VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

  Það er auðvitað frábært að koma til ykkar, finnst maður strax svo velkominn. Áður en ég kom var ég eins og þú veist búin að marg skoða og lesa bloggið þitt og þá strax vissi maður og hreinlega fann fyrir umhyggjunni í garð hundanna ykkar, svo greinilegt að þið eruð í þessu af lífi og sál. Aðstaðan finnst mér til fyrirmyndar, allt svo hreint og snyrtilegt. Ég hef komið inn í hús (hjá góðri vinkonu sem er mjög snyrtileg) þar sem voru fallegir hvolpar en mann langaði ekki til að knúsa þá því lyktin var svo svakalega vond og ekki nægilega oft skipt um pappír hjá þeim greyjunum þannig að þeir voru svo skítugir og illa lyktandi. Þetta skiptir máli. Þið hugsið um ykkar kríli eins og þau væru börnin ykkar. Það veitir manni líka öryggi að sjá að það er vel hugsað um þá og að þeir fá svo mikið knús. Nótt er ein fallegasta tík sem ég hef séð og pabbinn virðist líka mjög fallegur séð af myndum og ekki er hægt að halda annað en að hvolparnir verði geggjaðir miðað við fyrra got. Ég hef kannski ekki nógu mikið vit á hinni og þessari ræktun og satt best að segja aldrei haft áhuga á hundasýningum EN eftir að hafa gruflað og skoðað og séð stoltið sem skín úr augunum þínum þegar þú talar um Nótt og hvernig hún hefur staðið sig á sýningum þá er ekki laust við það að mig langi til að Donnan mín taki þátt í framtíðinni - held að það yrði bara gaman. Efast ekki um að ég fengi hjálp frá þér!!

Ég veit ekki hvað ég á að segja meira í bili nema að bloggsíðan er mjög góð og nauðsynlegt að fá að fylgjast svona vel með fallegustu hvolpum í heimi.

 Ríkey Ferdinandsdóttir



DagsetningNafnBirt?Aðgerð
Alls fundust 151 færslur
01.11.09 11:11 Kristín Benediktsdóttir   Eyða
Góðan daginn gott fólk

Miig langar til þess að deila með ykkur hvað við erum ánægð með Valshamarsræktunina.

Það er allt til fyrirmyndar hjá ykkur alveg sama hvar maður drepur niður :)

Aðstaðan er hreint frábær, það fer rosalega vel um hvolpana þar sem þeir eru.

Svo eru þeir svo rólegir og yfirvegaðir sem sýnir að þeir eru í mjög góðu jafnvægi og að einnig

er hugsað svo vel um þá, hreinlætið er algjörlega 100 %

Síðan spillir ekki fyrir viðmótið sem maður fær þegar maður kemur, alltaf tekið á móti manni með hlýju og alúð.

Vorum búin að leita mikið og skoða þegar við fundum ykkur (Valshamars ) og erum rosalega ánægð, gætum ekki verið heppnari þó víða væri leitað.

Einnig erum við mjög ánægð með það hvernig þeir eru afhentir, ss Ættbókarfærðir heilsufarsskoðaðir og bólusettir fyrstu bólusetningu. Með líf,sjúkdóma og slysatryggingu í eitt ár, og start pakka með leikföngum og mat frá PROPAC.


Mæli 100% með öllu sem viðkemur Valshamars Ræktuninni.


Kveðja Kristín,Gunnar og fjölskylda Sandgerði.

Við höfðum samband við Berglindi hjá Valshamarsræktun fyrir tæpu ári vegna
þess að okkur leist svo rosalega vel á Nóttina hennar og sáum hversu vel
hafði gengið hjá þeim í síðasta goti, ótrúlega flottir hvolpar.
Við gætum ekki verið ánægðari með okkar val á ræktanda. Öll samskipti
frábær, aðstaðan flott, og reglulegar fréttir af hvolpunum gera biðina eftir
Prinsinum okkar styttri:) Virkilega skemmtilegt að fá að fylgjast svona vel
með öllu ferlinu og við getum ekki annað en dáðst að því hversu vel hefur
verið staðið að þessu hjá þeim.
Við erum bara mjög lukkuleg með þetta allt saman og getum ekki beðið eftir
því að fá Prinsinn heim:)

Elísabet Anna Jónsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson

 

"Við fengum okkur yndilegan hvolp en upplifunin var kannski enn betri því að ræktandinn hún Berglind var okkur alveg frábær.  Við fengum miklar og ítarlegar leiðbeiningar hvernig bæri að umgangast hvolpinn, og allt sem þú þarft að vita þegar þú tekur svona stóra ákvörðun.  Þar fyrir utan var alltaf mjög notalegt að koma því aðstaðan er alveg frábær.  Ekki skemmir fyrir að það er alltaf heitt á könnunni og maður fann sig alltaf mjög velkomin í heimsókn að skoða litla skottið sitt.  Valshamars ræktun er eitthvað sem við mælum hiklaust með enda þar greinilega fagfólk á ferð." 

kær kveðja - okkur hlakkar svo til á laugardaginn.... 

SS.