VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

NÝ MEÐGÖNGUMYND

31. ágúst 2009 klukkan 08:49


Setti inn nýja meðgöngumynd í albúmið (meðgöngumyndir).
Nótt gengin 6 vikur.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

ALLT TILBÚIÐ

30. ágúst 2009 klukkan 20:30

Þá er allt tilbúið. Gotkassinn upp settur og Nótt virðist fíla hann ágætlega. Við kúrðum þar aðeins saman í dag. Ég færði matardallana hennar á sama stað og gotkassann. Því fyrst eftir að hún er búin að gjóta, finnst henni vont að fara frá hvolpunum. Við tökum kannski myndir af gotkassanum og viðbúnaðarkassanum.

 

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

FLEIRI UNDIRSÍÐUR Í VINNSLU

30. ágúst 2009 klukkan 10:45

Góðan daginn. Ég er nú með fleiri undirsíður í vinnslu, sem tengjast heimkomu hvolpsins.
Við setjum upp gotkassann í dag. Erum búin að þvo allt sem við munum nota við gotið, með þvottaefni fyrir viðkvæma. Það er mjög mikilvægt að nota þannig þvottaefni og ekkert mýkingarefni.
Ég ætla að þrífa herbergið sem gotið verður í með Rodaloni. Já eins og þið heyrið þá er að nógu að huga, og best að halda sér við efnið.
Veðrið er dásamlegt. Við förum í stutta göngutúra í dag..........gerið eitthvað skemmtilegt.Laughing

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

GERUM KLÁRT

28. ágúst 2009 klukkan 23:51
Um helgina gerum við klárt fyrir gotið. Gotkassinn settur saman og allur viiðbúnaður gerður klár.
Nú les ég út í eitt um það sem getur farið úrskeiðis. Fæðingargalla og því um líkt. Hvernig bregðast skal við hinu og þessu osfrv. Að sjálfsögðu sér náttúran um sitt, og það er best. En maður verður líka að vera viðbúinn því versta.
Það verður ekkert slæmt að vera tveir hjúkrunarfræðingar í gotinu. Báðar ýmsu vanar, hvor á sinn hátt.
Nótt er orðin mjög þung á sér. Bumban er sigin og spenarnir að þrútna.
Set sem undirsíðu innihald viðbúnaðarkassans, og gotkassans.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

THEY DO SHED.

27. ágúst 2009 klukkan 13:54
Nótt er farin að missa hárin í kringum spenana.....og ég að ryksuga það upp. Já bara að minna ykkur á að Labradorinn fer úr hárum Laughing THEY DO SHED. En ég vil meina að við sem eigum hunda sem fara úr hárum eigum bara miklu hreinni heimili.......því við erum alltaf að RYKSUGA OG SKÚRA. Það eru alltaf bjartar hliðar á öllum málum.
Hafið það ljómandi í dag.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

ALLT SVO RÓLEGT OG LJÚFT.

26. ágúst 2009 klukkan 19:53
Hér snúast dagarnir um jafnvægi og vellíðan. Borða hollt, og hreyfa sig.............og okkur líður vel Laughing Nótt finnst gott að láta strjúka á sér kviðinn, og ég er ekki frá því að ég hafi fundið lítið spark. Er þetta ekki alveg dásamlegt.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

DÝRA HJÚKRUNARFRÆÐINGUR

24. ágúst 2009 klukkan 18:29

Við heppin. Það mun verða dýra hjúkrunarfræðingur viðstaddur/stödd gotið hjá Nótt. Sú er menntuð í Nýja Sjálandi.Laughing
Nótt blómstrar og blæs út. Spenarnir þrútna, og matarlystin engu lík. Henni líður mjög vel.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

AÐAL SPAÐINN!

23. ágúst 2009 klukkan 14:59
Henry vann opna flokkinn í dag og varð síðan fjórði besti rakki tegundarinnar. Henry er alltaf flottastur Laughing. Aðal spaðinn, eins og Kalli segir alltaf. Við vorum nú svo heppin að fá að hafa Henry og Visku í nótt, þannig að það var bara æðislega gott. Mikið knús og kelerí.
Viska fékk bláan í dag (annar dómari/öðruvísi smekkur...já svolítið spes þetta sýningardæmi.) og varð í öðru sæti í ungliðaflokknum. Hún var nú áberandi flott þarna skvísan og sýndi sig svakalega vel.

Við erum semsagt alsæl með helgina.´
Enn og aftur óskum við öllum innilega til hamingju með frábæran árangur. Laughing

Nú er það næst á dagskrá að smíða gotkassann. og halda áfram að dekra við drottninguna.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

NÝJAR MYNDIR Í ALBÚMI MERKT FJÖLSKYLDUMYNDIR

22. ágúst 2009 klukkan 16:18

Nils og Signý! Frábært að hitta ykkur á sýningunni og takk fyrir heimsóknina.Laughing

Elísabet Anna og Þorsteinn! Æðislegt að fá ykkur í heimsókn.Laughing

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

FRÁBÆR ÁRANGUR

22. ágúst 2009 klukkan 13:43
Þá er fyrri sýningin búin. Henry fékk excellent/rauðan, og flottan dóm. Varð í 4.sæti í opnum flokki hjá rökkunum. Valshamars - Viska endurtók leikinn frá því á júní sýníngunni og vann ungliðaflokkinn / 1.sæti/rauður(/excellent. Fékk meistaraefni, og beinan aðgang í keppnina um bestu tík tegundarinnar.
Þar lenti hún  sem þriðja besta tík tegundarinnar, sem er FRÁBÆR árangur hjá henni. Hún er geysilega efnileg hún Viska. Utan vallar i´veiði, sem og innan vallar á sýningum.
Ég er svo núna með Visku og Henry í "láni" í dag. Ekkert smá heppin.Laughing Nú verða teknar myndir.
Óska öllum til hamingju með árangurinn á sýningunni.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HRFI afmælissýningin

21. ágúst 2009 klukkan 20:54
Þá er komið að afmælis sýningunni. Ég ætla að fara og kíkja. Mæting kl. 09 í fyrramálið.
Valshamars - Viska verður sýnd. Mér skilst að hún sé í fanta formi.  Ég hlakka mikið til að sjá hana....vona að hún hagi sér vel...litli orkuboltinn.
Hún er að fara á gæs í kvöld með honum Kalla. Ég get eiginlega ekki beðið eftir að heyra sögurnar af henni í þeirri ferð.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Breytti meðgöngu almanakinu

21. ágúst 2009 klukkan 15:46

Nóttin blómstrar.  Mér fannst hvolparnir svo þroskaðir í sónarnum.. að ég flýtti meðgöngunni um viku. Ég geri því ráð fyrir hvolpunum um miðjan september.
Það er nú gert sérstaklega vel við Nótt í mat. Eintóm hollusta þó.

Langar að þakka ykkur öllum fyrir hamingjuóskirnar og skemmtilegar kveðjur. Laughing

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

NÓTT ER HVOLPAFULL

20. ágúst 2009 klukkan 14:56
Fórum í sónar í dag, og Nótt er hvolpafull. Við eigum von á hvolpum upp úr miðjum september.Laughing

Nóttin er búin að vera í gjörgæslu, en nú mun gæslan eflast til muna. Rólegir göngutúrar í taumi og smá aukning í mat. Hér eftir verður hún í taumi þegar hún fer út að gera þarfir sínar.

Nú förum við að huga að hvolpakassanum, sem ég vil meina að betra sé að koma upp fyrr heldur en síðar.

Ég setti inn mynd af henni sem við tókum í dag.....albúmið heitir "meðgöngumyndir". Ætla að reyna að setja inn eina mynd í hverri viku fram að goti.  Kíkið á það.Smile Nóttin blæs út þessa dagana.
Berglind Gestsdottir
10 athugasemdir

EF YKKUR FINNST LABRADOR STÓR HUNDUR....SKOÐIÐ ÞÁ ÞETTA!!!!

