VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

ENDILEGA KÍKIÐ Á NÝTT ALBÚM........HVOLPARNIR Á HEIMASLÓÐUM.

29. nóvember 2009 klukkan 00:39

Já nú eru mér farnar að berast myndir af hvolpunum. Þessar myndir sem þið sendið mér eru mér mjög dýrmætar. Ég verð ykkur endalaust þakklát fyrir það að senda mér myndir af hvolpunum í daglegu lífi.

Þessar myndir munu fara inn á albúmið........HVOLPARNIR Á HEIMASLÓÐUM. 

Verið dugleg að taka myndir. :) 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

ÚTIVIST VIÐ HAFRAVATN.

28. nóvember 2009 klukkan 17:00

Við Vaka fórum með Tuma,Nótt og Freyju upp að Hafravatni. Nótt vildi rjúka strax út í og Freyja sullaði og buslaði með litlu fótunum sínum í ísköldu vatninu. Ég þurfti að halda aftur af henni að elta ekki mömmu sína út í aðstæður sem litla skottið réði ekki. En hún var sko til í tuskið. Tumi og Freyja skoppuðu um og léku sér, meðan við Nótt vorum í smá sækivinnu. Pössuðum að hafa útivistina hæfilega langa, eða stutta, eftir því hvernig maður lítur á það.

En mikið ofsalega fannst þeim gaman að komast upp að vatni.

Freyja var ekki til vandræða í bílnum. Róleg og góð.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

EITRAÐAR JÓLASTJÖRNUR

26. nóvember 2009 klukkan 23:40

Vil minna á það að blómið Jólastjarna er eitur fyrir hunda. Rautt blómið er freistandi að naga, sé komist í það. En það gæti farið illa. Sama má segja um annað jólaskraut. Skrautlegt og freistandi en ekki fyrir hunda.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

EKKI TÓMLEGT ENNÞÁ :)

23. nóvember 2009 klukkan 23:58

Nei, nei það er ekkert þannig tómlegt. Enn hef ég hana Valshamars - Freyju til að knúsa :) Hana fæ ég að hafa til 10.desember. :) Valshamars - Castro /Garpur fór til sinnar yndislegu fjölskyldu í dag. Jóhann og Kristín þið eruð frábær eins og allar hinar fjölskyldurnar. Við lékum góða stund í garðinum í dag. Síðan tók við að baða Garpinn og gera klárt fyrir brottför hans. Jóhann og Kristín komu færandi hendi með ostakörfu handa mér :) og leikfang handa Nótt. Þúsund þakkir fyrir. Já það má ekki gleyma því að frá einum fékk ég Kampavín og annarri fjölskyldu rauðvín og súkkulaði :) Enn og aftur bugta ég mig og beygi af þakklæti. :) Heppin ég :)


 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

PISS!

22. nóvember 2009 klukkan 10:44

Hann Valshamars - Orion sem fékk nafnið PRINS hjá fjölskyldunni sinni hefur nú fengið nýtt nafn. BANGSI sem mér finnst bara eiga vel við hann. :)

Yngstu fjölskyldumeðlimirnir hjá þeim áttu víst erfitt með að bera nafnið PRINS fram og það var alltaf verið að kalla PISS. :) Elísabet og Þorsteinn voru smeyk við að þetta PISS nafn mundi festast við glæsilega rakkann og vildu því skipta um nafn. BANGSI.

Krúttleg saga ekki satt :) 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

GENGUR VEL

19. nóvember 2009 klukkan 19:48

Það gengur vel með hvolpana. Ég er í góðu sambandi við hvolpafjölskyldurnar og hef endalaust gaman af því að fá að fylgjast með, og styðja við bakið á þeim eftir þörfum.

Garpur og Freyja eru hér í góðu yfirlæti. Þau eru svo skemmtilegir karakterar, og dásamlega falleg. 

Það er nú skemmtilegt að segja frá því að eigendur Garps lögðu það á sig að hreinlega flytja um íbúð. Af annarri hæð niður á fyrstu hæð, með velferð hvolpsins í huga. Dásamlegt fólk. :)

Garpur fer heim í nýju íbúðina á sunnudag eða mánudag. :) 

Eigendur Freyju telja niður dagana. Freyja verður hjá okkur til 11.desember. Mikið held ég að það verði gaman hjá þeim á Egilstöðum um jólin :)

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

AUGNSKOÐUN

16. nóvember 2009 klukkan 12:08

Þá er drottningin komin með tíma í augnskoðun. Það er yndislegt veður og ég ætla út með hvolpana tvo Freyju og Garp. Nóttina fögru og Tuma.

Ég vona að þið eigið öll afskaplega góðan dag.Laughing 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

GAMLIR GÓÐIR SIÐIR

15. nóvember 2009 klukkan 13:03

Þá höfum við Nótt tekið upp okkar gömlu siði. Ég klæddi mig í vetrargallann, náði í leikfangið góða. Handklæði. Plastpoka og taum. Við keyrðum rakleitt upp að Hafravatni. Á leiðinni hugsaði ég........hún fæst nú varla til að fara ofan í ....sjáum til. En viti menn. Nótt henti sér rakleiðis út í ískalt vatnið á eftir boltanum sem ég kastaði.
Ég kastaði full langt í fyrsta skiptið, það var mikill öldugangur. Við endurtókum leikinn 10x.Nótt sótti alltaf í vatnið. Héldum svo áfram aðeins á landi líka. Kuldinn beit í kinnarnar á mér, en mikið var þetta dásamlegt. Ég tók mig svo til þegar við komum til baka og burstaði feldinn hennar vel og lengi. Fyrir góða frammistöðu fékk Nótt bein, sem hún nagar nú af bestu lyst. Hún liggur á púðanum sínum úti í skála. Hjá henni liggur hann Valshamars - Skuggi/Moli sem bíður eigenda sinna, hreinn og strokinn :)
Hvolpunum gengur vel á nýju heimilunum sínum. Enda hörku fjölskyldur sem verða til fyrirmyndar í uppeldinu sem eiga þá. Ég fæ fréttir reglulega.Aðalfréttirnar eru hversu oft er búið að kúka og pissa ýmist úti eða inni. :) Allir í skýjunum yfir hvolpaskottunum fögru. Laughing sem eru að týnast heim þessa helgina.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

MODELS

12. nóvember 2009 klukkan 00:36

Þá er komin ein mynd í hvert albúm. Kíkið á það.Laughing

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

BRÉF FRÁ ALBERTI HUNDAÞJÁLFARA TIL YKKAR.

11. nóvember 2009 klukkan 22:32

Sæl Berglind

 

Fyrsti tíminn á hvolpanámskeiðinu verður bóklegur (hundarnir heima það kvöld)  og fer ég yfir allan útbúnað sem þarf fyrir hvolpana.

Annars er ég mjög strangur á að nota ekki útdraganlega tauma. Nota taum sem er ca. 1,5m og venjulega hálsól.

Ég er að reyna að hafa tímann á þriðjudagskvöldum.

 

Verð í sambandi þegar nær dregur.

 

Kv.

Albert

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HEILBRIGÐIS SKOÐUN. ÖRMERKING. BÓLUSETNING. ORMAHREINSUN

11. nóvember 2009 klukkan 21:21

Allir eru hvolparnir alheilbrigðir :) Öll eistun á sínum stað. Ekkert yfirbit. Ekkert kviðslit. Hjartahlustun og önnur líkams skoðun eðlileg. Katrín sagði þá rosalega flotta. Laughing Getið þið ýmindað ykkur hvað ég er glöð.......held ekki.

Þetta er alveg DÁSAMLEGT.

Svo kom hún Brynja Tomer frá Vís í heimsókn með alla pappíra sem þarf til að tryggja skottin. Flott þjónusta það :). Við hefðum sjálfsagt getað talað endalaust um hunda...ég á eftir að fræða ykkur meira um hundaheiminn.....í góðu tómi.

Við skruppum og fengum okkur pizzu í tilefni þess að Gauti er 17 ára í dag. Nú er ég aftur sest yfir pappírana. 

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

PAPPÍRSVINNAN AÐ KLÁRAST.

10. nóvember 2009 klukkan 22:49

Er búin að vera í pappírsvinnunni í dag. Ótrúlegur tímaþjófur Laughing.  Dýralæknirinn á morgun. Tryggingarnar og HRFI á fimmtudag. Og þá er allt að verða klárt. Eruð þið tilbúin??

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

LOKIÐ

09. nóvember 2009 klukkan 22:47

Myndatökunni er lokið og myndirnar komnar í hús.........Laughing

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

MYNDATAKAN.

08. nóvember 2009 klukkan 16:34

Fólkið hennar Valshamars - Vöku kom í heimsókn í dag. Það er orðið svo fyndið að sjá hvað fólk verður hissa þegar það sér hvolpana. Þeir nefnilega nánast tvöfalda stærð sína á milli vikna Laughing

Ríkey kíkir á Donnu í kvöld eftir vinnu. Já það er ýmislegt á sig lagt, en hún á jú leið hjá á heimleiðinni.

Myndatakan verður á morgun og hefst kl. 11 og hvað hún tekur langan tíma veit enginn. Laughing 

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

GESTKVÆMT

07. nóvember 2009 klukkan 16:38

Já það er búið að vera góðmennt og gestkvæmt hjá okkur í dag. Hector, Stormur og Prins fengu heimsókn. Miklir fagnaðarfundir og mikið knúsað. Það er orðinn mikill spenningur hjá öllum að fá skottin heim, og allt að verða klárt á öllum heimilum. Ég er endalaust þakklát fyrir allar þær frábæru fjölskyldur sem taka að sér hvolpana úr þessu goti. :) Glöð og róleg mun ég afhenda þá full trausti á það að þeir fái endalausa ást, hlýju, aga, gott uppeldi og mikla hreyfingu.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

FLOTTASTIR

07. nóvember 2009 klukkan 01:02

Ég ætla nú bara að gerast svo gróf að áætla að ég sé með flottasta brúna gotið sem hefur komið í einhvern tíma. Ég er alveg svakalega ánægð með þetta got. Hvolparnir allir svo jafnir og líkamsbyggingin fín. Andlitsfríðleikinn er með ólíkindum..........Já sorry guys það styttist svo í að þeir fari til síns heima að ég geri lítið annað en dást að þeim þessa dagana, og reyni að festa þá í minni. Ég eiginlega trúi því ekki að það sé að koma sá tími að þeir fari frá mér.Frown Það verða teknar af þeim professional myndir eftir helgina. Það verður verkefni.
Kalli Bridde/Bláskógapabbi, kom og kíkti á okkur. 
Framundan eru heimsóknarhelgi. 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hm!!!!!! hvaða hljóð var þetta ??????

05. nóvember 2009 klukkan 12:42

Spurði Vaka mig um þegar við vorum við það að sofna í gærkvöldi.. .......æ veit ekki svaraði ég, en fannst samt eins og ég kannaðist við það. Ég hefði betur tékkað á þessu. Hliðið á gerðinu var sem sagt ólæst, og það var þegar hvolparnir uppgötvuðu það, þeyttu því upp í sameiningu og þustu út í frelsið........þegar við heyrðum þetta hljóð, en brugðumst ekki við. Ekki að þeir hefðu getað farið sér að voða þarna í skálanum. Langt frá því.........en verkunin maður minn í morgunn. Ég held að ég sé ekkert að fara nánar út í þá sálma, því fólk er mis klígjugjarnt. Jukk.

Það fóru sem sagt 2 klukkutímar í að skúra og skrúbba skálann, og skafa upp þið vitið.  Þetta kennir manni að bregðast alltaf strax við. Hvolparnir voru æðislega hressir í morgunn. Búnir að vera í svaka partýi í skálanum að djamma í alla nótt. Þeir voru svo glaðir að sjá mig eins og alltaf.........og auðvitað gat ég ekki skammað þá. ÞVÍ ÞETTA VAR MÉR AÐ KENNA!!!!!!!!!.

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

FÓRU ÚT.

04. nóvember 2009 klukkan 21:01

Hector, Freyja,Garpur og Mocca fóru út í garð. Í þetta sinn tvö og tvö saman. Hvolparnir eru nú líka farnir að vera meira tveir og tveir saman inni hjá okkur til að umhverfisvenjast og svoleiðis. 
Hector var t.d. inni hjá okkur áðan........hann er hress. Stökk inn í sjónvarps skápinn eins og ekkert væri. :) og út aftur. Hann er uber hress. :) Það er komin dagsetning á heilsufarsskoðunina. 11.11.09 kl. 1530. Hún Katrín dýralæknir kemur hingað heim til okkar með allar græjur. Þetta verður talsvert verkefni :)
Svo verð ég að nefna það hvað ég er ánægð með að allir sem vettlingi geta valdið ætla saman á námskeiðið í janúar. Þetta verður svo gaman.

Flensan er á undanhaldi og ég get ekki beðið eftir að komast út!.

Nýjar myndir undir: ÝMSAR MYNDIR.

 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Já ÞAU ERU 6 VIKNA Í DAG.

03. nóvember 2009 klukkan 17:37

Afmælisbörn......eða þannig :) Voða spræk á afmælisdaginn eins og aðra daga. Carmel Donna, Bokki,Stormur og Vaka fóru út í dag........í taumi skal ég segja ykkur. Eitt í einu með mömmu sinni, og fengu að skoða garðinn. Prófa að ganga á grasi, mold og grjóti. Allt alveg hrikalega skemmtilegt og ekkert þeirra vildi koma inn aftur. :)
Þau fylgdu öll vel og voru ekkert ósátt við tauminn. :) 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HVOLPANÁMSKEIÐ

03. nóvember 2009 klukkan 11:24

Sæl veriði. Okkur býðst að komast á sér hvolpanámskeið  fyrir gotið í byrjun janúar, hjá einum virtasta og vinsælasta hundaþjálfara landsins. Það væri ótrúlega gaman að megnið af gotinu yrði saman á námskeiði. Hvað segið þið um það :)


 
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

SNEMMA BEYGIST KRÓKURINN

02. nóvember 2009 klukkan 18:16

Ég hef tekið eftir því að hvolparnir drösla öllu sem skiptir þá máli inn í búrin. Þeir draga á eftir sér tóma matardallana. Bangsana, nagbeinum og nú síðast heilli rjúpu.

Já hún Valshamars - Vera /Carmel Donna veigraði sér ekki við því að drösla með sér heilli rjúpu sem er ekki mikið minni en hvolpaskottið sjálft inn í búrið. 
Hvolparnir fá að kynnast rjúpnalyktinni þar til þeir fara frá okkur. :) 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

MARLEY AND ME

02. nóvember 2009 klukkan 15:01

Ligg hér eins og skata og horfi á eina af uppáhalds myndunum mínum  Marley and me......Laughing sem  mér finnst vera skylduáhorf allra sem eru að fá sér hund í fyrsta skiptið. 

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

NÝJAR MYNDIR.

01. nóvember 2009 klukkan 16:54

Setti inn myndir sem Auður sendi mér af Líf/CoCo og af Orion/Prins sem hún Elísabet sendi mér  og myndir af Veru/Donnu sem hún Ríkey tók og myndir sem hann Ólafur tók Takk guys. :) 
Hrikalega flottar myndir. Heimsóknum helgarinnar er lokið. Ég verð að biðjast forláts á því hvað ég var ömurleg í gestamóttökunni. Ég hef bara ekki lengi orðið svona lasin. Meiri ógeðs pestin þessi flensa.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd