19. júní 2011 klukkan 19:12
Hún Valshamars Vera/DONNA leitar að góðu fósturheimili í ca 6 mánuði. Donna verður 2 ára 22.september. Ef þið vitið um gott heimili fyrir hana þá endilega verið í sambandi við hana Ríkey í síma 8922219. Hún gefur ykkur frekari upplýsingar.
Berglind Gestsdottir
16. júní 2011 klukkan 20:40
Búi þeir í þéttbýlinu og fjölskyldan með bæjarferð á prjónunum. Hundar hafa ekki ánægju af hávaða, kraðaki og þrengslum.
Berglind Gestsdottir
16. júní 2011 klukkan 00:31
Nóttin mín fagra á 5 ára afmæli í dag :) Hraust og dásamleg.
Berglind Gestsdottir
13. júní 2011 klukkan 14:30
Nottin hljop frjals ferda sinna alla helgina i sveitinni um fjoll og firnindi og synti i am og sjo. Vedrid var gudomlegt.Svona viljum vid hafa lifid.
Berglind Gestsdottir
06. júní 2011 klukkan 14:24
Skv. sonarnum saust engir hvolpar hja Nottinni fogru i thetta sinn. Nott lodar naest i november og ta endurtokum vid porunina.
Endilega sendid mer post og latid mig vita hvort tid viljid vera afram a lista. Vid Nott dembum okkur i sumarid og tokum hressilega a tvi.
Hafid thad aedislegt i sumar oll somul. Eg mun skrifa herna inn a hvad vid Nott erum ad bardusa til gamans.
Berglind Gestsdottir
06. júní 2011 klukkan 09:31
Berglind Gestsdottir
05. júní 2011 klukkan 16:41
Er svo ánægð með daginn :) Valshamars Líf/DIMMA stóð sig frábærlega í umsjón hennar Auðar í dag.
Dimma varð í 3.sæti í unghundaflokknum og fékk Very good...sem þótti mjög flott í dag :) Umsögnin hennar var líka alveg til að vera montin yfir. Hún fór svo í augnskoðun og er með Excellent augu og engin merki um arfgenga sjúkdóma. Ég tók þetta fína video af þeim stöllum.......sem virðist ekki vilja hlaðast inn, en ég hætti ekki að reyna fyrr en í fulla hnefana. Ég vonast svo eftir myndum af Dimmu og set þær um leið inn.
Það var líka gaman í stúkunni þar sem við sátum í hnapp ræktendurnir. Það var góð stemmning í hópnum. :)
Berglind Gestsdottir
04. júní 2011 klukkan 22:40
Ég hlakka mikið til að sjá hana Dimmu í hringnum. Hún og Auður verða flottar saman. :) Ég mæti kl. 09
Berglind Gestsdottir
03. júní 2011 klukkan 13:18
En nú er sónarinn að bresta á á mánudaginn kl 13 Það bíða margir spenntir. Ég verð því fegnust að létta á óvissunni.
Berglind Gestsdottir
02. júní 2011 klukkan 10:11
Þegar ég hef parað Nótt þá er ég með hana í gjörgælsu nánast í þrjá mánuði. Hún fær ekki að þefa af annarra hunda hlandi eða skít, því ég er dauðhrædd við umgangspestir. Hún fer eingöngu í taumgöngur sem já henni finnst leiðinlegar en lætur sig hafa.
Í dag förum við þó á öruggan stað, upp í Kjós rétt til að sjá hvernig kotið hefur komið undan vetrinum.
Þar fær hún að hlaupa frjáls eins og hún vill innan öruggra girðinga. Já ég passa drottninguna mína vel.
Berglind Gestsdottir