19. ágúst 2009 klukkan 14:13
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Og varðhundurinn var labrador. :)

18. ágúst 2009 klukkan 17:57
http://mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/26476

Það er gott að eiga góðan hund.Laughing

Og það eru þrír dagar í sónarinn.
Takk fyrir að skrifa guys. Gott að sjá ykkur fylgjast með.









Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Hvað haldið þið.....Lát heyra

17. ágúst 2009 klukkan 23:01


Jæja. Haldið þið að það séu hvolpar.........Hér liggur hún steinsofandi.
Berglind Gestsdottir
4 athugasemdir

Teljum niður

17. ágúst 2009 klukkan 20:55
Jæja gott fólk........þá teljum við niður í sónarinn. 4 dagarUndecided.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

DAGUR KÁRI

16. ágúst 2009 klukkan 21:37

Dagur Kári! Takk fyrir heimsóknina. Það var frábært að hitta ykkur Wink.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Ömurlegur göngutúr

16. ágúst 2009 klukkan 16:16
Nótt fór í þann leiðinlegasta göngutúr ever. Það gekk hvorki né rak...........við vorum sem sagt í BERJAMÓLaughing
Kíktum í Hvalfjörðinn til Stebba og Auðar, og svo í bústaðinn og týndum nokkur bláber.
Nú erum við komin heim í rifsberjatínslu. Alltaf nóg að gera.
Veðrið frábært
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Myndir

15. ágúst 2009 klukkan 12:35
Ætla að ræna myndavélinni hennar Unnar og taka nokkrar myndir af Nóttinni fögru í dag í góða veðrinu.
Ég bætti aðeins inn á hliðarsíðurnar.....t.d voða sætu ljóði frá hvolpinum til þín.

Njótið dagsins.

ps.Guðbjörg. Takk fyrir að skrifa í athugasemdir......það er svo gaman að fá smá pósta. Knús
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Einn brandari

13. ágúst 2009 klukkan 10:02
Er ekki bara gott að fá svona stöku brandara á meðan við bíðum eftir að tíminn líði.Smile

THE BOTTLE OF WINE



Sally was driving home from one of her business trips in Northern Arizona when she saw an elderly Navajo woman walking on the side of the road.

As the trip was a long and quiet one, she stopped the car and asked the Navajo woman if she would like a ride.

With a silent nod of thanks, the woman got into the car.

Resuming the journey, Sally tried in vain to make a bit of small talk with the Navajo woman. The old woman just sat silently, looking intently at everything she saw, studying every little detail, until she noticed a brown bag on the seat next to Sally.

'What in bag?' asked the old woman .

Sally looked down at the brown bag and said, 'It's a bottle of wine. I got it for my husband.'

The Navajo woman was silent for another moment or two. Then speaking with the quiet wisdom of an elder, she said..........

 
......."Good trade" 
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Lambalæri og marengs terta.

12. ágúst 2009 klukkan 23:26
Nótt hefði hreinlega dáið fyrir kræsingarnar í kvöld. Gamlan ég.....á sem sagt afmæli, og í tilefni dagsins höfðum við gott i matinn. Það var talsvert slefað........þ.e. Nótt. En hún fær ekkert svona lagað sem gæti komið maganum úr jafnvægi. Annars þá borðar hún mjög mikið og er svöng út í eitt........en er tág grönn.  Hvert fer allur maturinn eiginlega. Nú er vika í að Nótt fari í sónar,mikið verð ég fegin að eyða óvissunni.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Góð regla

10. ágúst 2009 klukkan 21:36

Það er gott að temja sér strax ákveðnar grunn reglur sem hvolpur/hundur skal læra. Ein regla sem mér finnst t.d. mjög góð er. LEIKUR OG HASAR Á SÉR STAÐ ÚTI.     INNI ER HVÍLD,RÓ OG FRIÐUR.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Heitt

10. ágúst 2009 klukkan 17:24
Svakalega er heitt úti. Fór beint út með hundana þegar ég kom heim, og þeir mása og blása af hita.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Morgunógleði.

09. ágúst 2009 klukkan 15:59
Held að þetta sé að verða nokkuð skýrt. Aumingja Nótt á orðið við talsverða morgunógleði að stríða þessa dagana. Elsku kellingin mín. Hún var ekki svona á síðustu meðgöngu. Okkur finnst hún líka vera farin að teygja mikið úr sér. Það byrja tíkurnar að gera  þegar þær fara að finna hreyfingar hvolpanna...........nú er þetta virkilega orðið spennandi.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Mikill áhugi

07. ágúst 2009 klukkan 22:30

Það er mikill áhugi fyrir væntanlegu goti, og það er fjöldi manns sem vonar heitt og innilega að þetta gangi nú allt upp.
Ég er afskaplega þakklát fyrir áhugann á því sem við erum að gera.
Takk fyrir að fylgjast með og skrifa í gestabókinaKiss.
Ég tek því nú frekar rólega með Nóttina fögru þessa dagana. Taumganga tvisvar á dag og helst sem minnst af æsing, miklum hlaupum eða hasar. Ég verð enn og aftur að hreykja mér af þriggja tauma göngutúrunum mínum. Þetta er eins og vel æft sirkusatriði. Engar flækjur eða vesen. Mér tekst meira að segja að safna upp úrganginum og bæta þeim farangri við mig á leiðinni. Dugleg ÉG. he,he.Cool

 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Loki í pössun

06. ágúst 2009 klukkan 20:42

Hann Loki litli er kominn aftur í pössun og í þetta sinn í tvær vikur. Við fórum í góðan blautan göngutúr í dag. Lyktin af gróðrinum var dásamleg.Ég taumgekk með hundana þrjá eins og ekkert væri. /engar flækjur. Nótt fékk þó að lausa hlaupa og losa orku í smá stund á öruggu svæði. Henni veitti sko ekki af því.

Vona að þið hafið átt góðan dag. Þetta er nú meira veðrið.....en svo gott fyrir gróðurinn, svo kemur yfir mann svona kertastemmning.

 

 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hér kemur hreint ótrúlega fyndin saga af Valshamars - Visku.

05. ágúst 2009 klukkan 00:04

Viska er núna að ganga í gegnum gelgjuna sýna ,en hún virðist vera búin að vera að ,,missa“ heyrnina hægt og bítandi s.l daga og hefur sem sagt stungið af 2 sinnum úr göngu túrum og bara ekki skilað sér fyrr en seint og síðar meir ,svo toppaði hún á Sunndagskvöldið þegar hún lét sig hverfa í kvöld göngunni og hvarf í 4 klst....

 

kl 01,00 um nóttina var bankað á hurðina hjá okkur og þar stóð mjög pirraður kvenmaður sem spurði hvort við ættum ekki brúnan ljótan hund ?  haa hhaaa........kom frá okkur en þegar við skoðuðum hundinn þá var þetta Viska aftur í skotti  hjá konunni.

Það sem gerði konuna sona pirraða var það að þegar hún og gestir hennar voru að spjalla og hafa það kósí þá heyrast læti úti sem bárust umsvifalaust inní hús til þeirra ,en þar var kötturinn þeirra að hlaupa fyrir lífi sýnu með Visku á hælunum ,samkvæmt frásögn konunnar þá kom kötturinn á ljóshraða inní stofu og tók svokallaðan ,,sófi ,veggur hilliveggur hringurinn „ OG Viska á eftir en til að toppa ruglið þá var kötturinn mígandi allann tímann sem hann hljóp á veggjunum og skildi því eftir sig góða og eftirminnilegan ilm inní stofu...

Þetta var sem sagt það sem stóð uppúr í hundadæminu þessa helgina fyrir utan allmenn skemmtiatriði eins og þegar maður gleymir einhverju út í gerði hjá hundunum en það er allt eyðilagt nema að það sé úr járni.

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

Fréttir af hvolpunum.

04. ágúst 2009 klukkan 11:04

Ég sendi öðru hvoru póst á hvolpaeigendurna og spyr frétta af "ömmu börnunum". Fékk þessar fréttir af

Valshamars Víkingi/Brúnó.

Hann er búinn að vera á 2.vikna ferðalagi um landið með sinni fjölskyldu.

Hann skemmti sér konunglega enda útí sveit og leikið við mann á hverjum degi og einhver hjá manni frá því það er vaknað þangað til það er sofnað - ekki laust við það að hann hafi vitað að nú hæfist hið gamla líf í gær því hann vældi og vældi eftir að við komum hein og vildi bara fara út.

Ég redda myndunum fyrir þig í vikunni - fékk rosalega mikið hrós á tjaldstæðunum m.a. frá eiganda Labradors sem hefur eitthvað verið að sýna, man ekki hvað hann hét - en hvar með svarta 2,5 ára tík sem Bruno minn ætlaði að gera hvolpafulla á staðnum - já þeir eru ekki lengi að fatta út á hvað lífið og tilveran gengur.

Og Valshamars Von. Er líka búin að vera á ferðalögum með sinni fjölskyldu, en var heima um versl.manna helgi.

Von var með okkur Óla á INNIPÚKANUM um helgina ;-)   Við vorum sem sagt bara heima - fórum með hana í langan göngutúr um allan Garðabæ og svo sólaði hún sig í "skugga" baði með okkur á pallinum, finnst það sko ekki leiðinlegt ;-)  Var næstum því með okkur ofan í heita pottinum, því hún er alltaf með hausinn eiginlega ofan í - finnst heita vatnið gott ;-)

Ég bíð spennt eftir fréttum af hinum ungunum mínum. Mér finnst svo gott að fá að fylgjast með þeim.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Frábær helgi að baki.

04. ágúst 2009 klukkan 01:05

Þessi dásamlega helgi leið allt of hratt. Fórum í Kjósina seinni partinn á föstudaginn, og vorum að koma heim.´
Vorum auðvitað úti alla helgina. Á laugardaginn var hátíð í sveitinni, sem er árlegur viðburður hjá sumarbústaðareigendum. Stebbi, Auður, Sól, Sölvi og Mía voru með okkur og gistu. Við sváfum sem sagt, samtals 13 í 38 fm. höllinni okkar, og það fór vel um alla.Laughing Víði finnst bústaðurinn svo lítill að hann segist ekki getað skipt um skoðun inni í honum...he,he........en það geta 13 sofið þar.
Ég málaði bústaðinn hvítan að innan um síðustu helgi, og mér fannst ég hreinlega græða nokkra fermetra. Það er auðvelt að blöffa augað.
Á sunnudaginn keyrðum við Hvalfjörðinn og stoppuðum við í Hvalstöðinni og horfðum á hvalskurð. Lyktin var ekki eins slæm og í minningunni.  Keyrðum síðan Draghálsinn og enduðum í veislu hjá tengdó í Munaðarnesinu.
Nótt naut sín þar sem annars staðar.
Í dag fengum við nágranna í kaffi.Víðir fór í offroad hjólatúr, og dagurinn endaði í dásamlegri matarveislu í Klaustrinu.
Það er helst annars af Nótt að frétta, að hún virðist við hungurmörk allan sólarhringinn, alveg sama þótt hún fái tvöfaldan matarskammt og meira til.
Hún lék við Gáska/Papillion, Snæ/Bischon Frisée og Míu/Ungverska Viszlu um helgina........og auðvitað Tuma/tjúa.
Bætti inn upplýsingum um svínaflensuna.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd