VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

1)
REGLUR
 Áður en þið sækið hvolpinn,þá skuluð þið fjölskyldan setjast niður og ræða málin. Setjið strax reglur sem snúa að hvolpinum og heimilinu. Það er mikilvægt að allir sendi hundinum sömu skilaboðin. Hvað má og hvað ekki. Misvísandi skilaboð geta gert hundinn óöruggan.
Sem dæmi um húsreglur. Má hvolpurinn vera uppi í sófum, rúmum.
Ekki er gott að leyfa hundi að vera uppi í einum sófa en ekki öðrum.
Skýr regla er: Nei eða Já. Sófinn eða ekki sófinn.

Má hundurinn fara inn í svefnherbergi. Margir kæra sig ekki um það.Því er best að kenna hundinum strax að hann stígur ekki inn fyrir þröskuldinn á herberginu.
Undantekningin verður þó að vera fyrstu næturnar á heimilinu, þar sem hann þarf nálægð ykkar. ( þá í búri).

Hafið bara reglurnar skýrar frá upphafi, og standið við þær.


2
)
 LÍTIL BÖRN.
Eru lítil börn á heimilinu. Það er geysilega mikilvægt að kenna börnum að umgangast hunda og virða þá. Hvernig á að strjúka þeim og hvernig á að leika við þá. Það er mjög áríðandi að kenna börnum það, að láta hundinn vera þegar hann sefur og borðar. Hafið alltaf auga á börnum þegar þau eru í kringum hunda. ALLTAF. Þótt megi ætla að hægt sé að treysta barni eða hundi 100% þá er það ekki málið. ALDREI SKILJA LÍTIL BÖRN EFTIR EIN MEÐ HUNDI.

Góð regla ætti að vera: Þegar hundurinn er í bælinu sínu,láttu hann þá vera. Þessi regla ætti að gilda um alla fjölskyldumeðlimi. Þegar hundurinn er í bælinu sínu, þá vill hann fá að vera í friði.

3
)
ÖRYGGI Á HEIMILINU
Leggist á gólfið heima hjá ykkur og athugið hvort einhverjar hættur eru á heimilinu fyrir hvolpinn. T.d. ófrágengnar rafmagnssnúrur. Trosnaðar rafmagnssnúrur. Eru einhverjar hættulegar plöntur. Hugsanlega þurfið þið að breyta innanhús decorationinni hjá ykkur meðan hvolpurinn er lítill. Hvolpurinn lítur á allt sem leyfilegt og skemmtilegt dót. Fjarlægja þarf allt brothætt úr hæð hvolpsins. Valt gólfskraut eins og blómavasar eða annað slíkt, getur valdið hvolpinum hættu.
Farið yfir garðinn hjá ykkur. Er öryggi hundsins tryggt.
MUNDU AÐ KENNA EKKI SAKLAUSUM HVOLPI UM ÞAÐ SEM ÞÚ ÁTT AÐ BERA ÁBYRGÐ Á!

4)
SVEFN OG MATAR AÐSTAÐAN

 Settu upp grindina/búrið nokkrum dögum áður en hvolpurinn kemur heim. Líka matar aðstöðuna. Þú gætir skipt um skoðun hvar þú viljir hafa þetta, þannig að það er betra að þú sért búinn að finna rétta staðinn áður en hvolpurinn kemur heim, því þú getur ruglað hvolpinn með þvi að vera að færa dótið hans eftir að hann er kominn á heimilið.
Vendu þig líka á að loka hurðum að þeim rýmum sem hvolpurinn á ekki að vera þvælast. Vendu líka börnin á að taka upp leikföngin sín og ganga frá þeim..........hvolpurinn lítur á allt sem sitt og er líklegur til að skemma þau ÓVART.

Best er að sækja hvolpinn til ræktandans fyrri part dags, svo hann hafi daginn til að aðlagast nýja heimilinu vel. Það getur verið erfitt að koma á nýtt heimili að kvöldi til og þurfa að fara beint að sofa.
Byrjaðu strax á því að láta hann pissa./beindu honum á þann stað í garðinum sem hann hefur leyfi til að losa úrgang. Farðu alltaf með hann á þennan stað til að kenna honum strax.
Reynið að hafa rólegheit þegar hvolpurinn kemur heim. Forðist galsa og læti. Þegar inn er komið, þá skuluð þið sýna hvolpinum hvar matar og svefnaðstaðan er....ekki er leiðinlegt að hafa nokkrar matarkúlur í dallinum. Leyfið svo hvolpinum að kanna sínar nýju heimaslóðir, í friði. Fylgist bara með honum að hann fari sér ekki að voða.
Hvolpar þreytast fljótt og þurfa að sofa mikið,því þeir eru að vaxa hratt. LEYFÐU HVOLPINUM AÐ SOFA ÞEGAR HANN ÞARF ÞESS.

5)
 MATURINN. EKKI SKIPTA UM MAT.
 (dont upset the stomache).
Hvolpurinn fær fasta fæðu frá 3-4 vikna. Við notum gæða fóður frá PROPAC. Það kostar að eiga hund, og góður matur er ekki ódýr.
Ekki spara í matnum. Þú getur lent í ofnæmi. Feldhruni, almennri vanlíðan, skelfilegum niðurgangi osfrv. PROPAC maturinn er á góðu verði.
Haldið ykkur við sömu matartíma og hjá ræktandanum. Hvolpurinn þarf að borða 3 x var á dag fyrstu mánuðina.

6)
 ÞAÐ ER SPENNANDI AÐ SÝNA NÝJA HVOLPINN SINN

Reynið að stýra heimsóknum til ykkar þegar hvolpurinn er nýkominn á nýja heimilið sitt. Passið að það séu ekki of margir í einu í heimsókn. Og ekki of lengi í einu. Hvolpur þreytist fljótt.
Það er sniðugt að venja hvolpinn við mismunandi útlit fólks. Fólk með gleraugu. Menn með skegg osfrv. Já skrýtin pæling...en engu að síður gagnleg. Laughing


Það þykir gott ráð að vera ekki að fara mikið út á meðal annarra hunda með hvolpinn fyrr en viku eftir seinni sprautuna.