VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

VALSHAMARS - VON

31. október 2009 klukkan 18:09

Verð að setja inn mynd á forsíðuna af henni  Valshamars - Von. Geggjuð mynd af henni með rjúpu.

Það eru fleiri myndir af henni í albúminu hennar.

Halldóra og Óli takk fyrir þessar frábæru myndir.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

SKEMMTLEG FRÉTT

30. október 2009 klukkan 20:50

Valshamars - Von fór í sýna fyrstu rjúpnaveiðiferð í dag og stóð sig frábærlega. Hún leitaði, sótti og skilaði eins og hún hefði aldrei gert neitt annað í lífinu. Hún virtist skilja hvenær hún átti að vera kyrr, og hlýddi algjörlega.

Þetta er frábær árangur hjá rétt rúmlega ársgamalli tík.  Frábær vilji til vinnu að sögn eigendanna og mikil gleði í henni.   "amman" brosir hringinn. Kiss

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HEIMSÓKNIR LAUGARDAG OG SUNNUDAG

30. október 2009 klukkan 16:57

VAKA verður heimsótt kl. 13. PRINS kl. 1330. LIF og MOCCA kl. 14. Það er greinilega að byggjast upp spenna hjá öllum. Það styttist nú óðum í að hvolparnir fari á sín nýju heimili :)

Carmel Donna verður heimsótt k. 1430 á sunnudag og HECTOR  verður heimsóttur á sunnudaginn kl. 15
 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

VALSHAMARS - FREYJA

29. október 2009 klukkan 20:23

Er hress og skemmtileg. Hún er inni hjá okkur í kvöld. Fær einkatíma í uppeldinu og gæðastundir með mömmu sinni.

Ég setti inn myndir í albúmin hjá Valshamars - Veru/Carmel Donnu og Valshamars - Stormi. Þetta eru myndir sem væntanlegir eigendur sendu mér. Endilega verið duglega að senda mér myndir.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

3 ,5 kg.

28. október 2009 klukkan 23:03

Hvolparnir eru komnir yfir 3 kg. Drottningin Valshamars - Vera/ Carmel Donna er 3,5 kg, og er búin að skjóta sér yfir hana Lady V0ku. Þetta er alveg ótrúlegur vaxtarhraði. Við erum nú farin að leyfa einum og einum að vera inni hjá okkur í einu og með því fær hvolpurinn gæðastundir með mömmu sinni........og okkur. :)

Nú fer að styttast í afhendingu...tíminn flýgur. Það er gott að hafa allt klárt tímanlega og vera búinn að fá tilfinningu fyrir hvar búrið á að vera, matardallarnir osfrv.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

NÝJAR MYNDIR.

25. október 2009 klukkan 01:26

Ólafur Valsson og fjölskyldan hans komu að heimsækja  Valshamars - Vöku  í dag. Myndavélin var með  í för og hann sendi mér nokkrar, sem ég setti í albúmið hennar Vöku.

Ég er búin að semja við hann Ólaf  um að taka myndir af öllum hvolpunum þegar þeir eru 7 vikna. Get ekki beðið eftir að eignast svona flottar myndir af öllu stóðinu mínu, sem ég er svo rígmontin af Laughing

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

MINNI Á.

24. október 2009 klukkan 00:17

Sæl öll.

Vil minna á að ég get ekki tekið á móti gestum eftir kl. 15 á morgun/laugardag. 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

ŢESSI ER GÓĐUR.

23. október 2009 klukkan 14:21

Hún Sigrún Helga sendi mér þennan.

MOST MEN CONSIDER THEIR WIFE AS THEIR BEST FRIEND!!
SO HERE IS THE TRUE TEST OF YOUR BEST FRIEND.

TAKE YOU DOG AND YOUR WIFE AND STICK THEM BOTH IN THE TRUNK OF YOUR CAR AND LOCK IT.
3 HOURS LATER OPEN THE TRUNK OF THE CAR AND SEE WHO WILL BE GLAD TO SEE YOU Laughing

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

LAUGARDAGURINN

22. október 2009 klukkan 22:48

Því miður get ég ekki tekið á móti heimsóknum eftir kl. 15 á laugardaginn. Lady Vaka verður heimsótt kl. 13 á laugardaginn.

Prins verður heimsóttur kl. 13 á sunnudaginn, Carmel Donna :) kl. 14 og Hector kl. 16.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

CESAR MILLAN

22. október 2009 klukkan 20:38

Langar að minna ykkur á sem eruð á kafi í lestri um hunda að kíkja á síðuna www.cesarmillaninc.com

Það eru ótrúlega góðir pistlar þar. 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

NÓTT ELUR HVOLPANA UPP

22. október 2009 klukkan 19:47

Það er gaman að fylgjast með Nótt ala hvolpana upp. Hún urrar á þá, stuggar við þeim eða leikur við þá.
Hvolparnir eru nú hættir að fá matinn maukaðan. Matarkúlurnar eru nú bleyttar upp og eru mjúkar. Þeir þurfa því að tyggja matinn sinn, sem gengur vel.  Þeir eru allir farnir að vilja vatnið, sem er gott.  

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

ÓTRÚLEGT

21. október 2009 klukkan 23:21

Það er ótrúlegt þetta meðfædda villta eðli í hundunum. Úlfurinn í þeim. Þeir ná góðu taki/biti á fórnarlambinu og hrista svo hausinn af öllu afli. Líkt og þeir gera þegar þeir drepa úti í náttúrunni. Aðeins 4 vikna gamlir og kunnáttan að drepa er meðfædd en ekki lærð. Merkilegt.
Hafið þið spáð í það.......að hundar elska leikföng sem tístir í. Þeir djöflast og djöflast með þau.....þar til við þolum ekki meira og rífum tístuna úr. Þar með er áhugi hundsins á leikfanginu líka liðinn. Tístið líkist skrækjum í dýri í sjálfheldu og lífshættu. Þegar hljóðið hættir er verkefninu lokið. MISSION COMPLETED.
Ég setti inn hjá þeim einhvern ræfils bangsa, með langa útlimi og langt skott. Það var auðvitað reynt að drepa hann um leið :) Svo er hann dreginn um allt. Aumingja bangsinn. En mér finnst þó betra að horfa á þá níðast á honum en hver öðrum.......sem þeir víla ekki fyrir sér.......og veinin sem heyrast frá fórnarlömbunum minna á tíst í leikföngunum umtöluðu.
Þetta var pistill dagsins. :)
Það eru nýjar myndir af Valshamars - Freyju í albúminu hennar.
Góðar stundir. 

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

MÁNAĐAR GAMLIR Í DAG. :)

20. október 2009 klukkan 18:57
Tíminn flýgur Laughing Hvolparnir eru mánaðar  gamlir í dag. Þeir borða nú þrisvar á dag, samtals um 1 kíló af mat á dag  og þeir þurfa sífellt meira. Léttasti hvolpurinn vegur nú um 2,5 kg og sá þyngsti um 3 kíló.
Léttastur er Hector. Það fer mikil  brennsla í að berja á systkinum sínum. (Hann er ruddinn í hópnum).
Þyngst er Lady Vaka.  Með mjúkar kvenlegar línur.
Ég tók nokkrar myndir af súkkulaðimolunum eftir síðdegis málsverðinn í einni hrúgu eins og þeim líður best.

 
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

HVET ALLA TIL AĐ FARA Í MYNDA ALBÚMIĐ OG SKOĐA MYNDIR AF VALSHAMARS - VÖKU.

18. október 2009 klukkan 22:17

Það væri gaman að heyra hvað ykkur finnst. Ekkert smá falleg tík hér á ferð.

Berglind Gestsdottir
6 athugasemdir

SYSTURNAR FARA........

18. október 2009 klukkan 16:08
Valhamars - Vaka fer í Kópavoginn. Stoltir eigendur. Ólafur og Sigríður.
Valshamars - Mocca fer í Garðabæ. Stoltir eigendur Svanbjörn og Gunnhildur.
Valshamars - Litla Líf fer í Fossvoginn. Stoltir eigendur Gunnar og Auður.
Valshamars - Freyja fer til Egilsstaða. Stoltir eigendur Jón Egill og Katrín.
Valshamars - Vera fer í Hvalfjörðinn. Stoltir eigendur Ríkey og Þorri.

 
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

SYSTUR TIL BRĆĐRA

18. október 2009 klukkan 15:06
Gaman að segja frá því að systurnar VALSHAMARS - MOCCA OG VALSHAMARS - LITLA LÍF,  Fara til bræðra. Þær eiga því væntanlega eftir að hittast í ófáum fjölskylduboðunum og í sveitinni á Þingvöllum. Laughing 
Særún! Ekki hafa áhyggjur af Molanum, ég passa að hann fái nóg af knúsi og umhyggju.
Hvolparnir hafa verið að fá heimsóknir alla helgina, sem ég er mjög ánægð með.
Hef ekki ennþá komist í að taka myndir af þeim, en það er á dagskráinni. 
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HEIMSÓKNIR Í DAG

18. október 2009 klukkan 00:52
Það var gestkvæmt hjá okkur í dag. Tíkurnar hittu eigendur sína. Prins og Garpur var heimsóttir og síðast en ekki síst þá kom hann Smári vinur minn með hann Oliver í heimsókn. Ég var svo heilluð að ég bara gleymdi að taka myndir af honum. Laughing Hann er svakalega stór og stæðilegur.........hefur reyndar alltaf verið það. 

Á morgun verður líka gestkvæmt. Planið er líka að reyna að taka fínar myndir af hvolpunum.


Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

NÖFNIN Á RÖKKUNUM

16. október 2009 klukkan 19:20
Hvolparnir blása nú út, þegar þeir eru byrjaðir að borða graut. Tennurnar eru komnar og hvert tækifæri nýtt til að prófa þær. Rakkarnir eru nú hver af öðrum að fá nöfnin sín. Prins - Valíant, Garpur, Moli, Hector. Allt fín nöfn.

Hvernig finnst ykkur forsíðumyndin í dag af honum Valshamars - Galdri/HECTOR. Sjáiði hvað hann stendur FÍNN!
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

VIĐ MINNUMST MÁNA.

15. október 2009 klukkan 22:06
í dag kvaddi hann Máni litli terrier  sem Kristín og Co. áttu í Keflavík. (þau eiga Valshamars - Vetur).
Elsku Kristín. Það var gott að heyra aðeins í þér í dag. Það kemur enginn í staðinn fyrir Mána en ég vona að hann Vetur muni reyna að fylla í skarðið með öllum sínum sjarma.
Hugur minn er hjá ykkur.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

VALSHAMARS - ORION

15. október 2009 klukkan 21:47
Gleymdi að tilkynna það um daginn, að Valshamars - Orion mun bera nafnið Prins Valíant. (dags daglega mun hann verða kallaður Prins held ég.)
Til hamingju með nafnið Þorsteinn og Elísabet Anna.
Laughing

Langar til að senda Kristínu og Co í Keflavík mínar hlýjustu kveðjur. Þau eiga Valshamars - Vetur.
Í dag kvöddu þau hann Mána, lítinn terrier mix sem þau áttu. Hugur minn er hjá ykkur. Það er sárt að missa góðan vin.
Vetur á eftir að sakna Mánans.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

VALSHAMARS - SKUGGI

15. október 2009 klukkan 15:23
Hefur fengið nafnið MOLI. Laughing Hér eftir munum við kalla hann nafninu sínu, til að venja hann við. Særún og Sibbi. Til hamingju með nafnið Laughing

Langar til að biðja ykkur elskulegu hvolpa eigendur, að miða heimsóknir ykkar við laugardaga og sunnudaga og hálftíma í senn. Frá kl. 13. Vinsamlegast sendið mér sms til að láta vita hvenær þið hafið í hyggju að koma, svo ég geti aðeins stýrt flæðinu.


Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HLÝNAR UM HJARTARĆTURNAR :)

14. október 2009 klukkan 23:26
Mér hlýnar um hjartaræturnar þegar ég les athugasemdirnar og kveðjurnar í gestabókinni. TAKK. Kiss
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

FLUTTIR

14. október 2009 klukkan 21:19
Já nú er búið að flytja hvolpana í skálann. Þeir fengu aftur graut í dag, og eiga eftir að fá einu sinni enn fyrir nóttina. Þeim finnst grauturinn algjört sælgæti,
Unnur tók myndir af nýja svefnstaðnum. Kíkið í albúmið.
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

FYRSTI Í MAT

13. október 2009 klukkan 21:06
Ég hreinlega gafst upp á pelagjöfunum. Hvolparnir eru orðnir ansi aðgangsharðir, bæði við mig og mömmu sína.
Það er okkar álit að þeir þurfi hreinlega að fá MAT.  Á morgun flytja  þeir í skálann.

 
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

AFSAKIĐ SAMBANDSLEYSIĐ

13. október 2009 klukkan 10:47

Það er bara eitthvað svo mikið að gera þessa dagana......En það gengur allt ljómandi vel.
Það styttist í að hvolparnir flytji yfir í skálann og að þeir fari að fá fasta fæðu.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

MIKIĐ GAMAN Í DAG.

11. október 2009 klukkan 19:53

Það er búið að vera líf og fjör hjá okkur í dag. Rakkarnir hittu nýju fjölskyldurnar sínar. Við tókum einstaklingsmyndir af hverjum rakka fyrir sig sem við setjum í viðeigandi albúm, sem hver og einn á.
Stoltir eigendur rakkanna eru:
Valshamars - Castro = Jóhann og Kristín/Suðurnes
Valshamars - Dagur = Dagur Kári/Kári og Inga./Reykjavík
Valshamars - Stormur = Sigrún og Brynjar/Suðurnes
Valshamars - Orion = Þorsteinn og Elísabet Anna/Reykjavík
Valshamars - Galdur = Kristín og Gunnar/Suðurnes
Valshamars - Skuggi = Særún og Sibbi/Vestmannaeyjar.

Innilega til hamingju með fallegu strákana ykkar.Laughing Verið nú dugleg að heimsækja þá, og lesið ykkur endalaust mikið til um tegundina/labrador.

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

ERUM Á LÍFI

10. október 2009 klukkan 23:35

Það er mikið að gera hjá okkur þessa dagana. Bæði í því að sinna hvolpunum sem eru nú að stökkbreytast í skæruliða(. Fyrirferðin í þeim og hávaðinn stig magnast.)...sem og að sinna verðandi eigendum.

Tókum myndir af rökkunum í dag. Kíkið í albúmin.Laughing 


Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

PELI Í STAĐ FJARSTÝRINGAR.

07. október 2009 klukkan 21:51

Jú,jú.......nú sitja karlmenn heimilisins fyrir framan sjónvarpið á kvöldin og gefa pela........hver haldiði að sé með fjarstýringuna.Cool

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

ŢEIR EIGA 2 VIKNA AFMĆLI Í DAG. HVOLPA RASSGÖTIN

06. október 2009 klukkan 14:06

Bara krúttlegir.

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

FORSÍĐUNA PRÝĐIR VALSHAMARS - VON 14 OG 1/2 MÁNAĐA GÖMUL.

05. október 2009 klukkan 16:27

Hann Óli sendi mér þessa dásamlegu mynd af henni Valshamars - Von. Finnst ykkur hún ekki falleg !!!!!! Finnst ykkur skrýtið að  það hafi fokið í mig á laugardaginn. :)


 
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

SLAGANDI

05. október 2009 klukkan 14:45
Þá eru þeir staðnir upp. Gangurinn er slagandi eins og þeir séu á 4.glasi. Ég ætla að reyna að fá Unni Freyju til að taka upp á video og setja á youtube.
Nú eru hvolparnir hver af öðrum að opna fallegu augun sín. Að opna augun og standa  í fæturna sína...þýðir bara eitt. Nú breytast þeir í skæruliða. Og þá hefst fjörið.
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

KÓRĆFING.

04. október 2009 klukkan 15:18
Hvolparnir ákváðu að hafa kóræfingu kl. 06 í morgunn. Fyrst var raddprófað, og er allur kórinn í hæsta sópran. Ég er bara svona að reyna að gera ykkur hugmynd um hávaðann. Það er búið að vera gestagangur í dag. Bara gaman.
Er að setja inn fleiri myndir.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

URRANDI SVEKKT

03. október 2009 klukkan 19:28
Vá var svo svekkt eftir sýninguna. Veit eiginlega ekki hvað mér á að finnast um dómarann. Valshamars - Viska fékk excellent og vann unglðaflokkinn. Henry með excellent og vann opna flokkinn. Aðal spaðinn eins og Kalli segr alltaf. En Valshamars - Von gekk ekki nógu vel. Fékk Good. Eins og hún er falleg. Hún er of þung og það eyðilagði svona over all fyrir henni. Svo sagði hann vanta í hana tennur. Alveg með ólíkindum ósanngjarnt.
Sem dæmi um tík sem fékk gulan borða núna/good, er tík sem hefur nánast alltaf fengið rauðan borða.
Fatta þetta ekki. En svona er hundaheimurinn. Sú sem fékk gulan borða núna gæti unnið grúppuna næst. Vá þetta getur verið svo leiðinlegt. 
Jæja en að öðru........Ég hitti Jóhann og kristínu á sýningunni og bauð þeim að koma og skoða hvolpana. það var Jóhann sem tók eftir því að ein lítil skotta er búin að opna annað fallega augað sitt, svo fallega blátt. Drottinn minn hvað þessi augu eru  dásamleg. 
Nú hvolparnir komnir með ólar. Ein tíkin er þó ómerkt. Hún er með hvítan blett á bringunni.
Við tókum myndir af hverjum hvolpi fyrir sig, Ætla að búa til sér albúm fyrir hvern fyrir sig. Og safna þar inn myndum. 
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

VAXTARĆKT.

03. október 2009 klukkan 00:11
Lítið annað en gott að frétta. Hvolparnir eru duglegir í vaxtaræktinni.  Það er svo undur sætt, að heyra þá æfa urrið sitt og geltið á meðan þeir sofa. Þeir eru líka farnir að reyna að stíga í litlu fæturna sína. Maður sér miklar framfarir hjá þeim á hverjum degi. Aukinn  styrkur og jafnvægi. Nú fer að styttast í að það fari að rifa í litlu bláu augun þeirra. Já augun eru blá/svört í byrjun. Svo breytast liturinn.
Við fengum heimsókn í kvöld. Bara innan fjölskyldunnar......Já ég passa alltaf upp á, að hvolpunum sé ekki rænt frá okkur. Leita á fólki áður en það gengur út........segi svona smá grín.  Það verður örugglega gestkvæmt um helgina. Bara gaman. Hlakka til að hitta hvolpafólkið mitt.
Það styttist í  að við fáum heimsókn frá Vestmannaeyjum, Egilsstöðum, og Suðurnesjunum. Mér finnst nú ekki leiðinlegt að hvolparnir mínir verði landsfrægir..he,he.
Ég hlakka til morgundagsins, að fara og hjálpa Kalla og Öglu með hundastóðið þeirra á HRFI sýningunni. Búin að taka til brúnu sýningartaumana mína og keppnisvasann minn. Allt klárt.
Ætla að taka eina pelaumferð og skríða svo í bælið mitt á gólfinu......huggulegt Cool ...en vitiði......ég er svo þreytt að ég gæti sofið hvar sem er. :) Góða nótt og hlakka til að sjá ykkur,heima og að heiman.Kiss
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

ŢEKKJA MIG

01. október 2009 klukkan 22:52
Við fengum ljúfa heimsókn frá fjölskyldunni í Sandgerði. Þau stoppuðu bara dágóða stund og við spjölluðum heilmikið. Mér líst voða vel á hvolpafjölskyldurnar.  Mikið er ég lánsöm.Laughing
Takk fyrir hlý skrif til okkar. Kveðjurnar ykkar skipta mig miklu máli 
Ég átti aftur stefnumót við strákana í Dýragarðinum í dag. Nú gekk ég út með 2 kílóa fötu af hvolpamjólk. Þjónustan áfram svo góð.........ég nefnilega gleymdi veskinu mínu heima. Það var nú ekki málið. Borga bara á morgunn......þetta fannst mér gamaldags og krúttlegt, og bar vott um traust. TAKK.

Eitt skemmtilegt. Eftir að hafa gefið öllum hvolpunum pela.....þá ákvað ég að leggjast aðeins hjá þeim. JÁ! ég kemst fyrir :)  Ekki leið á löngu þar til þeir flykktust til mín hver á fætur öðrum og fóru að leita að spena.Smile Held þeir þekki lyktina af mér og tengja hana við mat. DÁSAMLEGT.

Af Litlu Líf er það að frétta að hún virðist vera að braggast vel. Hefur gott af aukabitanum sínum.

Og að síðustu. Kalli hjá Bláskógaræktun/ á Henry. hringdi og spurði frétta af hvolpunum. Hann bað mig líka að vera sér innan handar á laugardaginn á kantinum við sýningarhringinn. Hann og Agla ætla að sýna 5 hunda. Vá þau dugleg. Ég ætla að vera á hliðarlínunni og hjálpa til. Það er mér mikil ánægja og gleði að hjálpa þeim.
Kári og Dagsi! Þið verðið uppi í stúku með dagskrána og fylgist með. Mæting hjá mér kl. 09. Ykkur 0930.




Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir