VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

TIL GAMANS.

30. apríl 2011 klukkan 23:10
2007 í Fossatúni í Borgarfirði mætti ég með fallegu Nóttina mína á sýningu, þar sem henni gekk vægast sagt mjög vel. Það sem er nú samt skemmtilegast við  þessa sýningu og skiptir máli í dag.....er að Nótt var valin besta tíkin og keppti því við besta rakkann....sem var SKAFTÁR CERES/ NÖKKVI :) Þau öttu svo kappi um besti hundur sýningar og það var ekkert flóknara en svo að Nótt vann hann. Það er því ekki leiðinlegt að para saman tvo svona glæsilega hunda.
Ég bjó til albúm þar sem ég setti inn sitthvora myndina af Nótt og Nökkva sem var tekin á þessum tíma.
 
Berglind Gestsdottir

DAGUR 11

30. apríl 2011 klukkan 13:31
Nökkvi er hjá okkur í dag. Nótt er nú farin að standa fyrir hann og þá reikna ég með að hlutirnir fari að gerast.
Kappinn farinn heim . Næsti hittingur á morgunn.
 
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

DAGUR 10

29. apríl 2011 klukkan 23:09
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

EGGLOS TÍMI FRAMUNDAN

28. apríl 2011 klukkan 15:48

Blóðprufa sýnir hækkun á progesteroni sem þýðir að Nótt fer að detta í egglos. Hún var þó ekki tilbúin áðan þegar Nökkvi kom í óvænta heimsókn,heldur settist hún á rassinn og gelti hvellt á hann. :) Þau munu hittast reglulega á næstunni.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

DAGUR 9

28. apríl 2011 klukkan 13:53
Þar sem við erum flutt í miðbæinn, fannst mér viðeigandi að heimsækja dýralækni í nágrenninu. Finnst nauðsynlegt að vita af einum slíkum við túnfótinn ef eitthvað kemur upp á. Við heimsóttum Helgu Finnsdóttur. Hún tók strok hjá Nótt og blóðprufu, og við bíðum nú eftir niðurstöðum hvar hún er stödd í egglosferlinu, set það inn á eftir.
Nótt og Nökkvi byrja að hittast á morgunn.
Hann Kjartan vinur minn hjá Propac kom við hjá mér með mat fyrir Nóttina. Alltaf jafn yndislegur.
Langar til að benda á heimasíðu Helgu Finns. www.dyralaeknir.com þar eru ýmsar fróðlegar greinar sem vert er að kynnar sér. 
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

DAGUR 8 OG NÝ MYND AF SKAFTÁR CERES/NÖKKVA Í HANS ALBÚMI.

27. apríl 2011 klukkan 16:49
Nótt fékk góða viðrun í dag. Taumgöngu og svo leik með bolta sem þó er alltaf sækivinna og skila. Öllu gamni fylgir einhver alvara.
Það er um Nökkva að segja að hann er mikill veiðihundur og hefur farið í ófáa túrana og sótt ansi marga fugla.  
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

DAGUR 7

26. apríl 2011 klukkan 11:43

Nótt gerist leitarhundur í dag ;) Vinkona Vöku týndi úrinu sínu á einhverjum leikvellinum, og það verður missionið okkar í dag að finna það. :)

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

DAGUR 6 OG ÉG FÓR OG HEIMSÓTTI DRAUMAPRINSINN.

25. apríl 2011 klukkan 17:46

Þvílíkt geðslag. Algjör draumaprins. Ég skoðaði rakkann mjög nákvæmlega og hann er hraustur yfirvegaður og dásamlegur. Sat í góðu yfirlæti  með eigandanum og áttum gott spjall, meðan ég fylgdist með rakkanum.
Ég tók nokkrar myndir sem eru ekki nógu góðar en á von á betri myndum sendum frá eigandanum. 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

DAGUR 5

24. apríl 2011 klukkan 14:31

Gleðilega páska öll sem fylgist hér með. Veðrið er svo bilað..........að við Nótt erum bara heima og höfum það kósý.Bætum úr því á morgun. JÁ! aldrei er gömul vísa of oft kveðin. SÚKKULAÐI er hættulegt hundum.
Passið páskaeggin. 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

FAGNA FRÉTT UM LAUSAGÖNGU HUNDA Á STÖÐ 2 Í KVÖLD.

23. apríl 2011 klukkan 18:43
Algjörlega óþolandi.Lausaganga hunda á Seltjarnarnesi ógnar varpi fugla.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

VIÐ FÖRUM BARA EINAR Í GÖNGUTÚR :( á DEGI 4.

23. apríl 2011 klukkan 11:55
Lóðatíkur eru ekki vel séðar í hópgöngutúra.......þannig að við förum bara í okkar eigin tveggja manna göngutúr.
Við förum þá bara næst með Retriever hópnum, sem verður í maí. Ég vona að það verði góð mæting í Nauthólsvíkina. 
Annars er stefnan hjá mér að reyna að heimsækja draumaprinsinn hennar Nætur. 
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

ALDEILIS FRÁBÆR DAGUR.

22. apríl 2011 klukkan 21:47

Já góður dagur að baki. Það styttist í að hitt og þetta megi ekki, þannig að Nótt fékk frábæra útivist í dag. Við heimsóttum Míu Vizlu í Hvalfjörðinn í dag. Þar var synt í sjónum og hlaupið um víðan völl. Fátt er eins gott og sjóbað.
Lyktin af drottningunni var þó ekki mjög góð eftir daginn, og fékk hún því gott bað þegar heim var komiið. 
Nú liggur hún alsæl og slök eftir góðan dag og  góða kvöldmáltíð ........kjúkling og hrísgrjón.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

DAGUR 3.

22. apríl 2011 klukkan 13:08
Nótt er svo væmin þessa dagana :) að tekið er eftir. Þessi elska sættir sig við allt ...líka ömurlegu lóðabuxurnar, sem elsti minn spurði hvort væru tailor made fyrir hana, því hann hreinlega tók ekki eftir því að hún væri í þeim :)
Hún fær að vera laus við þær á næturna og þegar við erum úti í taumgöngu. Ekkert til sem heitir lausaganga þessa dagana. Sem  gott dæmi um hversu vel maður þarf að passa lóðatíkur er, að, á miðnætti í fyrrakvöld fór ég út í myrkrið með Nótt í taumi að pissa fyrir nóttina. Ég stóð þarna í rólegheitum og Nótt að sinna sínu þegar inn í garðinn kemur hreinlega fljúgandi svartur labrador rakki og það engin smásmíði. Hann gerði sig strax líklegan til að stökkva á hana og ég mátti hafa mig alla við að bægja honum frá. Eigandinn kom svo hlaupandi að ná í hann.
Þessi rakki er "nágranni" minn.....og það styttist í að eigandinn fái kvörtun.
Rakkinn ásamt fleiri hundum í því húsi eru nefnilega lausir í garðinum, og því er stöðugt haldið fram að þeir fari aldrei út úr garðinum.............mér er aftur á móti orðið nóg boðið. Inni í minn garð koma þessir rakkar og merkja og mér finnst ég aldrei örugg með mína tík. Þeir fara nefnilega úr garðinum svo mikið er víst.
Ég er nýflutt í miðbæ Reykjavíkur og ég hef ALDREI séð eins mikla lausagöngu hunda.
Gerið það fyrir mig þið sem eigið hunda að hafa þá í taumi. Virðið umhverfið og aðra. Passið upp á hundana ykkar.
Mér verður líka oft hugsað til þessa nágranna minna, sem eiga þessa hunda sem eru lausir......hverjum mundu þeir kenna um ef keyrt yrði á hundana þeirra? 
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

GÖNGUTÚRARNIR ERU SPES

21. apríl 2011 klukkan 11:52
Nótt tekur svona tíu skref og svo þarf hún alveg bráðnauðsynlega að merkja. Það hlýtur að vera spaugilegt að sjá okkur á ferðinni þegar ég skunda áfram og svo sest hún allt í einu og ég rykkist til baka.
Nótt er nú á degi 2. 
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

20.apríl 2011. Dagur 1.

20. apríl 2011 klukkan 21:38

Fyrsti dagur lóðarís. Spennan eykst.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

GÖNGUTÚR MEÐ VALSHAMARS MOCCU OG VALSHAMARS LÍF.

19. apríl 2011 klukkan 10:54

Við Nótt ætlum að skella okkur í skemmtilega göngu :) Já það get ég sagt ykkur að þetta var gaman.
Þær eru fallegar systurnar og ofsalega ólíkar. Mocca er að vaxa svo fallega upp. Hún er með höfuðlagið hans Henrys og virðist hafa geðslagið frá honum líka. Frábært að sjá hvað hún var flott í taumgöngu með Gunnhildi. 
Ég "reyndi" að taka myndir....af þeim hlaupandi út um allt, og einbeitti mér að því að ná myndum af Mocca.
Smá mont :) það stoppaði maður og spurði okkur út í hundana og dáðist að þeim.....svo sem ekkert nýtt fyrir okkur :) he,he.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

PASSED WITH FLYING COLORS :)

18. apríl 2011 klukkan 16:46

Nótt flaug í gegnum heilbrigðisskoðunina. Dýri sagði hana, eftir skoðun og allskyns þreifingar, hrausta og í flottu formi.  Nótt hefur einfaldlega alltaf verið hraust og ekki orðið misdægurt. Ég vil meina að það sé auðvitað fyrir alla ástina og umhyggjuna, en ekki síst það að hún hefur verið frá fæðingu á sama matnum frá PROPAC, sem virðist vera kjör maturinn fyrir hana og hennar hreysti.
Bólusetningin hennar er enn í gildi, þannig að hún fékk nokkur stykki ormahreinsitöflur í kæfu :) 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HEILBRIGÐISSKOÐUN

18. apríl 2011 klukkan 14:48
Ætla að kíkja í Víðidalinn með Nótt í heilbrigðisskoðun, ormahreinsun og svoleiðis.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

23.apríl.Laugardagur.Taumganga í Nauthólsvík á vegum Retrieverdeildarinnar.

17. apríl 2011 klukkan 21:33
Saturday, April 23 at 1:00pm at Ylströndin í Nauthólsvík
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

SKEMMTILEGT Í SÓLHEIMAKOTI

17. apríl 2011 klukkan 14:32

Góður morgunn í Sólheimakoti. Albert fræddi okkur um hlýðni og þar kom t.d. fram að versti óvinur hælgöngu þjálfunar er FLEXITAUMURINN, enda hefur mér alltaf fundist það alveg fáránlegt fyrirbæri...sérstaklega á stóra hunda. Eftir skemmtilegan fyrirlestur fórum við út í æfingar, sem reyndu jafn mikið á hunda og eigendur. Afskaplega gott mál.
Mætingin var góð um 20 hundar og að sjálfsögðu alla vega jafn mikið af fólki ef ekki bara aðeins fleiri :)
Veðrið lék við okkur. Myndirnar af okkur tók hún Sólrún Dröfn :) Sólrún tók fullt af myndum sem sjá má inni á fb. retrieverdeild hrfi

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

MINNI Á SÓLHEIMAKOTIÐ Á MORGUN/SUNNUDAG KL. 11

16. apríl 2011 klukkan 12:15
ALBERT HUNDAÞJÁLFARI Verður með léttan fyrirlestur um hlýðni og retriever hlýðni. Svo röltum við á eftir.
Vonast til að sjá sem flesta VALSHAMARS HUNDA OG FÓLK :) 
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HEIMSÆKI VALSHAMARS - VÖKU. VALSHAMARS- SKUGGI ER Í EYJUM MUNDI ANNARS MÆTA Á SUNNUDAGINN.

15. apríl 2011 klukkan 17:54
Valshamars Vaka er að lóða og getur því ekki verið með okkur á sunnudaginn. Ég ætla því að heimsækja hana á morgunn. Hennar fjölskylda var að fá nýjan fjölskyldumeðlim...lítinn kettling, sem hún er víst svo yndislega góð við. :) Vaka verður tveggja ára í september. Ætla að grípa með mér myndavél.

Valshamars-Skuggi getur heldur ekki verið með okkur á sunnudaginn. Hann býr í Vestmannaeyjum. Það er líka gaman að segja frá því að hann er nýbúinn að eignast "bróðir" Cavalier hvolp sem hann fer svo ofur varlega að,og eins og Vaka leyfir litla dýrinu að djöflast í sér endalaust.  Ég er svo ánægð með geðslagið í þessum hundum frá mér :)
 
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

LÖGUM UM GÆLUDÝRAHALD BREYTT.

15. apríl 2011 klukkan 15:40
Alþingi samþykkti í dag breytingar á lögum um gæludýrahald í fjölbýlishúsum. Hér eftir verður hunda- og kattahald í fjölbýlishúsum háð samþykki tveggja þriðju hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang.

Áður þurfti samþykki allra íbúa fjölbýlishúsa en breytingartillaga Helga Hjörvar gekk út á að aðeins þyrfti samþykki tveggja þriðju hluta íbúa.

Tillagan var samþykkt með þrjátíu og sjö atkvæðum gegn þremur, en Katrín Jakobsdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir og Vigdís Hauksdóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni. Þá var einnig samþykkt að sé íbúi blindur eða fatlaður á annan máta þannig að hann þurfi á sérþjálfuðum leiðsögu- eða hjálparhundi að halda sé honum heimilt að halda slíkan hund óháð öðrum íbúum.

Þó skuli kærunefnd húsamála leita lausna á málum ef íbúi fjölbýlishúss er með ofnæmi fyrir hundum eða köttum á svo háu stigi að sambýlið við leiðsögu- eða hjálparhund sé óbærilegt.

 

frettir@ruv.is

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HITTINGUR

14. apríl 2011 klukkan 11:08
Opið hús í Sólheimakoti sunnudaginn 17. apríl 

Deildin verður með opið hús sunnudaginn 17. apríl frá kl. 11:00 - 14:00.  Albert Steingrímsson, hundaþjálfari, ætlar að koma og fræða okkur um almenna hlýðni og Retriever hlýðni.  Heitt verður á könnunni og tækifæri gefst síðan til að fara út að æfa eða fara í göngutúr um svæðið.

NÚ LEGG ÉG TIL AÐ VIÐ HITTUMST Á SUNNUDAGINN Í SÓLHEIMAKOTI KL. 11. HLUSTUM Á ALBERT, OG HREYFUM OKKUR SVO MEÐ HUNDANA Á EFTIR.

ÉG MUNDI GJARNAN VILJA SJÁ HUNDA ÚR BÁÐUM GOTUNUM :) <3

KOMA SVO!

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

FYRIR ÞÁ SEM EKKI ERU Á FACEBOOK.

13. apríl 2011 klukkan 23:00

Þrír ungliðar frá Valshamars voru sýndir á febrúar sýningu HRFI, Valshamars - Dagur, Valshamars- Líf og Valshamars - Freyja. Þau komust öll í verðlaunasæti í sínum flokki og fengu rauðan borða/Excellent og flotta dóma.
Fyrst og fremst eru þó Valshamars hvolparnir dásamlegir fjölskylduhundar. Fegurðin er auðvitað frábær bónus :) 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

AUGNSKOÐUN.

13. apríl 2011 klukkan 22:36

Þá er Nótt búin að fara í augnskoðun í þriðja skiptið. Hún fékk mjög góða augnskoðun og kom vel út úr henni. Perfect eyes og engir arfgengir augnsjúkdómar.
Það styttist í lóðarí hjá drottningunni :) 

Berglind Gestsdottir