Allar hundategundir glíma við ákv. vandamál. Í labrador er það mjaðmalos/olnbogalos, ofnæmi og augnsjúkdómar/PRA.
Mjaðmalos/olnbogalos getur verið ættgengt og áunnið.
Ræktandi parar saman foreldra með góðar mjaðmir og olnboga. Það eitt tryggir þó ekki að hundurinn geti ekki lent í losi.
Það skiptir miklu máli að fara vel með hundinn fyrsta árið. Forðast að hvolpurinn verði of þungur. Forðast álagsgöngur, og mikið hopp.
Algjört lykilatriði að láta hvolpinn EKKI fara upp og niður stiga. Já það þýðir að það þarf að halda á hvolpinum þar til þú hreinlega hefur ekki bak í það lengur.
Það er líka alveg nauðsynlegt að lyfta hvolpinum í og úr bíl fyrsta árið.
Ykkur finnst þetta kannski allt alveg ótrúleg þvæla.......en trúið mér,þetta skiptir máli, fyrir framtíðina.
Hvolpar geta lent í mjaðmalosi sem ganga á parketi eða hálum flísum,þar sem þeir ná illa fótfestu og renna til þegar þeir eru að standa upp, stöðva sig eða hlaupa. Ídeal gólfefnið fyrir hvolp, er teppi, en það er örugglega ekki mikið um það á Íslandi.
OFNÆMI.
Brúni liturinn virðist vera viðkvæmari fyrir matarofnæmi.....það þýðir! Engar tilraunir eða matarskipti. Haltu þig við matinn sem hvolpurinn var á hjá ræktandanum, og virtist þola vel. Ekki gefa mikið af aukabita eða hundanammi. Algjör óþarfi. Notaðu hundamatinn sem treat við þjálfun. Einkenni um matarofnæmi, eru kláði í húð. Útbrot í nárum og olnbogum og eyrnabólga.
Ég tek enga sénsa í mataræðinu. Nótt fær Propac tvisvar á dag og nú á meðgöngunni að auki,grænt kál, smávegis af gulrótum,agúrkur, kjúklingabaunir, kjúkling og hrísgrjón.
AUGNSJÚKDÓMAR.
Alvarlegasti augnsjúkdómurinn er PRA. Progressive Retinal Atrophy. Arfgengur sjúkdómur sem leiðir til blindu.
Nótt er PRA frí og Henry er PRA frír.....það þýðir að hvolparnir bera ekki genin.