VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

SPÁIR 11 HVOLPUM.

31. júlí 2009 klukkan 15:28
Hún Bryndís vinkona mín í Sóltúns ræktun. Spáir því að Nótt muni gjóta 11 hvolpum. Hún bar mér þá speki að tíkurnar eignuðust fleiri hvolpa ef þeim liði vel. Ég ætla nú ekki að fara að láta Nóttinni minni líða ILLA......en ég vona nú bara innilega að ef það eru væntanlegir hvolpar að þeir verði ekki 11. 8 stykki í fyrra var alveg HANDFULL. 5 er drauma talan. Elsku Bryndís. Takk fyrir að skrifa í gestabókina. Vona að þið hafið það rosa fínt fyrir norðan. Knús frá Nótt til Millu systir. Laughing
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Rólegheit

30. júlí 2009 klukkan 15:21

Hér er allt í mestu rólegheitum.

Hafið það nú stórkostlegt um helgina og njótið samverunnar alveg í botn.

Bætti myndum í mynda albúmið.Smile

Setti inn meðgöngu almanak fyrir september got 2009......ef hlutirnir ganga upp hjá okkur

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Nóttin hálf skrýtin

28. júlí 2009 klukkan 09:14

Á heimilinu hefur brotist út skæður sjúkdómur sem kallast ÝMINDUNARVEIKI. Einkennin eru slæm. Fólk sér ofsjónir sem og að sjá allt í hillingum allt að tveimur mánuðum fram í tímann.Cool
Annars er Nóttin rosa róleg eitthvað og ólík sér. Kelnari en venjulega og sísvöng og sefur mikið. Víðir segir þetta spennufall eftir veruna með Henry, hasarinn og lætin, og svengdin er skrifuð á mikla hreyfingu og útivist. ...Ég veit ekki. Þetta er allt voða dularfullt............enda finnst mér nú fullsnemmt að daman sé farin að sýna einhver einkenni um óléttu. Ég reyndar þyki mjög neikvæð og leiðinleg efasemdarmanneskjaInnocent,

Ég hef alltaf þá sýn á lífið að það borgi sig að gera sér minni vonir en meiri svona almennt. Raunsæið er ríkjandi, því þá verða vonbrigðin ekki eins mikil, ef hlutirnir ganga ekki eins og maður vill að þeir fari. Mínir loftkastalar eru t.d. bara einnar hæðarCool
Hafið það gott í dag.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Aldrei fegurri en nú

26. júlí 2009 klukkan 20:39
Þá eru við komin heim í stutt stopp. Við heimsóttum Bláskógaræktun í gær,um leið og við skiluðum Henry...með eftirsjá. Mikið er hann dásamlegur hundur. Hann var kominn í þrusu form eftir dvölina hjá okkur í sveitinni. Kalli var ánægður með kallinn. Það var æðislega gaman að heimsækja loksins hans Kalla á herragarðinn fína í Reykholti. Hún Valshamars - Viska braggast vel hjá Bláskóga teyminu og það væsir ekki um hana. Agla takk fyrir sultuna góðu.  Hún var boðin gestum þegar við komum aftur í Kjósina Laughing Víðir biður um uppskriftina Laughing. Valshamars - Vetur kom ásamt sínu fólki í heimsókn í sveitina.Það var alveg frábært. Kristín og Guðjón! Takk fyrir komuna, og velkomin sem oftast.Eins og hinir rakkarnir þá er Vetur vaxin móður sinni langt yfir höfuð. Það var greinilegt að Nótt þekkti son sinn og hann móður sína.
Nótt er nú þvílíkt tálguð, flott,hraust og heilbrigð. Dásamlega falleg.Endalaus útiveran og frelsið hefur góð áhrif á menn og dýr.







Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Síđasta heimsóknin til dýra.

24. júlí 2009 klukkan 10:39
Hæ enn og aftur komin í snögga bæjarferð. Þá heimsækjum við dýra í síðasta sinn.............og þá tekur við hinn langi mánuður. Skrýtið hvað þarf að bíða lengi eftir því hvort það séu hvolpar á leiðinni, þegar meðgangan er bara rúmir TVEIR. En svona er náttúran í öllu sínu veldi.
Unnur skrifaði fyrir mig afmæliskveðjur á öll "ömmubörnin" í tilefni 1 árs afmælisins. Mikið er þetta búið að vera dásamlegt ár. Það eru forréttindi að eiga fallegan hund, sem tekur á taugarnar en gefur manni þeim mun meiri gleði. Nú er einn erfiðasti tíminn framundan. Hundarnir orðnir fullvaxnir í hæð. En vantar svona 2 ár í fullan andlegan þroska. Þannig að Nú eruð þið með risastóra hvolpa. Hafið það hugfastSmile. Þetta er tíminn sem flestir gefast upp á hundunum sínum. Því krafan er oftast sú, að þegar maður er orðinn STÓR, þá á maður að vera RÓLEGUR....en þannig er það ekki í hundaheiminum. Maður er alveg STÓR og ÓÞEKKUR í 3 ár.
Enn og aftur til hamingju með fyrsta árið og öll dásamlegu árin sem þið eigið framundan saman.
Vil minna ykkur á að endurnýja líf,sjúkdóma og slysatrygginguna hjá voffunum. Skiptir ÖLLU MÁLI að hafa hundana vel tryggða.
Knús handa ykkur öllum.  Eitt risa knús á Trausta og fallegasta Storminn. :)
Æltum aftur í sveitina.Kiss
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Eins árs í dag!

23. júlí 2009 klukkan 15:09
Til hamingju með daginn fallegustu hvolpar í öllum heiminum! Kiss

Kveðja úr sveitinni
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Vel heppnuđ heimsókn hjá dýra.

22. júlí 2009 klukkan 13:02

Fórum fýluferð til dýra í gær, en heimsóknin í dag lukkaðist vel. Nú erum við aftur á leið í sveitina. Ófæddu hvolparnir sem engin veit hvort verða eða ef þá hvað margir eru að verða fráteknir. Þannig að þeir fiska sem róaLaughing Verið góð við hvert annað og njótið veðurblíðunnar.

Hringið í mig ef einhverjar fyrirspurnir. 8617977

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Er ađ detta í tímann

20. júlí 2009 klukkan 13:06
Fórum og heimsóttum Katrínu dýra í morgun. Nótt er í fjaðurþyngd eða 34 kílóLaughing. Ég er ekkert smá montin. Hún er í svaka flottu formi.  Það var tekið strok hjá henni og hún er að detta í tímann eins og sagt er.  Við hittum Katrínu aftur á morgun. EN ykkur að segja þá er ég farin í sveitina! Keyri svo í bæinn á morgun og svo aftur í sveitina.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

berglind_1@hotmail.com

19. júlí 2009 klukkan 19:04

Halló:)

Við erum bara í sveitinni þessa dagana. Víðir skilaði mér heim áðan og fór afturUndecided  Ég á stefnumót við dýra á morgunn. Nótt er nú á 11.degi lóðarís. Mig langar að biðja ykkur sem eruð að spá í að fá ykkur hvolp, að senda mér póst, þess efnis. Ég vil gjarnan heyra um heimilisaðstæður. Fjölskyldustærð. Atvinnu. Áhugamál osfrv.
Síminn hjá mér er 8617977.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Malbikunarvélar hagga ekki stóískri ró

16. júlí 2009 klukkan 23:56
Í allan dag þá eru risa stórar malbikunarvélar búnar að vera í gangi, bókstaflega upp við húsgaflinn hjá okkur.
Drunurnar og lætin voru slík að jörðin nötraði og skalf. Nótt og Henry kipptu sér nú ekki upp við það frekar en annað. Undu sér vel í garðinum undir vökulum augum Arnórs yfir hundaeftirlitsmanns. Hann fór líka með hundana í göngutúr fyrir mig í dag, þar sem ég var að vinna frá kl. 0730 - 2330......En nú er ég líka komin í frí.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Styttist í stór afmćliđ :)

16. júlí 2009 klukkan 00:39

Já nú styttist aldeilis í stóra daginn. Ég hefði viljað hafa hitting, en erfitt þegar Nótt er að lóða, og synir hennar að uppgötva sjálfa sig Smile Stefnum samt að því. Þurfum að finna dag. Hvernig væri 23.júlí Laughing Bara eftir kvöldmat þess vegna í smá stund.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

RODALON

14. júlí 2009 klukkan 08:48
Jæja góðan og glaðan daginn.

Hér vakna allir brosandi og hundarnir taka á móti manni eins og maður hafi verið í burtu í  laaangan tíma. Dásamlegt. Rútína dagsins mun hafa sinn vanagang.
Mér sýnast turtildúfurnar aðeins áhugasamari um hvort annað, þannig að þetta er allt að koma.

Mig langaði að kynna fyrir ykkur efnið RODALON/hreinsiefni. Drepur allar bakteríur og eyðir allri lykt. Tilvalið fyrir dýrafólk. Það er mælt með þessu til að setja í þvottavélar til að hreinsa og drepa bakteríur og sveppi/ sem geta myndast þar. Fyrir íþróttaföt sem eru með fastri svitalykt..eða hvaða föt sem er. Skó sem eru illa nothæfir af táfýlu Smile. Til að hreinsa eldhúsáhöld, baðherbergi, gólfin og síðast en ekki síst dýrabælið sem kannski vill setjast í hundalykt. Til að hreinsa upp bletti þar sem dýrið hefur t.d. pissað á gólf.
Eyðir kattahlandslykt og alles. Ég sem sagt sótthreinsaði allt hjá mér í gær. Algjör snilld.
RODALON fæst í apótekum. www.rodalon.dk
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Margt ađ gera.

13. júlí 2009 klukkan 21:59
Ég fór með hundana í góða göngu í morgun áður en ég fór í vinnuna. Kom svo heim og dembdi mér í garðinn. Sló blettinn og reitti arfa. Hundarnir röltu í kringum mig. Nú erum við komin inn í smá pásu. Skelltum köku í ofninn og ætlum svo í góðan miðnætur göngutúr á eftir.
Það styttist nú í að Nótt verði tilbúin í slaginn, og þá æsast leikar.
Elsku Bryndís. Takk fyrir að leita með mér Laughing. Hér á landi eru allir brúnu labradorarnir náskyldir og erfitt að finna hunda sem passa saman.  Það þarf einhver að fara að drífa í því að flytja inn brúnan rakka.Wink
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Costa del Kjós

12. júlí 2009 klukkan 23:05
Æðisleg helgi liðin. Kíkið á myndirnar. Laughing Nótt er nú á þriðja degi á lóðaríi. Eftir miklar vangaveltur fram og til baka. Ákvað ég að nota Henry aftur. Nótt og Henry eru alveg óskyld og bæði hraust og fallegir hundar.
Henry er blíðasti hundur sem ég hef nokkurn tímann hitt. Hann er drauma heimilishundurinn. Við elskum að hafa HenryLaughing. Henry gekk vel á júní sýningunni. Fékk rauðan/excellent. Hann þótti aðeins of þungur í þetta sinn......það vandamál könnumst við Nótt við. En ég ætla að koma kallinum í gott form fyrir ágúst sýninguna fyrir Bláskóga teamið. Henry er nú að kynnast því að fá grænmeti með matnum sínum, og reglulega hreyfingu á hverjum degi..........Ég vonast alltaf eftir því að Bláskóga teamið hringi í mig og segi að ég megi bara eiga hann.Cool he,he.
Það fer því að draga til tíðinda. Og vonandi eigum við von á hvolpum í kringum miðjan september.


Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

25 C í forsćlu

05. júlí 2009 klukkan 16:47
Við vorum að kafna. Það var bara þannig. Blanka logn og hitinn þvílíkur. Víðir tók hundana með sér niður að sjó, þar sem bróðir hans er með bústað. Þar gátu þeir kælt sig í sjónum..
Ég setti á forsíðuna að gamni mynd frá því í júlí í fyrra. Þessir litlu hnoðrar eru að verða árs gamlir. Hver skyldi trúa því að rakkarnir eru t.d. orðnir hærri og stærri en mamma þeirra. Og tíkurnar þvílíkar fegurðadrottningar.Laughing. Dásamlegt. Nú beinist áhugi minn að afturendanum á Nóttinni, svo ég missi ekki af neinu.Cool
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Styttist í lóđarí

02. júlí 2009 klukkan 00:46
Þá er farið að styttast í lóðarí hjá drottningunni. Nú fer þetta að verða spennandi.Laughing
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd