30. september 2009 klukkan 23:30
Þá er fyrsta vikan að baki og allt hefur gengið samkvæmt áætlun. Það er þó orðið kýr skýrt, að það er hún Litla Líf, sem verður oftast útundan á spenunum. Ég hef verið að horfa á þá og í dag mætti hún mjög oft afgangi. Litla skottið. Hún fær því extra treatment hjá okkur. Auka pela gjafir og sér ferð á barinn hjá mömmu sinni.
Hvolparnir hafa nú tvöfaldað fæðingarþyngd sína. Manni finnst þeir alveg risa boltar núna

.
Berglind Gestsdottir
29. september 2009 klukkan 20:13
Hafið þið heyrt um þetta vandamál ! að verða ryksugusjúklingur. :) Krakkarnir hér heima, halda því fram að ég sé með ryksugufíkn. Mamma! þú ryksugaðir í gær og fyrradag og daginn þar áður!!!!!!!!!. Jammm...það er september og þá er ég býsna áberandi með ryksuguvopnið.
Hvolparnir eru allir sprækir og allir á bilinu 700 - 800 gr. Ég held að þetta verði super sized hundar. Nei segi svona. Unnur og Gauti gáfu þeim pela áðan. Ég keypti AVENT smábarna pela. Og þeir virka mjög vel fyrir hvolpa.
Berglind Gestsdottir
28. september 2009 klukkan 21:42
Það er greinilega rútína hjá Nótt að skúra allt liðið á morgnana. Þá er kvakað og tíst í langan tíma. Svo gaman að fylgjast með þessari athöfn. Ég gef nú hvolpunum hvolpamjólk tvisvar á dag og þeim finnst hún svakalega góð.
Þeir fá aukaskammt á miðnætti...þá sofa þeir aðeins lengur...og þá næ ég að kría smá líka. (Hrjót).
Berglind Gestsdottir
27. september 2009 klukkan 18:29
Og það eru færri sem fá en vilja. Þannig er það alltaf. Allt frábært fólk sem óskuðu eftir hvolpi og þykir mér miður að hafa ekki getað orðið við óskum allra. Einhverjir ætla að vera áfram á lista hjá okkur, sem er bara hið besta mál.
Og þá kemur saga frá Signýju og Nils sem eru að fá litla tík........Pabbi Signýjar var svo glaður yfir fréttunum af litlu tíkinni.......að hann var að spá í að bjóða upp á kampavín og vindla í vinnunni.
Og bræðurnir á Suðurvöllum sem hafa verið að leggja fyrir afmælispeningana sína sl.3 ár til að safna fyrir hvolpi
Þegar draumurinn varð að veruleika......þeir eru að fá lítinn rakka......þá byrjaði annar í samningaviðræðum.
Hann langaði að halda eftir kannski 5000 krónum af afmælispeningunum til að kaupa sér tölvuleik.
En það stóð ekki á svari hjá bróður hans. Nei allur peningurinn fer í hvolpinn. Hugsaðu út í það........þú gætir ekki faðmað tölvuleikinn eins og hvolpinn.
Setti nýjar myndir í albúmið. Sem ég tók í dag.
Berglind Gestsdottir
26. september 2009 klukkan 23:14
Mér þykir svo vænt um kveðjurnar frá ykkur öllum, og hvatningarnar. Mér veitir ekki af. he,he.
Núna er þetta bara grín....að vaka á næturnar er bara grín. Seinni mánuðurinn verður heavy.

Ólýsanlegur........he,he.
Berglind Gestsdottir
26. september 2009 klukkan 22:50
Hvolparnir þyngjast og braggast vel. Verða hundslegri með hverjum deginum. Nú er farið að telja niður í að þeir opni augun. Alltaf eitthvað nýtt að hlakka til.
Berglind Gestsdottir
26. september 2009 klukkan 08:46
Hvolparnir hanga út í eitt á spenunum, og Nótt borðar og borðar og drekkur og drekkur. Ég er nokkuð viss um að hún innbyrðir marga lítra á dag af vatni.
Hún er nú aðeins farin að þora að fara frá börnunum sínum augnablik. Liggur jafnvel fyrir utan búrið þegar þeir sofa allir vært. Þá sér maður hana horfa yfir hópinn sinn stolta á svip.
Næturnar fara meira í að sinna henni en hvolpunum. Allur þessi matur og drykkur, þarf að skila sér....og það var ekkert sérlega huggulegt að standa úti á náttfötunum í nótt í haglélinu. 
Endilega verið dugleg að kvitta í gestabókina. Ég hef voða gaman af því.
Berglind Gestsdottir
25. september 2009 klukkan 21:32
Allir hvolparnir eru að þyngjast vel og eru kröftugir. Það eru nýjar myndir í albúmi. Sjáið hvað Nótt lítur vel út. Er hamingjusöm og stolt mamma.
Berglind Gestsdottir
24. september 2009 klukkan 23:16
Vaktaplanið okkar gengur eins og í sögu. Ég tek næturvaktirnar. Maður hreinlega horfir á þá stækka, það gerist svo hratt. Nótt borðar og drekkur fyrir 12. Sig og 11hvolpa...það þarf nú að innbyrða slatta fyrir svo stóran hóp.

Við bjóðum góða nótt. Framundan er að skipta um hjá hvolpunum, og gefa þeim smá ábót fyrir nætursvefninn.
Berglind Gestsdottir
23. september 2009 klukkan 23:24
Jæja þá sest maður niður........Það hefur gengið vel í dag. Allir frekir og flinkir að rata á spenana.
Hér voru vaktaskipti í allan dag, og gekk eins og smurð vél

. Ég eltist símleiðis í allan dag við hvolpamjólk. Þori ekki annað en bæta aðeins á hvolpana svona fyrstu dagana alla vega. Á endanum voru það strákarnir í Dýragarðinum í Síðumúla, sem létu senda til sín fyrir mig mjólk frá Keflavík........dásamlegir drengir í Dýragarðinum. Þar hitti ég hann Stekkjardals Gumma. Það var mjög gaman að spjalla við hann um gotið. Hann er reynslubolti í þessum efnum.
Nú erum við búin að setja inn á hliðarsíðu, þyngdarupplýsingar um hvolpana og ættbókarnöfnin. Við munum setja inn nýja vigt á hverjum degi í alla vega viku.
Ég fékk óvænta heimsókn í kvöld. Mig hefur lengi langað til að sjá hann Brúnó sem er úr gotinu frá því í fyrra.
Við tókum myndir og þær eru inni á myndasíðunni. Hann er að þroskast svakalega flott upp, og er allur hinn glæsilegasti. Skarphéðinn TAKK FYRIR KOMUNA.........ég býð ykkur í bæinn næst. Er með allt liðið mitt í sóttkví næstu daga.
Nú er Gauti að gefa pela.....og fílar sig bara vel í svona pabba hlutverki.
Berglind Gestsdottir
23. september 2009 klukkan 08:13
Öll lifðum við af fyrstu nóttina

sem gekk vel.
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 23:46
............ á hliðarsíðunni, kynjaskiptinguna og hvenær hvolparnir fæddust hver fyrir sig.
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 21:28
Já Hildur María, ætli að sé ekki rétta orðið yfir þetta. Enn og aftur þakka ég fyrir kveðjur frá ykkur öllum. Bara æðislegt :) Ég er voðalega þakklát fyrir þið hugsið vel til okkar.
Mér hefur oft fjölskyldan mér verið helst til stór..........en drottinn minn hvað ég er feginn að við erum 6 sem munum hjálpast að við þetta stóra verkefni.
Nú held ég að Nótt sé hætt. Ætla nú að fara að gera bælið kósý. Setja upp hitalampa, og reyna að græja vef-myndavélina.
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 19:44
Já rétt lesið! Hvolparnir eru nú 11, og skiptingin þannig. 6 strákar 5 stelpur. Einn strákurinn fæddist lífvana, en ég náði að blása í hann lífi, og hann er nú frekur á spenann og kröftugur. Hann fékk ættbókarnafnið. VALSHAMARS - STORMUR. Ekkert annað en kröftugt nafn kom til greina á þennan lífseiga hvolp.
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 17:09
Alveg dásamlegt að fá allar kveðjurnar frá ykkur öllum. Frábært að fá kveðjur frá stóru systkinum síðasta gots Brúnó og Nóa. Knús á ykkur öll. Ljósmóðirin er orðin ansi lúin. Bíður eftir vaktaskiptum og sér rúmið sitt í hyllingum 
Ég verð að taka það fram hvað krakkarnir mínir. Unnur Freyja, Gauti og Vaka eru búin að standa sig frábærlega við gotið í dag. Hefði ekki viljað vera án þeirra. Þau eru búin að standa í þessu öllu með mér.
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 15:53
Einn gaur var að bætast í hópinn 500 grammari :)
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 14:45
Fjórir flottir strákar og þrjár svaka skvísur. Takk fyrir að fylgjast svona vel með okkur

ÞAÐ ERU KOMNAR MYNDIR Í NÝTT ALBÚM.
Við hringdum í HENRY........og hann er rosalega stoltur pabbi, he,he.
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 13:02
Þá eru fæddir 5 heilbrigðir dásamlegir hvolpar. 2 tíkur og 3 rakkar. Nótt er enn að. Allt hefur gengið eins og í sögu, og allir nema einn fæddust í heilum líknarbelgnum....sem í gamla daga þótti gæfumerki (börn fædd í heilum belg). Fyrst fæddist tík, þá þrír rakkar og svo nú síðast tík. Þyngdin er frá 400 - 500 gr.
Signý dýrahjúkka er búin að vera hjá okkur og það var frábært. Við tókum voða sætar myndir af henni með henni Valshamars - Vöku, sem fæddist fyrst.
Hvolparnir eru kröftugir og duglegir. Fóru strax frekir á spena.....nú er sá 6 að koma og ég þarf að bregða mér í hanskana....
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 10:09
Vef myndavélin virkar ekki. En við verðum duglegar að taka myndir og setja inn á. Nú fer ég að skella mér í gúmmíhanskana.
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 09:48
Hringdi til dýra, í skyndi vegna græns legvatns. Okkur var sagt að koma strax. Dýri jesúaði sig í bak og fyrir þegar hún sá hina verðandi móður.. HVAÐ ER HÚN EIGINLEGA MEÐ MARGA!!!!!!!!!!! HRÓPAÐI HÚN. Ég gat nú lítið sagt um það. Dýri sagði að hún væri líklega með marga hvolpa og þetta græna slím gæti þýtt að einn væri dauður. það verður bara að koma í ljós. Hún taldi ekki ástæðu til að grípa inn í. Nótt fékk kalksprautu til að auka samdrættina.
Sónarnum var skellt á bumbuna, og þar sáust mörg spriklandi hress hvolpaskott, sem bíða þess að komast í heiminn. En ekki var hægt að telja...þeir eru víst alla vega nokkrir.

Við erum komnar aftur heim, og Nótt er byrjuð að rembast .
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 07:03
Nóttin búin að vera strembin. Nóttin fagra í harðnandi sótt og ég á von á að fyrsti hvolpurinn fari að láta sjá sig núna fyrir hádegið.
Berglind Gestsdottir
22. september 2009 klukkan 02:01
Ég er aftur komin á dýnuna.........Nótt er nú óróleg og er farin að grafa í bælinu sínu. Sóttin harðnar smám saman. Nú er pása........þá drífur maður í að leggja sig aðeins á dýnuna.
Berglind Gestsdottir
21. september 2009 klukkan 22:39
Hitinn er aftur kominn í 37 gráður. Nótt liggur nú alveg fyrir og er mjög þreytt. Ef ekkert fer að gerast í nótt þá er stefnan að tala vð dýra á morgunn. Hvolparnir virðast eldsprækir. Ótrúlega sniðugt að sjá þá hreyfa sig inni í mömmu sinni.
Við vorum að koma upp vef myndavélinni aftur. Vona svo sannarlega að hún muni ekki bregðast okkur.
Vá næsta vesen...get ekki stækkað textann..........þið setjið bara upp gleraugun. eða finnið einglyrnið.
Berglind Gestsdottir
21. september 2009 klukkan 09:02
Svefnlítil nótt með Nóttinni fögru. Þar sem drottningin hagaði sér undarlega í gær og virtist ótrúlega líkleg til að láta nú verða af þessu, ákvað ég að gista inni hjá henni á tjalddýnunni. Það var ekkert sérstaklega kósý.
Nótt vakti meira og minna í alla nótt, másandi og virtist þurfa þrífa allt bælið sitt voðalega vel.
En ekkert gerðist. Við erum núna að leggja okkur...safna kröftum.
Í dag og næstu daga vinnum við rólega í því að skipta yfir í próteinríkt fæði. Hún verður nú smám saman sett yfir á PRO PAC puppy, til að hafa orku til að sinna hvolpunum, og svo þeir éti hana ekki alveg upp sjálfa.
Berglind Gestsdottir
20. september 2009 klukkan 22:14
Þá ákvað tölvan mín að fara í verkfall. Hún fer í viðgerð á morgunn. Fréttir á síðuna koma því seinni part dags, á næstunni.
Hitinn hjá Nótt er nú aftur kominn í 38 c. Hvað það þýðir er áhugavert. Einhversstaðar las ég að hitinn lækkaði fyrst nokkrum dögum fyrir gotið, og hækkaði aftur þegar gotið er að hefjast. En hvort eitthvað er til í þessu verður að koma í ljós.
Berglind Gestsdottir
19. september 2009 klukkan 17:24
En nú hlýtur þetta að fara að bresta á. Ég læt ykkur vita um leið og eitthvað gerist. Engar áhyggjur af því.
Berglind Gestsdottir
18. september 2009 klukkan 20:09
Já, .....það er allt svakalega rólegt......
Mikið væri nú dásamlegt ef hún kæmi með hvolpana um helgina.
Berglind Gestsdottir
17. september 2009 klukkan 20:02
Berglind Gestsdottir
16. september 2009 klukkan 20:26
Þetta fékk ég í símtali í dag í vinnuna. Unnur var sem sagt að panika heima með Nótt.
Stelpurnar í vinnunni spurðu hvort Nótt væri ekki bara að MISSA VATNIÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Eins og þið sjáið þá erum við unplugged, en þvílík snilld sem þessi vefmyndavél er. Nótt er bara að stríða okkur þessa dagana. Lætur endalaust eins og hún sé að fara að gjóta. Núna er hún t.d. mjög hress og hagar sér ekki eins og hún eigi von á hvolpum næstu daga. Ég er alveg hætt að skilja hana
Til öryggis hringdi ég í dýra í dag og spurði út í allskyns "leka"... og allur lekinn sem ég taldi upp er víst MJÖG eðlilegur fyrir hennar ástand.
T.d lekinn sem Unnur kynnti til sögunnar í dag er að hvolparnir eru að stappa á þvagblöðrunni hennar, þar sem plássið er orðið lítið. Nú finnst mér hún hætt að breikka. Bumban sígur bara neðar og neðar með hverjum deginum sem nær dregur gotinu.
Berglind Gestsdottir
15. september 2009 klukkan 18:38
Þegar Nótt klárar ekki matinn sinn, og vill ekki bein........þá er eitthvað að gerast. Vefmyndavélin verður á, og þið getið fylgst með ef þið viljið. Sjáum hvað setur.
Berglind Gestsdottir
14. september 2009 klukkan 22:33
Þá erum við búin að setja upp vef-myndavél. Sem við munum kveikja á þegar hvolparnir fæðast.
Það er þá undirsíðan. HVOLPARNIR Í BEINNI, sem kemur ykkur í beint samband við krílin.
Berglind Gestsdottir
14. september 2009 klukkan 19:37
Það er allt bara rólegt. ...............við bíðum

. Kalli hringdi fyrir Henry og spurði frétta af ástmeynni
Berglind Gestsdottir
14. september 2009 klukkan 07:51
Nóttin fagra leyfði mér nú að sofa í nótt. Það gerðist sem sagt ekkert í nótt. Ég yrði svo sem mjög fegin ef þetta kæmi í dag hjá henni. Og hún Bryndís vinkona mín yrði þá adeilis sannspá
Hún sagði 14/9 og 11 stk.
Sjáum til.
Berglind Gestsdottir
13. september 2009 klukkan 23:29
Það fer nú að draga til tíðinda hjá okkur. Hitinn er aðeins að falla, og Nótt farin að mæðast. Hún er hreinlega að springa. Spenarnir stútfullir af mjólk og allt að verða klárt hjá henni.
Ég er tilbúin
Berglind Gestsdottir
13. september 2009 klukkan 19:01
Gauti tók þessar fínu myndir af okkur stelpunum, Nótt, Unni og mér að kúra í gotkassanum áðan. En viti menn. Mér snillingnum tókst að eyða þeim úr vélinni.
Þær voru svo sætar. Ég hélt að Nótt væri að fara af stað áðan. Var eitthvað svo móð og másandi, en ég held að það sé ekkert að gerast. Þetta er nú meiri rússibaninn. Alveg að fara með mann. Nei, segi svona. Ég er voða róleg. Það er hitt heimilisfólkið sem er að fara úr límingunum.
Berglind Gestsdottir
13. september 2009 klukkan 10:29
Það er allt í rólegheitum. Allt með kyrrum kjörum.
Berglind Gestsdottir
12. september 2009 klukkan 12:14
Hæ öll. Nóttin var viðburðarlaus. Drottningin sefur nú við rúmstokkinn hjá mér...þar sem mér varð órótt eitt kvöldið, þar sem hún virtist vera að fara af stað, en svo datt sóttin niður....sem betur fer. Hvolparnir hefðu verið of snemma á ferð þann daginn.
En ég sef laust þessar næturnar og er við öllu viðbúin. Er að vonast eftir þessu um næstu helgi...veit ykkur finnst það of langur tími
. En ég held að það SÉ TÍMINN.
Njótið þess að vera til.
Berglind Gestsdottir
11. september 2009 klukkan 15:09
Veröld/Fólk | mbl | 10.9 | 14:51
Vellauðug kínversk kona greiddi fjórar milljónir júana (um 75 milljónir kr.) fyrir hund. Konan flaug sérstaklega til að kaupa hundinn og hún fór svo fram á það að 30 glæsibifreiðar myndu taka fagnandi á móti sér og hvuttanum á flugvellinum. Meira
Ekkert smá biluð þessi góða kona!!!!!!!!
Smá saga af forn Egyptum........þegar forn Egyptar misstu hund.......ÞÁ RÖKUÐU ÞEIR AF SÉR AUGABRÚNIRNAR!!!!!!
Berglind Gestsdottir
08. september 2009 klukkan 19:35
Forn Egyptar trúðu að hundar byggju yfir yfirnáttúrulegu afli, og dekruðu við þá með því að skipa þeim þjóna og láta bera fyrir þá veislumat. Aðeins konungbornir menn gátu átt hreinræktaða hunda og þegar faraóinn andaðist, var hundurinn hans oft grafinn með honum til að veita honum vörn í framhaldslífinu. Rétt eins og Egyptar trúðu að hundar fylgdu eigendum sínum yfir móðuna miklu, trúðu menn í öðrum samfélögum, að hundar væru miðlar milli þessa heims og annars.........það er gott að eiga hund. 
Berglind Gestsdottir
08. september 2009 klukkan 11:25
Þá er eitthvað að losna um hjá henni. Slímtappinn virðist vera að losna....veit þið viljið fylgjast svo vel með.
Hringdi í dýra og hann sagði að þetta benti til að að nú færi að styttast í þetta hjá henni skvísunni...EN geta samt verið einhverjir dagar.
Berglind Gestsdottir
08. september 2009 klukkan 00:41
Við heimsóttum hana Von í kvöld. Það stendur til að sýna skvísuna í október. Hún er geysilega falleg. Dökkbrún. Dásamlegur feldur og fallegar línur. Hún er mjög kröftug tík. Óli þarf að taka góðan snúning á skvísunni í sýningarþjálfun og létta hana pínulítið. Hún er svo auðvitað algjör gormur núna á fyrri gelgjunni og lætur alveg hafa fyrir sér.
Já,já þetta er fullt starf að eiga hund.
Elsku Óli og Halldóra. Takk fyrir að taka á móti okkur. Svo gaman að fá að fylgjast með Von.
Ég tók helling af myndum.......en einungis fáeinar nothæfar...eins og alltaf. Setti þær inn í myndaalbúmið..Valshamars - Von er mjög lík mömmu sinni. Falleg og kröftug.
Berglind Gestsdottir
06. september 2009 klukkan 21:21
Var að flækjast á Norska web base og sá líka þetta hrikalega flotta nafn á súkkulaði brúna tík
VALSHAMARS - MOCCA (MOKKA)
Við fengum skemmtilega heimsókn frá honum Jóhanni Dalberg og sætu konunni hans.Takk kærlega fyrir komuna
Nótt var einstaklega hrifin af Jóhanni....þau vonast eftir símtali frá mér eins og margir fleiri.
Berglind Gestsdottir
05. september 2009 klukkan 13:23
Ég verð að þakka ykkur fyrir áhugann fyrir gotinu og umhyggjunni fyrir Nóttinni fögru. Væntanlegir hvolpa eigendur ýmist hringja, senda sms, senda tölvupóst, koma í heimsókn, eða skrifa kveðjur á síðuna okkar.
Þúsund þakkir fyrir þetta. Mér finnst þetta alveg ómetanlegt.
Unnur svaf hjá vinkonu í nótt og fannst Nóttin hafa stækkað þvílíkt frá því í gær......ég sé engan mun. Held ég sé bæði orðin blind og heyrnalaus. Stundum finnst mér eins og hún geti varla verið hvolpafull, hún er svo mikil skvísa í vextinum.
Hafið það súper gott um helgina.
Berglind Gestsdottir
04. september 2009 klukkan 20:53
Eru ekki.......engar fréttir.Góðar fréttir. Hér er allt í mestu rólegheitum. Nótt borðar og sefur til skiptis.
Berglind Gestsdottir
02. september 2009 klukkan 23:39
Elsku Signý og Nils. Takk fyrir enn eina skemmtilegu heimsóknina. Þið eruð einstök. Nótt og Tumi þakka fyrir sig, og ég fyrir myndirnar. Hlakka til að sjá ykkur aftur sem fyrst.
Forsíðumyndina prýðir Valshamars-Viska. Sjáið hana innan um gula stóðið. Vissulega glæsilegur fulltrúi þeirra brúnu :) Kalli sýndi hana með prýði þennan dag. 3.besta tík tegundarinnar. Dómari Jean Lanning.
Viska þykir efnileg í veiði og er líka að sanna sig í sýningarhringnum, rétt árs gömul.
Berglind Gestsdottir
02. september 2009 klukkan 18:57
Takk fyrir að skrifa Kristín Helga. Ég hef ekki hugmynd um fjölda hvolpanna. Það væri gaman að fara með hana í röntgen til að telja, en það er eitthvað það sem maður gerir ekki að ónauðsynju....þ.e. fara inn á dýraspítala, til að ná í einhverja pest.
Nú er ég hætt að fara með hana í göngutúra, þar sem við forðumst nú að Nótt sé að þefa af úrgangi annarra hunda svi hún nái sér ekki í Herpes sýkingu eða einhvern annan óþverra, sem gæti ógnað heilsu hennar og hvolpanna svona rétt fyrir gotið.
Á morgunn er það Húsasmiðjan...kaupa pvc rör til að búa til brík fyrir hvolpana í kassann.
Berglind Gestsdottir
01. september 2009 klukkan 13:50
............Að hún át nestið hennar Vöku í morgunn....var þó búin að borða morgunskammtinn sinn! Skildi þó eftir kókómjólkina........líklega af því hún vissi ekki hvar ætti að setja rörið. he.he.
Hún blæs svoleiðis út þessa dagana að það er alltaf sjónarmunur milli daga. Fyrst var ég viss um að hvolparnir væru 5.......að horfa á hana núna finnst mér að þeir hljóti að vera 50.....smá grín. En stór er hún að verða.
Berglind Gestsdottir