28. desember 2009 klukkan 17:02
Þvílíkur dagur til útivistar. Algjört jólakorta veður. Ég fór með Vöku og vinkonu hennar í Ártúnsbrekkuna. Þar var fjölmenni eins og alltaf á góðum snjó degi, og mikil og skemmtileg stemmning. Fullorðnir urðu aftur börn.
Nótt var í taumi, en mikið langaði hana að geysast með upp og niður brekkurnar.
Ég fór nú með hana í góðan lausagöngutúr á meðan stelpurnar renndu sér. Hún kafaði með hausinn í skaflana, og naut lífsins í botn.
Eftir þetta fórum við og kíktum á Valshamars- Vöku. Það væsir ekki um hana frekar en hina hvolpana. Henni líður greinilega mjög vel. Ég stoppaði nú stutt við klædd í snjógallann og Vaka á leiðinni í 3.parvosprautuna með Siggu og Óla. Forsíðumyndin er af Valshamars - Vöku.
Ef veður leyfir gæti hugsast að ég fengi mér bíltúr suður með sjó á gamlársdag.
Berglind Gestsdottir
27. desember 2009 klukkan 21:48
Þetta er tíminn sem þið þurfið að hugsa vel um hundana ykkar. Hávaðinn og lætin geta gert þá mjög hrædda og fælt þá illa. PASSIÐ AÐ ÞEIR SÉU VEL MERKTIR.
Það er gott að vera duglegur í göngutúrunum milli jóla og nýárs því margir taka forskot á sæluna og byrja að sprengja eina og eina sprengju. Það getur undirbúið hundana aðeins undir það sem koma skal.
Mín reynsla er að hafa hundana mína hjá MÉR um áramót. Þá meina ég við hlið mér hvort sem ég er úti eða inni.
Hundinum líður best hjá ÞÉR. Öryggið er hjá þér. Og bæti hér við góðu innleggi frá henni Guðbjörgu vinkonu minni. HUNDAR HAFA EKKERT AÐ GERA Á BRENNUR!
Ef aðstæður bjóða ekki upp á að hundurinn sé með þér, þá er gott að reyna að koma hundinum fyrir í húsinu þar sem hann losnar við mestu háreystin, og hafa jafnvel kveikt á útvarpi í herberginu, eitt gott bein, og helst í búri.
Gleðilegt ár. Gott og farsælt komandi ár.
Berglind Gestsdottir
21. desember 2009 klukkan 17:43
Sæl öll sem eruð að fara á námskeiðið í Janúar. Var að senda ykkur tölvupóst. Vinsamlegast kíkið á hann.
JÓLAKVEÐJA
BERGLIND
Berglind Gestsdottir
14. desember 2009 klukkan 16:54
Hæ Berglind mín!
Vildi bara láta þig vita að það gengur vonum framar hér fyrir austan. Freyja er svo góð og fljót að aðlagast. Jóhanna Lilja er í skýjunum þessa dagana og talar við hana eins og vinkonu sína. Sigríður Fanney er aðeins óöruggari í kringum hana og vill helst hafa hana í smá fjarlægð en þetta er allt að koma. Sveinn hins vegar er búinn að eignast tvíburasystur!!! Það er svo gaman að fylgjast með þeim, Sveinn réttir henni dót og hlær og skríkir þegar hún vill leika. Hann er ekkert smeykur við hana, ýtir sér á rassinum á fleygiferð og Freyja á eftir, svo snýr hann sér undan og skrækir þegar hún reynir að sleikja hann. Alveg æðislegt, svo mikil gleði og kátína.
Bestu kveðjur, Katrín og co.
Berglind Gestsdottir
12. desember 2009 klukkan 15:21
Kæru vinir. Langar til að senda ykkur jólakveðju. Ég þakka ykkur fyrir vináttuna á liðnu ári, og það er ekkert lítið sem ég hlakka til næsta árs að fá að fylgjast með hvolpunum öllum halda áfram að vaxa og þroskast.
Ég vona að þið eigið dásamlegan tíma framundan með hundunum ykkar og fjölskyldunum.
coperið slóðina að neðan og paste-ið á stikunni............og þá sjáið þið jólakveðju, þar sem sem brúnn labbi er í aðalhlutverki.
http://www.jacquielawson.com/viewcard.asp?code=0212320003
Sendið mér svo jólamyndir :)
Berglind Gestsdottir
10. desember 2009 klukkan 22:50
Ættbækurnar duttu inn um lúguna í dag. Ég verð aftur á móti að fá að koma með þær til ykkar milli jóla og nýárs...því ég var svo lánsöm að ná mér í brjósklos. Það versta sem ég geri er að sitja í bíl :)...eða sitja bara svona almennt.
Ef þið viljið fá bækurnar núna....þá verðið þið bara að rúlla til mín :) Annars vona ég að ég verði orðin rólfærari eftir tvær vikur og þá kem ég til ykkar. Það er minn draumur að koma og sjá hvolpana á heimaslóðum.
Freyja fór frá okkur í dag. Það er svakalega tómlegt og við söknum hennar
MIKIÐ.
Njótið þess svo að vera til. :)
Berglind Gestsdottir
07. desember 2009 klukkan 23:52
VALSHAMARS - Vaka vakti gríðarlega athygli á dýraspítalanum, og ég held að fólk hefði ekkert horft minna þó að ég hefði gengið inn með Angelinu Jolie í taumi. Fólk var forvitið að vita hvaðan hún væri og auðvitað upplýsti ég allt um það. Dýralæknirinn spurði strax hvort hún væri Næturdóttir og fannst hún mjög fín og flott.
Vaka er 9,6 kg.
kv.
Ólafur og Sigga Stína
Berglind Gestsdottir
07. desember 2009 klukkan 19:33
hæ hó
Búin að fara með Dimmu í sprautu, allt gekk að óskum, hún er orðin 9.25 kg og ég held að Mocca hafi verið 10 kg fyrir helgina. Þær systur hittust í gær og var svo rosalegur hamgangur í þeim að Dimma var búin á því eftir heimsóknina, svaf í 10 tíma, missti af kvöldmatnum og var rauðeygð og dösuð um kl. 1 í nótt þegar hún vaknaði alveg að kafna úr þorsta og hungri :-). Auðvitað fór mútta gamla á fætur og sinnti dömunni sem sofnaði svo aftur, totally uppgefin...... Þær slógust svo svakalega í um 2 tíma, enduðu í blómabeði og það var frekar skondið að sjá þá bræður síðan vera á fjórum fótum hálfir inní sturtuklefa að skola þær eftir allan hamaganginn.
set með eina Dimmu mynd eftir GASSA, frekar mikið bjútý ;-)
Hitti annars hjá dýralækninu stærsta Labarador sem ég hef á ævi minni séð og fékk hálfgert áfall þegar ég uppgötvaði að hann er albróðir litla kjölturakkans míns..... :-) hólý mólí hvað hann var flottur en ég hef í alvöru ekki séð annað eins flykki.........Oliver heitir kappinn, svakalega karlmannlegur og glæsilegur herra. Oliver ræfillinn varð fyrir þeirri óheppni að fá aftan á fæturna á sér mannaða snjóþotu á þó nokkurri ferð. Ekki gott. Heyrði í Smára sem á Oliver og sem betur fór meiddist Oliver ekki illa við áreksturinn við snjóþotuna. Dýri fyrirskipaði hvíld að mestu í viku tíma. Oliver er 43 kg!
Berglind Gestsdottir
04. desember 2009 klukkan 18:06
Já þeir eru fljótir að vaxa og þyngjast. Fékk þær fréttir að Vetur er orðinn 37 kg. ., takk fyrir það. Oliver var og verður alltaf geysilega stór...hann er skriðinn yfir 40 kílóin. Það gengur vel hjá öllum.
Valshamars - Vera/DONNA er orðin 9,05 kg og læknirinn sagði hana gullfallega. Hún Ríkey er voða montin með hana, segir hana bræða allt og alla. Er róleg og meðfærileg.
Dýralæknarnir eru að tala um að það borgi sig að bólusetja hvolpana 3x vegna þess að parvo vírusinn sé víst skæður núna....eða að þeir eigi von á því að hann verði það. Allur er varinn góður.
Gleymdi að segja frá því um daginn, að hún Valshamars - Líf/DIMMA er búin að fara í myndatöku með fjölskyldunni sinni. Svo gaman. Ég vonast eftir fallegu jólakorti :)
Berglind Gestsdottir
03. desember 2009 klukkan 17:34
Enn og aftur vil ég minna ykkur á bólusetningu nr. 2. MIKILVÆGT!!!.
Ég fór með Valshamars - Freyju í sína seinni sprautu. Dýralæknirinn dásamaði fegurðina og geðslagið. :)
Hvernig er annað hægt :)
Valshamars - Freyja vegur nú 8,8 kg. Hún er mjög dömuleg í vextinum. :)
Hector fór í sprautuna í dag. Hann fékk toppeinkunn hjá dýralækninum. :) Hann vegur í dag 8,8 kg. :) Stormur hitti Hector hjá dýralækninum í dag. Það urðu fagnaðarfundir. Stormur heldur áfram að vera stór og mikill er 9,6 kg.
Garpur er búinn í sprautunni, Hann vegur 9,2 kg. Og þykir mjög flottur :)
NÝJAR MYNDIR AF HECTORI OG DONNU Í ALBÚMINU HVOLPARNIR Á HEIMASLÓÐUM.
Berglind Gestsdottir
02. desember 2009 klukkan 17:18
Grípa heilsufarsbókina með. Láta vigta í leiðinni :) Senda mér svo hvað hvolparnir eru þungir. Og myndir af þeim :)
Berglind Gestsdottir