VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

VON Í PÖSSUN

30. janúar 2010 klukkan 20:39

Þá er hún Valshamars Von komin í viku pössun til mömmu sinnar :). Því er skemmst frá að segja er að Tumi hélt að hann væri farin að sjá tvöfalt þegar mæðgurnar komu heim í gærkvöldi. Von er í svakalega flottu formi og mjög falleg. Hún hefur skapgerð pabba síns, er svakalega kelin og ljúf. Hún hefur svo sprengi orkuna frá mömmu sinni.......endalaust úthald og gleði. Það er gaman að fylgjast með samskiptum mæðgnanna. Nótt er við hana eins og litlu hvolpa skottin. Uppeldið heldur áfram.

Við fórum í langan lausagöngutúr í dag í góða veðrinu og það var aldeilis hlaupið.
 

Ég tek myndir af Von við tækifæri og skelli inn á síðuna.


Svo fékk ég sætt símtal frá Egilsstöðum, frá Katrínu sem á hana Valshamars Freyju. Þau eru alsæl með hana og það gengur mjög vel.

 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

DUGLEGIR!

19. janúar 2010 klukkan 23:53

Það var alveg stór skemmtilegt að hitta 6 af hvolpunum á námskeiðinu í kvöld.  Tíminn hófst með því að Albert gekk "stofugang"...þetta var svona húmor á milli mín og Ríkeyjar Laughing Eigendurnir settust á stéttina og lögðu hvolpana í slökun.Laughing og Albert gekk á milli og spurði hvernig hafi gengið að æfa sig heima oþh.

Algjörlega óborganleg sjón. Hvolparnir eru allir mjög yfirvegaðir og góðir og standa sig með mikilli prýði á námskeiðinu.
Ég verð nú að hrósa eigendunum fyrir þeirra dugnað á námskeiðinu. Þið eruð að standa ykkur mjög vel. 

Eftir námskeiðið skruppum við Nótt í heimsókn til hans Valshamars - Skugga/MOLA. Hann býr í Vestmannaeyjum en er núna hér uppi á landi.
Hann er að vaxa vel upp, er mjög rólegur og Særún og Sibbi alsæl með hann.




 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

DIMMA OG BOKKI

17. janúar 2010 klukkan 16:04

Áttum aldeilis frábært kvöld með hinni fögru Dimmu /Valshamars - Líf. Mikið borðað hlegið og skemmt sér.

Svo áttum við Nótt stefnumót við Bokka /Valshamars - Dag, núna áðan uppi við Hafravatn. Hann lét sig vaða á eftir mömmu sinni út í vatnið. Bokki er forkunnar fagur og dásamlegur.

Ég hlakka til að vera á kantinum með Ingu á þriðjudaginn á námskeiðinu. HLAKKA TIL!!!!!!! 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

GOT! UNGVERSK VIZSLA

16. janúar 2010 klukkan 12:23

Sæl öll. Af okkar hvolpum er allt gott að frétta. Ég er svo heppin að Molinn sem býr í Vestmannaeyjum er núna uppi á landi, og ég hlakka mikið til að hitta hann. Svo erum við að fara að hitta hana Dimmu í kvöld :)


Annars vil ég endilega láta vita af glóðvolgu goti.


Eina Ungverska Vizlugotið sem er í gangi núna. Í nótt fæddust 5 hvolpar undan Míu og Bassa. Móður og hvolpum heilsast afbragðs vel. Ég þekki mömmuna vel, og hefur hún verið mikið í veiði með eiganda sínum. Bassa fékk ég að berja augum og eiga með honum kvöldstund, og þetta er stórglæsilegur rakki, og skapgerðin í báðum hundum einstök. Þetta eru miklir fjölskyldu hundar.

Þið sem hafið áhuga á Vizlum eða þekkið einhverja sem eru að spá í að fá sér vizlu geta kíkt á www.miasol.bloggar.is Það eru komnar fullt af myndum af nýfæddum hvolpunum.




Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Alberti hundaþjálfara

13. janúar 2010 klukkan 22:20

Líst vel á hvolpana og eigendur þeirra. Hann hlakkar til að fá að taka þátt í ýta þeim úr vör :)

Fyrsta verklega æfingin gekk vel. Ég hef sterka heimildarmenn og fæ upplýsingar um hvernig gengur úr innsta hring ;)

Ég stefni að því að koma næsta þriðjudag og berja skottin augum. 

 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

HVOLPANÁMSKEIÐ OG MYNDIR AF BRÚNÓ 17 MÁNAÐA.

07. janúar 2010 klukkan 00:17

7 af hvolpunum byrjuðu á námskeiði í gær. Það er rosalega gaman að fara á þessi námskeið og bráð nauðsynlegt.
Hvolparnir eru á frábærum náms aldri núna. Ég á von á að þeim muni ganga vel.:)

Svo var hann Skarphéðinn að senda mér myndir og fréttir af Brúnó. Hann er úr fyrra gotinu og er 17 mánaða gamall. Það gengur allt vel með hann. Myndin af forsíðunni er af honum. GLÆSILEGUR og gullfalleg mynd.
Hvet ykkur til að skoða fleiri myndir af honum og fleirum á hvolparnir á heimaslóðum. 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

LOKSINS FRÉTTIR AF FREYJU.

05. janúar 2010 klukkan 19:05

Sæl Berglind mín og gleðilegt nýtt ár, vona að nýja árið verði þér gæfuríkt.
Ætlaði fyrir löngu að vera búin að senda þér fréttaskeyti, tíminn er svo fljótur að líða. Af okkur er allt gott að frétta, Freyja dafnar vel hjá okkur og alveg sama hvar við komum alltaf vekur hún eftirtekt, og ekki bara vegna þess hvað hún er falleg heldur líka er eftirtektarvert hvað hún er góð, róleg og yfirveguð. Svo er fólk alveg hissa á hvað hún er hlýðin, ekki eldri en þetta. Já, við erum sko stolt af 
.henni Freyju okkar, er svo ánægð með hana. Auðvitað er hún að naga eitt og annað en henni er fljótt fyrirgefið, það eru aðallega snuðin hans Sveins sem fá að kenna á nagþörfinni, er búin með fimm!!!!
Sendi með nokkrar myndir af "tvíburunum mínum", þau eru bara yndisleg saman!!!! 
Bestu kveðjur frá okkur öllum, Katrín og co.

PS. Er búin að setja fullt af myndum inn í filinn "hvolparnir á heimaslóðum" sem ég hef fengið sendar frá hvolpaskottunum. TAKK FYRIR MYNDIRNAR :)

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

ÁRAMÓTIN

03. janúar 2010 klukkan 13:58

Gleðilegt ár elskuleg!. Er nú búin að fá fréttir af flestum hvolpunum frá því á gamlárskvöld, og mér heyrist að þeir hafi ALLIR staðið sig betur en mamma sín :)....Henni finnst þetta rakettuvesen eins og hryðjuverkaárás. Skelfur eins og hrísla og hjartslátturinn upp úr öllu valdi. Verst finnst henni ef ég er eitthvað að þvælast út í þessi læti....og fer með, því henni þykir öruggara að passa upp á kellinguna..

Ég skutlaðist á suðurnesin með ættbækurnar. Ég hitti á Hector, sem er að þroskast vel upp, og er voðalega fallegur og fjölskyldan stolt af honum.  Ég rétt fór á mis við Storminn, sem fékk ættbókina inn um póstlúguna.........mér skilst reyndar að einhver hafi verið heima með hundinn.........en sá var á nærbrókinni og þorði ekki fyrir sitt litla líf að opna fyrir þremur blaðskellandi kvensum.:)

Á Keili kom ég að tómum kofanum, en fékk fljótlega símtal þess efnis að eftirnafnið hans Jóhanns væri vitlaust skrifað og hljómaði frekar pólskt sem hann var ekki alveg sáttur við :)

Við komum við í Keflavík á Heiðarbrautinni og heilsuðum upp á Vetur, úr fyrra gotinu. :) Hann er orðinn svo stór og karlmannlegur. Miklu stærri en mamma sín t.d.

Á leiðinni til baka, heimsóttum við Mocca og Dimmu. Dimma var semsagt í pössun hjá Mocca systur sinni.

FALLEGAR! ekkert smá. En jafnframt svo ólíkar.

Þá eru tvær ættbækur eftir. Skugga...sem ég þarf að drífa í póst, og hennar Dimmu.

Ég vona að ykkur muni ganga vel með hvolpana á þessu nýja ári. Munið að þetta er vinna og verkefni.

Svo er það fyrsti tími á námskeiði á þriðjudaginn. Munið að mæta hundlaus. GÓÐA SKEMMTUN. Ég verð svo eins og grár köttur...kem og kíki á ykkur á námskeiðunum. :)

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd