VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

HITTI HVOLPANA Á NÁMSKEIÐINU

09. febrúar 2010 klukkan 21:39

Fór og hitti hvolpana sex sem eru saman á námskeiðinu. Í kvöld var erfiður tími í Nauthólsvík.  Það reyndi mikið á athyglina og einbeitinguna hjá skottunum. Nýr staður og mikið af umhverfisáreitum. Veðrið var mjög gott og gaman að hitta eigendurna líka.

Verð líka að segja frá því að hann Garpur kom í heimsókn um helgina, með Jóhanni og Kristínu.

Ég er voðalega þakklát fyrir það hvað þið eruð dugleg að vera í sambandi öll og leyfa mér að fylgjast með.

Von fékk svo sína eigendur heim frá útlöndum og ég held bara svei mér þá að hún hafi lært nokkra góða siði af mömmu sinni á meðan á dvölinni stóð.

Oliver ræfillinn/18mánaða var svo óheppinn í dag, að slíta liðband og fór í aðgerð. Ég mun fylgjast vel með honum.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd