31. mars 2010 klukkan 21:35
Ég verð að biðja ykkur afsökunar á myndasíðunni. Það virðist eitthvað vera að. Ég reyni að komast að því hvað veldur.
Bestu kveðjur og gleðilega páska. Njótið hvers einasta dags :) með voffunum ykkar :)
Berglind Gestsdottir
30. mars 2010 klukkan 22:22
Hann Garpur kom og hitti okkur Nótt upp við Hafravatn. Veðrið var dásamlegt og mæðginin léku sér.......í allt að tvo tíma. Nótt var til í sundið, en var treg til að fara langt.......og við sem sagt týndum því boltanum okkar .)....again. :) Ég kastaði helst til langt og Nótt ekki til í langa vegalengd. Garpur skottaðist í vatninu með henni.
Garpur er að vaxa mjög fallega upp. Kristín var með myndavél og tók myndir af honum. Hann er þvílíkur POSER, og stillti sér flott upp í gríð og erg. :)
Þær fréttir koma frá Egilsstöðum að Freyja þykir mjög efnileg í veiði, skv. hörðustu veiðiköllunum þar. Ég er rosa ánægð með það.
Ef ég spyr frétta af Freyju, kemur svarið. Allt guðdómlegt. Það gengur semsagt bara vel. :)
Moli er væntanlegur frá Eyjum um páskana, og þá ætla ég að mæla mér mót við hann. :) Það er óneitanlega erfitt að hafa hvolpana langt frá sér.
Mér finnst líka heldur langt í Suðurnesin.......er farin að skilja hana Auði Valgeirs, að hún vilji hafa þá alla innan borgarmarkanna. Ég er alltaf að hugsa um hvolpana..........alla daga :) sakna þeirra allra úr fyrra og seinna goti :)
Berglind Gestsdottir
19. mars 2010 klukkan 23:45
Er svona smám saman að frétta af niðurstöðum úr hvolpanámskeiðunum. Mér sýnist þetta vera 9,0 - 9,5 á línuna.
Þorsteinn kemst ekki yfir það hvað hann Bangsi hans er gáfaður........fékk 9,0 í BÓKLEGU :)
Bangsi á orðið sína eigin heimasíðu...aðallega komnar þar inn myndir, en ég vænti þess að þau Þorsteinn og Elísabet verði dugleg að skella inn fréttum og svoleiðis. Ég mun verða þarna inni á eins og grár köttur ;)
Þið getið fylgst með líka. linkurinn hans er hægra megin á síðunni okkar .
Berglind Gestsdottir
16. mars 2010 klukkan 21:18
UBER SKVÍSAN VALSHAMARS VISKA ER MEÐ A - MJAÐMIR OG A-OLNBOGA.
Kalli! Innilega til hamingju.
Berglind Gestsdottir
16. mars 2010 klukkan 20:20
Berglind Gestsdottir
16. mars 2010 klukkan 17:34
Þá hafa 9 hvolpar af 11 lokið hvolpanámskeiði og það með láði. MJÖG GOTT. Hvolparnir tveir sem ekki hafa lokið námskeiði búa annars vegar í Vestmannaeyjum og hins vegar á Egilsstöðum,þar sem framboð námskeiða er minna en hér í þéttbýlinu.
Það er allt gott að frétta af hvolpum og mönnum. Ég afla mér mjög reglulega frétta, og ég leit t.d. á Bokka á laugardagskvöldið. Fagnaðarfundirnir voru gífurlegir og svo horfði hann dapur á eftir mér eins og hann sæi mig ALDREI aftur. En ég kem aftur engar áhyggjur af því. Það er svo gaman að fylgjast með hvolpum og eigendum,þroskast saman.
Ég fæ mikið af fyrirspurnum um næsta got og best er að hafa samband í tölvupósti, svo ég geti sett ykkur á listann. www.berglind_1@hotmail.com
Bestu kveðjur til ykkar allra :)
Endilega senda mér myndir af hvolpunum :)
Berglind Gestsdottir