í þessum málum. Það styttist í lóðarí hjá súkkulaðibrúnu fegurðardrottningunni Nótt.
Undecided Hér berjast allir við að halda væntingunum niðri vegna þessara mynda. En maður verður bara að vera bjartsýnn, það kemur manni í gegnum hvern einasta dag. Ekki satt. Þetta kemur allt í ljós, hvað sem verður.....
Við hvíldum nú bara í dag.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Örþreyttir voffar

01. júní 2009 klukkan 22:15
Frábær helgi að baki. Vorum í bústaðnum um helgina. Arnór passaði húsið.Laughing Alltaf einhver á vaktinni.
Hundarnir byrja alltaf á sama staðnum á leiðinni uppeftir að láta vita að þeir þekki sig. Tilhlökkunin eykst því nær sem við nálgumst sveitina okkar. Þeir vita að frelsið er framundan. Bæði Nótt og Tumi verða svo dásamlega líkamlega þreytt og sæl, þegar við erum í bústaðnum. Við erum mikið úti og förum í göngutúra, niður að ánni, þar sem Nótt syndir og nýtur sín. Eins og oft áður voru kodak momentin endalaus. Myndavélin var með í för, en batteríslausFrown, og símanum mínum með myndavélinni í, gleymdi ég heima. Nótt var svo glæsileg, eins og öll dýr eru þegar þau eru úti í náttúrunni, í sínu eðlilega umhverfi.
Sáuð þið þáttinn áðan um manninn og hundana hans. Þetta var sem sagt fyrri partur. Seinni parturinn verður sýndur fljótlega. Á eftir að komast að því hvenær. Þættirnir fjalla um uppruna hundsins og leið hans frá því að vera villtur í náttúrunni og til þess að verða besti vinur mannsins. Flottir þættir.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd